Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 47

Morgunblaðið - 16.10.1983, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. OKT0BER 1983 95 í janúar 1945 drápu danskir andspyrnumenn sænska konu að nafni Jane Horney. Síðan eru liðin 38 ár en ennþá deila Danir og Svíar um það hvort hún hafi verið sek eða saklaus. því skotin fyrir mistök. (Niels Bjarke Schou undirofursti o.fl.) 3) Af hreinni ævintýralöngun lagði Jane Horney lag sitt við sem flesta karlmenn án þess að hugsa út í hvaða afleiðingar það gæti haft fyrir hana. Framferði hennar var því talið hættulegt og það voru „taugarnar, sem brugðust" hjá Dönunum. Hún var hins vegar saklaus. (Bróðir Jane Horney og Henning Feng- er.) 4) Danskir andspyrnumenn í Stokkhólmi villtust á henni og rauðhærðum „tvífara" hennar og sendu villandi upplýsingar heim. Drápið var misskilningur. (Curt Falkenstam.) 5) Hún var sendiboði milli manna í Berlín, sem undir- bjuggu banatilræðið við Hitler, Frode Jakobsen, fyrrum ráé- horra og ötull liösmaöur dönsku andspymuhrayfingarinnar é stríösérunum. og fulltrúa Rússa i Stokkhólmi. Þar fóru fram viðræður um skilmálana fyrir hugsanlegum sérfriði milli Þjóðverja og Rússa. Jane Horney og Horst E. Gilbert majór voru riðin við þessa samninga. Voru þau kannski bæði drepin vegna vit- neskju sinnar um þá? (Curt Falkenstam.) 6) Jane Horney vissi of mikið um þekkta danska stjórnmála- menn og andspyrnumenn og samstarf þeirra við nasista. (Bróðir Jane Horney og Erik Haaest.) 7) Afbrýðisemi. Enski foring- inn John Riddle (dulnefni) hefur verið sakaður um að hafa gefið skipunina í hefndarskyni. Sannanirnar gegn Jane Horney Ekki er víst, að nokkur þess- ara kenninga eigi við og eins getur verið, að ein eða fleiri hafi ráðið einhverju um, að ákveðið var að binda enda á líf Jane Horney. Að sjálfsögðu hillir alltaf undir afbrýðina og hefnd- ina þegar um er að ræða konu eins Jane Horney, svo kynferðis- lega ákafa og kröfuharða, að þeir, sem kynntust henni, áttu það á hættu að glata gjörsam- lega þeim hugmyndum, sem þeir höfðu um eigin karlmennsku. Siðferðileg vandlætingarsemi kemur einnig til sögunnar eins og þegar einn fyrrverandi and- Grunsamleg heimsókn Þar sem sagt er frá líkunum fyrir því, ad Jane Homey hafi veriö njósnari Þjóðverja er m.a. vitnad í frásögn Vilhjálms Finsen, sem var sendiherra íslands í Stokkhólmi á stríðs- árunum. Er hana að finna í bók hans „Enn á heimleið“, sem út kom árið 1956. Hér á eftir verður stiklað á stóru í kaflanum þar sem hann segir frá kynnum sinum við Jane Homey, en annars staðar í bókinni gerir hann miklu ítarlegri grein fyrir henni og þeim at- burðum, sem ollu því. spymumaður segir hana hafa borið upplýsingar frá vini til fjandmanns, úr einu rúminu í annað „eins og smitberi sjúk- dóminn". „Litla hóran að hand- an,“ sagði annar um hana. í viðtali við danska blaðið Expressen segir fyrrverandi for- ingi í Abwehr, leyniþjónustu þýska hersins, að það hafi verið „eðlilegt, að Jane Horney var skotin". Hún hafi verið njósnari fyrir Þjóðverja og hennar helsta afrek verið að koma fyrir leyni- legum hljóðnemum í aðsetri rússnesku sendinefndarinnar í Stokkhólmi. „Gagnnjósnamenn" í Dan- mörku fullyrða, að Jane hafi lof- að því skriflega að fá leysta úr haldi þrjá danska andspyrnum- enn ef hún fengi á móti upplýs- ingar um árangurinn af árásum Þjóðverja á London með VI- flugskeytunum. Vilhjálmur Finsen, sendi- herra íslands í Stokkhólmi á stríðsárunum, var ekki í vafa um að Jane Horney njósnaði um hann. Gúnther Pancke, SS-foringi og yfirmaður þýsku lögreglunn- ar í Danmörku, segir, að Jane Horney „var njósnari í minni þjónustu og fékk þúsundir marka fyrir vikið“. Hún var þó ekki mikilvægur njósnari og að- eins