Morgunblaðið - 04.11.1983, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.11.1983, Blaðsíða 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1983 Þó flestir gangi í hjúskap eöa hefji sambúð einhvern tímann á lífsleið- inni, þá eru það fæstir sem kynna sér það sérstaklega hvaöa reglur gilda um hjúskap, slit á hjúskap eöa varðandi óvígða sambúð, hversu lít- ilvægar reglur þar gilda. Flestir eignast líka börn og í umræöunni sl. vetur um umgengnisrétt og forsjá yfir börnum við skilnað kom þaö berlega í Ijós, að vitneskja manna almennt um þær reglur er næsta lítil. Fræðsla um ofangreind atriöi er ekki veitt í skólunum, nema ein- stakír kennarar á framhaldsskóla- stiginu taki sig sjálfir til eöa nem- endur velji sér lögfræði í valgrein. Fræðsla um foreldrahlutverkið eða það, hvað fæðing einstaklings í heiminn er í raun, er ekki síður takmörkuð í skólunum. Flestir giftast eða hefja sambúð en... Hjúskapur Þegar menn ganga i hjúskap, miða þeir við að það sé varanleg stofnun sambuðar og gangast um leiö undir ákveönar siðferðilegar reglur og reglur, sem bundnar eru í lögum. Hór áður fyrr játuöu konur undirgefni við eiginmenn sína viö hjónavígsluat- höfnina, en nú um langan tíma kveöa prestar á um jafnræði i hjónabandinu og gagnkvæman stuöning hjóna allt til dauöa. Margir velja það fyrirkomu- lag aö gifta sig borgaralegri hjóna- vígslu og gilda um þaö form sömu reglur og þegar athöfnin fer fram fyrir presti. Hins vegar, svo furöulegt sem það er, þá er þeirri ranghugmynd of oft slegið fram aö borgaralegt hjóna- band sé gilt aðeins í þrjú ár og stund- um er talaö um fimm ár í þessu sam- bandi. Þegar menn gifta sig, fá þeir al- mennt ekki neinar ákveönar upplýs- ingar um þaö hvaöa lagalegar skyld- ur þeir eru aö gangast undir. Vissu- lega gengur fólk í hjónaband meö jákvæöu hugarfari, en dæmin sýna aö fáfræöi er almenn hvaö þessar reglur varöar. í lögum um réttindi og skyldur hjóna frá 1923 er kveöiö á um rétt- arstöðu hjóna. Þar er m.a. kveöið á um trunaöarskyldu hjóna og sameig- inlega ábyrgö þeirra á hagsmunum fjölskyldunnar. Gagnkvæma fram- færsluskyldu þeirra á milli, aö hjón- um er skylt aö segja hvort ööru til um efnahag sinn, ábyrgö beggja á samn- ingum og skuldum og kaupmála (samningar um aö ákveönar eignir séu séreign annars hjóna) og fleiri atriði. Þessi lög eru ítarleg, en þau I eru nú í endurskoöun hjá sifjalaga- nefnd Alþingis, enda eru 60 ár síöan þau ööluöust gildi. Óvígð sambúö Síðustu árin hefur fólk í ríkari mæli en áöur valiö „pappírslausa" sam- búö. Þó hafa kannanir, t.d. í Noregi, leitt i Ijós, aö flestir sem hefja óvígöa sambúö gangi síðar i hjúskap. Án efa á þaö lika viö hér á landi aö menn „prufukeyri" sambandiö áöur en þeir stofna til hjónabands. Oft er þaö líka þegar sambúöaraöilar fara aö fjár- festa saman aö þeir gifta sig, þar sem ákveönar reglur gilda þá um eignaraöildina og um þaö hvernig skipta skuli eígnunum ef til skilnaöar kemur. Vissulega geta sambúöaraö- ilar gert meö sér sameignarsamn- ing og sérstakan samning um þaö hvernig skipta skuli eignunum ef til slita kemur á sambúðinni. Um slíka samninga gilda almennar reglur. Í óvigöri sambúö gilda ekki þær laga- reglur sem að framan er greint frá, engin gagnkvæm framfærsluskylda er lögbundin milli sambúöarfólks og sambúöaraöili erfir ekki hinn sam- kvæmt lögum nema fyrir liggi erföa- skrá. Gagnvart ýmsum trygginga- bótum er sambúö lögö aö jöfnu viö hjónaband og sambúðarfólk getur taliö fram saman til skatts og eru skilyröin fyrir þessu tvennu annars vegar að þeir hafi átt barn saman eöa aö sambuöin hafi staöiö a.m.k. í tvö ár. Samkvæmt barnalögunum hafa foreldrar í sambúö sameiginlega forsjá (forræöi) barna sinna meö höndum. Áöur var forræðið