Morgunblaðið - 04.11.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1983
SJONVARP
DAGANA
L4UG4RD4GUR
5. nóvember
15.00 Norðurlandameistaramót í
borðtennis. Bein útsending frá
Laugardalshöll.
16.00 Fólk á förnum vegi
(People You Meet)
Nýr flokkur — 1. Á hóteli.
Enskunámskeið í 26 þáttum.
sem eru við hæfi þeirra sem
lokið hafa byrjendanámi eða
þarfnast upprifjunar á málnotk-
un. Þættirnir verða endurteknir
á miðvikudögum kl. 18.45.
Kennslubók er fáanleg í bóka-
verslunum.
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
18.30 Innsiglað með ástarkossi
(S.W.A.LK.)
Nýr flokkur — 1. þáttur.
Breskur unglingamyndaflokkur
í sex þáttum. Söguhetjan er 13
ára stúlka, sem sækir róman-
tískar hugmyndir sínar um til-
veruna einkum í vikurit og aðra
fjölmiðla, enda reynast þær
stangast á við veruleikann. Þýð-
andi Ragna Ragnars.
18.55 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Ættaróðalið
(To the Manor Born)
Breskur gamanmyndaflokkur í
sex þáttum, framhald fyrri þátta
í sjónvarpinu um lafði Fforbes-
Hamilton, sem varð að láta ætt-
arsetrið í hendur nýríks auðkýf-
ings og setjast að í hliðarvarð-
arhúsinu. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.05 Tígrisflói
(Tiger Bay) Bresk bíómynd frá
1959. Leikstjóri: J. Lee Thomp-
son. Aðalhlutverk: Haley Mills,
Horst Buchholz og John Mills.
Sjómaður myrðir unnustu sína {
afbrýðiskasti. Telpukorn í hús-
inu verður vitni að atburðinum
og kemst yfir morðvopnið sem
hún ætlar að nota sem leikfang.
Morðinginn kemst á snoðir um
þetta og leitar telpuna uppi.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.45 Örninn er sestur
(The Eagle Has Landed)
Bresk-bandarísk bíómynd frá
1977, gerð eftir samnefndri
metsölubók eftir Jack Higgins.
Leikstjóri: John Surges. Aðal-
hlutverk: Michael Caine, Don-
ald Sutherland, Robert Duvall,
Jenny Agutter, Donald Pleas-
ence og Larry Hagman.
Myndin gerist árið 1943 og er
um fifldjarfa tilraun fámennrar,
þýskrar fallhlífarsveitar til að
ræna Winston Churchill, for-
sætisráðherra Breta. Þýðandi
Jón O. Edwaid.
00.55 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR
6. nóvember
17.00 Lútersmessa
Bein útsending frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík á hátíðarguðs-
þjónustu í tilefni 500 ára afmæl-
is Marteins Lúters. Biskup ís-
lands, herra Pétur Sigurgeirss-
on, prédikar, séra Hjalti Guð-
mundsson þjónar fyrir altari.
Organisti og söngstjóri: Mart-
einn H. Friðriksson.
18.00 Stundin okkar
Umsjónarmenn: Ása H. Ragn-
arsdóttir og Þorsteinn Marels-
son. Meðal efnis verður finnsk
teiknimynd, Smjattpattar og
Sjónvarp þriöjudag 8. nóvember:
Nú er Marlowe horfinn af klakanum og haldinn til síns heima-
lands. í stað Marlowes er kominn eigi ómerkari maður en
rannsóknarlögregluforinginn Derrick, sem sést é myndinni í
félagsskap aðstoðarmanns síns, Klein, og ónafngreinds
manns.
Derrick tekur
viö af Marlowe
Derrick rannsóknarlögregluforingi og aðstoðarmaður hans,
Klein, birtast okkur aftur á skjánum nœstkomandi þriöju-
dagskvöld. Þessir þættir eru framhald af þeim sem sýndir
voru í sjónvarpinu síðastliðinn vetur. Fyrsti þátturinn að þessu
sinni heitir „Sending frá Salzburg". Derrick finnur að sjálf-
sögðu eitthvaö athugavert viö sendinguna, sem enginn fær að
vita hvers kyns er, fyrr en á þriðjudagskvöldiö.
