Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983
35
gömul kynni og samfundir okkar
urðu fleiri eftir því sem árin liðu.
Það var alltaf mannbætandi að
skipta orðum við Svein. Hlýjan og
einlægnin voru honum í blóð borin
og sannarlega var hann vinur vina
sinna og ekki er mér kunnugt um
að óvini ætti hann neina, enda
maðurinn þannig gerður að það
hlaut að heyra til undantekninga.
Þá skal því ekki gleymt hve
Sveinn var lánsamur í öllu sínu
lífi. Góða konu, Gerðu Kristjáns-
dóttur, eignaðist hann og þau í
sameiningu indælt heimili og góða
dóttur sem þau hafa ríkulega not-
ið og hennar manns nú þegar ald-
urinn fór að aukast.
Þó ég vissi að heilsu Sveins hafi
hrakað undanfarið átti ég von á að
enn mættum við hittast og skipt-
ast á skoðunum, takast í hendur.
Hann var fyrir skömmu á vina-
fagnaði Eskfirðinga og Reyðfirð-
inga, brattur og hugarheill og það-
an fékk ég góða kveðju.
Með þessum orðum vil ég þakka
Sveini nú við leiðarlok í bili, inni-
lega og trausta samfylgd um leið
og ég sendi ástvinum hans samúð-
arkveðjur.
Guð blessi góðan dreng.
Arni Helgason
Eggertsdóttir. Var hún ætíð eftir
það bústýra hjá afa og hugsaði um
hann af stakri umhyggju. Er
Rannveig féll frá fyrir nokkrum
árum, tók Klara dóttir hennar við
og leit inn hjá gamla manninum
og hjálpaði honum eftir megni. Á
hún skilið mikið þakklæti fyrir
fórnfýsi sína og alúð.
Minningar mínar um afa eru
margar og allar góðar. Hann var
áhugasamur um allt sem varðaði
fjölskylduna og börnin, hvernig
okkur gekk í lífinu, hann var ekki
með neina mærð, en hjartað var
hlýtt sem undir sló. Þessi fáu
minningabrot eru þakkir fyrir allt
sem hann var börnum sfnum og
barnabörnum, hans aðalsmerki
var að hann var trúr. Getur maður
gefið meira en tryggð sína hvort
sem er í starfi eða leik?
„Lifi minning liðins tíma,
langtum meir þó tímans starf.
Lifi og blessist lífsins glíma,
leifi framtíð göfgan arf.
Hverfi ofdrambs heimsku víma,
hefjist magn til alls sem þarf.
Lifi og blessist lífsins glíma
lifi og blessist göfugt starf “
(H. Hafstein)
Borghildur Þorgeirsdóttir
bjó yfir mörgum hæfileikum, og
var þar á meðal mjög hagmæltur.
Þegar önnur okkar fæddist í Með-
alholtinu fyrir 23 árum orti hann
þessar vísur:
Ein er heima hjá afa
Inga litla Þóra.
Hún er ung, en hann er gamall
og hættir bráðum að tóra.
Svona er lífsins leikur.
Löng er orðin hans ganga.
En sólargeisla á hann einn,
sem um hans strýkur vanga.
Æskunnar ljúfa yndi
ellin gamla metur,
eins og þegar yljar sól
ísaða jörð um vetur.
Þegar við hugsum til baka og
minnumst afa okkar, þá fyllast
hjörtu okkar þakklæti og ást.
Það er sárt að horfa á eftir þeim
sem maður elskar, og sú spurning
vaknar: Hver er tilgangurinn með
þessu lífi? En hvers vegna viljum
við æðri tilgang? {iðandi lífi erum
við sífellt að leita að einhverju
æðra og öðru en við höfum og er-
um. Um leið og við gerum okkur
ljóst, að það erum við sjálf og
röddin í brjósti okkar sem er
leyndardómurinn, þá er tilgangin-
um náð. Við viljum þakka elsku
afa okkar fyrir að gefa okkur það
fallegasta sem fyrirfinnst, trúna á
lífið.
Inga Þóra og Imma.
t
SIGURDUR GfSLASON,
fyrrum fiakaali,
sem lóst á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíö 14. desember veröur
jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. desember kl. 3 e.h.
Fyrir hönd aöstandenda,
Bjarni Gunnarsson.
t
Þökkum innilega hluttekningu viö fráfall og jaröarför
SÓLVEIGAR BENEDIKTSDÓTTUR ÁRMANN,
Skorrastaö, Noröfiröi.
Guö blessi ykkur öll.
Dastur, fósturbörn, tengdasynir, börn og barnabörn.
KRISTJÁN SIGURJÓNSSON,
Kirkjuvegi 26,
Vestmannaeyjum,
veröur jarösettur frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, fimmtudaginn
22. desember kl. 14.00.
Fyrir hönd aöstandenda,
Margrét Ólafsdóttir.
t
Hjartans þakkir til vina og vandamanna fyrir auösýnda samúö viö
andiát og jaröarför eiginmanns míns,
BJÖRNS BENEDIKTSSONAR,
yfirpóstafgreiöslumanns
Guö blessi ykkur öll.
Guörún Þorvaldsdóttir.
t
Innilegar þakkir tii allra sem auösýndu okkur samúö og hjálp við
andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
GUNNARS GUNNARSSONAR.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug, viö
andlát móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÞÓRHÖLLU JÓNSDÓTTUR.
Svava Björnsdóttir,
Sigríður B. Gunnarsdóttir, Ingólfur H. Tryggvason,
Þóra Gunnarsdóttir, Ólafur L. Árnason,
Gunnlaug Gunnarsdóttir,
Gunnar Logi Gunnarsson.
Kristján Aöalbjörnsson, Guöbjöra Eggertsdóttir,
Hannes Aöalbjörnsson, Guörún Arnadóttir,
Guöný Aöalbjörnsdóttir, Einar Magnússon
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö fráfall og jaröarför eigin-
manns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
EGGERTSJÓHANNESSONAR.
Guölaug Tómasdóttir,
Rútur Kjartan Eggertsson, Bergljót Einarsdóttir,
Jóhannes Eggertsson, Vilborg Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför systur
okkar,
JENNÝJAR GUDBRANDSDÓTTUR.
Siguröur Guöbrandsson,
Guðrún Guöbrandsdóttir,
Andrós Guóbrandsson,
Sigríöur Guöbrandsdóttir,
Stefanía Guöbrandsdóttir,
Halldóra Guöbrandsdóttir,
Ólöf Guðbrandsdóttir,
Hrefna Guöbrandsdóttir.