Morgunblaðið - 04.11.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1983
57
rúm hér til aö fjalla um lögbundnar
forsendur fyrir skilnaöi hjóna nema
aö takmörkuöu leyti. Lögskilnaö má
fá strax, ef ástæöan fyrir umsókn er
hjúskaparbrot maka eöa annaö
hjóna hefur oröiö fyrir ofbeldi af hálfu
hins i hjúskapnum. Ef skilnaöur er
veittur aö boröi og sæng, skilnaðar-
ástæöan er t.d. ósamlyndi hjóna, er
lögskilnaöur veittur aö ári liönu.
Skilnaöur aö boröi og sæng veitir
hjónum ákveðinn umhugsunarfrest
um þá ákvöröun aö skilja og ef hjón
taka upp sambúö aftur á þessum
fresti falla öll réttaráhrif skilnaöarins
niöur. I Reykjavík er þaö borgardóm-
ur sem veitir leyfi til skilnaöar aö
boröi og sæng (úti á landi sýslumenn
og bæjarfógetar), en dómsmálaráöu-
neytiö veitir leyfin til lögskilnaöar.
Viö skilnaö aö boröi og sæng og
lögskilnaö eru svokallaöir skilnaö-
arskilmálar geröir um skiptingu
eigna, forsjá fyrir börnum, umgengn-
isrétt þess foreldris sem ekki fær for-
sjá barna í hendur og um greiöslu
lífeyris ef forsendur eru fyrir slíkrl
ákvöröun. Um skiptingu eigna gildir
reglan um helmingaskipti (hver sem
skilnaöarástæöan er), nema fyrir liggi
kaupmáli milli hjóna. Þó er hjónum
frjálst aö semja um annaö, ef þeim
sýnist svo og á hvorugt er hallaö meö
þeim samningi. Ef annaö hjóna fær
forsjá t.d. fjögurra barna í hendur og
aflar lægri tekna en hitt, þá heimila
lögin ekki undantekningu frá helm-
ingaskiptareglunni, ef hvor aöilinn
heldur rétti sínum til streitu. Þetta
atriöi mun vera i endurskoöun, en hjá
nágrannaþjóöum okkar þekkist aö
tekiö sé tillit til atriöa sem þessara
viö skiptingu eigna viö skilnaö. Ef
hjónaband hefur varaö i stuttan tima
er undantekning heimiluö frá helm-
ingaskiptareglunni, þannig aö ef ann-
aö hjóna hefur átt mun meiri eignir
viö giftinguna en hitt eöa erft miklar
eignir á þeim skamma tíma sem
hjúskapurinn varði, þá ber aö taka
tillit til þess viö eignaskiptinguna.
Ef ágreiningur er meö hjónum um
hvort fái forsjá yfir börnum þeirra í
hendur, sker dómsmálaráöuneytiö úr
jseim ágreiningi. Ef tii úrskuröar kem-
ur í slíkum málum, er fyrst og fremst
miðað viö hag og þarfir barnanna
sjálfra, hjá hvoru foreldranna hag
þeirra er best borgiö. Aldur barna og
fjöldi, tengsl þeirra viö foreldrana og
tengsl þeirra innbyröis skiptir m.a.
máli í þessu tilliti og vilji þeirra
sjálfra, ef þau eru talin hafa þroska til
aö meta aöstæöur. Allar aöstæður
foreldranna eru svo metnar í heild. Ef
forsendur úrskuröar um forsjá yfir
börnum breytast, heimila lögin
endurskoöun á þeirri ákvörðun.
Þvt foreldri sem ekki fær forsjá
barns í hendur viö skilnaö er tryggö-
ur umgengnisréttur viö barniö.
