Morgunblaðið - 20.09.1983, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1983
Peninga-
markaðurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 174 — 19. SEPTEMBER
1983
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala fjengi
1 Dollar 27,980 28,060 28,130
1 SLpund 41,967 41,991 42,111
1 Kan. dollar 22,686 22,751 22,857
1 Donskkr. 2,9195 2,9279 2,9237
1 Norsk kr. 3,7734 3,7842 3,7695
1 Scnsk kr. 3,5571 3,5673 3,5732
1 Fi. mark 4,9131 4,9271 4,9075
1 Fr. franki 3,4685 3,4784 3,4804
1 Belg. franki 0,5192 0,5207 0,5286
1 Sv. franki 12,9163 12,9533 12,8859
1 Holl. gyllini 9,3720 9,3988 9,3767
1 V-þ. mark 10,4831 10,5131 10,4963
1 Íl líra 0,01750 0,01755 0,01758
1 Austurr. sch. 1,4911 1,4953 1,5047
1 Port escudo 0,2255 0,2262 0,2281
1 Sp. peseti 0,1839 0,1844 0,1861
1 Jap. ;en 0,11507 0,11540 0,11427
1 írskt pund 32,844 32,938 33,207
Sdr. (SérsL
dráttarr.) 15/09 29,4102 29,4942
1 Belg. franki 0,5071 0,5086
v V
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur..............42,0%
2. Sparisjóðsreikningar, 3 mán.1*.45,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 1*... 47,0%
4. Verötryggðir 3 mán. reikningar.0,0%
5. Verðlryggðir 6 mán. reikningar. 1,0%
6. Ávisana- og hlaupareikningar...27,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innslæöur i dollurum....... 7,0%
b. innstasður í sterlingspundum. 8,0%
e. innstæður í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæður í dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir... (32,5%) 38,0%
2. Hlaupareikningar ... (34,0%) 39,0%
3. Afuröalán ........... (29,5%) 33,0%
4. Skuldabréf ............ (40,5%) 47,0%
5. Vísitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 6 mán. 2,0%
b. Lánstími minnst 2% ár 2,5%
c. Lánstími minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán...........5,0%
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 200 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundiö með
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstimi er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurlnn stytt lánstímann.
Liteyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild að
lífeyrissjóðnum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast vlö lánlö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aölld aö
sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuóstól leyfi-
legrar lánsupphæöar 5.000 nýkrónur á
hverjum árstjóröungi, en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæöin oröin
300.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast viö 2.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líöur. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæðin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir ágúst 1983 er
727 stig og er þá miöaö viö vísitöluna
100 1. júní 1979.
Byggingavíaitala fyrir júlí er 140 stig
og er þá miöaö viö 100 í desember
1982.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Sterkurog
hagkvæmur
auglýsingamióilll
Hljóðvarp kl. 17.05:
Spegilbrot —
Bruce Springsteen
„Þátturinn að þessu sinni fjallar
um göturokkarann Bruce Spring-
steen, eða „The Boss“ eins og
hann er oft nefndur af kunningj-
um sínum,“ sagði Snorri Guðvarð-
arson, en hann er umsjónarmaður
þáttarins Spegilbrot, ásamt Bene-
dikt Má Aðalsteinssyni.
„Bruce Springsteen var fædd-
ur árið 1949 í smábænum Free-
hold, sunnan við New York.
Hann hélt snemma til Asbury
Park og spilaði þar á kaffihús-
um. Ekki gekk honum nógu vel
og fór hann til vesturstrandar-
innar, gekk ekkert þar heldur og
sneri aftur heim. Þar kynntist
hann Jon Landau og að lokum
fóru hjólin að snúast honum í
hag. Bruce Springsteen hefur
gefið út sex plötur, sú fyrsta
„Greetings from Asbury Park“
kom út árið 1973.
Inn i þáttinn blöndum við
frásögnum af þessum tónlist-
armanni og leikum lög hans,“
sagði Snorri að lokum.
Spegilbrot er á dagskrá út-
varpsins kl. 17.05 í dag, en þátt-
urinn er sendur út frá RÚVAK.
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra
Sigtryggur Jónsson, frá Samtökum
um úrbætur í húsnæðismálum.
Hljóðvarp kl. 22.35:
Vandi húsbyggjenda
„Vandi húsbyggjenda" nefnist
þáttur þeirra Ernu Indriðadótt-
ur og Rafns Jónssonar, sem
verður á dagskrá útvarpsins kl.
22.35 í kvöld. I þættinum fjalla
þau um vandamál sem blasa við
húsbyggjendum í dag og ræða
við Sigtygg Jónsson frá Samtök-
um um úrbætur í húsnæðismál-
um og Alexander Stefánsson, fé-
lagsmálaráðherra. Einnig geta
hlustendur hringt í þáttinn og
borið fram fyrirspurnir.
Sjónvarp kl. 22.05:
Pyntingarstofnanir KGB —
sovésku leyniþjónustunnar
„Pyntingarstofnanir KGB
— sovésku leyniþjónustunn-
ar“ nefnist bresk heimildar-
mynd sem er á dagskrá sjón-
varpsins kl. 22.05 í kvöld. í
myndinni, sem byggir mikið
á frásögnum þeirra sem gist
hafa geðsjúkrahús í Sovét-
ríkjunum, er m.a. skýrt frá
því að um 6000 andlega heil-
brigðir sovéskir borgarar séu
í geðsjúkrahúsum KGB
vegna pólitískra, féiagslegra
eða trúarlegra skoðana.
