Morgunblaðið - 16.10.1983, Side 7

Morgunblaðið - 16.10.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 55 Sóley leggur línuna tyrir næsta dana. íhugun i dansgóltinu. „Er þatta ekki alveg öruggtega sem ig er aö setja fram?“ verða hugarfarsbreyting hjá táning- um, varðandi áhugamál, sem hvoru kyninu fyrir sig „leyfist" að hafa og er það vel. „Maður leggst ekki í gólfíð í sparikjólnum sínum“ „Jæja stelpur, nú eigið þið að bjóða strákunum upp.“ Það er dömufrí þeg- ar blm. ber að garði i Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar í Breiðholt- inu. Þar sér Svanhildur Sigurðar- dóttir danskennari, af aðdáunar- verðri lagni og þolinmæði um að ekk- ert fari úr böndunum hjá hópnum, sem er á aldrinum fjögurra til sex ára og alveg nýbyrjaður að tileinka sér hina göfugu dansmennt. „Þið megið ekki slást um þá,“ bætir Svanhildur við, þegar hún sér hvert stefnir, því það er ekkert verið að tvínóna við hlutina. Svo er dansgólfið líka svolítið hált, handagangur I öskjunni og nemendurnir ennþá óvanir að fóta sig á blankskóm. Því verður sumum fótaskortur og Svan- hildur þarf að benda þeim á að það sé hreint ekki til siðs að leggjast 1 gólfið í sparifötunum sínum. Frumatriðin eru fyrst á dagskrá, herrarnir verða að læra að hneigja sig fyrir dömun- um og öfugt. Svo á að læra að dansa hliðar-koss, sömbu, twist og la bost- ella. Og þó að enginn verði alþjóðleg- ur dansmeistari í fyrsta sinn, gengur allt stóráfallalaust fyrir sig enda fer Svanhildur fint í sakirnar og dulbýr dansana sem leiki, sem allir hafa gaman af. í lok tímans tvista allir af Sumir kunna ekki alveg viö þaö aö leggja hendurnar á axlirnar i þeim næstu og lita nægja aö taka í kjóltaldinn. hjartans list, nema tvö sem standa hvort í sínu horni á dansgólfinu, reyna að láta fara lítið fyrir sér og eru greinilega ekki alveg komin með sveifluna á hreint. En verða það væntanlega í næsta eða þarnæsta tíma. Svo streymir strollan út í fínni röð „svo mamma verði nú hissa“. Þær Eva og Petra, sem báðar eru fjögurra ára, eru ekkert á því að halda uppi andríkum samræðum um gildi dansmenntar. Þeim ber þó sam- an um að strákar séu leiðinleg fyrir- bæri og lítið gaman að dansa við þá. „Stelpur eru betri" segja þær með áherslu og snúa sér síðan að því að bera saman skóna sína, en þær eru báðar í skóm með „punktum" og þyk- ir greinilega mikið stöðutákn. Nú kemur kvenmannshandleggur og kippir Evu út um dyrnar sem við sitj- um við, en við Petra ræðum svolítið um ljósbláa pífukjólinn hennar „sem pabbi kaupti í útlöndum". Svo er Petru kippt út og blm. snýr sér að Svanhildi danskennara. „Þetta tekur ekkert á mann,“ segir Svanhildur, aðspurð hvort það sé ekkert þreytandi að stappa stálinu i smáfólkið svona daginn út og inn. „Lagnin er það sem blífur og það er reglulega gaman að kenna þeim litlu. Það er mjög þýðingarmikið að læra að tjá sig með líkamanum, þau verða ófeimnari og komast að því að þau geta umgengist hvort annað á annan hátt en bara í gegnum slagsmál og læti,“ segir Svanhildur og snýr sér að því búnu að næsta hóp, sem er aðeins eldri, sjö til níu ára. „Hann ætlaði ekkert að bjóða mér upp“ Seinni hópurinn er fámennari en sá fyrri, tíu stykki, átta stelpur og tveir strákar — sá þriðji snýr við í dyragættinni þegar hann sér hvað kynbræður hans eru fáliðaðir. „Þú kemur bara næst,“ segir Svanhildur, „þá verða komnir fleiri strákar." Tíminn hefst á því að herrarnir tveir, sem inni eru, eiga að bjóða upp. „Dömurnar" flissa og pískra og sem snöggvast finnur blaðamaðurinn gömlu dansskólafeimnina læsast um sig fyrir þeirra hönd og „herranna". En það er einmitt hún, sem á að yfir- stíga og meðan Svanhildur lokar augunum og telur upp að þremur, hafa báðir herrarnir sig í það að hneigja sig pent sinn fyrir hvorri dömunni. „Hann ætlaði ekkert að bjóða mér upp,“ segir önnur þeirra og er í einhverjum vafa um hvort það hafi verið hún, sem raunverulega átti að bjóða upp. Herrann kveður svo hafa verið. Hann er ekkert á því að sleppa þeirri útvöldu, fyrst hann hef- ur lagt í þessa mannraun á annað borð og þau halda saman út á gólfið. Hitt parið er strax svo pottþétt í sveiflunni að það er eins og þau hafi dansað saman í fyrra lífi. Stelpurnar sem eftir eru dansa svo hver við aðra og þykir ekki verra. Svo koma líka fleiri strákar næst... HHS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.