Morgunblaðið - 04.11.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1983
55
aö skrifa, þótt þú værir þaö vel
efnuö, aö þú þyrftir ekki lengur aö
vinna?
Sagan: Þaö er rétt, ég verö
ennþá aö skrifa til þess aö vinna
fyrir mér. En samt finnst mér ég
vera frjáls á meöan. Þaö er alveg
eins og Sartre orðaði þaö: Aö vera
frjáls táknar ekki aö gera þaö, sem
maöur getur, heldur aö vilja þaö,
sem maöur getur.
Blm. Ertu æst í aö fara aö
skrifa?
Sagan: Þaö hefur komiö fyrir,
aö ég hafi ekkert gert í heil tvö ár.
Og eins og stendur er ég heldur
ekki aö vinna. Mig langar ekkert til
jjess.
Blm. Ertu þá aö bíöa eftir, aö
andinn komi yfir þig?
Sagan: Maöur fær alls staöar
hugmyndir. Nei, nei, óg set mér
sjálf ákveöinn frest. Ég skrifa alltaf
seint á nóttunni; fyrst handskrifa
ég í kladda, síöan vélrita ég.
Blm. Af hverju skrifar þú bara á
næturnar?
Sagan: Ég lifi líka einungis á
næturþeli. Þaö er af því, aö ég hef
þá flugu í höföinu, aö ég hafi þá
meiri tíma fyrir mór. Hitti maöur
einhvern aö næturlagi, þá er lítil
hætta á, aö hann þurfti aö þjóta
eftir tíu mínútur, af því aö hann hafi
mælt sér mót viö einhvern, hann er
ekki upptekinn. Auk þess fá þá
margir löngun til aö tala; þá fara
þeir aö bera á borö fyrir mann sín-
ar lygar eöa sinn sannleika — þaö-
an sæki ég mér margar hugmynd-
ir.
Blm. Gagnrýnendur þínir ásaka
þig um, aö þú sért alltaf aö skrifa
um líf fólks úr þinni eigin þjóöfé-
lagsstétt, aö þú sért eingöngu aö
skrifa um auðuga iöjuleysingja,
sem ekki þurfi aö kljást viö nein
raunveruleg vandamál. Er þaö
satt, aö þú sért í rauninni alltaf
b'ara aö skrifa um sjálfa þig?
Sagan: Ef ég heföi sjálf upplifað
allt þetta, þá væri ég fyrir löngu
uppurin! Nei, nei, söguhetjur mínar
iifa sínu eigin sjálfstæöa lífi, sem
þær eiga einar út af fyrir sig.
Blm. Er þaö ekki yfirborðskennt
og innantómt líf?
Sagan: Jú, þaö er á einhvern
hátt innantómt. En lesi maöur af
athygli, þá veröur maöur var viö aö
hugur minn og hjarta fylgja ekki
hinum ríku aö málum. Ég hallast á
sveif meö þeim, sem eru aö aöhaf-
ast eitthvaö, eru aö gera eitthvaö,
sem sagt meö fjárhættuspilurum,
svikahröppum og spekúlentum,
sem lifa af hinum ríku.
Blm. Er þaö ekki svolítiö rætiö?
Sagan: Þaö er eölilegt. Eftir aö
fyrsta bókin mín kom út, var alltaf
veriö aö bera mér á brýn, aö óg
væri full af illkvittni. En hvernig á
sautjan ára gömul stúlka aö geta
lýst ástinni eins og hún væri ein-
hver samkvæmisleikur! Og svo er
sú hin sama sífellt aö flækjast um
með vinum sínum og nýtur hrein-
lega lífsins. Óskapleg meinfýsni,
ekki satt! Þegar hvaö mest var
skrifaö um þetta í blööin, og fólk
var aö æsa sig yfir þessu öllu sam-
an, var ég þegar oröin tvítug. Og
er þaö ekki svo sem ósköp eölilegt
aö vilja skemmta sér, þegar maöur
er um tvítugt?
Blm. Þaö er mjög svo eölilegt.
En samt sem áöur: Hefurðu aldrei
haft áhuga á neinu ööru en ástar-
leikjum og ástarævintýrum? Hefur
aldrei vaknaö hjá þér neinn áhugi
á þeim vandamálum, sem fólk í
einhverri annarri þjóöfélagsstétt á
viö aö stríöa?
Sagan: En þaö er einmitt þaö,
sem ég hef gert! Ég skrifaöi eina
bók, sem gerist meöal fólks í
verkamannastétt: „Hinn sofandi
hundur.” En þá fóru gagnrýnend-
urnir aö spyrja mig: „Hvers vegna?
Hvað kemur þetta þér viö?“
Blm. Þetta er nú einmitt sú bók,
sem varö tilefni þess, aö þú varst
kærö fyrir ritstuld og lentir í mála-
ferlum út af öllu saman.
Sagan: Já, þaö er rétt, líka þaö
átti ég eftir aö upplifa.
