Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 3
Skuldabréfakaup lífeyrissjóða
af fjárfestingarlánasjóðum:
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983
3
Framkvæmdasjóður
býður 4,20% ávöxtun
Aðrir sjóðir bjóða hins vegar allt að 4,16% ávöxtun
KJÖR á skuldabréfum fjárfestinga-
lánasjóda, sem lífeyrissjódir landsins
hafa keypt á undanfórnum árum hafa
verið mjög áþekk meðal hinna ein-
stöku sjóða. Nú er hins vegar orðin
ákveðin breyting þar á. Fram-
kvæmdasjóður fslands hefur ákveðið,
að bjóða 4,20% vexti umfram verð-
tryggingu, á sama tíma og aðrir sjóðir
bjóða allt að 4,16% vexti.
Á síðasta ári buðu fjárfestinga-
lánasjóðirnir skuldabréf með 3,5%
vöxtum, en þegar tilkynnt var um
útgáfu spariskírteina ríkissjóðs á
dögunum með 4,16% vöxtum gerðu
aðilar athugasemd við það, enda lá
þá fyrir, að lífeyrissjóðirnir myndu
beina viðskiptum sínum í þá átt í
auknum mæli.
Þá gaf fjármálaráðuneytið út til-
kynningu, þar sem fjárfestinga-
lánasjóðunum var heimilað að
bjóða 4,16% vexti af skuldabréfum
sínum til lífeyrissjóða, en samt sem
áður hefur Framkvæmdasjóður ís-
lands nú ákveðið, að bjóða 4,20%
vexti. Viðmælendur Mbl. sögðu það
einsýnt, að lífeyrissjóðirnir myndu
beina viðskiptum sínum í auknum
mæli til Framkvæmdasjóðs íslands,
ef ekki yrði breyting á málum.
Á síðasta ári námu skuldabréfa-
kaup lífeyrissjóða landsins samtals
413,5 milljónum króna. Lífeyris-
sjóðirnir keyptu skuldabréf af
Byggingasjóði ríkisins fyrir sam-
tals 128,9 milljónir króna, af Fram-
kvæmdasjóði íslands fyrir um 90,3
milljónir króna, af Byggingasjóði
verkamanna fyrir 66,6 milljónir
króna, af Veðdeild Iðnaðarbankans
fyrir 50,0 milljónir króna, af Verzl-
unarlánasjóði fyrir 33,5 milljónir
króna, af Stofnlánadeild samvinnu-
félaga fyrir 25,9 milljónir króna og
af Stofnlánadeild landbúnaðarins
fyrir 18,3 milljónir króna.
Tveir seldu
erlendis
TVÖ íslensk fiskiskip seldu afla sinn
erlendis í gær, annað í Þýzkalandi og
hitt í Englandi. Fengu þau þokkalegt
verð fyrir aflann.
Arinbjörn RE seldi 144 lestir í
Bremerhaven. Heildarverð var
3.700.000 krónur, meðalverð 25,80.
Erlingur GK seldi 84 lestir í Grimsby.
Heildarverð var 2.100.000 krónur,
meðalverð 25,00.
Ríkið tekur 407
milljón króna lán
SAMNINGUR hefur verið undirritað-
ur í Reykjavík um lán til íslenzka
ríkisins að fjárhæð 10 milljónir sterl-
ingspunda, sem er jafnvirði sem næst
407 milljónum króna.
í fréttatilkynningu fjármála-
ráðuneytisins segir, að lánið sé
skuldabréfalán, en bréfin hafa þeg-
ar verið seld beint til „The Meiji
Mutual Life Insurance Co.“ í Japan
fyrir milligöngu Morgan Grenfell
and Co Ltd. og Mitsubishi Finance
International Ltd. í London.
Lánið er veitt til 10 ára og endur-
greiðist í einu lagi á árinu 1994.
Vextir eru um 12,3%. Gert er ráð
fyrir að lánsféð renni til ýmissa
framkvæmda hérlendis í samræmi
við fjárfestingar- og lánskjaraáætl-
un ríkisstjórnarinnar.
Lánssamninginn undirritaði Al-
bert Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, fyrir hönd íslenzka ríkisins.