(Sama reglan gildir um skilgetin börn
og óskilgetin í þessu sambandi.) Ef
umgengni þess foreldris viö barn er
metin andstæö hag barnsins og þörf-
um, má takmarka þennan rétt og
jafnvel fella hann niður. Engar
ákveðnar reglur gilda um hvernig
umgengnisrétti skuli háttaö, enda
eru aöstæður manna mismunandi. Ef
þaö foreldri sem hefur forsjá barns
telur hitt foreldriö ekki sinna barninu
sem skyldi, getur þaö leitaö eftir úr-
skuröi þar sem kveðið er á um fyrir-
komulag umgengnisréttarins. Dóms-
málaráöuneytiö hefur þennan mála-
flokk meö höndum. Heimilt er aö
beita dagsektum ef ekki er fariö eftir
úrskuröi ráöuneytisins.
Sl. vor þegar umræöan um ,for-
ræðislausa feður“ stóð sem hæst,
var þaö athyglisvert, aö ekki var tek-
iö á þeirri hlið mála, sem snýr aö
börnum sem „feöur" (eöa sá aðlli
sem ekki hefur forsjá barns í hönd-
um) hafa lítinn sem engan áhuga á aö
umgangast. Er þó óhætt aö fullyrða
aö sá hópur barna, bæöi skilgetinna
og óskilgetinna, er mjög stór. Barna-
lögin byggja á því, að þaö sé bæói
réttur og skylda foreldra aö um-
gangast börn sín, ef þaö er ekki tallö
andstætt hag barnanna. Þaö er ekki
svo lítil ábyrgö sem hvílir á tveim ein-
staklingum, sem geta af sér einstakl-
ing í heiminn, þó skilningur á þeirri
ábyrgö sé ekki alltaf fyrir hendl.
í lögum er heimild fyrir því aö úr-
skuröa annaö hjóna til aö greiöa hinu
svokallaöan lífeyri í allt aö eitt ár eftir
skilnaö. Ástæöur fyrir slíkri ákvöröun
geta veriö margvíslegar, t.d. tekjur
hjóna hvors um sig, þ.e. mikill munur
er þar á, annaö hjóna hefur veriö
heimavinnandi um hríö og þarf aö
aölaga sig aö breyttum aöstæöum,
útvega sér vinnu eöa endurmennta
sig. Þá skiptír máli hvernig eigna-
skiptingin er viö skilnaðinn. Hvort
annaö hjóna getur unniö úti fullan
vinnudag svo vel fari, t.d. meö tiiliti til
ungra barna, sem þaö hefur forræöi
yfir. Lífeyrir er ákvaröaður f einni
greiðslu eöa í mánaöargreiöslum
þann tfma sem kveðiö er á um eöa
menn semja um.
Framfærsluskylda er milli hjóna
þar til skilnaöarleyfi hefur verið gefiö
út.
Dómsmálaráðuneytið ætti
að útbúa upplýs-
ingabækling
f þessari grein hefur f grófum
dráttum veriö fjallað um þetta efni.
Flestir viöurkenna þörfina á ákveö-
inni lágmarksfræðslu á þessu sviöi
og geta skólarnir þjónaö hlutverki aö
þessu leyti. Hins vegar hefur veriö
tæpt á því áöur hér f blaðinu, aö
dómsmálaráðuneytið gengist fyrlr út-
gáfu á bæklingi um helstu reglur um
þetta efni og hvaö lítilvægar reglur
gilda um óvígöa sambúö. Jafnréttis-
ráö mun líka hafa beint slíkum til-
mælum til ráöuneytisins, e.t.v. f fram-
haldi af umfjöllun um þaö hér f blaö-
inu. Eölilegt væri aö dreifa slíkum
bæklingi, t.d. viö framkvæmd hjóna-
vígslu eöa láta hann liggja frammi
þar sem auövelt er fyrir menn að
nálgast hann.
Þegar barnalögin tóku gildi, gaf
dómsmálaráöuneytiö út sérstakan
bækling meö útskýringum á efni lag-
anna. Sá bæklingur er vel unninn í
alla staöi og svaraöi mikilli þörf. Og
upplýsingarit hafa veriö gefin út hér á
landi um málefni, sem snerta minni
hópa en þá einstaklinga sem ganga f
hjónaband eöa búa í óvfgöri sambúö.