Krókópókó, fræðsla um með-
ferð tanna og Leikbrúðuland
sýnir Púkablístruna.
18.50 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
Sunnudagur 13. nóvember:
Húsið á sléttunni
Nýr flokkur um Ingalls-fjölskylduna
Nýr flokkur um Ingalls-hjónin í Hnetulundi og
afkomendur þeirra hefur borist til landsins og verð-
ur fyrsti þátturinn í þessum nýja flokki sýndur á
sunnudaginn kemur kl. 16.10.
Fólk er misjafnlega hrifið af hinni hugjj^^fjöF
skyldumynd sem dregin er upp í þáttunti
hafa kallað þáttinn „Grenjað á gresjunl
hinna sorglegu atburöa sem henda fjölskylduTii. En
Ingalls-hjónin og börn þeirra eru sterk og þrátt fyrir
ýmis vandamál brosa þau breitt framan í lífið og
Ijóma af hamingju.
91.34
Fjölskyldu-
mynd úr Hnetu-
lundi. Fjöl-
skyldufaðirinn
heldur á fiölu
og viröist reiðu-
búinn að slá
upp fjölskyldu-
dansleik og
spila sjálfur
fyrir dansi.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku
Umsjónarmaður Magnús
Bjarnfreðsson.
20.55 Nauðug viljug
Ný sjónvarpsmynd. Handrit:
Ása Sólveig. Leikstjórn og
kvikmyndagerð: Viðar Víkings-
son. Aðalhlutverk: Erlingur
Gíslason, Guðný Helgadóttir,
Brynja Benediktsdóttir, Borgar
Garðarsson, Edda V. Guð-
mundsdóttir og Harald G. Har-
alds.
Ásgeir, fjölskyldufaðir í Breið-
holtinu, hættir upp úr þurru að
sækja vinnu og fer að hegða sér
einkennilega. Þegar kona hans
og vinir leita skýringa á þessu
framferði, reynist honum erfitt
að gera grein fyrir því.
Kvikmyndataka og lýsing: Bald-
ur Hrafnkell Jónsson. Hljóð og
hljóðsetning: Oddur Gústafs-
son. Klipping: Ragnheiður
Valdimarsdóttir. Leikmynd:
Baldvin Bjömsson.
22.10 Wagner
Sjöundi þáttur. Framhalds-
myndaflokkur í tíu þáttum um
ævi tónskáldsins Richard
Wagners.
Efni sjötta þáttar: Lúðvík 2.
Bæjarakonungur ræður Wagner
í þjónustu sína. Konungur er
ungur að aldri, stórhuga og
ákafur aðdáandi Wagners. Tón-
skáldið þarf nú ekki lengur að
búa við fjárskort og öryggisleysi
og vonir hans glæðast. En ráð-
gjafar konungs líta vináttu hans
við Wagner hornauga og færa
sér í nyt sögur sem komast á
Guðad á skjáinn
kreik um hneykslanlegt sam-
band Wagners og Cosimu von
Biilow. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
23.05 Dagskrárlok
/V46NUD4GUR
7. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Tommi og Jenni
20.50 íþróttir
Umsjónarmaður Ingólfur Hann-
esson.
21.25 Já, ráðherra
6. þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sjö þáttum. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
21.55 Marteinn Lúter — Fyrri
hluti
Leikin, þýsk heimildarmynd.
Á þessu ári er þess hvarvetna
minnst, þar sem áhrifa Lúters
gætir á kirkju og kristni, að nú
eru 500 ár liðin frá fæðingu
hans. í þessari kvikmynd, sem
Sjónvarpið sýnir í tveimur hlut-
um, er rakin saga Marteins Lút-
ers og samtíðar hans en einkum
þó barátta hans gegn páfavald-
inu, andlegu sem veraldlegu.
Handrit samdi Theodor Schii-
bel en leikstjóri er Rainer
Wolffhardt.
Persónur og leikendur:
Marteinn Lúter/ Lambert
Hamel, Karl V. keisari/ Jorg
Pleva, Leó 10. páfi/ Dieter
Pfaff, Cajetan kardínáli/ E.F.
Fiirbringer, Thomas Miintzer,
leiðtogi bændauppreisnar/ Kail
Obermayr. Þýðandi: Veturliði
Guðnason.
