Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
85
„Mér heyrðist
detta svartur
ullarlagður...
Það var Ólafur Davíðsson er
skráði eftirfarandi kímnisögur, og
er þær að finna í HULD — safni
alþýðlegra fræða íslenzkra.
Förukarl einn tók upp á því að
látast vera steinblindur til þess,
að sér yrði heldur gefið. Þetta lán-
aðist vel um hríð, og var karl
harðánægður með bragð sitt.
Einu sinni var karlinn nótt hjá
hreppstjóranum. Hann sat hjá
manni um kvöldið, sem var að
kemba saman svarta og hvíta ull.
Maðurinn er að spyrja karlinn,
hvernig honum líði í augunum, og
karlinn að barma sér yfir blind-
unni, þangað til hann segir: „Mér
heyrðist detta svartur uilarlagður
hjá þér, félagi." Þá fóru allir að
hlægja, en karlinn sá strax axar-
skaptið og varð að smjöri. Hrepp-
stjórinn tók karlinn fyrir, og varð
karl nú að segja honum upp alla
sögu, enda var hann hýddur fyrir
bragðið.
Hvfldu þig, hvfld er góð
Ungur bóndi nýkvæntur var að
slá í slægju sinni. Það var vellandi
hiti, og bóndinn var heldur mark-
ráður að eðlisfari, svo að hann var
blóðlatur. Þá kemur til hans mað-
ur og segir: „Hvíldu þig, hvíld er
góð.“ Að svo mæltu fer hann burt.
Ekki er þess getið, hvernig bónd-
anum leizt á manninn, en ráð hans
lét hann sér að kenningu verða og
sló slöku við sláttinn, það sem ept-
ir var sumars, enda átti hann ekki
nema einn hey-kumbalda um
haustið. Loksins sá maðurinn, að
hann hafði ekki farið skynsamlega
að ráði sínu um sumarið og kenndi
ókunna manninum um allt saman.
Einhvern tíma,
kerling, kerling
í Skruddu Ragnars Ásgeirsson-
ar ráðunauts kennir margra
grasa, en þaðan eru eftirfarandi
sagnaþættir og vísur hafðar:
... Þegar Hallgrímur Péturs-
son fór suður á Hvalnes að taka
við prestakalli sínu þar, var hann
fótgangandi og mjög fátæklega til
fara. Kom hann seinni part dags á
prestssetrið bæði þreyttur og
svangur. Öldruð kona sat við hlóð-
ir í eldhúsi og hrærði í grautar-
potti, og bað hann hana að gefa
sér að borða. Bað kerling hann að
hafa sig á burt hið bráðasta og gaf
hreint afsvar, því að hún sagði, að
vellingurinn ætti að vera handa
nýja sóknarprestinum, honum
séra Hallgrími.
Varð séra Hallgrími þá að orði:
Einhvern tíma, kerling, kerling,
kann svo til að bera,
að ég fái velling, velling,
og verði séra, séra.
Pokinn
Hreppstjóri nokkur reið á
hvalfjöru, en sóknarpresturinn
slóst í för með honum. Nokkru síð-
ar barst þessi vísa um sveitina:
Rataði hann rétta leið,
þó rigning væri og þoka.
Hreppstjórinn úr hlaði reið,
hafði með sér poka.
Þegar vísan barst til prestsset-
ursins, sagði presturinn:
Einn góðan veðurdag kemur sami
maðurinn til hans og segir glott-
andi: „Latur, lítil hey.“ Svo hvarf
hann. Manninum hughægðist ekki
við komu hans, enda þóttist hann
vita, að hann hefði farið eptir ráð-
um djöfulsins og einskis annars.
„Nú, hesturinn ber
ekki það sem ég ber“
Einu sinni var karl á ferð og
reiddi talsvert undir sér. Honum
þótti heldur þungt á hestinum, svo
að hann fór að hugsa um, hvernig
hann gæti létt á honum með góðu
móti. Seinast datt honum það
snjallræði í hug að binda pokann
upp á bakið á sér og reið svo bí-
sperrtur leiðar sinnar. Einhver
mætti karli og spurði, hví hann
væri að mæða sig á pokanum og
reiddi hann ekki heldur undir sér
eða fyrir aptan sig. „Nú, hesturinn
ber ekki það, sem ég ber,“ svaraði
karl.
Gerði það Guði til skammar
Það er ekki ný bóla, að hart sér
í Fljótum nyrðra á vorin, því þar
eru víst einhver mestu veðravíti á
guðs grænni jörðu. Þó hafði sjald-
an keyrt eins úr hófi og eitt vor,
því þá var alsnjóa um hvítasunnu.
Einn karlinn þar í sveitinni var
orðinn heylítill og gramur við
ótíðina. Hann ætlaði samt að
staulast til kirkjunnar á skíðum,
því öðruvísi er varla mögulegt að
komast yfir Fljót, þegar fönn er.
Fólkið vildi láta hann sitja heima.