Blm. Hvernig uröu þau mála-
lok?
Sagan: I heilt ár gekk á ýmsu í
því máli — loks fór óg meö sigur af
hólmi.
Blm. Þau hneykslismál, sem þú
átt aðild aö, viröast öll enda á
einkar farsælan hátt. Þú varst líka
fræg aö endemum fyrir tryllings-
legan akstur, varst jafnvel sögö
hafa ekiö sportbílunum þínum
berfætt og af þvílíkum fítonsanda,
aö þeir hafi allir endaö i henglum
og tætlum. En þú liföir jafnvel af
mesta umferöarslysið, sem þú
lentir í, og þaö var eins og fyrir
hreinasta kraftaverk. Hefuröu aldr-
ei óttast, aö einhvern tíma kæmi
aö því, aö þú yröir aö greiöa þessi
fáránlegu uppátæki þín of háu
verði?
Sagan: Ég hef aldrei iörast
neins hingaö til. Hvern á ég til
dæmis aö gera ábyrgan út af bíl-
slysinu? Örlögin? Þaö var aö öllu
leyti mér aö kenna og engum öör-
um. En núna eru þjóövegirnir því
miður orönir svo yfirfullir af bílum, -
aö þaö er ekki lengur hægt aö
keyra um á jafnvel 120. En samt
sem áöur heldur bíllinn áfram aö
vera tákn frelsisins í mínum aug-
um. Ég get sest upp í bíl og bara
keyrt af staö ...
Blm. Þú hefur aidrei fariö frá
París til þess aö dveljast langdvöl-
um annars staðar. j meira en 25 ár
hefuröu alltaf haft sama fólkiö í
kringum þig, hefur haldiö sömu
venjunum og skrifað um sömu
hlutina. Hefur þig aldrei langað tii
aö gera einhvern tíma eitthvaö allt
annað, aö breyta algjörlega um
lífshætti?
Sagan: Aldrei! Einu sinni flutti
ég út í sveit og bjó þar í eitt ár, en
svo sneri ég full iörunar aftur til
Parísar. Mér þykir vænt um þetta
land, mér þykir vænt um fólkið
hérna, mér þykir vænt um vini
mína og um starfið mitt. Eiginlega
hef ég ekki í hyggju aö gera nokk-
urn tíma breytingar á mínum lífs-
háttum.
Blm. Er þér nauösyn á aö búa í
umhverfi, sem þú gjörþekkir, veitir
þaö þér vissa öryggistilfinningu?
Sagan: Ég bý ekki hórna, af þvi
aö ég þarfnist öryggis, ég bý
hérna, af því aö ég hef gaman af
því.
Blm. Ef þú umgengst alltaf
sama fólkið, rekstu þá yfir höfuö
ennþá á menn, sem þér finnst þaö
áhugaveröir og hrífandi, aö þú
gætir oröiö ástfangin af þeim?
Sagan: Ég fer aö vísu alltaf út
meö sömu vinunum, en óg kynnist
nýju fólki á hverri nóttu.
Blm. Á þeim tímum, þegar þú
naust hvaö mestrar hylli sem rit-
höfundur, haföir þú alltaf heila hirö
í kringum þig. Er þér þaö nauðsyn
aö hafa alltaf aödáendur innan
seilingar?
Sagan: Nei, alls ekki. Ég kann
mjög vel viö mig, þegar ég er ein.
Þessu er alveg þveröfugt fariö,
mér þætti mjög gott aö geta ein-
hvern tíma veriö alveg ein eins og í
eina viku.
Blm. Þú býrö sem sagt ekki
ein?
Sagan: Denis sonur minn býr
hjá mér, hann er tvítugur. Þaö er
aö segja sem stendur er hann í
herþjónustu, en hann kemur aftur
á sunnudaginn. Og svo deili ég
þessari íbúö meö vinum mínum —
annar er líka rithöfundur, en hin er
eitthvað í tískubransanum.
Blm. Hve marga vini áttu ennþá
eftir af öllum þeim mikla skara aö-
dáenda, sem umkringdu þig í eina
tíð?
Sagan: Fimm eöa sex, sem
hafa virkilega haldiö tryggö viö mig
í öll þessi ár.
Blm. Eru þaö fremur konur eöa
karlmenn?
Sagan: Tvær konur, hitt eru
karlmenn.
Blm. Enda ástarsambönd þín
og ástarævintýri yfirleitt meö því,
aö vinátta tekst meö aöilum?
Sagan: Venjulegast ekkl. Þar er
settur punktur og basta.
Blm. En hvað meö eiginmenn-
ina þína tvo?
Sagan: Þeir teljast til undan-
tekninga. Ég hef mjög gott sam-
band viö þá, mjög svo vinsamlegt.
Blm. Ertu nokkurn tíma hrædd
viö aö veröa einhvern tíma ein-
mana?
Sagan: Þaö getur ekki komiö
SJÁ NÆSTU SÍÐU