Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 6

Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 Mikilvægt apor í uppaiglingu. S' I dansi „Þiö megið dansa ykkar eigin dans“ „Nú megið þið sjálfar ráða hvað þið dansið, ykkar eigin dans, eða bara hvað sem er. Kn þegar ég siekk á músikinni, verðið þið að vera aiveg kyrrar," segir Sóley Júhannsdóttir við stelpurnar sínar fimmtán, sem allar eru komnar í steilingar á stóru dansgóifinu í Dansstúdíói Sóleyjar í Brautarholtinu. Sóley er ekki fyrr búin að sieppa orðinu en dúndrandi diskótónlist dynur yfir salinn og það færist heldur betur fjör í hópinn. Síðar kemur í ljós að „stoppdansinn" er eitt það skemmtilegasta, sem steipurnar vita, auk þess að vera ágæt aðferð fyrir kennarann til þess að skoða hópinn og sjá hvernig hver og ein tjáir sig. Nú eru tveir litlir bræður komnir í heimsókn. Þeir standa við útjaðar dansgólfsins og reyna að vekja at- hygli dansmeyjanna á sér með sveifl- um og handapati en stoðar lítt. Þetta eru pínulitlir pattar í lopapeysum og gúmmístígvélum, hoppa upp og niður í takt við tóniistina og iangar greini- lega að vera með. Vonandi verða þeir ekki of feimnir til þess þegar þeir eru orðnir aðeins hærri í loftinu, en þó er hætta á því. „Það byrja svo fáir strákar á þessum aldri,“ segir Sóley, en hópurinn sem við erum að fylgjast með er á aldrinum sex til níu ára. „Og þeir sem byrja hætta oft jafnvel þótt þeim þyki gaman vegna þess hvað það eru fáir aðrir strákar." Öðru máli virðist gegna um eldri flokkana, þar fer strákunum sífjölg- andi og það hefur dregið úr því sem áður var, að strákum var strítt ef þeir höfðu gaman af því að dansa. „SÍS“ segja sumar hnáturnar, er þær verða varar við ljósmyndarann og síðan ekki söguna meir, enda er nú verið að æfa háalvarleg spor. Síðan taka við nokkrar léttar fettur og beygjur, stoltar mæður fylgjast með álengdar — fáir feður — það er stokkið í loft upp og staðið á einum fæti og þar með er tíminn búinn. „Æfum okkur mikið heima“ „Það er ágætt að vera í dansi. Ég byrjaði af því að mig langaði svo að vera með bestu vinkonu minni. Við gerum sko allt saman nema borða nestið í skólanum,“ segir María, átta ára í stuttu spjalli að loknum tíman- um. En mikilvægi þess að eiga góða vinkonu þegar maður er átta ára ætti að vera öllum ljóst. Systurnar Helga og Fjóla Valdís, sem eru sjö og níu ára, segjast æfa sig mikið heima „þótt að við rekumst oft hvor á aðra þegar við erum að því“. Þær bæta þvl við að pabbi og mamma hafi verið í dansi en svara neitandi þegar þær eru spurðar hvort fjölskyldan æfi sig þá stundum öll saman. „Pabbi er allt- af I vinnunni og mamma er alltaf að taka til “ segja þær. Þórdís Eik, sjö ára og Agústa Amelía, sem er níu ára og heitir Amelía eftir ömmu sinni, eru engir nýgræðingar, voru í fyrra líka og eru báðar svolítið að hugsa um að verða dansmeyjar. „Ég er að verða tíu ára og ætla örugglega f framhaldsflokk," segir Ágústa Am- elía. „Mér finnst allt jafn skemmti- legt sem við gerum hérna. Svo er hún Sóley líka alveg æðisleg og maður er ekkert feiminn. Við erum að setja saman dans, lærum nokkur spor í hvert skipti. Það gengur vel og við erum komnar langt. Svo þegar það er búið byrjum við á nýjum." Helga Guðný, sex ára með ljósa tíkarspena og eina