Nei, karl sagðist ætla að gera Guði
það til skammar, að ganga á skíð-
um til kirkjunnar á hvítasunnu.
„Mín er ekki getið í vísunni." Þá
spurði prestsfrúin: „Ertu nú alveg
viss um það, góði minn?“
Vísa um spil
Menn yrkja af ýmsu tilefni, en
sumar vísur eru nokkurs konar
innhverf leikfimi. I þessari vísu,
sem er trúlega allgömul, hefur
tekist að koma öllum spilunum í
ferskeytlu þannig að vel fer.
Fylkir, póstur, fjarki, sjö,
fimmið, gosi, nía.
Ásinn, þristur, átta, tvö,
ein drottning og tía.
T-vísa
í vísunni sem hér fer á eftir eru
hvorki meira né minna en 33 t, en
þar með þrýtur líka andgift hins
ókunna höfundar.
Eitt sinn þeyttust út um nótt
átta kettir, hratt og létt.
Tuttugu rottur títt og ótt
tættu og reyttu á sléttri stétt.
Gáta
Svo lesendur fari ekki með öllu
á mis við innhverfa leikfimi birt-
ist hér að lokum gáta eftir Krist-
leif Þorsteinsson á Stóra-Kroppi.
Reynist hún einhverjum strembin
má hafa það í huga að lausnina er
að finna út um allt land.
Einfætling ég úti sá,
ei til ferða laginn.
Báðum öxlum ber hann á
bull og ragn á daginn.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Akureyrar
Þremur umferðum af fjórum
er lokið í Thule-tvímennings-
keppninni og er staða efstu para
þessi:
Helgi Sigurðsson —
Vilhjálmur Hallgrímsson 552
Páll Pálsson —
Frímann Frímannsson 550
Grettir Frímannsson —
Ólafur Ágústsson 543
Stefán Ragnarsson —
Pétur Guðjónsson 536
Alfreð Pálsson —
Júlíus Thorarensen 534
Páll Jónsson —
Þórarinn B. Jónsson 526
Jón Stefánsson —
Símon Gunnarsson 521
Magnús Aðalbjörnsson —
Gunnlaugur Guðmundsson 518
Arnar Daníelsson —
Stefán Gunnlaugsson 514
Meðalárangur 468
í síðustu umferð spila 14 efstu
pörin í A-riðli.
Nk. fimmtudag 20. október
verður aðalfundur félagsins
haldinn í Félagsborg og eru fé-
lagar hvattir til að fjölmenna.
þriðjudaginn 25. október hefst
Akureyrarmótið í sveitakeppni. í
fyrra spiluðu 18 sveitir og var
spilað í þremur riðlum.
Bridgedeild Húnvetn-
ingafélagsins
Tveimur umferðum af fimm er
lokið í tvímenningnum og er
staða efstu para þessi:
Jón Ólafsson —
Ólafur Ingvarsson 389
Haukur Sigurjónsson —
Sigtryggur Ellertsson 361
Daníel Jónsson —
Karl Adolphsson 359
Sigríður Ólafsdóttir —
Halldóra Kolka 358
Baldur Ásgeirsson —
Hermann Jónsson 358
Keppninni verður fram haldið
nk. miðvikudag í Síðumúla 11.
Reykjavíkurmót
í tvímenningi
Reykjavíkurmótið í tvímenn-
ingi hefst laugardaginn 5. nóv-
ember í Hreyfilshúsinu við
Grensásveg. Þriggja umferða
undankeppni verður spiluð á
laugardeginum 5. nóvember (frá
13 til 18), sunnudeginum 6. nóv-
ember (10 til 15) og sunnu-
dagskvöldið 6. nóvember (18 til
23). Úrslitin fara fram fyrstu
helgina í desember, dagana 3. og
4. einnig í Hreyfilshúsinu.
Mótið verður með hefðbundnu
sniði. Undankeppnin verður spil-
uð í riðlum, fyrst er dregið í riðla
og síðan slönguraðað eftir úrslit-
um. 27 efstu pörin úr undan-
keppninni, ásamt Reykjavík-
urmeisturum fyrra árs, spila síð-
an 108 spila úrslitakeppni með
barómetersniði um Reykjavík-
urmeistaratitilinn.
Skráning í mótið fer fram hjá
félögunum og þarf að vera lokið
fyrir 3. nóvember. Formenn
Reykjavíkurfélaganna, eða full-
trúar þeirra, eru beðnir að af-
henda Jóni Baldurssyni, starfs-
manni BSÍ, skráningarlistana.
Ef menn hafa ekki tök á því að
skrá sig til keppninnar hjá félagi
sínu er hægt að hringja á
skrifstofu BSÍ í síma 18350 á
milli kl. 3 og 6 á virkum dögum.
Þar mun Jón Baldursson taka
niður nöfnin.
Keppnisgjald er 600 krónur á
par fyrir undankeppnina en 300
á par fyrir úrslitin. Keppnis-
stjóri verður Agnar Jörgensen.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 11. október hófst
3ja kvölda tvímenningur. Spilað
er í tveimur 12 para riðlum.
