Morgunblaðið - 20.09.1983, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1983
„Eigum eftir að eflast meira“
sagði Peter Shilton eftir stórsigur Southampton
WEST Ham tapaöi sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu er liðið heim-
sótti West Bromwich Albion á laugardag, en liðið hafði unnið alla leiki
sína fram að þessu. Einu taplausu liðin eru því nú meistarar Liverpool
og Southampton. Liverpool sigraði Aston Villa 2:1 á Anfield, og South-
ampton vann stóran sigur á Manchester United — 3:0, á The Dell. West
Ham er enn efst í deildínni, en Southampton og Liverpool eru Jðfn í
öðru sætinu. Southampton þó með betra markahlutfall. Liðið hefur
aöeins fengið á sig eitt mark í leikjunum sex, og Peter Shilton sá til
þess á laugardag að þau yrðu ekki fleiri í bili: varöi oft frábærlega í
leiknum við United.
„Við erum með frekar fámennan
hóp, en það býr mikið í honum og
við eigum effir að eflast enn meira.
Þegar við erum undir pressu —
eins og í leiknum i dag — höfum
við sýnt aö við getum heldið hreinu
og það er mikils viröi. Það standa
allir mjög vel saman hjá félaginu
nú," sagöi Peter Shilton, mark-
vörður Southampton og enska
landsliðsins, eftir leikinn á laugar-
dag í samtali við AP-fréttastofuna.
Williams með tvö
Steve Williams skoraði tvö mörk
fyrir Dýrlingana á fyrstu sautján
mín. leiksins. Síðara markið var
gullfallegt: fast snúningsskot beint
úr aukaspyrnu framhjá varnarvegg
United. Peter Shilton varöi nokkr-
um sinnum sérstaklega vel er
Manchester-liðiö kom meira inn í
myndina — en í seinni hálfleiknum
greip örvæntingin um sig í liði
gestanna og Southamtpon bætti
marki viö í einni af skyndisóknum
sínum. Það var David Armstrong
sem geröi þriöja markiö með
skalla eftir fyrirgjöf Nick Holmes
ellefu mín. fyrir leikslok. Áhorfend-
ur: 20.674.
Sorglegur afmælisdagur
Mark Garry Thompson á 87.
mín. leiksins gegn West Ham kost-
aði Lundúnaliðið sitt fyrsta tap á
tímabilinu. Sérstaklega voru úrslit-
in sorgleg fyrir Billy Bonds, fyrirliöa
West Ham, en hann hélt á laugar-
daginn upp á sinn 37. afmælisdag.
Trevor Brooking mistókst að
stöðva Barry Cowdrill á hægri
vængnum, Cowdrill stakk hann af
og sendi fyrir markið þar sem
Thompson stökk hæst allra og
skallaði í netið. West Ham náöi
aldrei að leika eins vel og liöið hef-
ur gert í undanförnum leikjum og
var liðið heppiö aö tapa ekki
stærra. Áhorfendur voru 15.161.
Walsh hálsbrotinn?
Colin Walsh, sem valinn var í
landsliöshóp Skotlands gegn
John Barnes er í fínu formi þessa
dagana, og hann gerði tvö mörk
fyrir Watford um helgina. Þessi
frábæri leikmaður er ein af fram-
tíðarstjörnum enska landsliösins.
Ungverjum á morgun, skoraöi
glæsilegt „hat-trick“ fyrir Forest
gegn Norwich, meiddist er hann
skoraöi þriðja markið á 65. min.
með fljúgandi skalla. Hann var
borinn af velli, og lék grunur á að
hann hefði hálsbrotnaö — en þaö
eru ein verstu meiðsl sem hugsast
geta fyrir knattspyrnumann. Keith
Bertschin og John Deehan komu
Norwich tvívegis yfir í fyrri hálfleik
en Walsh jafnaði í bæði skiptin.
Áhorfendur voru 15.017.
Þrátt fyrir hrakspár Coventry til
handa fyrir keppnistímabilið er liö-
iö nú i sjötta sæti deildarinnar eftir
sigur á Leicester. Lífið hefur reynst
nýliðunum erfitt í 1. deildinni og
liðið hefur tapað öllum sex leikjum
sínum. 12.377 áhorfendur sáu
Nicky Platnauer skora fyrir Cov-
entry í fyrri hálfleik, Terry Gibson
bæta öðru við og Gary Lineker
gera eina mark Leicester.
250. leikur Dalglish
Kenny Dalglish hélt upp á sinn
250. leik meö Liverpool með því að
skora í 2:1 sigri Liverpool á Villa.
Leikmenn Villa höfðu varist frá-
bærlega vel kröftugri sókn meist-
aranna þar til Dalglish náöi aö
skora á 74. mín. lan Rush skoraöi
svo annað mark meistaranna sex
mín. síðar með föstu lágskoti af 25
m færi. Colin Gibson minnkaði
muninn á 84. mín. Öll mörkin skor-
uð seinni hlutann — og á síöustu
mínútunni var Steve McMahon,
sem Villa keypti í haust frá Ever-
ton, rekinn út af eftir aö hafa lent
saman viö Graeme Souness.
Áhorfendur: 34.246.
