Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 22

Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 22
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 Veðurlag sem veldur eldingum Sem kunnugt er eru eldingar rafmagnsfyrirbæri — þær verða til með áþekkum hætti og blossi, sem verður af skammhlaupi milli tveggja rafskauta. Við tiltekin veðurskilyrði verður loftið sums staðar svo hlaðið jákvæðu raf- magni en annars staðar neikvæðu, að gífurleg spenna myndast á milli. Þar kemur að spennumis- munurinn verður svo mikill að rafstraumurinn brýzt á milli með björtu leiftri og miklum gný. Með hliðstæðum hætti gerist það þegar eldingu lýstur til jarðar, nema þá er jörðin andhverfa skautið — þ.e. spennumismunurinn myndast milli jarðarinnar og þrumuskýsins er eldingunni lýstur niður úr. En við hvaða skilyrði verða þrumuveður helzt hér á landi. í bók Páls Bergþórssonar, „Loftin blá“, segir eftirfarandi um þetta: „Það er tvenns konar veðurlag, sem veldur þeim. í fyrsta lagi hitaskúrir í sumrin. Er loftið þá tiltölulega kalt hið efra, en hið neðra er það rakt og hlýtt að upp- runa, og þar er það auk þess hitað af geislum sumarsólarinnar. Ský- flókar teygja sig hátt upp á him- inhvolfið, bjartir og skínandi ofantil, en dimmir og ískyggilegir hefói hið neðra. Um nónbilið er orðið molluheitt og veðrið er kyrrt, en eitthvað liggur í loftinu. Skyndi- lega rofnar kyrrð sumardagsins af drynjandi gný. Þegar þruman berst okkur til eyna, er þó eldingin um garð gengin. Hljóðið er í þrjár sekúndur að berast einn kíló- metra, og sá eini hvellur, sem eld- ingunni fylgir, bergmálar síðan í fjöllum og fellum og verður í eyr- um okkar eins og langvinnar drunur, sannkallaður þrumugnýr. Ef við beinum nú athygli okkar að skýjunum, einkum hinum dimm- ustu, getur verið, að innan stundar sjáum við glampann af næstu eld- ingu, þó að bjart sé af degi. Um leið lítum við á úrið og teljum sek- úndurnar þangað til skruggan heyrist, þá er fjarlægðin auð- reiknuð. Lfði t.d. 15 sek. frá leiftri að þrumu, hefur eldingin verið í 5 km fjarlægð. Oftast kemur steypi- regn og haglskúr með þrumuveðr- um á sumrin. Þessar sumarþrum- ur eru þó ákaflega sjaldgæfar hér á landi miðað við flest byggð lönd, og verða því flestum harla minn- isstæðar, þegar þær koma. Teikning Mbl./Pétur Halldórsson. Eldingaveður á íslandi: sem að fór. Þeir standa allir á hlaðinu á Auðnum en bóndinn þar, Jón hreppstjóri Erlendsson, geng- ur inn i geymsluhús nær sjónum að ná í brennivín, sem hann ætlar að færa gestum sínum. En nú fær- ist élið í aukana. í frásöguþætti Jóns Helgasonar, „É1 á Auðna- hlaði“, sem birtist í öðru bindi rit- verks hans „Vér íslands börn“ seg- ir þannig af atburðum: „Húsum var svo háttað á Auðn- um, að þau sneru stöfnum í norð- vestur og horfðu bæjardyr að sjó, sem vænta mátti á slíku útvegs- setri. Var vestast húsa timbur- stofa, er reist hafði verið sumarið áður, og austur frá henni timb- urskúr eða göng til bæjarhúsanna. Var gengið í skúr þennan af hlað- inu, en síðan úr honum aftur hvort heldur vildi til timburstofunnar eða baðstofu. Steinn var við dyr þær, er horfðu fram á hlaðið. Eldhús, torfhlaðið, var norðanvert við timburskúrinn og síðan tvö hús með standþili fram á hlaðið. Þeir Jóhannes staðnæmdust norðan undir gafli timburstofunn- ar nýju og hugðust standa þar af sér élið, sem nú var sem ákafast. Þrír eða fjórir hömuðu sig undir gaflinum, rétt hjá nýrri, eirlitaðri sjóbrók, sem þar