framtönn, segir að sér þyki æfingarnar skemmtilegastar, „sér- staklega teygingarnar". Hún ætlar nú samt ekki að verða dansmey eða fimleikakona „heldur flugfreyja eins og mamma og kannski líka snyrti- kona“. Svo er hún að verða leið á að bíða eftir þessari nýju tðnn, bætir hún við, svona utan dagskrár. Krist- veig, sjö ára, er í rauðum buxum með hárið í fínum hnút í hnakkanum — mamma lagar á henni hárið. Hún æf- ir sig heima án þess að hafa músik með. „Það er alveg óþarfi," segir hún. Kristveig á eina systur, em er í List- dansskóla Þjóðleikhússins og þangað langar hana líka með tíð og tfma. „Að fínna hvort þau hafa takt“ „Að hafa takt“ er að vera búin þeim eiginleikum að skynja hrynj- andi í hljómfalli og geta hreyft sig í samræmi við hana. Að hafa takt er því sambærilegt við það að halda lagi og líkt og fólk er misjafnlega lag- visst, er það misjafnlega taktvisst. Sá „taktlausi" er þó mun betur settur en sá laglausi. Það er varla vinnandi vegur að kenna laglausu fólki að syngja, en eftir þvf sem Sóley segir, getur fólk orðið hinir prýði- legustu dansarar jafnvel þótt það hafi litla sem enga tilfinningu fyrir hljómfalli. „Annars eru voðalega fáir, sem ekki hafa einhvern takt f sér,“ bætir Sóley við. „Þið ættuð UL bara að koma hingað aftur eftir þrjá mánuði og sjá breytinguna, sem þá verður orðin á stelpunum. Þær eru ennþá að fikra sig áfram og komast upp á lag- ið. Sumar eru þó alveg fæddar með þetta og maður sér fljótlega hvað býr í þeim. Ég legg ekki aðaláhersluna á að þær séu liðugar í byrjun, það kem- ur af sjálfu sér. Hins vegar fá þær nokkuð strangar upphitunaræfingar til þess að auka þolið. Ég fer hægt í sakirnar þegar dansar eru annars vegar. Það þýðir ekki að ætla að kenna þeim langa og flókna dansa svona í byrjun, heldur tökum við nokkur spor f hverjum tíma og að lokum er orðin til fyrsti heili dans- inn. Fyrsta mánuðinn nota ég ein- göngu tónlist með einföldum og föst- um takti, sem er auðvelt að ná. Sfðan tekur við barnamúsik, úr barnaleik- ritum og söngleikjum, sem þær þekkja. Þá fá þær lfka að leika atriði í bland við dansinn. Þvf hafa þær mjög gaman af og það heldur áhug- anum við. Annars sakna ég þess að hafa ekki neina íslenska barnatón- list. Það hefur afskaplega lftið verið gert af því að semja íslenska barna- tónlist. En það væri ánægjulegt að hafa fslenskt efni í höndunum til notkunar við kennsluna, eitthvað sem stendur krökkunum nær en t.d. bandarískir barnasöngleikir, þó að þeir geti verið skemmtilegir. Það fer ekkert milli mála að öll börn hafa gott af því að læra að dansa. Það skilar sér f auknu sjálfstrausti og betri líkamsburði," segir Sóley. „Það þarf ekki annað en að lfta á krakka, sem hafa verið f einhvers konar dansi til að sjá hvað þau bera sig fallega og eru oft óþvingaðri f framkomu en ella.“ Að lokum víkjum við aðeins að þessu með strákana. Sóley hefur rek- ið Dansstúdíóið f þrjú ár. Nú eru 25 strákar í skólanum en fyrsta árið var aðeins einn. Sá var sextán ára, efni- legur og áhugasamur, en sá sig til- neyddan að hætta eftir að upp komst í skólanum að drengurinn stundaði jassballett í frístundum — innbrot í sjoppur hefðu væntanlega þótt virðu- legra tómstundagaman. En eins og tölurnar sýna, þá er að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.