Á undan sýningu myndarinnar
flytur dr. Gunnar Kristjánsson,
formaður Hins íslenska Lúters-
félags, inngangsorð um áhrif
Lúters á íslenskt þjóðlíf.
23.50 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
8. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Snúlíi snigill og Alli álfur
Teiknimynd ætluð börnum.
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir.
Sögumaður: Tinna Gunnlaugs-
dóttir.
20.50 Derrick
1. Sending frá Salzburg
Þýskur sakamálamyndaflokk-
ur, framhald fyrri þátta af Derr-
ick rannsóknarlögregluforingja
og Klein, aðstoðarmanni hans.
Aðalhlutverk: Horst Tappert og
Fritz Wepper.
Þýðandi: Veturliði Guðnason.
21.50 Marteinn Lúter — Síðari
hluti
Leikin, þýsk heimildarmynd.
Þýðandi: Veturliði Guðnason.
23.35 Dagskrárlok
AIKMIKUDKGUR
9. nóvember
18.00 Söguhornið
Þrjár telpur, Halldóra Hinriks-
Midvikudagur
9. nóvember:
Smavinir
fagrir
Nýr sænskur
myndaflokkur
Sænskur myndaflokkur,
sem nefnist „Smávinir fagrir“,
hefur göngu sína á miðviku-
daginn kemur. Myndaflokkur-
inn er í fimm þáttum og sýnir
könnunarleiöangra Evu. Eva
er 11 ára sænsk stúlka, sem
fer í könnunarferðir til aö
skoða skordýr og önnur smá-
dýr og kynna sér atferli
þeirra. Á þessari mynd sést
Eva skoða ánamaökana i
garðinum sínum, en fyrsti
þátturinn nefnist „Smádýr í
garðinum”, og hefst hann kl.
18.30 á miðvikudaginn kem-
ur.
dóttir, Hildur Pálsdóttir og Jón-
ína Guðmundsdóttir, segja sög-
ur sem þær hafa samið. Um-
sjónarmaður: Hrafnhildur
Hreinsdóttir.
18.10 Amma og átta krakkar
12. þáttur
Norskur framhaldsmyndaflokk-
ur gerður eftir barnabókum
Anne-Cath. Vestly. Þýðandi: Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið).
18.30 Smávinir fagrir
1. Smádýr í garöinum
Sænskur myndaflokkur í fimm
þáttum. Þættirnir sýna könnun-
arferðir Evu, 11 ára telpu, til a
skoða skordýr og önnur smádýr
og kynna sér atferli þeirra. Þýð-
andi: Óskar Ingimarsson.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
18.45 Fólk á förnum vegi
(People You Meet). Endursýn-
ing
1. Á hóteli
Enskunámskeið í 26 þáttum.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Úr fórum Chaplins
2. Leikstjórinn mikli
Breskur myndaflokkur í þrem-
ur þáttum um Charlie Chaplin
og áður óþekkt eða lítt kunn
verk hans. Stjórn upptöku: Kev-
in Brownlow og David Gill, þul-
ur James Mason.
Þýðandi: Dóra Hafsteinsdóttir.
21.45 Dallas
Bandarískur framhaldsmynda-
flokkur.
Þýðandi: Kristmann Eiðsson.
22.30 Kóreska þotan og kalda
stríðið
Bresk fréttamynd um þær
breytingar sem orðið hafa á
sambúð Vesturveldanna og Sov-
étríkjanna eftir að kóresku far-
þegaþotunni var grandað.
Þýðandi og þulur: Margrét
Heinreksdóttir.
23.10 Dagskrárlok.
FOSTUDAGUR
11. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Á döfinni.
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.55 Stóri boli.
Bresk dýralífsmynd tekin í
Kenya um Afríkuvísundinn sem
veiöimenn telja mesta viðsjáls-
grip-
Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
21.20 Kastljós.
Umsjónarmenn Einar Sigurðs-
son og Helgi E. Helgason.
22.25 Davíð.
Þýsk bíómynd frá 1979.
Leikstjóri Peter Lilienthal. Að-
alhlutverk: Walter Taub, Irena
Urkljan, Eva Mattes, Mario
Fischel.
