Morgunblaðið - 16.10.1983, Side 9

Morgunblaðið - 16.10.1983, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR16. OKTÓBER 1983 57 Jafnhliða víg.slubiskupsembættinu gegnir Ólafur störfum sóknarpresta { Bústaðasöfnuði, sem er hans aðalstarf. Hér er Ólafur fyrir framan Bústaða- kirkju. hvort við gætum ekki sameinast um sjónvarpsauglýsingu og kynn- ingu á annan máta. Ég man eftir því, þegar ég var æskulýðsfulltrúi, að þá settum við tilkynningar um æskulýðsdaginn í alla strætisvagna. Við ættum að gera meira af þess háttar. Ég var í Gautaborg í vor og þá töluðu þeir um það, að þeir hefðu verið með kirkjulega vakningu þar eða leitazt við að koma henni á. Þeir settu upp auglýsingar alls staðar í borginni og spurningin var: „Hve'r er að koma?“ Það var ekkert sagt annað í auglýsingun- um en þetta: „Hver er að koma?“ Síðan þegar kirkjuvikan átti að hefjast, þá kom loksins svarið við spurningunni: „Jesús er að korna." Biskupinn i Gautaborg sagði, að þetta hefði haft geypimikil áhrif. Fyrst eftirvæntingin, spurningin, hver væri að auglýsa svona. Fólkið var svo hissa. Er þetta kirkjan? Fólk átti ekki von á því, að hún væri að reyna eitthvað svona ný- stárlegt. Við eigum að koma boð- skapnum á framfæri. Ef erkibisk- upinn í Svíþjóð telur að þetta sé svona nauðsynlegt hjá þeim, þá held ég, að það sé ekkert síður hjá okkur. Hefur hitinn í hel- víti snarlækkað? Djöfullinn dó á íslandi árið 1801 með útgáfu Leirgerðar, sálmabók- arinnar, þar sem skynsemishyggj- an réð ríkjum og hafi endanlega dáið með tilkomu frjálslyndu guð- fræðinnar upp úr síðustu aldamót- um. Er það líkt með „Ljóta kallin- um“ eins og storkinum og jóla- sveininum, að þegar menn vaxa úr grasi, þá sjá þeir, að hann er bara plat? A.m.k. finnst manni eins og hitinn I helvíti hafi snarlækkað síðan á dögum Vídalínspostillu, sé miðað við predikanir í dag. — Einhvern tímann las ég það, að myrkrahöfðinginn kallaði tií sín mestu trúnaðarvini sína og var að spyrja þá að því, hvernig þeir gætu haft sem bezt áhrif. Þeim datt ýmislegt í hug. En loksins samþykktu þeir allir eina uppá- stungu einróma. Hún var um það, að koma því inn hjá fólki, að hann væri bara alls ekkert til. Það er alveg rétt, að við heyrum ekki í dag predikanir eins og voru þrumaðar áður, um vítisloga og brennistein. Ég myndi sjálfur aldrei predika þannig. Þó þurfum við ekki að fara langt til þess að sjá áhrif hins illa. Þurfum bara að taka blaðið í dag til þess að sjá, að það er margt sem minnir á að það er tekizt á i heiminum á milli þess illa og þess góða. Hvort sem við almennt í boðuninni persónuger- um hið illa eða ekki. Það er aftur á móti annar handleggur. En ég held, að enginn geti lokað augun- um fyrir því, að hið illa er í sókn. Það er máttugt og það má ekki láta taka sig sofandi og fljóta þannig að feigðarósi. Það er líka sannleikur, að við tölum ekki mik- ið um þetta. A.m.k. ekki í þeim dúr, sem gert var áður. En ég held að við séum okkur meðvitandi um það, að það er tekizt á í heiminum. Mennirnir ákvarða ekki tíma Guðs Og að lokum, ólafur. Heldur þú, að það sé ekki farið að styttast allítarlega í endurkomu Krists til að dæma lifendur og dauða, eins og við játum i hinni postullegu trúarjátningu við skírn, fermingu og ævinlega við messur, þegar far- ið er með hana þar? — Þeir spurðu, lærisveinarnir, þegar Jesús var með þeim, hvenær dagurinn yrði. Það hefur verið spurt um þetta alla tið síðan. Allt- af hefur hver kynslóð séð ýmis teikn þess, að hann sé að koma. Og kannski hefur engin kynslóð rík- ari ástæðu til þess að halda að endurkoman sé í