í eitt ár. „Á fjórum fót- um biðjandi um náð og miskunn Einhver besta lýsingin á Jane Horney „í starfi" er eftir „hátt- settan mann í „Leyniþjónustu stúdenta", einni deild dönsku andspyrnuhreyfingarinnar". Jane dró hann með sér í rúmið „þótt hún hafi ekki gengið að því gruflandi eitt augnablik, að kyn- ferðislega hafði ég ekkert söfn- unargildi... en hún vissi, að ég þekkti vel leynileiðirnar milli Danmerkur og Svíþjóðar". Þeg- ar ástarleiknum var lokið, skrif- aði hann svo nafnið sitt í pass- ann hennar við hliðina á nöfn- um eins og Göring, Ribbentrop og Göbbels. Kunningsskapur þeirra stóð stutt. „Ég hafði ekk- ert í hana að segja í rúminu." Nú var öðrum manni, vini þess, sem hér segir frá, fengið það hlutverk að veiða eitthvað upp úr Jane Horney og saman fóru þau í frí, sem átti að standa í hálfan mánuð. Eftir fjóra daga kemur vinurinn aftur „á fjórum fótum biðjandi um náð og mis- kunn“. Jane Horney var gjör- samlega búin að ganga frá hon- um kynferðislega og þar að auki hafði hún flett ofan af honum dulargervinu en hann hafði gef- ið sig út fyrir að vera enskur njósnari. Dönum þótti nú sem engu væri á Jane Horney logið. Þær ályktanir, sem draga má af þessu öllu saman, eru þær, að það var ekki óeðlilegt, að Jane Horney var grunuð um njósnir. Vitnisburður Þjóðverja sjálfra er auðvitað sterkastur en þó er ýmislegt skrýtið við þetta mál. Ekki síst það, að eftir að danska andspyrnuhreyfingin var farin að gruna Jane um græsku bauðst sænska lögreglan til að taka hana í sina gæslu og geyma fram yfir stríð, en þá vildu Dan- irnir ekki taka það í mál. Var það vegna þess, að hún lék tveimur skjöldum og Danir höfðu not fyrir hana? Gátan um Jane Horney hefur ekki enn verið ráðin og það er ekkert eins heillandi og óráðin gáta. Sagan um hana hefur alla bestu eiginleika spennandi reyf- ara en það vantar bara i hana síðasta kaflann. Þess vegna skýtur Horney-málinu jafn reglulega upp á himininn og al- kunnri halastjörnu. Menn velta vöngum og leita lausna en óvíst er hvort nokkur vilji í raun finna lykilinn að leyndarmálinu. „Dag einn, mig minnir, að það hafi veri haustið 1942, kom ókunn kona í sendiráðið og vildi hafa tal af sendiherranum per- sónulega. Frú Þuríður Finns- dóttir sat í fremri skrifstofunni og tók á móti henni, kom svo inn í mína einkaskrifstofu og til- kynnti mér um komu konunnar. Hún talaði sænsku, en það var auðheyrt, að hún var dönsk. „Ég heiti Jane Horney og skrifa í blöð. Ég vildi gjarna fá áreiðanlegar upplýsingar hjá yð- ur um ísland. Ég hefi verið bæði í Grænlandi og á Spitzbergen og skrifað greinar í Norðurlanda- blöð um ástandið þar. Nú vil ég fara til íslands og skrifa greina- flokk þaðan um hitt og annað, en hvernig kemst ég þangað núna? Hefir sendiráðið ekki stjórnar- flugvélar með póst og annað I förum milli íslands og Svíþjóð- ar? Get ég ekki fengið far meí slíkri flugvél?““ Vilhjálmur Finsen tjáði Jane Horney, að það væri ekkert beinf samband við ísland en ef Bretai vildu flytja hana, þá skyldi hann veita henni aðstoð. Réttast taldi hann þó, að hún biði fram yfir stríð. „„En það er einmitt núna, sem ég vil fara til íslands, einmitt vegna stríðsins, vegna amerlska hernámsins. Ég vil sjá, hvað er að gerast á íslandi," datt upp úr henni, líklega alveg í hugsunar- leysi. Mér var nokkurn veginn ljóst, hvers konar kona þetta var, og hvað hið raunverulega erindi hennar var til mín. Það kom líka fram fljótar en ég gat búizt við, að grunur minn var á nokkrum rökum reistur. Frú Horney var ekki vel ánægð með móttökurnar. Við sátum að vísu alllengi saman og spjölluðum. Hún var bæði óvenju fríð og virtist vera vel menntuð. Ég vildi gjarna komast eftir, hvort það væri nokkuð sér- stakt, sem hún vildi kynnast á „Þegar ég lyfti byssunni horfði Jane á mig. „Skjóttu mig ekki í hnakkann, John,“ sagði hún. Ég hikaði eitt augnablik og varð síð- an við þessari hinstu ósk henn- ar.