Þó lögin sjálf sé hægt aó nálgast í
lagasafni og ráðuneytiö hafi gefiö út
sérprentun af lögunum, þá mundi
umfjöilun um þessar reglur í bæklingi
hafa mikiö aö segja fyrir almenning
og svara ríkri þörf.
né heldur fóstureyðingar, ástar-
harmur og syndir, ekkert af öllum
þessum þvættingi. Hvaöa önnur
ung stúlka sem var heföi getaö
komiö öllu þessu uppnámi af staö.
Þaö stóö ekki í neinu sambandi viö
mig.
Blm. Öfundar þú ungar stúlkur
nú á dögum, vegna þess frjálsræö-
is, sem þær njóta?
Sagan: Þær njóta svo sem ekk-
ert meira frjálsræöis en viö gerö-
um á 6. áratugnum. I þá daga var
okkur bannaö aö hafa kynmök, en
núna er þaö beinlínis álitinn sjálf-
sagöur hlutur. Á þeim árum var
maður álitin spillt, ef maöur geröi
þaö — núna er þaö álitiö hlægi-
legt, ef maöur gerir þaö ekki. I
hverju liggja svo þessar framfarir,
sem eiga aö hafa oröiö? Þaö er
þjóöfélagiö sjálft, sem ræöur í
þessum efnum.
Blm. Samanboriö viö þaö, sem
nú á dögum fæst á markaönum
eru ástarsenurnar í bókunum þín-
um ansi teprulegar. Hefur kynlífs-
aldan bugaö þig?
Sagan: Hún er ekkert fyrir mig.
Ef öörum finnst gaman aö þess
háttar kynlífslýsingum — þá er
\
mér sama. Ég les engin klámrit, og
vil heldur ekki sjá í bíó, hvernig
fólk hefur samfarir. Þaö er ekkert
skilið eftir handa ímyndunaraflinu,
ef fólki er sýnt í sjónvarpinu, í bíó
og alls staöar alveg nákvæmlega,
hvernig allt er í raunveruleikanum.
Mér finnst þaö vera hámark ástar-
atriöanna, þegar kvikmyndavélin
sveigir burt á réttu augnabliki. Þá
fer ímyndunarafliö af staö hjá mér.
Blm. Samkvæmt þvi væru ást-
arljóð þaö rétta handa þér?
Sagan: Þaö eru þau líka. Á
þeim fáu stundum, þegar ég er ein,
hlusta ég helst á músík og les
kveöskap.
Blm. Er þaö þess háttar
skemmtun, sem þú og vinir þínir
taka nú á dögum sameiginlega
þátt í?
Sagan: Henni deill ég ekki meö
neinum. Til þess er hún allt of mik-
iö einkamál mitt. Þaö væri mun
auöveldara fyrir mig aö segja ein-
hverjum frá því hjá hverjum ég
svæfi þessa dagana en aö ég færi
aö lesa fyrir hann eina einustu
Ijóðlínu, sem ég ann. Með því
myndi ég Ijóstra upp allt of miklu
um mig sjálfa.
Snaust h.f
Síðumúla 7-9, sími 82722.
Bllanaust h.f. hefur nú á boðstólum hljóökúta,
púströr og festingar I flestar geröir bila. Stuöla-
berg h.f., framleiöa nlösterk pústkerfi og hljóö-
kúta sem standast fyllilega samkeppni við sams
konar framleiöslu erlendra fyrirtækja. Þessa Isl-
ensku gæöaframleiöslu erum vió stoltir af aö
bjóða viðskiptavinum vorum jafnhliöa vörum frá
HUÓÐKÚTAR
PUSTKERFI
LEIKHÚSSQESTIR — ÓPERUQESTIR
Lengið ferðina og eigið ánægjulegri
Kvöldstund.
Arnarhóll býður upp á stórkostlegan
matseðiL fyrir eða eftir sýningu.
Húsiðopnarkl. 18.00.
Borðpantanir í síma: 91 — 18833.
MATSEÐILL
Reyksoðið laxapaté
Léttsteikt heiðagæs m/trönuberjasósu
VaniIIuterta m/súkkulaðihjúpuðum
vínberjum