Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 16

Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 16
ALUTAF Á MUÐJUDÖGUM mmi ■■■■■■■ m DffiMA —tátk---- NYJUSTU FRETTIR ÚR ENSKU KNATT- SPYRNUNNI TÓMARÚM í LÍFI ATVINNUKN ATT - SPYRNUMANNA segir Lars Bastrup í opinskáu viötali KNATTSPYRNUÚRSLIT FRÁ ÁTTA LÖNDUM í EVRÓPU ✓ Itarlegar og spennandi íþróttafréttir MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 Síðutogararnir gömlu söfnuðu gjarnan á sig mikilli ísingu. Þessi mynd er tekin um borð í einum þeirra. Þarna réði tvennt Ég forðaðist líka alltaf að fara mikið eftir fiskifréttum, það var nú svo að ef maður var að eltast við aðra var maður oftar of seinn en hitt. Ég velti því heldur fyrir mér hvar fiskurinn yrði næst og reyndi að finna hann. Einn vetur í janúar voru mikil óveður fyrir vestan og voru þá all- ir togarar farnir af miðunum þar, flestir suður á Selvogsgrunn þar sem þeir komust í ufsa og fiskuðu sæmilega. Við vorum hins vegar með tómt skip fyrir vestan og lág- um undir Rit. Þá fæ ég skeyti þar sem ég er beðinn um að flytja lík frá Hesteyri til ísafjarðar og ger- um við það auðvitað. Þá er komin vika af túrnum er því var lokið. Þegar við siglum út frá ísafirði er hann heldur að ganga niður. Ég byrjaði að toga um 10 mílur útaf Deild en þar er lítið um fisk. Þeg- ar við erum komnir 20 mílur út tökum við annað hal og komumst í mikinn fisk. Fylltum við svo skipið á stuttum tíma. Þarna réði tvennt að ég flutti mig ekki suðurfyrir. Ég gerði mér ljóst að þar yrði ég aftastur á mer- inni og fiskurinn farinn að minnka þegar ég kæmi — nú, og eins þóttist ég vita að það myndi glaðna yfir honum fyrir vestan þegar lygndi. Ég þykist nú vita að menn muni kalla þetta karlagrobb en ég læt mér þá standa á sama. Ég er líka kominn á þennan aldur, raupaldurinn, og ætti að hafa rétt til að grobba dálítið eins og hver annar." Fríin milli túra heldur knöpp Er sjómennskan ekki bindandi starf og lítið um frítíma? „Óneitanlega — og alveg sér- staklega hér áður fyrr. Þá var það þannig að ef maður stundaði sfld var ekkert frí og þannig gátu liðið heil sumur. Fríin milli túra voru líka heldur knöpp. Það var svona ein klukkustund sem maður hafði til að skreppa heim eftir túr og svo einn sólarhringur eftir að komið var úr siglingu. Þannig gekk þetta ár eftir ár. Ég sigldi fyrst á stríðs- árunum en svo fór ég að taka mér siglingafrí, það voru alltaf nógir til að sigla, og þannig varð þetta skaplegra." Ef þú værir nú orðinn ungur á ný — færirðu þá aftur á sjóinn? „Já, alveg spursmálslaust, ég myndi ekki hugsa mig um tvisv- ar,“ sagði Halldór að lokum. - bó. Fáðu þér Sprite, — og finndu muninn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.