Morgunblaðið - 16.10.1983, Blaðsíða 18
00 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
Umfangsmesta könnun á svefnvenjum íslendinga í tengslum við hlustendakönnun Ríkisútvarpsins:
Þjóðin er vöknuð klukkan 7
— og sofna undir miðnætti
ÞJÓÐIN er vöknuö klukkan sjö á morgnana á virkum dögum og fer ekki
aö halla sér aftur fyrr en undir miönættið. Hér er átt viö meirihluta
þeirra, sem eru á aldrinum 15—70 ára og þátt tóku í hlustendakönnun
Ríkisútvarpsins, sem kynnt var formlega á fundi meö fréttamönnum í
gsr. Um helgar fara landsmenn seinna að sofa og seinna á fætur.
í könnuninni var landsmönn-
um/þátttakendum skipt niður í
fimm aldursflokka: 15—20 ára,
21-30 ára, 31-45 ára, 46-60
ára og 61—70 ára. Töldu að-
standendur könnunarinnar auð-
sýnt, að hér væri um að ræða
viðamestu könnun, sem gerð
hefði verið á svefnvenjum ís-
lendinga. Yfirgnæfandi meiri-
hluti landsmanna er farinn í
rúmið um miðnætti virka daga,
eða yfir 90 af hverjum eitt
hundrað. Af 15—20 ára fólki eru
aðeins 3,9% farin að sofa klukk-
an tíu að kvöldi á mánudögum til
fimmtudaga. Klukkan hálf tólf
eru 55,8% farin i háttinn og á
miðnætti eru 91,6% allra á þess-
um aldri farin að sofa. En klukk-
an er orðin hálf fjögur að morgni
þegar allir landsmenn 15—20
ára eru sofnaðir.
Um helgar fer þessi aldurs-
hópur síðar í rúmið. Aðeins 0,7%
eru farin að sofa kl. 22.30 á
föstudagskvöldum. Klukkan eitt
eftir miðnætti er meirihlutinn,
50,7%, farinn að sofa en það er
ekki fyrr en kl. 03.30, sem níu af
hverjum tíu eru farnir að sofa.
Stór hópur leggur sig klukkan
tvö aðfaranætur laugardaga. Á
laugardagskvöldum fer þessi
hópur enn seinna að sofa. Klukk-
an fjögur á sunnudagsmorgnum
eru 93% hópsins komin í rúmið
og ekki eru allir sofnaðir fyrr en
klukkan hálf sjö á sunnudags-
morgnum. Stærstu hóparnir
fara að sofa á heila tímanum;
klukkan eitt fara 21% að sofa,
klukkan tvö 18,3% og klukkan
þrjú 18,2%. Á sunnudagskvöld-
um eru nær allir sofnaðir um
klukkan eitt eftir miðnætti.
Meirihluti þessa hóps, 15—20
ára, er vaknaður kl. sjö að
morgni virka daga og klukkan
hálf tíu að morgni virka daga
eru 99,4% komin á fætur. Rúmur
helmingur er kominn á fætur
klukkan tíu á laugardagsmorgn-
um, en um tíundi hluti þessa
hóps er að vakna frá hádegi á
laugardegi og fram til klukkan
þrjú eftir hádegi. Það sama gild-
ir á sunnudögum, þá eru ung-
mennin að vakna fram til kl.
hálf fimm og meirihlutinn er
ekki farinn á fætur fyrr en um
klukkan ellefu á sunnudags-
morgnum.
Næsti aldursflokkur, 21—30
ára, fer fyrr á fætur að jafnaði
og fyrr að sofa. í miðri viku fer
sá hópur að sofa ekki síðar en
um miðnætti (90%) og meiri-
hlutinn hallar sér milli ellefu og
tólf. Meirihluti þessa hóps er
einnig farinn að sofa upp úr mið-
nættinu á föstudagskvöldum og
klukkan þrjú aðfaranætur laug-
ardaga eru 97,3% í þessum hópi
sofnuð. Á laugardagskvöldum er
vakað lengur, klukkan eitt eru
tæp 40% enn á fótum, stór hópur
leggur sig klukkan tvö (þá eru
alls 82,3% farin í rúmið) og
klukkan fimm á sunnudags-
morgnum eru allir sofnaðir.
