Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 36

Morgunblaðið - 16.10.1983, Síða 36
84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983 Hræringur Umsjón: Bragi Óskarsson Þj óðsagnasafnarar á öldinni sem leið Vid bsejardyr á Hnappavölium. Þarna ólst Magnú.s Bjarnason upp á ofanverdri síðustu öld — það má segja að heimur íslenzku þjóðsögunnar hafí verið við bæjardyrnar hjá honum. Teikninit: Gaimard 1836. Heilagur Davíð og hangikjötið „Á árunum 1862 og 1864 komu á prent Þjóðsögur Jóns Árnasonar bókavarðar. Islenzk alþýða tók bókinni tveim höndum. Mun engin bók önnur hafa notið jafn mikilla vinsælda á Islandi. Á Hnappavöllum í Öræfum átti þá heima á vegum foreldra sinna bókhnýsinn örkumlamaður, sem hét Magnús Bjarnason. Var hann um þessar mundir á þrítugs aldri. Af Guðmundi ríka og Helga tíuauraskegg Eftirfarandi sagnaþættir eru hafðir úr þjóðsagnasafni Jóns Þorkelssonar „Þjóðsögur og munnmæli". „Þegar ólafur Gíslason var biskup í Skálholti (1747-1753), bjó þar í grennd bóndi sá, er Guð- mundur hét. Hann var auðmaður og hafði grætt peninga mikla. Ein- hverjir urðu til að bera Guðmundi þá frétt, að páfinn hefði ritað biskupi bréf og skipað honum að selja himnaríki á uppboðsþingi fyrir peninga, og ráða þeir Guð- mundi til að ná í kaupið. Þykir honum það fýsilegt og fer að finna biskup og ræða við hann um söl- una. Biskup aumkaði einfeldni Guðmundar og vill leiðrétta hann og segir: „Hvorki páfinn eða ég eða nokkur maður á ráð á að selja eður kaupa himnaríki við verði. Allir eru syndarar og eiga það ein- ungis undir náð Guðs, að hann gefi þeim himnaríki." „Gefi!“ segir Guðmundur. „Ég er ekkert upp á það kominn, að Guð gefi mér það, ég á nóg til að borga það með.“ „Helgi hét maður og var Sig- urðsson frá Mýrum í Eyrarsveit, Ólafssonar. Hann var bóndi við Hellna undir Jökli og var kallaður tíuauraskegg. Hafði hann áskilið sér í skiptum eftir föður sinn rétt til þess að mega bera jafnsítt og mikið skegg sem hann hafði haft, og mat hann rétt þann til tíu aura með Ólafi bróður sínum við skipt- ið ... Helgi var vænn maður og góðgjarn og kom mörgu til lags með mönnum, og af því að hann var kunnur að góðgirni og veit- andi, báru menn gjarnan málefni sín undir hann. Það var einhverju sinni, að tveir menn deildu. Þóttist annar hafa farið mjög svo halloka í orðum fyrir hinum og var hinn reiðasti og vildi hefja mál út af því. Gengur hann þá til Helga og skýrir honum frá málavöxtum og segir: „Þykir þér það ekki illa mælt, að hann sagði mér að éta skít og fara til helvítis?" Helgi tók manninum með hinni mestu still- ingu og svaraði: „Að hann sagði þér að éta skít, var ekki neitt, því það gerum vér allir, en að hann sagði þér að fara til helvítis, það var verra, og þó varð það eitthvað að heita, fyrst maðurinn var reið- ur,“ og taldi Helgi þangað til um fyrir manninum, að hann gleymdi mótgerðinni." Hann las þjóðsögurnar með sér- stakri athygli. Varð sá iestur til þess, að hann tók sér fyrir hendur að skrásetja ýmiss konar þjóð- sagnir, sem gengu manna á milli í Öræfum, ef þær voru ekki til í Þjóðsögunum, eða ef frásögnin var þar með öðrum atvikum." Þannig hefst formáli Jóhanns Gunnars ólafssonar fyrir „Þjóðsagnakveri" Magnúsar Bjarnasonar frá Hnappavöllum, er hann safnaði til á öldinni sem leið. Það var hins vegar ekki fyrr en 1950 sem Þjóð- sagnakver hans kom út hjá Hlað- búð í Reykjavík. Þannig urðu margir til að leggja hönd á plóg- inn við söfnun og skráningu ís- lenzkra þjóðsagna og þjóðlegs fróðleiks. Hér var að sjálfsögðu um áhugastarf að ræða og gátu fæstir þessara manna gert sér vonir um að þjóðsagnasöfn þeirra yrðu nokkurn tíma prentuð nema þá að litlum hluta. Þannig var unnið mikið starf og oft við erfið- ar aðstæður, en fyrir bragðið varð mörgu forðað frá gleymsku og safnað mörgu gullkorni, sem ann- ars hefði farið í glatkistuna. Hér eru til færðar þrjár stuttar sögur úr Þjóðsagnakveri Magnús- ar. Kölski ágirnist óþvegið Það er sagt, að einu sinni, er stúlka var búin að þvo barni höf- uðið, hafi skrattinn komið til hennar og beðið hana að gefa sér það, sem hún hefði ekki þvegið á barninu. Mundi þá stúlkan eftir því, að hún átti óþvegin eyrun á barninu, og brást hún þá við að þvo þau. Þaðan mun það dregið, að skratt- inn vilji eiga það, sem maður þvær ekki. Magnús Stephensen dæmir konung til stórútláta Það er sagt, að einu sinni hafi Magnús Stephensen átt að dæma mál milli konungs og einhvers annars, og hafi hann dæmt mikil útlát á hendur konungi, en hinn orðið frí. Átti þá stjórnin að segja, að það væri óhætt að veita honum æðsta embættið í landsyfirréttinum þess vegna, að hann færi ekki í manngreinarálit í dómum sínum. Kölski finnur ekki ágirndarlausan prest Einu sinni lofaði maður sig skrattanum, ef hann gjörði eitt- hvað mikilsvert fyrir sig, en þó með því móti, að hann gæti fært sér ágirndarlausan prest. Og er sá tími kom, er kaupin áttu að fullgjörast, kom kölski með prest nokkurn, en sagði þó, að hann væri ekki alveg frí við ágirnd. Vissi hann ekki nema af einum presti ágirndarlausum og væri hann úti í Þýzkalandi. En það logaði ávallt ljós í kringum hann, svo hann gæti ekki náð hon- um. Maðurinn sagði, að hann yrði þá að sleppa af kaupinu við sig, fyrst hann gæti ekki efnt það, sem hann hefði sett á hann. Gat kölski ekki mótmælt því. Heilagur Davíð og hangikjötið Prestur nokkur sendi vinnu- mann sinn til efnabónda sem Davíð hét, og bað hann um að selja sér hangin skammrif til há- tíðabrigða. Segir nú ekki af ferð- um vinnumanns fyrr en heim kemur, og er þá prestur úti í kirkju að messa. Vinnumaðurinn fer í kirkju og hittist þá svo á, að prestur segir í prédikun sinni: „Hvað segir þú heilagur Davíð hér um?“ Þá gellur vinnumaður við: „Hann gefur djöflinum þann hangi- kjötsbita, sem hann láti yður fá!“ „Nú, það hefur þá hvorugt passað“ Bændur við ísafjarðardjúp skipta mikið við Kaupfélag Isfirð- inga. Panta þeir vörur símleiðis og fá þær sendar með Djúpbátnum. Eitt sinn hringdi bóndi einn og bað um að sér yrðu send vinnuföt, og var svo gert. Daginn eftir hringir bóndi til Ketils kaupfé- lagsstjóra og kvartar undir slæmri afgreiðslu, fötin séu alltof stór. „Þá má kannski segja að bux- urnar séu upp á mann,“ segir bóndi, „en stakkurinn er eins og upp á sjálfan andskotann." „Nú, það hefur þá hvorugt pass- að,“ anzaði Ketill með hægð. Annars var hugmyndin ágæt! Sr. Árni Þórarinsson og