nánd, þegar við skoðum þá möguleika á eyðingu heimsins, sem núna er. Sem betur fer eru það ekki mennirnir, sem ákvarða tíma Guðs. Það eru held- ur ekki mennirnir, sem ráða því, hvernig Guð starfar. Sem betur fer, segi ég. 1 þvi felst þetta, að við vitum, hvar við eigum að vera. í hógværð og í auðmýkt og eigum að biða. En við eigum alls ekki að bíða í skelfingu. Þetta er ekki ógnin, sem við erum að hugsa um, þegar Jesús sannar okkur öllum mátt sinn og dýrð sína. Við eigum að vaka og vera tilbúin. Jesús líkir t.d. endurkomu sinni við veizlu. Við hræðumst ógnirnar í dag, en við eigum þann Drottin og frelsara sem eyðir þeim ógnum, ef við aðeins trúum á hann. Hvort sem hann kemur á okkar tíma eða ekki. Það getum við ekki sagt til um, sem betur fer. — Pb Gleymduþér í nokkmdaga íGlasgow. Frábær helgarferó fyrir aðeins 8.202.- krónur Borg í næsta nágrenni Þú átt kost á ódýrri og ánægjulegri skemmtiferð til Glasgow. Ef til vill þeirri bestu, sem þú hefur farið hingað til. gerðar. í Glasgow eru fjölmargar verslunargötur, margar hverjar þeirra eru göngugötur með fal- legum blómaskreytingum og nægum tækifærum til að tylla sér niður og njóta umhverfisins. Eftir tæplega 2ja klukkustunda flug lendir Flug- leiðaþotan á flugvellinum rétt fyrir utan Glasgow og þú ert kominn inn í eina af skemmtilegustu borgum Evrópu áður en þú veist af. Sjötíu skemmtigarðar í borginni við ána Það hefur átt sér stað gjörbylting í Glasgow. Borgin er hrein, lífleg og nýtískuleg. Um leið heldur hún hinu gamla og rótgróna yfirbragði með byggingarstíl Viktoríutímabilsins, stórkost- legum safnbyggingum, listasöfnum, bókasöfnum, fallegri dómkirkju í gotneskum stíl, köstulum og sveitasetrum í næsta nágrenni. Hvorki meira né minna en 70 lystigarðar setja lit á umhverfið, og ekki má gleyma göngubrautinni meðfram ánni Clyde, sem teygir sig 5 km frá miðborginni út í sveitina. Ef þú vilt tilbreytingu, þá er önnur stórkostleg borg í aðeins klukkustundar fjarlægð, ef ekið er eftir næstu hraðbraut, - Edinborg. Þar geturðu skoðað heimsfrægan kastala um leið og þú lítur við í verslunum Princes Street, verslun- argötu sem á sér fáa líka. Verslanaparadís Eins og þú getur ímyndað þér, vilja Skotamir gera góð kaup - og þú auðvitað líka. Þess vegna em verslanir Glasgowborgar sérstaklega vel úr garði Fáar borgir bjóða fjölbreyttara skemmtanalíf Skoska óperan, ríkishljómsveitin og ballettinn em auðvitað í Glasgow. Skoski fótboltinn á líka sína aðdáendur. Skotar eiga Evrópumeistaraliðið 1983 og landsvöllur Skotlands er í Glasgow við Hamp- den Park. Fimm hörku fótboltalið með Celtic og Rangers í broddi fylkingar hafa aðstöðu í borginni. í Glasgow em nýtísku kvikmyndahús, leikhús og söngleikjahús. Þar em fjölleikahús og látbragðs- leikir, kabarettar, næturklúbbar, dansstaðir og diskótek. í Glasgow er úrval prýðilegra veitinga- staða með skoskum nautakjötsréttum, ítölskum, frönskum, indverskum og austurlenskum matseðl- Flugleiðir Það tekur tæplega tvær klukkustundir að fljúga frá Reykjavík til Glasgow með Flugleiðum, sem fljúga alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga (þriðjudaga og laugardaga frá og með 1. nóvem- ber) til Glasgow. FLUGLEIÐIR Gott fólk hjé traustu fólagi Ókeypis bæklingur á íslensku Hafðu samband við söluskrifstofu Flugleiða, um- boðsmann eða ferðaskrifstofu og fáðu ókeypis eintak af bæklingi breska ferðamálaráðsins um Glasgow og nágrenni borgarinnar. Hann er stút- fullur af nytsamlegum upplýsingum og litríkum ljósmyndum. Scotíands, fiyime.!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.