Morgunblaðið - 09.08.1983, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
41
fólk í
fréttum
Söngvakeppni Evrópu:
Enginn vill hlusta
á sigurvegarann
Manstu eftir henni Corinne Her-
mes, stúlkunni, sem bar sigur úr být-
um í söngvakeppninni í vor? Nei,
líklega ekki, og þannig er um flesta
aðra. Corinne er nú gleymd og graf-
in aðeins örfáum mánuðum eftir að
hún virtist standa á þröskuldi frægð-
arinnar.
Corinne til sárra vonbrigða hef-
ur henni ekki tekist að fá endur-
nýjaðan samning sinn við plötu-
fyrirtækið og er ástæðan sú, að
sigurlagið frá í vor, „Si la vie est
cadeau", nýtur svo lítilla vinsælda,
að það er ekki einu sinni leikið í
útvarpstöðvum í Evrópu, nema
helst í Frakklandi og Luxemborg.
„Kampavínið, sem við keyptum
til að halda upp á sigurinn, kost-
aði okkur meira en það sem við
höfum fengið inn fyrir plötuna,"
segir nú talsmaður plötufyrirtæk-
isins.
Venjulega geta sigurvegarar (
söngvakeppni Evrópu gert sér
vonir um að vera í sviðsljósinu í að
minnsta kosti eitt ár eftir keppn-
ina og sumir hafa gert það miklu
betra, t.d. Abba, Bucks Fizz og
Nicole (Ein Bisschen Frieden).
Draumurinn virðist hins vegar
vera endanlega búinn fyrir Cor-
inne Hermes og raunar hafa fáir
mikla vorkunn með henni.
Meðan á atkvæðagreiðslunni
stóð í keppninni mátti sjá að Cor-
inne tók því óstinnt upp ef eitt-
hvert land gaf henni ekki nógu
mörg stig og hún tekur sjálfa sig
mjög hátíðlega. Eftir sigurinn var
hún svo stór upp á sig, að hún
svaraði ekki einu sinni spurning-
um fréttamanna, enda er svo kom-
ið að hún er ekki spurð að einu eða
neinu.
Corinne Hermes fagnar sigrinum í söngvakeppninni.
„The Who er elcki til lengur,“ eeg-
i’r Pete Townsend.
„Who“ búin að vera
Breska hljómsveitin „The Who" má nú heita endanlega úr sögunni. öllu
hljómleikahaldi hefur veriö aflýst og allir þeir, sem starfaö hafa fyrir
hljómsveitina, fengu reisupassann í síöasta mánuöi.
„The Who er ekki lengur til og þaö veröa ekki framar neinir hljómleikar
meö henni. Nú hef ég aöeins á prjónunum aö hjálpa því fólki, sem mér er
kærast, hvort sem þaö eru tónlistarmenn eöa vinir mínir, sem eiga í
erfiöleikum," sagöi Pete Townsend, sem lengi hefur veriö aðalmaður
hljómsveitarinnar.
COSPER
1 ... 2 ... 3 ..., nú fela sig allir bakvið tré.
GR JOTGRINDUR
Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA
Enim sértiæfðlr i FIAT og CITROEN
BIFREIÐA
SKEMMUVEGI 4
KOPAVOGI
CVERKSTÆÐIÐ
nastos
1503 1983
Árið 1503 kom fyrsti hverfisteinninn til islands og kostaði þá jafnvirði
kýrverðs. Árið 1983 framleiða þeir hjá SCANSLIB rafmagnsdrifna vatns-
hverfisteina (sá fyrsti var fótstiginn) sem þrátt fyrir verðbólgu, kreppu og
annan óáran kostar aðeins '/« kýrverðs.
Þeir fást í þremur stærðum, 220 V, snúningshraði 120/240 sn. á mfn.,
gefa sérlega skarpa egg, og fara vel með verkfæri. Snúast bæði afturábak og
áfram — og auðvelt er að þrlfa þá. Tilvalið fyrir: VerkstaBði — fiskvinnslu —
landbúnað — hótel — heimili og skóla.
Hafið samband við okkur
og leitió upplysinga
r r
VÉLAVERSLUN
Grensásvegi 12,
108 Reykiavik. - * 91-85840
Jámsmidavólar - Stálmnréttingar
Fyrir verkstæói, birgfta- og vörugeymskjr
GRLRNT