Hluti skulda útgerð-
arinnar tapaður við
núverandi aðstæður
— segir Halldór Ásgrímsson, ráðherra
„MENN hafa verið að vinna að lausn þessa vanda, meðal annars í Fiskveiða-
sjóði, en fleiri opinberir sjóðir þurfa að koma inn í dæmið. Rfkisstjórnin hefur
samþykkt ákveðna hluti í þessu sambandi, fyrst og fremst hvað varðar lengingu
lána útgerðarinnar en hitt er svo annað mál að hluti þessara skulda er í raun
tapaður við núverandi aðstæður. Spurningin er hvort menn vilja horfast í augu
við það nú strax eða bíða með það þar til einhvern tíma síðar,“ sagði sjávarút-
vegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, meðal annars, er Morgunblaöið spurði hann
hvort unnið væri að lausn á rekstrarvanda útgerðarinnar.
„Við eigum nú eftir að líta fram-
an í allt rekstrardæmi sjávarút-
vegsins á næstunni og því er nú lítið
um það að segja. Eg geri mér fulla
grein fyrir því, að það verður mjög
erfitt dæmi og við eigum eftir að
sjá til með það í hvað miklum mæli
hið opinbera getur komið inn í það.
Rekstrarvandi útgerðarinnar verð-
ur ekki leystur eingöngu af opin-
berri hálfu. Því verða menn að gera
sér grein fyrir, það er ekki gert ráð
fyrir fjármagni á fjárlögum ríkis-
ins í þessu sambandi, þannig að fé,
sem hugsanlega yrði tekið til slíkra
hluta yrði þá af erlendri lántöku
eða meiri samdrætti annars staðar
í þjóðfélaginu. Eg held að allir geri
sér grein fyrir því, að við þurfum að
koma þessu dæmi saman með ein-
hverjum hætti.
Við trúum því nú, að það birti til
í sjávarútveginum. Við reiknum
með því, að þorskstofninn komi aft-
ur upp og það er ekki spurningin
hvort heldur hvenær í mínum
huga.“
Kemur til að hækka fiskverð
verulega eða auka skattaívilnanir
sjómanna til að mæta aflarýrnun á
næsta ári?
„Það hefur ekki verið athugaður
sá möguleiki að fiskverð hækki
verulega eða sjómenn fái auknar
skattaívilnanir vegna aflasam-
dráttarins. Sjómenn hafa sérstakan
fiskimannafrádrátt og það hefur
alltaf komið til álita í mínum huga
að breyta honum, því hann nýtist
þeim mun meira, sem hærri hafa
tekjurnar og við þessar aðstæður er
það spurningin hvort menn geti
hugsað sér að jafna það með ein-
hverjum hætti og ef til vill að auka
hann eitthvað. Það er alltaf þetta
vandamál með skattana, að ívilnan-
irnar nýtast ekki þeim, sem hafa
lágar tekjur. Þá má nefna það, að
undanfarin ár, að 1981 undanskildu,
hefur fiskverð hækkað umfram
laun fólks í landi," sagði Halldór
Ásgrímsson.
Nú þegar vetur er genginn í garð og harðnar á dalnum hjá útigönguhrossum er vert að minna hestaeigendur á að sjá
skjólstæðingum sínum fyrir nægu fóðri, vatni og skjóli og láta það heyra fortíðinni til að hestar séu kvaldir af hungri,
kulda og vosbúð. Ljósmynd VK.
ítalskur knstall
ítölsk hönmm
Hagkaups veró
Donizetíi
□
□
Líkjörglas
Verð:
Kr. 35.95
Vínglas
Verð:
Kr. 59.95
For-drykkjarglas „Long-drink“glas
Verð: Verð:
Kr. 49.95 Kr. 65.95
Michelangelo
Hvítvínsglas Rauðvínsglas Kampavínsglas (hátt)
Vcrð: Vcrð: Verð:
Kr. 109 Kr. 119 Kr. 119
Líkjörsglas
Verð:
Kr. 85.95
Kampavínsglas (lágt)
Verð:
Kr. 139
Beethoven
D □
Líkjörglas
Verð:
Kr. 39.95
Desert skál
Verð:
Kr. 65.95
For-drykkjarglas Vínglas
Verð: Verð:
Kr. 59.95 Kr. 69.95
Wiskyglas
Verð:
Kr. 69.95
„Long-drink ‘glas
Verð:
Kr. 75.95
‘Þetfa, qceti 4eÍ4t ufifa á cvifrátciKcUi.
TT K ATTP Skeifunni15
11 iluliAU r Reykjavík