aifariö f höndum móöurinnar þegar um óskilgetín börn var aö ræða, svo sem er ef foreldrarnir eru ekki í sambúö. Slit á óvígöri sambúö Viö slit á óvígöri sambúö fer um eignaskiptingu milli sambúöarfólks eins og um óskylda aðila væri aö ræöa. Hvor aöili um sig tekur meö sér þau verðmæti sem hann kom með í sambúðina og þaö sem hann sannanlega aflaöi á sambúðartíman- um, ef aöilar hafa ekki ahuga á aö semja um annaö. Um slit á hjúskap gilda ákveönar lagareglur um þaö hvernig skipta beri eignunum, en sltkum reglum er ekki til aö dreifa varöandi slit á sambúö. Ef enginn samningur liggur tyrir milli sambúö- arfólks um þaö hvernig skipta beri eignunum ef til slita kemur á sam- búöinni, fer um skiptinguna sem á milli óskyldra aöila, eins cg áöur seg- ir. Þaö veröur stööugt algengara aö sambúöarfólk, sem festir kaup á hús- næöi eöa bíl, láti skrá eignina á þau bæöi. Staöfesti þannig aö þau eigi eignina saman. Stjórn verkamanna- bústaöa hefur t.d. um nokkurt skeið skráö húsnæöi, sem hún úthlutar til sambúðarfólks, á nafn beggja. En þaö þekkjast of mörg dæmi þess, aö þessa sé ekki gætt almennt og oftast er þaö þá karlmaöurinn sem skráöur er fyrir húseign, sem báöir aöilar hafa í raun í samvinnu komið sér upþ. Ef til slita kemur á sambúöinni og karlmaöurinn í þessu tilviki heldur eignarrétti sínum til streitu, þá veröur konan aö sanna hvaöa fjárhæöir hún hefur lagt i kaupin á shurn tíma eöa hvaöa vinnu hún hefur eftir mati lagt í húsnæöiö. Ef konan hefur t.d. veriö heimavinnandi alla tíö og ekki unniö fyrir beinum tekjum, er staöa hennar oft döpur. Um langan tíma hefur i slíkum tilvikum veriö reynt aö meta konum verömæti úr sambúöinni meö svokölluöum ráöskonulaunum. Hafa þau aldrei veriö metin mjög hátt, enda enginn „taxti" um þau fyrir hendi. Við þá endurskoöun sem sifjalaga- nefnd Alþingis er aö vinna aö á lög- um um réttindi og skyldur hjóna og um stofnun og slit hjúskapar mun vera rætt um aö þörf sé á einhvers konar reglum í lögum varöandi skipt- ingu eigna sambúöarfólks viö slit á sambúö. i raun má fullyröa aö þörf sé á slíkum reglum, sem giltu ef aðil- ar hafa ekki samið um annaö sín á milli. Hins vegar yröu slíkar reglur oft erfiöar í framkvæmd, t.d. þyrfti sam- búðarfólk aö hafa búiö saman í ein- hvern lágmarkstima tll aö þær giltu. Hins vegar má segja aö hverjum manni sé þaö frjálst aö velja um hjónaband og þær reglur sem um þá stofnun gilda og hins vegar óvigöa sambúö og þær fáu reglur sem um hana gilda. Þegar sambúöarfólk fer að fjárfesta og velur formiö óvígöa sambúð áfram, þá verður þaö von- andi almenn regla í framtíöinni aö þau láti skrá sig sameiginlega fyrir eignunum. Þó menn reikni ekki beinlínis meö því aö til slita geti kom- iö á sambúö, — þá gerist þaö rótt eins oft og þegar um hjónabönd er að ræöa. Og slitin eru ekki fremur „í vinsemd" milli aöila þegar um sam- búöarslit er aö ræöa en viö hjóna- bandsslit. I barnalögunum er kveöiö á um það aö íoreldrar í sambúö hafi sam- eiginlega forsjá yfir börnum sínum. Við slit á sambúö þurfa foreldrarnir aö koma sér saman um þaö hvor hafi forsjána meö höndum og ef ekki næst samkomulag um það, veröur aö beina málinu til úrskuröar dóms- málaráðuneytisins. Gilda aö þessu leyti sömu reglur og viö lögskilnað. í Reykjavík er þaö borgardómur sem hefur þessi mál meö höndum og sýslumenn og bæjarfógetar úti á landi. Skilnaður Hjónaskilnaöir eru tíöir hér á landi, þó ekki verði lagt á þaö mat hér, hvort þeir sóu tíöari á islandi en ann- ars staðar. Flestir lögmenn geta boriö vitni um hversu illa menn eru almennt uþþlýstir um hvernig þau mál ganga fyrir sig. Ýmsar ranghugmyndir ganga manna á meöal hvaö þau varöar, t.d. í þá veru, aö ef skilnaöar- ástæöan er hjúskaparbrot annars makans, þá eigi hinn rétt á aö fá meirihluta eigna búsins í sinn hlut, jafnvel allt. Og annað dæmi má nefna, aö ef annaö hjóna fer af heim- ilinu, t.d. móöir flytur burt og tekur börnin ekki meö sór strax, þá missi hún allan rétt til barnanna og jafnvef til eignanna. Áöur en sótt er um leyfi til skilnað- ar aö borði og sæng eöa lögskilnaö, þarf prestur (eða sáttanefnd) aö reyna sættir meö hjónum. Ekki er hata leiðindi.. 