sr. Halldór Bjarnason frá Presthól- um voru góðir vinir. Þeim var báð- um meinilla við Jón biskup Helga- son. Á síðustu æviárum var sr. Halldór orðinn elliær og hálfrugl- aður. Sr. Árni var eitt sinn að koma úr heimsókn frá sr. Halldóri. Hann hittir þá kunningja sinn, minnist á komu sína til sr. Hall- dórs og segir síðan: „Hann er orðinn ósköp ruglaður, aumingja karlinn. Til dæmis sagði hann mér að nú ætti að hengja Jón biskup næsta sunnudag á Þingvöllum. Það rennur svona út í fyrir honum. Annars var hug- myndin ágæt,“ bætti sr. Árni við. Getin af sr. Þórhalli í Almanakinu I Hjálpræðishernum var dansk- ur foringi að sýna myndir af frú Booth og segja frá æviferli henn- ar. Sá danski vildi minna á það að hér á landi hefði Þórhallur Bjarnason, biskup, getið hennar á prenti og komst svo að orði: „Hún er getin af sr. Þórhalli í Almanaki Þjóðvinafélagsins." Einkennilegar draumfarir Draumar hafa jafnan þótt áhugavert umræðuefni, ekki síst hér áður fyrr er landið var strjál- býlt og samgöngur erfiðar. Það var fátt sem glapti fyrir í fásinn- inu og svo virðist sem fólk hafi veitt draumlífi sínu meiri athygli en nú gerist. Marga dreymdi fyrir daglátum, veðri og atburðum og voru slíkar draumspár álitnar hinar gagnlegustu. En svo eru líka annars konar draumar sem alltaf hljóta að vekja vangaveltur. Eftir- farandi frásögn af „samdreymi" er tekin úr þjóðsagnasafni Odds Björnssonar, „Þjóðtrú og þjóð- sagnir", er út kom 1908. „Vorið 1877 flutti Baldvin bóndi Sigurðsson að Garði í Aðaldal. Það vor fór til Baldvins gamall maður, er Sigmundur hét og annar maður ungur, sem Jóhannes hét, Kristjánsson. Skömmu eftir frá- færurnar þetta vor var þvegin ull vestur við Núp, sem er alllangt frá bænum, við svokallað Syðra-Gil, og var hún breidd þar til þerris. Eitt kvöld var Sigmundur karl beðinn að vaka yfir ullinni og gerði hann það, en Jóhannes fór með ánum norðvestur í Aðaldals- hraun og sat þar hjá þeim. Þegar Sigmundur kom heim segir hann fólkinu, að sig hafi sótt svefn um sólaruppkomuna og hafi hann blundað lítið eitt. Þá dreymir hann að Jóhannes kæmi norðan Núpsklappirnar og læddist niður eftir gilinu og að ullarflekknum og þótti honum að Jóhannes mundi ætla að stela af ullinni. Hann þóttist vera reiður, hlaupa á Jó- hannes, reka hann undir sig og taka upp kníf til að skera hann á háls; við þetta vaknaði hann. Litlu síðar kemur Jóhannes heim með ærnar og var þá Sigmundur sofn- aður. Jóhannes segir þá fólkinu að sig hafi syfjað svo mikið um sólar- uppkomuna, að hann hafi fallið í svefn og hafi sig þá dreymt und- arlega. Hann þóttist fara súður Núpsklappirnar og suður í Syðra- Gil og ætla að finna Sigmund gamla. En þegar hann kom að ull- arflekknum, þótti honum Sig- mundur rjúka á sig, skella sér flötum, leggjast ofan á sig, taka upp kníf og ætla að skera sig á háls. Við það vaknaði hann. Þessa sögu hefir sagt Guðný Jónsdóttir frá Þverá, húsfreyja Baldvins bónda í Garði, hin merkasta kona og eru þau hjón enn á lífi. Hefi ég aldrei heyrt fyrr né síðar að tvo menn hafi dreymt sama efni á sama augnabliki." (Sögn Halldórs Þorgrímssonar, 1907. Handrit Guðm. Friðjónsson- ar.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.