“ Skotið reið af og Jane Horney féll saman. Skotin í bakið. Menn- irnir fjórir um borð í danska að hún var tekin af lífi íslandi. Mér tókst það líka. „Er ekki mikið af stöðuvötnum á íslandi? Ég hefi heyrt, að land- ið sé dásamlega fagurt, en ég get aldrei hugsað mér fallegt lands- lag án stöðuvatna, eins og t.d. í Finnlandi. Hvað væri Finnland án stöðuvatnanna? Eigið þér engar myndir af stöðuvötnum á Islandi? Ef ég gæti fengið eitthvað af ljósmyndum hjá yður og gæti síðan átt þess kost að Jane Horney vera með yður nokkrum sinnum" — hún brosti hýrt til mín, þegar hún sagði þetta — „gæti ég áreiðanlega fengið efni í góðar greinar um ísland, þó ég fari ekki þangað núna, aðallega fyrir sænsk og dönsk blöð.“ Ég sýndi henni nokkrar lands- lagsmyndir að heiman, en þær voru ekki af stöðuvötnum, að minnsta kosti ekki stöðuvötnum og „umhverfi þeirra", eins og hún orðaði það. Að lokum sagð- ist ég ætla að reyna að útvega myndir að heiman við hennar hæfi. Það var vitanlega aldrei ætlun mín að gera það, heldur var ég orðinn dálítið forvitinn, vildi gjarna fá tækifæri til að hitta þessa konu aftur og rann- saka hana dálítið nánar. fiskibátnum festu járnkeðjur við líkið og köstuðu því fyrir borð. Byssan fylgdi á eftir. Þetta var í janúar árið 1945, þremur mánuðum áður en Þjóð- verjar gáfust upp í Danmörku. Maðurinn, sem skaut Jane Horney, er Ingolf Asbjörn Lyhne eða „Litlibjörn" eins og hann var kallaður. Nú ber hann annað Svo kvöddumst við innilega, og mér er nær að halda, að okkur hafi líkað töluvert vel hvoru við annað, og við ákváðum að hittast aftur, er ég hefði útvegað mynd- irnar af stöðuvötnunum heirna." Vilhjálmur Finsen þurfti oft að fara til Danmerkur með áríð- andi stjórnarskjöl vegna skiln- aðar íslendinga við Dani og hafði alltaf gengið greiðlega að fá áritun Þjóðverja til ferðalag- anna. Svo brá þó við eftir heim- sókn Jane Horney, að þýska sendiráðið í Stokkhólmi neitaði honum eða dró í nokkra daga að gefa nauðsynlegt leyfi. Þegar Vilhjálmur kom til Kaupmannahafnar sagði Jón Krabbe honum, sem tekið hafði við forstöðu sendiráðsins eftir að Sveinn Björnsson fór heim með Esju um Petsamo, að Þjóðverjar grunuðu Vilhjálm um samstarf við enska njósnara í Stokkhólmi. Var það vegna þess, að hjá hon- um í sendiráðinu hafði sést vinna ung kona, vélritunarstúlka i breska sendiráðinu og þekktur njósnari. Hún væri há og grönn, ljóshærð með blá augu, og það sem tók af allan vafa, hún var dálítið hölt. Vilhjálmur segist ekki hafa getað varist hlátri þegar hann heyrði þetta. Það vildi svo til, að frú Þuríður Finnsdóttir, sem var honum til aðstoðar í sendiráð- inu, og breska stúlkan voru tölu- vert líkar, báðar háar vexti, ljóshærðar, bláeygar og fríðar. Það vildi einnig þannig til, að frú Þuríður hafði gengist undir lít- ilsháttar aðgerð á fæti og var hölt í nokkra daga á eftir. Jón Krabbe hló dátt þegar hann heyrði skýringuna og kom henni á framfæri við Þjóðverja í danska utanríkisráðuneytinu. Ekki segist Vilhjálmur efast um, að það hafi verið Jane Horney, sem hafi komið þessum upplýs- ingum áleiðis til Þjóðverjanna og villst á bresku vélritunar- stúlkunni og frú Þuríði Finns- dóttur. nafn eins og margir dönsku and- spyrnumannanna, sem sáu um að drepa svikara og samstarfs- menn Þjóðverja á stríðsárunum. Eftir stríðið voru þeir litnir hornauga af almenningi og stjórnvöldum og þeir voru hræddir við sjálfa sig. Eftir 5. maí 1945 hafa þeir forðast að taka byssu í hönd sér. „Ég skaut Jane Horney“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.