Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
Inngangurinn í leikhúsiö
Úti var hlýtt og bjart veður en
inni í „leikhúsinu" var dimmt, kalt
og hráslagalegt. Við inngöngudyrn-
ar inn í stóran klett stóðu stórar
vinnuvélar. Hrörlegur stigi lá upp
á áhorfendapallana, sem hafði ver-
ið komið fyrir í flýti, og hætta var á
flís ef gripið var um handriðið.
Sviðið var gryfja í stórri grjótnámu
í þröngum dal skammt fyrir norð-
an Alpana í Sviss. Leiktjöld voru
engin en sandurinn á botni gryfj-
unnar myndaði trjárætur og af-
hogginn trjábol. I»ar léku ungir
leiknemendur frá Liitzelfluh leik-
ritið „Edda“, sem þeir hafa samið
upp úr Eddukvæðum með kennara
sínum og leikstjóra Jolanda Kodio.
Leikritið var forvitnilegt en áhorf-
cndur litu þó alltaf til lofts annað
veifið og kímdu. I>að var þegar
vatn gusaðist niður úr plasthimni,
sem hafði verið komið fyrir í lofti
gryfjunnar til að grípa vatnsdropa,
sem féllu jafnt og þétt með tilheyr-
andi hávaða. Mesta mildi var að
enginn skyldi verða fyrir sturtu-
baði.
„Svisslendingar hafa yfirleitt
aldrei heyrt minnst á Eddu-
kvæði. Gömlu goðin standa
okkar menningu þó nær en
grísku guðirnir, sem öllum
skólabörnum er sagt frá,“ sagði
Jolanda Rodio eftir aðalæfing-
una á leikritinu. Hún dvaldist
eitt sinn nokkuð lengi í Svíþjóð
og fræddist um Eddukvæðin þar
og hefur nú haft áhuga á þeim í
ein 35 ár. Hún er skólastjóri
nemendaleikhússins í Lutzelflúh
og hefur áður látið nemendur
sína fást nokkuð við Eddukvæði
en aldrei í jafn stórum stíl og nú.
Bern-kantónan veitti skólanum
styrk til að setja Eddu á svið og
nemendurnir hafa nú kynnt sér
kvæðin og unnið að túlkun
þeirra í 18 mánuði.
Leikritið „Edda“ er spunnið í
kringum Völuspá. Atvik úr lífi
goðanna eru sett á svið, kvæðin
ýmist lesin og túlkuð eða leikin
með nýjum orðum og köllum.
Tónlist og skuggar í gryfjunni
setja drungalegan svip á tilveru
ásanna meðal norna og risa.
Leikbúningarnir eru afar ein-
faldir, einhvers konar náttfata-
samfestingar og teppi, sem goðin
sveipa um sig þegar þau setjast
á trjábolinn.
Sýningin byggist að miklu
leyti á hreyfingum leikaranna og
skrýtnum hljóðum, sem þeir
gefa frá sér. Ekki er gott að
segja hversu mikinn skilning
Svisslendingar öðlast á Eddu-
kvæðum við að sjá þetta leikrit.
Ég fékk stundum á tilfinninguna
að persónurnar væru hálfgerðir
trúðar, hoppandi um og gefandi
frá sér alls konar öskur. Rodio
sagði að áhugi væri allnokkur á
sýningunni. Uppselt var á frum-
sýninguna 24. september og fjór-
ar aðrar sýningar voru fyrirhug-
aðar í grjótnámunni.
ab.
Eddukvædi
færd í
nýstár-
legan
búning
Hl lönaðar —
'|l verslunarlóðir
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um
byggingarrétt á eftirgreindum stööum:
A. Artúnsholt: lóðir fyrir léttan, þrifanlegan iönaö.
B. Seljahverfi, miösvæöi: lóðir fyrir verslanir og
þjónustu.
Umsóknir skulu ritaðar á sérstök eyöublöð, sem
fást afhent á skrifstofu borgarverkfræöings,
Skúlatúni 2.
Umsóknarfrestur er til og meö 28. október 1983.
Athygli er vakin á því aö allar eldri umsóknir eru
hér með fallnar úr gildi og ber því að endurnýja
þær.
Allar nánari upþlýsingar veröa veittar á skrifstofu
borgarverkfræöings, Skúlatúni 2, 3. hæö, þar sem
jafnframt er tekiö á móti umsóknum.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
PLANTERS
Heildsölubirgðir:
Agnar Ludvigsson hf.
Nýlendugötu 21,
sími 12134.
rrumsýnincj
í KVÖLD
stu'í
2. sýning
þriöjudag 18. okt. kl. 20
Pantanasími 5 1020
muniö hann
JÖRUnD
SYnT I:
* GftPI-mn » bb
LEIKFELAG f
viö Kcykjancsbraut hafnarfjaroar
esió
reelulega
ölmm
fjöldanum!
Á RÉTTRI
,upplausntil
abyrgðar
LEIÐ
Suðurnesjamenn
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Stapa
mánudaginn 17. október kl. 20.30. Geir Hallgríms-
son utanríkisráðherra ræðir störf og stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Þingmenn flokksins í kjördæminu
mæta á fundinn. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn.