Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 63 Halldór Gíslason skipstjóri um borð í Gulltoppi. Myndin er tekin 1934 eða 1935 er skipið stundaði sfldveiðar. ' tundurduflið reyndist virkt og hefði getað valdið stórslysi. Það var að minnsta kosti einn togari sem fórst er hann fékk tundurdufl í vörpuna — það var Fylkir sem þá hafði verið að veið- um austan við Halamið. Áhöfnin komst öll í bátana og yfir í annan togara." Fri Reykjavíkurhöfn frostaveturinn mikla 1918. að togarar gætu ekki sokkið á opnu hafi hvernig sem veðrið væri. Þessir atburðir urðu til þess að menn tóku að endurskoða þessa afstöðu, og togarar byrjuðu að leita vars á Vestfjörðum í óveðr- um. Englendingarnir vöruðu sig ekki heldur á aðstæðunum sem þarna voru. Löngu seinna voru þrír ensk- ir togarar að veiðum á Halanum en slóguðu svo utar þar sem þeir lentu í kaldari sjó. Það var þá ekki að sökum að spyrja að ísinn fór að hlaðast á þá og tveir fóru niður. Sá þriðji komst inn í ísafjarðar- djúp þar sem ísingin sligaði hann svo honum hvolfdi. Þrír skipverjar komust í skipsbát en aðeins einn þeirra komst af — hann komst upp í Arnarnesið og var bjargað. ísing íslenzku togararnir voru oft hætt komnir í ísingu og þegar tog- arinn Júlí fórst í veðrinu 1959 út af Nýfundnalandi var ísingunni áreiðanlega um að kenna. Þorkell máni frá Reykjavík var afar hætt kominn þá — það var vélstjórinn sem átti stóran þátt í að bjarga skipinu með því að sjóða í sundur davíðurnar en skipsbátarnir voru þá orðnir eitt klakastykki. Þetta dugði til að skipið rétti sig við. Þeir ísuðu illa þessir síðutogarar — það var mikið af alls konar stögum og reiðum sem ísinn safn- aðist á.“ Var þetta ekki illt verk, að berja ísinn af í vondu veðri? „Ég læt það vera. Við þurftum oft að berja af, bæði stögunum framantil og svo brúnni. Þá var slógað uppí á meðan svo maður var nokkuð óhultur fyrir ágjöf- inni. Það gat verið verra þegar sjór kom á skipið þegar verið var að toga. Skipstjórinn fylgdist þá vanalega með úr brúnni og kallaði en svo forðaði mannskapurinn sér á góða staði. Það varð furðu sjald- an slys af þessu. Næstu árin var ég með Kolbeini Sigurðssyni á togaranum Þórólfi, en hann var kvæntur Ingileifi systur minni. Það var svo einu sinni 1928 er við erum að fara á Hornbanka, að 1. stýrimaður veik- ist hastarlega og við flytjum hann inn á ísafjörð. Þá var ég gerður að 1. stýrimanni á Þórólfi og var það næstu árin. Það var á þessum árum, 1930 að mig minnir, sem mér var boðið að gerast skipstjóri á togaranum Gulltoppi og tók ég við honum. Þessi togari var gerður út af Sleipni hf. sem hafði mikil umsvif í saltfiskverkun. Þeir áttu húsið sem Vífilfell hf. er nú með hér í Vestubænum og áttu það sneisa- fullt af saltfiski, þannig að þú sérð að þeir hafa átt ugga. Þá gerðist það að verðið á saltfiski lækkaði og þeir voru gerðir upp — það tíðkaðist ekkert reddelsi á þeim tíma eins og núna. Þetta var samt ósanngjarnt því fyrirtækið átti fyrir skuldum og hefði áreiðanlega náð sér á strik aftur. Kveldúlfur hf. Þegar Sleipnir hf. var úr sög- unni, 1932, tók Kveldúlfur við út- gerðinni á Gulltoppi og Gylli. Kveldúlfur var traust fyrirtæki og gott að vera hjá Thorsurunum sem áttu fyrirtækið. Á þessum árum var Thor Jensen að mestu leyti kominn í búskapinn á Korpúlfsstöðum ásamt Lorentz syni sínum. Kjartan Thors hafði mest með okkur skipstjórana að gera, en Haukur var á skrifstof- unni. Seinna kom svo Richard, hann var forstjóri hjá salfisk- framleiðendum en þeir markaðir lokuðust þegar seinna stríðið hófst. Thor Thors kom minna ná- lægt rekstrinum enda var hann þingmaður. Hann bauð mér stund- um heim til sín og við skáluðum f whiskey. Þeim Ólafi og Hilmari kynntist ég ekki. Eitt sinn þegar ég var að klára túr út af Reykjanesi lét ég setja humar í tunnu fulla af sjó og fékk Kjartan Thors humar úr henni þegar við komum til Reykjavíkur. Þegar svo vinnukonan hjá honum kom í eldhúsið og sá þar fat með humar í, fór hún að skoða hann en þá hreyfir einn humarinn sig — það skipti þá engum togum að hún rekur upp þetta ógurlega skaðræð- is öskur að allir í húsinu komu hlaupandi og héldu að orðið hefði stórslys. Kjartan sagði mér sjálf- ur frá þessu. Á þessum árum héldu sumir að humarinn væri óætur af því hann þótti svo ljótur útlits. Á sumrin vorum við á síldveið- um og lönduðum á Hesteyri fyrir vestan en þar átti Kveldúlfur verksmiðju. Síldveiðarnar gengu alltaf vel hjá mér og eitt sumarið varð ég hæstur. Til gamans get ég sagt þér að þeir voru eitt sinn hjá mér á síld Sigurður Bjarnason frá Vigur, sem nú er sendiherra en var einu sinni ritstjóri hjá ykkur á Morgunblaðinu, og Jón Múli