Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 4

Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 4
52 MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 Stefna Sovétmenn að stórkostlegra náttúruslysi en áður hefur þekkst? ÞRIÐJA stærsta innhaf veraldar, Aralvatn í Mið- Asíuhluta Sovétríkjanna, er að hverfa. Ef ekkert verður að gert verður það horfið innan ekki langs tíma með hörmulegum afleiðingum fyrir iandið og fólkið, sem býr á þessum slóðum. Stjórnvöld í Sovétríkjunum virðast ófær um að snúa þróuninni við og raunar hafa þau á prjónunum ann- að náttúruslys enn ægi- legra. Þau hafa lengi gælt við þá hugmynd að beina síberísku fljótunum, sem renna í Norðuríshafið, í suðurátt og nota vatnið til áveitu en afleiðingarnar af því gætu orðið skelfilegar, ekki aðeins fyrir Sovét- menn sjálfa, heldur einnig fyrir Norðurlönd og allt líf- ríkið á norðurhveli jarðar. Til að auka afrakstur jarðar- innar í Sovétlýðveldunum Kasakstan, Turkmenistan og Uzbekistan hafa verið gerðar gríðarmiklar áveitur og vatnið er tekið úr fljótunum, sem renna í Aralvatn. Svo mikil er vatns- notkunin, að mörg eru orðin þurr áður en að ósnum er komið. Þar sem áður var 20—25 metra djúpt vatn er dýpið nú hálfu minna og sums staðar hefur flaeðarmálið færst til um allt að 60 km. Eftir situr víðáttumikil saltslétta og grunnvatnsborðið hefur lækkað svo mjög, að veru- legar breytingar hafa orðið á jurta- og dýralífi. Þetta náttúruslys var nýlega gert að umtalsefni í vikublaðinu Moscow News og viðtal haft við rithöfundinn Abdizhamil Nurp- eisov. Þar kemur fram, að menn hafi vitað að hverju stefndi fyrir langa löngu en standi samt ráð- þrota frammi fyrir vandamál- inu. Landbúnaðurinn á þessum slóðum og fólkið, sem þar býr, getur ekki án áveituvatnsins verið en stafar um leið stórkost- leg hætta af örlögum Aralvatns. Þegar vatnið gufar upp, situr saltið eftir, kristallast og fýkur á brott með vindinum. Þess vegna er það nú á góðri leið með að eyðileggja akrana, sem vökvaðir eru með vatni, sem með réttu til- heyrir Aralvatni. Þar sem áður voru grænar grundir og gott beitiland meðfram vatninu eru nú aðeins saltauðnir og fiskveið- arnar eru úr sögunni. Hópur sérfræðinga frá sov- ésku vísindaakademíunni hefur gert skilmerkilega grein fyrir þeim hörmulegu afleiðingum fyrir náttúruna, sem uppgufun Aralvatns hefur í för með sér. Aðrir tala um óhjákvæmilega kreppu en hvergi er ýjað að nokkurri lausn. Um áratugaskeið hafa Sovét- menn gengið miskunnarlaust á auðlindir náttúrunnar og í við- talinu við Nurpeisov segir hann, að „við erum eins og börn, sem ekki kunna að meta það, sem þau eiga“. Ráðist er í miklar fram- kvæmdir án þess fólk fái nokkuð til málanna að leggja og allt, sem almenningi er uppálagt, er að hrópa húrra fyrir því, sem rikisfjölmiðlarnir kalla „stór- kostleg brautryðjendaverk". Opin umræða er ekki til og þær fáu gagnrýnisraddir, sem heyr- ast, ná ekki út fyrir þröngan hóp vísindamanna og pólitíkusa. Aralvatn er að hverfa með hörmulegum afleiðingum en ef þeim áœtlunum verður hrundið í framkvœmd að snúa við rennsli fljótanna, sem renna í Norður- íshaf verður útkoman e.t.v. alvarleg veðurfarsbreyting á norðurhveli jarðar Þetta á t.d. vel við um þær