Davíð er saga gyðingadrengs og
fjölskyldu hans í Þýskalandi á
valdatímum nasista. Myndin
lýsir vel hvernig gyðingar
brugðust viö atburðum þessa
tímabils og ofsóknum á hendur
þeim.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
00.35 Dagskrárlok.
Stóri
boli
Þeir eru vígalegir á sviþ Afríku-
vísundarnir í Kenýa, sem sjást á
þessari mynd. Næstkomandi
föstudagskvöld verður sýnd
bresk dýralífsmynd sem heitir
„Stóri boli“. Myndin er tekin í
Kenýa í Afríku og fjallar um Afr-
íkuvísundinn, sem veiðimenn
telja mesta viðsjálsgrip. Þáttur-
inn er á dagskrá sjónvarpsins
næstkomandi föstudagskvöld kt.
20.55.
Daginn eftir
— sjónvarpsmynd sem vakiö hefur mikla athygli í
Bandaríkjunum þó ekki sé farið aö sýna hana ennþá
Miklar umræður hafa átt aér stað
í Bandaríkjunum um kjarnorku-
stríð, möguleika á því og afleið-
ingar þess, í kjölfar sjónvarps-
myndar sem ABC sjónvarpsstöðin
hefur gert og heitir The Day After
eða Daginn eftir. Áætlaö er að sjón-
varpa myndinni 20. nóvember nk.
en hún segir frá því sem gerist (
Kansas City og umhverfi eftir að
kjarnorkustyrjöld er skollin á á
jörðinni. Myndin var m.a. tekin f
Kansas City og Lawrence í Kansas
en þar var haldin forsýning á henni
fyrir stuttu og hafði mikil áhrif á
bæjarbúa, sem sáu hana.
Brandon Stoddard, forseti kvik-
myndadeildar ABC-stöðvarinnar og
upphafsmaöur aö gerö myndarinnar,
tilkynnti aö hann hefði grátiö þegar
hann sá hluta af myndinni á klippi-
borðinu og segir að endanleg gerð
hennar só „þaö mikilvægasta sem
ég hef nokkurntíma gert”. Og hann
segir: „Myndin segir einfaldlega aö
kjarnorkustríö sé hryllilegt. Þaö er
það eina sem hún segir.“ Leikstjór-
inn, Nicholas Meyer, sem leikstýröi
The Day After sagði hana vera „þaö
verðmætasta sem ég hef gert á æf-
inni".
Borgarstjóranum í Lawrence í
Kansas, David Longhurst, hefur
heldur betur þótt myndin mikilvæg
því hann hefur brugðiö á þaö ráö aö
bjóða til borgar sinnar þeim Ronald
Reagan Bandarikjaforseta og Yuri
Andropov aöalritara sovéska komm-
únistaflokksins til viöræöna.
Myndbönd meö The Day After
hafa borist í hendur andstæöinga
kjarnorkuvopna í Bandaríkjunum.
Þingmaöurinn Edward Markey er
mikill andstæöingur slíkra vopna og
hann hefur sagt um myndina að hún
sé „mikilvægasta sjónvarpsefni frá
upphafi af því hún fjallar um mikil-
vægasta mál sem viö þekkjum. Þetta
er heiöarlegasta frásögn af kjarn-
orkustríöi sem gerö hefur veriö."
John Fisher forseti Öryggisráðs
Bandaríkjanna sagöi: „Þaö er greini-
legt aö einhver sem er í tengslum vlð
framleiöslu myndarinnar hefur allt
aörar skoðanir á málinu en viö,
vegna þess aö einhvern veginn hefur
sjóræningja-útgáfa myndarinnar
ekki borist i hendur manna sem eru
sama sinnis og viö.“
„Við höföum aldrei í huga að
myndin yröi pólitískt vopn,“ segir
Stoddard hjá ABC-stööinni. „ABC
ber ábyrgö á myndinni sjálfri. Hvern-
ig hún er túlkuö eöa notuö af ööru
fólki, er svolítiö sem viö ráöum ekki
við." Þaö má vera aö þetta sé satt
hjá Stoddard en andstæöingar
kjarnorkuvopna hafa þó fengið for-
skot. Myndbönd með myndinni eru
sýnd á fundum kjarnorkuvopna-
andstæðinga á meöan þeir sem eru
með kjarnorkuvopnum fá ekki aö
vera með. „Þessi mynd hefur veriö
notuö til aö vekja áhuga og efla
stuðning, þar meö talinn fjárhags-
legan stuöning, viö málefni okkar,“
segir Janet Michaud framkvæmda-
stjóri hreyfingar gegn kjarnorku-
stríöi.