Þessi hópur er að meirihluta til
vaknaður klukkan sjö á morgn-
ana virka daga og klukkan átta
eru 93,7% þessa hóps komin á
ról. Klukkutíma síðar eru 99%
farin á fætur — hinir eru að
vakna fram til klukkan 16 virka
daga — væntanlega vaktavinnu-
fólk. Meirihluti i þessum hópi
(62,3%) er farinn á fætur kl. níu
á laugardagsmorgnum og nærri
níu af hverjum tíu eru vaknaðir
klukkan tíu á laugardagsmorgn-
um.
Fólk á aldrinum 31—45 ára er
flest sofnað um miðnætti virka
daga og um kl. hálf tvö aðfara-
nætur laugardaga. Klukkan eitt
kvöldið eftir eru flestir sofnaðir
aftur, eða 75,1% og á sunnu-
dagskvöldum eru 86,1% í þessum
hópi horfin í draumaheiminn.
Þetta fólk er almennt vaknað
klukkan átta á morgnana virka
daga (88,3%), það er vaknað
klukkan níu á laugardagsmorgn-
um (76%) og klukkan tíu á
sunnudagsmorgnum eru 87,3%
fólks á aldrinum 31—45 ára far-
in á fætur.
Næsti aldurshópur, 46—60
ára, fer að sofa ekki síðar en um
miðnætti virka daga, þá eru níu
af hverjum tíu sofnaðir og allir
klukkutíma síðar. Á föstu-
dagskvöldum fer þessi hópur um
það bil klukkutíma síðar í rúmið
og svipaða sögu er að segja af
laugardagskvöldum og sunnu-
dagskvöldum. Þessi hópur virð-
ist fylgja nokkuð föstum reglum
um fótaferðar- og háttatíma.
Níu af hverjum tíu á aldrinum
46—60 ára eru komnir á fætur
klukkan átta á morgnana og all-
ir eru farnir á fætur klukkan tíu.
Þessi hópur virðist á sama hátt
fara klukkutíma síðar á fætur
um helgar — líklega til að vinna
upp þann klukkutíma, sem vakað
var lengur kvöldið áður.
Elsti hópurinn, 61—70 ára, fer
fyrst á fætur, virka daga eru
75,6% komin á stjá klukkan sjö.
Níu af hverjum tíu eru sofnaðir
um miðnættið virka daga og
langflestir eru sofnaðir fyrir
miðnætti á föstudögum og laug-
ardögum. Helmingur þessa fólks
er sofnaður klukkan ellefu á
kvöldin virka daga og 97,5% far-
in í rúmið klukkustund eftir
miðnætti. Eins og næsti hópur
fyrir neðan verða ekki miklar
breytingar á fótaferðar- og
háttatíma þessa fólks. Meira en
helmingur þess er kominn á fæt-
ur klukkan hálf átta á laugar-
dögum og sunnudögum og það
virðist aldrei sofa til hádegis eða
fram eftir síðdegi.
-aeinu
aujma-
MiRI
BBbúdin
Grensásvegi 5, Sími: 84016
Einnig eigum við ísskápa
sem knúðir eru fyrir gasi
og/eða rafmagni (12 og 220
volt).
Gasofnar
Margar gerðir og stærðir af
SUPERSER og JUSTUS
gasofnum. 3 hitastillingar.
Vandaðir öryggisrofar.
Gaseldavélar
SUPERSER með þremur
hellum, loki, bakarofni
og grilli.
Mase
Tiger
Diesel rafstöð
Spenna:
220 volt 3,500 wött
12 volt 24 amper
24 volt 15 amper
Vél: Diesel m/rafstarti.
Eyðsla: 0,65 Itr. á klst.
Eldsneytisgeymir: 4,5
Itr. Vegur 80 kg.
Möguleiki á sjálfvirk-
um neyöarræsibúnaöi
fyrir sveitabýli og fl.
Verö kr. 100.905.
Benco,
Bolholti 4,
sími 21945/84077.
Þú svalar lestrarþörf dagsinsy
' sfóum Moggans!