Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
Charles Dickens
Catherine Dickens
Leikkonan unga, Ellen Ternan.
Bréfin segja aðra sögu
Sagnaskáldið mikla, Charles Dickens, hrakti konu sína, Catherine, frá sér
eftir 22 ára hjónaband. Hún hafði þá fætt tíu börn og misst fóstur tvívegis.
Til að þagga niður orðróm þess efnis að hann héldi við systur hennar,
skrifaði hann sína útgáfu af sögunni í blöðin 1858. Hið rétta var að hann
gekk með grasið í skónum á eftir leikkonu nokkurri, Ellen Ternan, sem þá
var sautján ára. Hann lét þess þó ekki getið í blaðagreininni.
Samkvæmt hans útgáfu, hafði
Catherine lengi viljað yfirgefa
hann, til að búa í friði og ró fjarri
streitunni sem fylgdi því að búa
með stjörnu. Hann sagði hana
eiga við andlega vanheilsu að
stríða og þar á ofan skildi hvorki
hún hann, né hann hana, þau ættu
sáralítið sameiginlegt og hún væri
ómöguleg móðir og hefði hvorki
hundsvit né áhuga á b'arnauppeldi.
Catherine varð að taka þessu
þegjandi þar sem hún var nú í
nokkurs konar útlegð hjá móður
sinni og háð skáldmæringnum
fjárhagsíega. Hann lét henni í té
600 pund á ári. Og þar til fyrir
skömmu var þetta líka hin opin-
bera útgáfa. Enginn varð til að
velta því fyrir sér hvort skáldið
hefði þarna verið að skrifa frá-
sögn eða skáldskap — eins og
venjulega.
Nú hefur verið gefin út bók í
Englandi, sem hefur að geyma
bréf Dickens til konu sinnar og
bera þau þess vott, að samband
þeirra hjóna var með miklum
ágætum lengst af og sú mynd sem
þau virðast draga upp af Cather-
ine á lítið skylt við lýsingar
skáldsins í blaðagreininni fyrr-
nefndu. Bréfin segja aðra sögu.
Þegar Charles Dickens var á
fimmtugsaldri, varð hann ákaf-
lega eirðarlaus, gekk í gegnum
einhvers konar „breytingaskeið".
Bjartsýni hans á lífið og tilveruna
varð að láta í minni pokann og
sjást þessa m.a. merki í skáldsög-
unni „Erfiðir tímar".
Hann flutti úr svefnherbergi
þeirra hjóna og lét Catherine aldr-
ei í friði, ef þau áttu eitthvað sam-
an að sælda, fann stöðugt að ein-
hverju við hana.
Dóttir skáldsins, Katey, lét ein-
hverju sinni svo um mælt, að faðir
hennar hefði ekki skilið konur, og
víst er að ófáir lesendur verka
hans hafa sett í brýnnar yfir þeim
einhæfu kvenlýsingum sem þar
birtast. Bæði jákvæðar og nei-
kvæðar. Lýsingar á konu hans í
blaðaskrifunum árið 1858 voru
einnig af þessum toga og allar
neikvæðar.
Hún fyrirgaf honum þetta
vegna snilli hans, rétt eins og
gagnrýnendur og fræðimenn hafa
gert. En hún hélt áfram að elska
hann, þrátt fyrir að hann hefði
aldrei samband við hana þau tólf
ár sem liðu frá skilnaðinum þar til
hann lést. Skömmu áður en Cath-
erine Dickens lést, afhenti hún
dóttur sinni bréfin frá eiginmann-
inum með þessum orðum: „Láttu
British Museum fá þau, svo heim-
urinn komist að því, að hann elsk-
aði mig einu sinni." Þetta tók
heiminn býsna langan tíma.
— Bjggl • The Guardian Weekly.
Hazel loks á nlmu
Danski stríðsbókahöfundurinn
Sven Hazel mun einn af mest
lesnu rithöfundum heims og hafa
bækur hans selst í meira en 40
milljónum eintaka í 102 löndum.
En þrátt fyrir þessa sölu hefur eng-
in sagna hans verið kvikmynduð til
þessa og það er hálfundarlegt mið-
að við það ómælisflóð af stríðs- og
ofbeldismyndum sem frá Holly-
wood streymir ár hvert.
Til skamms tíma átti eitt
hinna stóru kvikmyndafélaga
einkaréttinn á kvikmyndun bóka
eftir Hazel, mýmargir aðilar
komu að máli við hann og höfðu
uppi stórfenglegar ráðagerðir
um bíómyndir, en aldrei varð
Sven Hazel.
neitt úr neinu. Nú mun loks af-
ráðið að kvikmynda eina af sög-
um Danans.