Þetta fólk er þvingað með
lyfjagjöfum, eða pyntingum
til að láta af skoðunum sem
stjórnvöldum þykja óæski-
legar.
Mikið af því efni og heim-
ildum sem stuðst er við í
þættinum hefur verið smygl-
að frá Sovétríkjunum. Þátt-
urinn er þrjátíu mínútna
langur. Þýðandi og þulur er
Gylfi Pálsson.
Útvarp Reykjavík
ÞRIÐJUDbGUR
20. septcmber
MORGUNNINN
7.00 Vcðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynn-
ir. 7.25 Leikfinii. Tónleikar.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur Erlings Sigurðarsonar
frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir.
Morgunorð — Karl Benedikts-
son talar. Tónleikar.
8.40 Tónbilið
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sagan af Frans litla físka-
strák“ eftir Guðjón Sveinsson.
Andrés Sigurvinsson les (11).
9.20 Lcikfími. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. landsmálabl. (útdr.).
Tónleikar.
10.35 „Áður fyrr á árunum“
Ágústa Björnsdóttir sér um
þáttinn.
11.05 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja
11.30 Úr Árnesþingi
llmsjón: Gunnar Kristjánsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa — Páll Þor-
steinsson.
SÍDDEGID_________________________
14.00 „Ég var njósnari" eftir
Mörthu McKenna. Hersteinn
Pálsson þýddi. Kristín Svein-
björnsdóttir les (11).
Þriðjudagssyrpa, frh.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
Blásarakvintett Tékknesku fíl-
harmóníusveitarinnar leikur Di-
vertimento op. 37 eftir Malcolm
Arnold og Sónatínu eftir Michal
Spisak. / Tátrai-kvartettinn
leikur Strengjakvartett nr. 2 op.
17 eftir Béla Bartók.
17.05 „Spegilbrot“
Þáttur um sérstæða tónlistar-
menn síðasta áratugar. Umsjón:
Snorri Guðvarðsson og Bene-
dikt Már Aðalsteinsson
(RÚVAK).
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
KVOLDID
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn
í kvöld segir Gunnvör Braga
börnunum sögu fyrir svefninn.
20.00 Sagan: „Drengirnir frá
Gjögri" eftir Bergþóru Pálsdótt-
ur. Jón Gunnarsson les (6).
20.30 Norræna tónlistarhátíðin í
Stokkhólmi 1982
Einleikaratónleikar í Grtine-
wald-tónlistarhöllinni 28. sept.
a. „Dúó, first performance“
Ivrir óbó og píanó eftir Ólaf
Oskar Axelsson. Sigríður Vil-
hjálmsdóttir og Snorri Sigfús
Birgisson leika.
b. „Duo“-sónata eftir Olaf A.
Thommesen, og Sónata í F-dúr
op. 99 eftir Johannes Brahms.
Truls Otterbech Mörk og Rei-
dun Askeland leika saman á
selló og píanó.
c. Óbósónata eftir Camille Sa-
int-Saens. Sigríður Vilhjálms-
dóttir og Snorri Sigfús Birgis-
son leika.
2) .40 Útvarpssagan: „Strætið" eft-
ir Pat Barker. Erlingur E. Hall-
dórsson les þýðingu sína (17).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Vandi húsbyggjenda
Þáttur í umsjá Rafns Jónssonar
og Ernu Indriðadóttur.
23.15 Sinfónía nr. 93 í D-dúr eftir
Joseph Haydn
Sinfóníuhljómsveit finnska út-
varpsins leikur. Leif Segerstam
stj. (Hljóðritun frá útvarpinu í
Helsinki. Framhaldi þessara
tónleika verður útvarpað 21.
þ.m.)
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
20. september
1.45 Fréttaágrip á táknmáii
1.00 Fréttir og veður
1.25 Auglýsingar og dagskrá
1.35 Snúlli snigill og Alli álfur
Teiknimyndaflokkur fyrir börn.
1.40 Tölvurnar
2. þáttur. Breskur fræðslu-
myndaflokkur í tíu þáttum um
örtöivur, notkun þeirra og áhrif.
Þýðandi Bogi Arnar Finnboga-
son.
.15 Tvfsýnn leikur
Annar hluti. Breskur sakamála-
inyndaflokkur í þrcmur þðttum
gerður eftir skáldsögunni
„Harry’s Game“ eftir Gerald
Seymour.
I fyrsta þætti myrti írsku
hryðjuverkamaður breskan ráð
herra. Harry Brown höfuðsmað
ur er sendur til Belfast til ai
hafa uppi á morðingjanum. I*ýð
andi Jón O. Edwald.
22.05 Pyntingastofnanir KGB -
sovésku leyniþjónustunnar
Ný, bresk heimildarmynd, ser
styðst m.a. við frásagnir þeirr;
sem gist hafa geðsjúkrahús
Sovétríkjunum. Þar er heilbrig
fólk haft í haldi og þvingað mei
pyntingum og lyfjagjöf til ai
látp af skoðunum sem stjórn
völdum þykja óæskilegar. Þýð
andi og þulur Gylfi Pálsson.
22.35 Dagskrárlok.