Árna- son, sem er hjá útvarpinu. Þeir voru skólastrákar þá — báðir hörkuduglegir. Einhver var að segja mér að Jón Múli væri ennþá að tala um þetta. Hann var með jazzplötur og grammófón með sér úti á sjó og eitt sinn lék hann Benny Goodman fyrir mig uppi í brú. Tundurdufl Eftir að stríðið skall á gjör- breyttist togaraútgerðin. Verðið á fisknum snarhækkaði og þar við bættist að aflabrögð urðu betri — það voru þá engin önnur skip að veiðum hér á miðunum en íslensku skipin. En það var fleira sem fylgdi stríðinu en fiskisældin því á þessum árum voru tundurdufl á reki um allan sjó. Bretar lögðu þeim á stóru svæði bæði Austan- og Vestanlands sem voru friðlýst á stríðsárunum. Þeir áttuðu sig hins vegar ekki á því hvernig veðráttan er hér við land — þegar átti að fara að slæða þessi tundurdufl upp eftir stríðið kom í ljós að þau voru öll á bak og burt. Það kom okkur ekki á óvart því við urðum ekki svo lítið varir við þau — tog- ararnir voru að fá þetta í vörpurn- ar og svo sá maður þetta oft á floti. Við skutum niður tvö við minni ísafjarðardjúps en til þess voru notaðir kraftmiklir rifflar. Við austurströndina rak einhver ósköp af tundurduflum og nötraði þá aílt og skalf á bæjunum þegar þau voru að springa í flæðarmál- inu. Það vildi til að þarna var strjálbýlt svo ekki urðu slys af. Ég held að það hafi verið á einhverj- um bæ fyrir austan sem þeir tóku tundurdufl á fjöru og höfðu fyrir hestastein. Það vildi svo vel til að maður, sem var að gera tundur- dufl óvirk, átti þarna leið um — en Björgun Nú björguðuð þið skipverjum af flutningaskipi á stríðsárunum? „Já, þá vorum við að fiska um 40 mílur vestur af Garðskaga. Við höfðum fiskað þarna allar nætur þennan túr en fært okkur svo austureftir um daga. En í þetta skipti sagði ég stýrimanninum að halda áfram að toga. Það hafði verið vestanátt um morguninn en hann var að lygna. Þegar orðið var albjart kem ég upp til að líta á aflann en þá sýnist mér bregða fyrir segli út við sjóndeildarhring. Ég tek þá kíki en tekst ekki að koma auga á þetta aftur, og segi stýrimanninum að fylgjast með þessu en fer sjálfur niður. Skömmu síðar kemur hann auga á seglið og ég sigli þá áleiðis að þessu. Reyndist þetta vera björgunar- bátur með segl uppi. Skipbrots- menn voru orðnir slæptir og fegn- ir komu okkar. Var þetta einn af þrem björgunarbátum frá flutn- ingaskipinu Beaverdale sem þýzk- ur kafbátur hafði sökkt með tund- urskeyti. Þetta hafði verið um 10 þús. tonna skip og afar hrað- skreitt. Það hafði því verið sent einskipa vestur um haf en þeir höfðu tekið á sig krók norður und- ir ísland til að forðast kafbáta sem sátu fyrir skipalestum er fóru vestur um haf, en ekki tekist betur til en þetta. Það var bátur annars stýrimanns sem við fundum en þeir höfðu yfirgefið skipið á þrem bátum. Bátur 1. stýrimanns fannst norður undir Jökli og kom- ust þeir allir af. Ekki veit ég hvort bátur skipstjórans kom nokkurn tíma fram, en það er alls ekki ólíklegt að honum hafi tekist að hitta á skipalest og verið bjargað þannig." Þér gekk alltaf vel að fiska — hvað er það sem gerir menn að miklum fiskimönnum? Afladraumar „Það er nú spurning sem aldrei hefur tekist að svara, enda margt sem kemur til greina. Ég fór strax að velta þessu fyrir mér þegar ég var stýrimaður en þá var ég með miklum aflamanni, Kolbeini Sig- urðssyni. Fyrir stríð stóðu útgerð- irnar tæpt og það lá í loftinu að skipstjórar gætu ekki haldið skip- unum ef þeir fiskuðu ekki vel.“ Nú var það ekki óalgengt að menn dreymdi fyrir afla. „Jú, ég kannast við það en ég held að það þýði ekkert að vera að segja frá því — fólk sem ekki er inni í þessu skilur þetta held ég ekki. Mínir draumar voru flestir fremur óskýrir, venjulega einhver óhreinindi en alltaf komu þeir fram. Oft var ég alveg viss hvert ég átti að fara og fiskaði svo vel. Einn draum dreymdi mig oft og þó með ýmsum tilbrigðum. Hann var þannig að alda kom inn fyrir borðstokkinn og þá þeim megin sem trollið var sem fiskast myndi í. Þessi draumur sannaði sig einu sinni með eftirminnilegum hætti. Mig dreymdi þetta, að alda kæmi yfir borðstokkinn, og í þetta sinn yfir borðstokkinn bakborðsmegin. Ég tók ekkert mark á þessu, því við vorum með nýtt troll og bak- borðstrollið hafði ekki verið hreyft allan túrinn. Nú, það á svo að fara að láta út trollið um morg- uninn en þá kallar hleramaðurinn á forhleranum að stykki sé farið úr hleranum og hann sé ónothæf- ur. Þetta kom öllum á óvart og nú var bakborðstrollið tekið, sem hafði verið uppbundið allan túr- inn. Þarna komumst við í ágætt fiskirí og fylltum skipið á skömm- um tíma. SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.