Morgunblaðið - 16.10.1983, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
59
°g
La Traviata
I>egar Giuseppe Verdi dvaldist í
París 1852 var hann þrátíu og níu
ára að aldri og í þann veginn að
byrja á sautjándu óperu sinni.
Hann var allt annað en hinn dæmi-
gerði suðurlandabúi, eins og norð-
urálfubúar gera sér hann í hugar-
lund. Verdi var innhverfur og þung-
ur í lund, ómannblendinn og dulur.
Hann átti að baki mikla lífsreynslu
er hér var komið sögu. Ungur að
árum hafði hann gengið að eiga
fagra og blíðlynda konu, sem hann
unni mjög, og eignuðust þau tvö
börn. í apríl 1840 misstu Verdi-
hjónin bæði börn sín, sem jarðsett
voru með tveggja daga millibili, og
tveimur mánuðum síðar missti
Verdi konu sína úr skæðum heila-
sjúkdómi. Ofan á allar þessar raun-
ir bættist við að Verdi hafði tekið
að sér að semja gamanóperu, II
giorno di regno, sem frumsýnd var í
Scala-ópcrunni í september sama
ár, en hún fékk einhverjar verstu
viðtökur sem um getur.
Skömmu áður en þetta var
hafði Verdi kynnzt Bartolomeo
Morelli, óperustjóra La Scaia, og
ástkonu hans og barnsmóður,
Giuseppinu Strepponi, sem var
ein fremsta söngkona Ítalíu á
þessum tíma. Morelli tókst að
stappa stálinu í Verdi og fyrir til-
stilli hans samdi hann óperuna
Nabucco, sem frumsýnd var í
Scala 1842 með Giuseppinu
Strapponi í aðalkvenhlutverki.
Nabucco var tekið með kostum og
kynjum og fór hagur Verdis nú
mjög að vænkast. Þau Giuseppa
Strepponi fóru að draga sig sam-
an og á næstu árum samdi hann
hverja óperuna á fætur annarri.
Hann var þjóðernissinni og hafði
mikinn áhuga á stjórnmálum
eins og víða kemur fram í verkum
hans, og reyndar var hann þing-
maður um tíma. Fljótlega komst
hann þó að þeirri niðurstöðu að
hann þjónaði stjórnmálahugsjón-
um sínum betur með tónlist sinni
en þingsetu.
Þau Guiseppa Strepponi og
Guiseppi Verdi dvöldust saman í
París um eins árs skeið, en vorið
1848 sneru þau aftur til Ítalíu og
settust að úti í sveit, uppgefin á
samkvæmislífi tildurstéttarinnar
í París og Mílanó. Sveitafólkið í
Busetto í Parma var siðavant og
leit óvígða sambúð þeirra illu
auga. Þau lifðu þvf í einangrun á
sveitasetri sínu, og það var ekki
fyrr en árið 1859 að þau gengu í
hjónaband.
Guiseppa Strepponi átti það
sameiginlegt með Marie Dupless-
is að vera af lágum stigum og að
hafa ekki verið við eina fjölina
felld í ástamálum. Auk þess hafði
hún oft drýgt tekjur sínar með
því sem elskhugar hennar létu af
hendi rakna, en hún hafði fyrir
að sjá stórri fjölskyldu, sem átti
allt sitt undir því hvernig henni
vegnaði í listinni og ástamálun-
um.
Hræsni og siðferðilegur tví-
skinnungur þjóðfélagsins voru
Verdi stöðugt þyrnir í augum, en
hann var samt gagntekinn af því
að þrátt fyrir alla veikleika væri
manninnum endrum og eins unnt
að hefja sig upp fyrir þau hryggi-
legu örlög sem eðli hans bjó hon-
um oftast, í krafti hins hreina og
fölskvalausa kærleika. Og hvað
var skýrara dæmi um þetta en
saga Marie Duplessis og Violettu
Valéry, kvenhetjunnar í La Tra-
viata?
óperan La Traviata var frum-
sýnd í Feneyjum árið 1853. Frum-
sýningin var með þvílíkum end-
emum að fáum óperum hefur ver-
ið tekið jafnilla í fyrstu. Allt virt-
ist leggjast á eitt. í fyrsta lagi
gátu hinir siðavöndu ítölsku
óperugestir ekki sætt sig við nú-
tímalegan búning óperunnar og
annan siðferðilegan mælikvarða
en þeir áttu að venjast. í öðru
lagi var aðaltenórinn rámur,
bassinn í hinu dramatiska hlut-
verki föður Alfredos var í fýlu af
því að honum fannst hlutverkið
ekki samboðið sér og til að kór-
óna allt var hin ágæta sópran-
söngkona, frú Donatelli, beinlinis
sprenghlægileg í hlutverki Viol-
ettu. Frúin var holdug í meira
lagi og hreystin uppmáluð og því
engan veginn sannfærandi í hlut-
verki hinnar tærðu og veikbyggðu
Violettu sem átti að minna á
fíngert blóm. Um þverbak keyrði
þegar komið var að hinum
hjartaskerandi endalokum —
þegar Violetta, aðframkomin af
harmi og tæringu, hnígur niður
örend í örmum hins iðrandi
elskhuga. Þá ætlaði allt um koll
að keyra í hlátrasköllum áhorf-
enda.
Ári síðar var óperan sett upp
öðru sinni, einnig í Feneyjum, og
tókst sú uppfærsla með ágætum.
Síðan fór vegur hennar vaxandi
og hefur óperan æ síðan átt fá-
dæma vinsældum að fagna í
óperuhúsum heimsins.
Framleiðendur
— innflytjendur
Óskum eftir aö komast í sambönd viö framleiöendur
og innflytjendur á byggingavörum. Allt kemur til
greina.
b\l BYGGINGAVÖRUR
BTGGÐAVERK HF.
Reykjavíkurvegi 60,
pósthólf 421, 222 Hafnarfjöróur.
BESJI í?
HJALPABKOKKWNN
KENWOOD CHEF
„CHEF-inn“ er allt annað og miklu meira en venjuleg
hrærivél.
Kynnið ykkur kosti hennar og notkunarmöguleika.
GMBOÐSMENN:
REYKJAVÍK
JL-húsið, Hringbraut 121
Rafha hf., Austurveri
AKRANES
Rafþjónusta Sigurd. Skaga-
braut 6.
BORGARNES
Húsprýði
STYKKISHÓLMGR
Húsið
BÚÐARDALGR
Verslun Einars Stefánssonar
DALASÝSLA
Kaupfélag Saurbæinga.
Skriðulandi
ÍSAFJÖRÐUR
Póllinn hf.
BOLGNGARVÍK
Verslun Einars Guðfinnssonar
HVAMMSTANGI
Verslun Sigurðar Pálmasonar
BLÖNDGÓS
Kaupfélag Húnvetninga
SAGÐÁRKRÓKGR
Kaupfélag Skagfirðinga
Radío- og sjónvarpsþjónustan
AKGREYRl
Kaupfélag Eyfirðinga
HÚSAVÍK
Grímur og Árni
EGILSSTAÐIR
Verslun Sveins
Guðmundssonar
HELLA
Mosfell
SELFOSS .
Kaupfélag Árnesinga
Radío- og sjónvarpsþjónustan
VESTMANNAEYJAR
Kjarni
ÞORLÁKSHÖFN
Rafvörur
GRINDAVÍK
Verslunin Bára
KEFLAVÍK
Stapafell hf.
Eldhússtörfin verða leikur einn
með KENWOOD chef