44 fyrir mig. Eg hef alltaf einhvern hjá mér, sem elskar mig. Blm. Og sem þú elskar? Sagan (yppir öxlum): Karlmenn sýna mér mikla elsku og mikinn ástarhug. Blm. Hvernig hegðar þú þér, þegar þú átt í ástarævintýri? Sagan: Ég reyni aö vera um- burðarlynd. Blm. Gerir sem sagt engar eignarnámskröfur? Sagan: Karlmenn eru mjög gjarnir á aö vilja eigna sér allt. Blm. Hvaða manngerö getur þá yfirleitt gert sér vonir um aö ganga í augun á þér? Sagan: Aöalatriöiö er, aö hann sé vel gefinn — og umburöarlynd- ur. Þegar einhver hefur til aö bera gáfur og hjartahlýju, þá fer ég aö hugsa mig um tvisvar. Þegar ég var ung stúlka hreifst ég mest af karlmönnum í kringum fertugt. Fyrri maður minn, bókaútgefand- inn Guy Schoeller, var tuttugu ár- um eldri en ég. Eiginlega eru þaö karlmenn um fertugt, sem ég hef ennþá mestan áhuga á. Ég hef aldrei kunnaö tökin á reglulega ungum karlmönnum og heldur aldrei kunnaö aö meta þá. Blm. Allt hljómar þetta eins og það sé alltaf þú, sem yfirgefir karl- mennina? Sagan: Alltaf, nema í eitt ein- asta skipti — en ég komst líka yfir þaö. Blm. Ertu hrædd viö aö veröa roskin? Sagan: Ég hugsa alls ekki um þaö. I mínum augum er tíminn ekki eyðandi afl. Þaö skelfir mig í hæsta lagi aö sjá, aö svo margt fólk hrökklast meö tímanum af sinni réttu leiö — ef til vill er ég líka ein i þeim hópi. En meöan ég er enn aö vinna, er allt í besta lagi. Blm. Er vinnan þá þýðingar- mest af öllu í þínum augum? Sagan: Eiginlega eru mennirnir þýöingarmeiri — aö maöur hafi einhvern nálægan, hafi tengsl viö menn, njóti vináttu, ástar. Blm. Hvaö er þaö þá, sem þú getur boöiö fólki? Hverjar eru þín- ar dyggðir? Sagan: Ég er vingjarnleg og al- úöleg og umburöarlynd og mér þykir vænt um fólk. Auk þess er ég gamansöm og kímin. Ég hef nægi- lega kímnigáfu til aö bera til þess aö sigrast á öllu — jafnvel á frægöinni. Blm. Hefur hún aldrei stigiö þér til höfuös? Ekki heldur sem korn- ungri stúlku, þegar þér féll frægöin í skaut svo aö segja á einni nóttu? Sagan: Þá fylltist ég skelfingu. Mér var ómögulegt aö skilja, af hverju menn væru aö gera svona mikiö veöur út af þessari litlu bók. Ég á viö, mér finnst hún enn þann dag í dag góö bók. En sú athygli, sem bókin vakti, er ekki í réttu hlutfalli við innihald hennar. Á þessu er í hæsta lagi hægt aö finna einhverjar þjóðfélagslegar og sálfræöilegar skýringar. Hún birtist á tímum, þegar eins konar straumhvörf gengu yfir ... i Japan var nafniö mitt til dæmis notaö sem eins konar samheiti viö kven- frelsi. Blm. Líturöu á sjálfa þig sem kvenfrelsiskonu? Sagan: Alls ekki! Ég á ekkert sameiginlegt meö þessum kven- frelsiskonum. Ég veit, aö þær hafa á einhvern hátt rétt fyrir sér, en mér finnst þær vera svo óttalega lítt aölaöandi. Þaö er eins og þær séu ennþá á gelgjuskeiöinu. Auk þess steöja hvort eð er nógu margvíslegir öröugleikar að karl- mönnum. Af hverju ætti ég aö fara aö ryöjast inn á þeirra sviö? Blm. Þaö var nú löngum taliö algjört sérsviö karlmanna aö geta hagaö sér eins og ribbaldar í ást- um. Sagan: Gott og vel ... þá hafa þeir núna einu færra . . . Ég held, aö þaö hafi hneykslaö fólk í þá daga, aö þarna lýsti ung stúlka í fyrsta skipti líkamlegum ástförum sem einhverju ósköp eölilegu — þarna var þungun ekki til umræöu,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.