Bestu skor hlutu:
A-riðill:
Guðni Kolbeinsson
— Magnús Torfason 190
Hreinn Magnússon
— Stígur Herlufsen 184
Erlendur Björgvinsson
— Freysteinn Björgv. 180
Sigmar Jónsson
— Vilhjálmur Einarsson 177
B-riöill:
Ólafur Lárusson
— Rúnar Lárusson 199
Baldur Árnason
— Haukur Sigurjónsson 188
Jón Hermannsson
— Ragnar Hansen 185
Baldur Ásgeirsson
— Magnús Halldórsson 168
Næst verður spilað þriðjudag-
inn 18. október í Drangey kl.
19.30.
Islandsmót í
blönduðum flokki
íslandsmót í blönduðum flokki
(parakeppni) verður haldið 23.
okt. Spilaðar verða tvær umferð-
ir með Mitchel-fyrirkomulagi,
ein um daginn og önnur um
kvöldið. Bæði mótin verða spiluð
í Hótel Heklu. Tekið verður við
þátttöku í blandaða flokkinn til
föstudags.
Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Starfsemin hófst mánudaginn
3. október sl. og var spilaður eins
kvölds tvímenningskeppni (24
pör).
Urslit 6 efstu para: Stig
Viðar Guðmundsson —
Pétur Sigurðsson 151
Hannes Ingibergsson —
Jónína Guðmundsdóttir 128
Benedikt Benediktsson —
Guðni Sigurbjartsson 127
Ingólfur Lilliendahl —
Jón Ingason 125
Sigurður Kristjánsson —
Halldór Kristinsson 125
Þórarinn Árnason —
Ragnar Björnsson 122
Mánudaginn 10. október hófst
Aðaltvímenningskeppni félags-
ins (32 pör).
Staða 6 efstu para eftir 1. umferð:
, Stig
Sigurbjörn Ármannsson —
Helgi Einarsson 237
Hermann ólafsson —
Gunnlaugur Þorsteinsson 225
Ragnar Jónsson —
Ulfar Friðriksson 221
Kristinn Óskarsson —
Einar Bjarnason 211
Viðar Guðmundsson —
Arnór Ólafsson 208
Ingvaldur Gústafsson —
Þröstur Einarsson 199
2. umferð verður spiluð mánu-
daginn 17. október kl. 19.30
stundvíslega. Spilað er í Síðu-
múla 25.
Hreyfill —
Bæjarleiðir
Þriggja umferða einmenn-
ingskeppni lauk með sigri Hall-
gríms Márussonar, sem hlaut
311 stig.
Röð næstu manna:
Mikhael Gabríelsson 306
Vilhjálmur Jóhannesson 304
Kristinn Sölvason 303
Guðlaugur Nielsen 297
Kristján Jóhannesson 297
Þorsteinn Sigurðsson 295
Stefán Ólafsson 294
Guðni Skúlason 294
Guðmundur Magnússon 294
Næsta keppni bílstjóranna
verður 5 kvölda tvímenningur.
Spilað er í Hreyfilshúsinu á
mánudögum kl. 20.
Bridgefélag
Hveragerðis
Þriggja kvölda aðaltvímenn-
ingur félagsins hófst sl. fimmtu-
dag. Spilað er í tveimur 10 para
riðlum.
A-riðill:
Guðmundur — Björgvin 132
Guðmundur — Jón 132
Einar — Þráinn 132
B-riðill:
Birgir — Skafti 142
Axel — Sigurlína 135
Kjartan — Inga 132
Meðalárangur 108.
6. október var spilaður eins
kvölds tvímenningur og náðu
eftirtalin pör bestum árangri:
Sveinn — Baldur 199
Jón — Ingvar 189
Einar — Þráinn 188
Meðalárangur 165.
Spilað er á fimmtudögum kl.
19.30.
Bridgefélag
Keflavíkur og
nágrennis
Vetrarstarfið hófst með ein-
menningskeppni sem staðið hef-
ur 3 síðastliðna þriðjudaga.
Keppni var mjög jöfn en úrslit
urðu annars þessi:
Sumarliði Lárusson 320
Haraldur Brynjólfsson 306
Þórður Kristjánsson 303
Stefán Jónsson 293
Kjartan Ólafsson 292
Gísli ísleifsson 290
Næsta þriðjudag, 18/10, hefst
tvímenningskeppni með Butler-
fyrirkomulagi og er búist við
mjög góðri þátttöku og að pörum
fjölgi, ekki síst vegna hins glæsi-
lega húsnæðis sem Karlakór
Keflavíkur hefur upp á að bjóða,
en þar verður spilað í vetur.
Suðurnesjamenn fjölmennið.
Til sölu er þessi IBM fjarvinnslu-
Skermur. Tegund 5251.012.
Upplýsingar í síma 11547 milli kl. 9.00 og
16.00.
Jkuna
k
Einhvern tíma,
kerling, kerling ...