Þaö hefur mikiö gengiö á í sam-
bandi viö þessa sjónvarpsmynd
ABC. Myndbönd með henni viröast
vera á lausu, afstaöa er tekin, rifrildi
Jason
Robards
í hlutverki
sínu í sjón-
varpsmyndinni
The Day After.
eru háð og greinar skrifaöar, en þó
hefur myndin ekki veriö sýnd. Menn
fárast jafnvel yfir sýningartíma The
Day After, 20. nóvember, því aöeins
hálfum mánuöi eftir þann dag á aö
koma fyrir Pershing ll-eldflaugum í
Vestur-Þýskalandi. Því meiri umræö-
ur sem skapast um myndina, því
meiri auglýsingu hlýtur hún.
Bandaríska tímaritiö Time fjallaöi
um The Day After fyrir stuttu og seg-
ir handritshöfund myndarinnar,
Edward Hume, og þá sem stóöu aö
henni hafa gert rétt í því í myndinni
aö saka hvorki Bandaríkin né Sov-
étríkin um aö hafa komiö af staö
kjarnorkustyrjöld. Fyrir minna en 20
árum neitaöi BBC í Bretlandi aö sýna
mynd um svipaö efni eftir Peter
Watkins, The War Games, vegna
þess aö hún þótti „of hryllilegN En
tímarnir hafa breyst og mennirnir
meö og þó The Day After sé kannski
ekki eins sterk eða vönduö og mynd
Watkins, er hún samt nógu hryllileg
og veröur sýnd á besta sýningartíma
sem völ er á í sjónvarpi þar vestra.
Jason Robards leikur aöalhlut-
verkið í The Day After en aörir leik-
arar eru Jobeth Williams og John
Cullum, svo einhverjir séu nefndir.
Víst er aö menn halda áfram aö
gera myndir í stíl viö þessa. Kvik-
myndafyrirtækið Paramount hefur
þegar í hyggju aö gera eina um svip-
aö efni og kallast hún Testament og
er um fjölskyldu sem reynir aö lifa af
kjarnorkusprengingu. „Þaö er heil-
mikil aukning oröin á daginn-eftir-
kjarnorkustyrjöld-handritum, sem
berast okkur um þessar mundir,“
sagöi forstjóri stórs kvikmyndafyrir-
tækis.
— ai
L4UG4RD4GUR
12. nóvember
16.15 Fólk á förnum vegi.
(People You Meet).
2. Málverkiö.
Enskunámskeiö í 26 þáttum.
16.30 íþróttir.
18.30 Innsiglað meö ástarkossi.
Annar þáttur.
Breskur unglingamyndaflokkur
í sex þáttum.
Þýðandi Ragna Ragnars.
18.55 Enska knattspyrnan.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Ættaróðalið.
Annar þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sex þáttum.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.05 Það eru komnir gestir.
Steinunn Sigurðardóttir tekur á
móti gestum í sjónvarpssal. Þeir
eru hjónin Margrét Matthías-
dóttir og Hjálmtýr Hjálmtýsson
og dóttir þeirra Sigrún Hjálm-
týsdóttir.
Steinunn ræðir við gestina milli
þess sem þeir syngja innlend og
erlend lög. Við píanóið er Anna
Guðný Guðmundsdóttir.
Upptöku stjórnaði Tage Amm-
endrup.
22.55 Dauðinn á Nfl.
(Death on the Nile).
Bresk bíómynd frá 1978 gerð
eftir sakamálasögu eftir Agöthu
Christie. Leikstjóri John Guill-
ermin. Aðalhlutverk: Peter Ust-
inov, Bette Davis, David Niven,
Mia Farrow og Angela Lans-
bury.
Leynilögreglumaðurinn víð-
kunni, Hercule Poirot er á ferð
í Egyptalandi og tekur sér far
með fljótabáti í skoðunarferð á
Nfl. En ekki líður á löngu áður
en dularfullir atburðir gerast og
í Ijós kemur að morðingi leynist
í farþegahópnum.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
00.15 Dagskrárlok.
—M—ilBIBWIIIIiikl nmwt
■BHBMHHHBMBHHBI