Það er danski kvikmynda-
framleiðandinn Just Betzer sem
þar á hlut að máli, en hann
komst yfir kvikmyndaréttinn
fyrir stuttu. Hann hefur áður
gert myndir eins og „Vetrar-
börn“ og „Det parallelle lig“ og
„ajeblikket".
Kostnaður við gerð Hazel-
myndarinnar er áætlaður um
150 milljónir íslenskra króna og
verður hún miðað við alþjóðleg-
an markað og gerð fyrir alþjóð-
legt fé. Undirbúningur er þegar
kominn vel á veg.
Tennurnar
láta sig dreyma
Teiknimyndasögur eru vinsælt
lestrar- eða skoóunarefni um heim
allan. Þó mun óvíða vera önnur eins
eftirspurn eftir lesefni af þessu tagi
og í Japan. Tölur sem birtar hafa
verið um neyslu þarlendra á teikni-
myndasögum eru stjarnfræðilegar.
Um-það bil 1,2 billjónir eintaka
eru seldar ár hvert og framleiðsla
teiknimyndasagna nemur um 27
prósentum af heildarframleiðslu
bóka og tímarita. Fimm söluhæstu
drengja-myndasögurnar seljast að
jafnaði í samtals níu milljónum
eintaka.
Drengirnir sem lesa þessi hefti,
geta reyndar verið kaupsýslumenn
að nálgast miðjan aldur. Þeir sitja
hugfangnir í lestum, kaffihúsum
og mötuneytum yfir þessum sög-
um, sem ætlaðar eru tíu til ellefu
ára strákum. Hrekkir óþægra
skólakrakka, vísindaskáldskapur
og draugasögur eru uppistaðan í
þessum heftum. Sumir neytendur
þessara sagna fara síðan að lesa
teiknimyndasögur sem ætlaðar
eru fullorðnum. En fjögur sölu-
hæstu hefti af þeirri tegund selj-
ast í samtals um 2,5 milljónum
eintaka. Þar eru á ferðinni sam-
uraia-stríðsmenn, glæponar og
ýmsar ofurhetjur.
Við síðustu talningu reyndust
vera á markaðnum nærri 100 erót-
ískar myndasögur. Ómengað of-
beldi og kynlíf, en þó farið ná-
kvæmlega að lögum um velsæmi,
en þau banna m.a. að kynfæri sjá-
ist. Hins vegar er allt í lagi að
sýna hvers kyns limlestanir og
sérhæfa þessi blöð sig í pynduðum
konum, blóði og aflimunum hvers
konar.
í stúlknablöðunum lekur róm-
antíkin af hverri síðu. Söguhetj-
urnar eru evrópskt hefðarfólk, út-
lendar rokkstjörnur, kynvilltir
drengir og tvíkynja prinsar,
íþróttakonur, en engir verkalýðs-
frömuðir. Feminismi og kynferðis-
pólitík eru heldur ekki á dagskrá í
myndasögum handa konum, en
þann markað segja útgefendur
fara ört stækkandi.
Að dómi þeirra sem um hafa
fjallað, er skýringin á vinsældum
myndasagna í Japan sú, að þjóðfé-
lagið sé svo mannmargt og íhalds-
samt, að þarna bjóðist einstakl-
ingunum stundarlausn frá veru-
leikanum, veruleika sem er á þann
veg, að flestum stendur einungis
til boða að eyða lífi sínu sem ein
tönn á risavöxnu, tölvustýrðu
tannhjóli.
Flestir eru á einu máli um að
þeir sem teikna þessar myndasög-
ur séu ákaflega færir á sínu sviði.
Þeir beita aðferðum kvikmynd-
anna; þröng skot, víð skot, mis-
munandi skotvinklar. Þá hafa þeir
einnig fundið upp heilmikið af
áhrifamiklum hljóð-orðum. Það
nýjasta á því sviði, er orð sem
táknar algera þögn. Það er: „Shi-
iin“.
— Byggt á The Guardian Weekly.
Eins og skáldið sagði...
„Ég hugsa eins og snillingur, skrifa eins og mikilsvirtur rithöf-
undur og tala eins og barn.“
(— Vladimir Nabokov)
Edinborq
HELGÁRFERÐIR VIKUFERÐIR
Verö frá krónum 8.208.-
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Óháði söfnuðurinn:
Síðasti
kirkjudagur
sr. Emils á
sunnudag
KIRKJUDAGUR Óháða safnaðarins
verður haldinn í dag, sunnudag, í
kirkju Óháða safnaðarins, en þetta
verður síðasti kirkjudagur sr. Kmils
Björnssonar, prests safnaðarins, en
hann lætur af því starfi um næstu
áramót.
Hefst kirkjudagurinn með
messu klukkan 14.00 og eftir
messu munu konur safnaðarins
standa fyrir kaffisölu til ágóða
fyrir kirkjubygginguna sem verið
er að gera við nú.