hugmyndir, sem nú hafa verið á döfinni í rúman áratug. Það er að segja að snúa við rennsli nokkurra fljóta í Síberíu. Þau renna nú í Norðuríshafið en með stærri stíflum en áður hafa þekkst er unnt að beina rennsli þeirra í suðurátt til vatnslitiila svæða. Reiknað hefur verið út, að ef þetta tekst, er unnt að rækta korn á stórum svæðum í Mið-Asíu, sem hingað til hafa ekki verið til kornræktar fallin, og auk þess bæta Aralvatni upp vatnsmissinn og Kaspíahafi líka, en vatnsborð þess hefur einnig lækkað um nokkra metra. Þessar fyrirhuguðu fram- kvæmdir hafa sætt gagnrýni ýmissa vísindamanna í Sovét- ríkjunum og erlendis. Þeir óttast nefnilega, að verulegar breyt- ingar geti orðið á hitastigi og seltu sjávarins í Norðuríshafi og það leiði svo aftur til alvarlegra veðurfarsbreytinga, ekki bara í Sovétríkjunum heldur einnig á Norðurlöndum og annars staðar á norðurhvelinu. Enginn utan Sovétríkjanna veit á hvaða stigi þessar áætlan- ir eru en eftir óstaðfestum upp- lýsingum, sem fengust í Moskvu í fyrra, hafa nú þegar farið fram undirbúningsframkvæmdir við fljótið Sutsjona, sem er í 600 km fjarlægð í norðaustur frá Moskvu. Þetta á að hafa komið fram í bréfi til Brezhnevs, þáver- andi leiðtoga, frá ýmsum sovésk- um vísindamönnum, sem mót- mæltu þessum framkvæmdum. Fyrir einu ári sagði Tass- fréttastofan frá því, að gervi- tunglum hefði verið komið á braut um jörðu til að finna forna árfarvegi á því svæði, sem fljótin Ob og Jenisei renna um. Það sýnir ljóslega, að ráðamenn í Sovétríkjunum stefna enn að því að snúa við stórfljótunum, sem renna í norður, og guð einn veit hvað annað mun snúast við um leið. SS (Heimild: Aftenposten) TILBOÐ TIL MÁNAÐAMÓTA ATH.: Ný og endurbætt þjónusta :tP Nú getur þú fengið springdynu sem hentar \ þér nákvæmlega. ........................................ Komdu á Smiöjuveginn til okkar og láttu okkur finna út hvaö hentar þér því þaö er mikið atriði aö dýnan henti þér nákvæmlega til þess aö þú fáir fullkomna hvíld og endurnýist á hverri nóttu. góö dýna þýöir fallegra vaxtarlag Einnig gerum við upp gömlu dvnuna ef hægt er. Sækjum að morgni, skilum að kveldi. DÝNU- OG BÓLSTUGERÐIN, Smiöjuvegi 28, Kópavogi. Sími 79233. / Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Reykja- nesbraut frá Vífilsstööum að Hafnarfirði annars vegar og Vesturlandsveg í Leirársveit hins vegar. Helstu magntölur eru: 1. Reykjanesbraut: Fylling og burðarlag 63.000 rúmmetrar. Malbik 31.600 fermetrar. Regnvatnslagnir 1.000 metrar. Kantsteinar 2.400 metrar. Verkinu skal lokið 1. september 1984. 2. Vesturlandsvegur: Fylling og burðarlag 91.400 rúmmetrar. Verkinu skal lokiö 20. júní 1984. Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vega- gerðar ríkisins, Borgartúni 5, 105 Reykjavík, fyrir bæði útboðin og á afgreiðslu Vegagerðar ríkisins, Borgarbraut 66, 310 Borgarnesi, fyrir Vestur- landsveg frá og með 17. október 1983 gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Skila skal tilboði í lokuðu um- slagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar ríkisins fyrir kl. 14.00 hinn 31. október 1983 og verða þau opnuð sama dag kl. 14.15. Reykjavík, í október 1983. Vegamálastjóri. V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.