Ipswich tapaöi sínum fyrsta leik
í vetur og paö var Howard Gayle
sem tryggði Birmingham stigin
þrjú með marki á 62. mín. meö
stórglæsilegu marki. Fast skot
hans af 20 metra færi söng í net-
inu. Birmingham yfirspilaöi Ipswich
lengst af í heldur slökum leik, en
Ipswich stal næstum stigi í lokin er
skalla frá Paul Mariner var bjargað
á línu og Kevin O'Callaghan átti
skot í stöng. Áhorfendur: 13.159.
Barnes í stuöi
John Barnes átti stórleik með
Watford gegn Stoke og skoraði
tvö mörk. Þrátt fyrir tap í Þýska-
landi í UEFA-keppninni í miðri viku
voru leikmenn Watfordf hinir
hressustu og lék liöið stífan sókn-
arleik. Jan Lohman, fyrirliði liösins,
og Richard Jobson skoruöu hin
mörk liðsins. 12.691 manns sáu
leikinn. Stoke hefur nú fengiö á sig
níu mörk í tveimur leikjum án þess
að ná að svara fyrir sig.
Paul Walsh, einn efnilegasti leik-
maður í Englandi um þessar
mundir, kom Luton á sporið gegn
Wolves, á 23. mín. Hin mörkin
gerðu Brian Stein á 51. min., og
Brian Horton skoraöi tvö mörk, á
63. og 77. mtn. Áhorfendur voru
10.975.
Hoddle og Brazil ekki meö
Keith Burkinshaw, stjóri Tott-
enham, stillti upp óbreyttu liði frá
því í 6:0 sigrinum í miöri viku í ir-
landi, og voru þeir Alan Brazil og
Glenn Hoddle því ekki meö. En lið-
ið virðist ekki geta náö sér á strik í
deildinni. Peter Reid og Kevin
Sheedy komu gestunum 2:0 yfir í
fyrri hálfleik en í seinni hálfleiknum
minnkaði Mark Falco muninn. Sig-
ur Everton var mjög sanngjarn.
Áhorfendur á White Hart Lane
voru 29.125.
Nicholas meiddist
Loks kom sigur hjá Arsenal. Eft-
ir þrjá tapleiki í röö sigraði liðið nú
Notts County 4:0 á útivelli. Gra-
ham Rix skoraði fyrsta markið eftir
aðeins 27 sekúndur. David Hunt
skoraði svo sjálfsmark á 22. mín.
Charlie Nicholas haltraði af velli
snemma í seinni hálfleik, en Brian
Talbot, sem kom inn á í hans staö,
skoraöi þriðja markið eftir aö Pat
Jennings í Arsenal-markinu haföi
þrívegis variö snilldarlega. Tony
Woodcock gerði fjórða markið.
Áhorfendur: 10.217.
John Gregory sýndi engin snilld-
artilþrif á Loftus Road þar sem
enski landsliöseinvaldurinn Bobby
Robson var meðal áhorfenda. Úr-
slitin gefa engan veginn rétta
mynd af leiknum, því Sunderland
lék býsna vel. Terry Fenwick skor-
aöi fyrsta markið úr mjög vafa-
sömu víti á 36. mín. og viö þaö
brotnuðu Sunderland-leikmenn-
irnir. Simon Stainrod og Clive All-
en geröu hin mörk QPR. 12.929
áhorfendur voru á leiknum.
Morgunblsðið/Símamynd AP.
Jim Arnold, markvörður Everton, gríprr hér örugglega inn í leikinn viö
Tottenham ó White Hart Lane á laugar„ iginn. Hann hefur þarna stokk-
iö upp á Garth Crooks.
Markahæstu menn
DAVE Swindlehurst hjá West
Ham er enn markahæstur í 1.
deildinni, hefur skorað sex mörk.
John Barnes, Watford, er næstur
með fimm mörk en hann gerði
tvö um helgina.
Síöan koma fjórir kappar meö
fjögur mörk: Eric Gates og Paul
Mariner frá Ipswich, lan Rush, Liv-
erpool og Simon Stainrod, Queen
Park Rangers.
I annarri deild hefur Kerry Dix
on, Chelsea, örugga forystu
keppninni um markakóngstitilinn
hefur þegar gert niu mörk. Marl
Lillis, Huddersfield, hefur gert se:
og Simon Garner, Blackburn, o<
lan Tolmie , Manchester City, eri
báöir meö fimm.
• Kenny Dalglish lók sinn 250. leik meö Liverpool og hélt upp é
daginn með því aö skora fyrra mark liðsins gegn Aston Villa.
Meiósli Ardiles tóku sig upp:
Verður líklega
skorinn upp
OSVALDO Ardiles, Argentínu-
maðurinn hjá Tottenham, lék á
laugardag með varaliði félags-
ins í Ipswich, en eftir 27 mín.
varð hann að yfirgefa völlinn er
hann fékk spark í vinstri legg-
inn en meiðsli í honum hafa
veriö að angra hann undanfarn-
ar vikur.
Leikurinn var talinn skipta öllu
máli fyrir Ardiles, og Keith Burk-
inshaw, framkvæmdastjóri liðs-
ins, sagöi í samtali viö AP: „Nú
veröum við að hugsa alvarlega
um að láta skera hann upp. Við
getum ekki haldiö svona áfram."
Forráðamenn félagsins hafa ekki
viljað að Ardiles gengi undfr upp-
skurð hingaö til — heldur von-
uöu peir aö hann næði sér að
fullu með hvíld. Nú eru litlar likur
á að þaö verði.