hékk, nokkrir stóðu fyrir framan þá og börðu sér, en tveir eða þrír nokkru fjær. „ Virtist sem skoti verid hleypt úr fallbyssu“ Slysahætta vegna eldinga er ekki talin mikil hér á landi enda eru slys af völdum eldinga fátíð. Oft verður eldinga þó vart hér og skemmdir á síma- og rafmagnslínum af þeirra völdum ekki óalgengar. Skruggur eða þrumur geta myndast við tiltekin veðurskilyrði og er þá ekki alltaf að til eldingarinnar sjáist, sem veldur þeim. En hver eru þessi veðurskilyrði sem eldingahætta skapast við hér á landi? Svo virðist sem furðu lítið hafi verið skrifað um þetta veðurfyrirbæri og rannsóknir á því eru sennilega af skornum skammti hér á landi. Þrumuveður að vetrarlagi Hins vegar eru þrumur að vetri til algengari hér en í flestum öðr- um löndum. Það er þó nær ein- göngu í svokallaðri útsynnings- veðráttu, suðvestanátt, sem komin er um langan veg yfir hafið fyrir sunnan Grænland. ískalt loft frá snæbreiðum Kanada flæðir þá yfir ófrosinn sjó og hlýnar mjög ört hið neðra og dregur til sín raka. Myndast þá heppileg skilyrði fyrir háreista skýflóka, útsynnings- klakka. Það gengur á með hvöss- um og dimmum kornéljum á Suð- ur- og Vesturlandi, og í vetrar- myrkrinu er þá ekki fátítt, að fyrir bregði leiftrum, sem lýsa hauður og himin. Eru þau oft köll- uð rosaljós. Sjaldnar heyrast þá þrumur, útsynningsgarrinn kæfir þær í veðurdyn og éljanauði, þótt ljósagangurinn verði skerandi fyrir myrkurvön augu manns um skammdegisnætur." Eins og segir hér að framan mun það vera fátítt að eldingar valdi slysum á mönnum hér á landi. Slys af eldingum hafa þó orðið hér á landi og eru sennilega fleiri en almennt er ætlað, því nokkuð víða er getið um mann- skaða af völdum eldinga i gömlum heimildum. É1 á Auðnahlaði Árið 1865, hinn 17. marz um kl. 8 að morgni, varð stórslys af völd- um eldingar á Vatnsleysuströnd. Svo bar til þennan morgun að skipshöfn frá Reykjavík kom að Auðnum á Vatnsleysuströnd. Voru það Jóhannes Ólsen formað- ur og skipverjar hans: eru sjö þeirra nafngreindir í heimildum, Þórður Torfason í Vigfúsarkoti, Þórður Jónsson kenndur við Lambastaði, Jón Jónsson bóndi á Rauðará, Jón Einarsson vinnu- maður Jóhannesar Ólsens, Vigfús Guðnason vinnumaður, Stefán Þorleifsson vinnumaður, og ungl- ingspiltur, Jóhann Árnason frá Melstað. Voru þeir á leið til Reykjavíkur sunnan úr Vogum. Vegna austan-hvassviðris höfðu þeir farið með löndum en þegar dimmdi í lofti og veðurútlit versn- aði, brugðið á það ráð að lenda i Auðnavör og bfða þar af sér élið Var þá klukkan átta að morgni eða rúmlega það. „Timburstofan huldist reykjarmekki“ Margt manna var heima á Auðnum. Tvær konur voru í eld- húsi við matseld, maður stóð í skúrdyrum og gáði til veðurs, ann- ar stóð í húsum inni við gluggann á austasta þilinu. Einhverjir voru á ferli úti við, en flestir þó í bað- stofu. Jóhannesi Ólsen varð nú gengið austur fyrir hornið á gafli timb- urstofunnar og ætlaði að leita sér skjóls í timburskúrnum. En hann var ekki kominn nema rétt fyrir hornið, er elding reið yfir. Fólki á næstu bæjum virtist sem skoti hefði verið hleypt af fallbyssu. Þeim, sem inni voru í bænum á Auðnum, fannst sem loftþytur færi í gegnum húsin með miklum gný. Menn, sem álengdar voru, sáu, að timburstofan huldist reykjarmekki, sem helzt virtist rjúka upp úr jörðinni, og þegar að var komið, var svælan á hlaðinu eins og kveikt hefði verið í hálf- blautu púðri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.