Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, simi 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö. Útsvarslækkun og skattbyrði Meirihluti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn Reykjavíkur hefur lagt það til að á árinu 1984 skuli út- svör miðast við 11% álagn- ingu en ekki 11,88% eins og álagningin er í ár og hefur verið síðastliðin 4 ár. Með því að fella niður þetta 8% álag lækkar heildarálagn- ingin á borgarbúa um 90 milljónir króna. Þessi ráða- gerð sjálfstæðismanna um lækkun útsvara er í sam- ræmi við þá stefnu sem þeir mótuðu í upphafi ársins þeg- ar þeir lækkuðu fasteigna- gjöldin, en álagningarhlut- fallið á íbúðarhúsnæði var lækkað um 15,8% gegn há- værum mótmælum vinstri flokkanna. En á næsta ári hefðu íbúðareigendur þurft að greiða 36,3 milljónum króna hærri fasteignaskatta ef stefna vinstri flokkanna hefði ráðið. Lækkun útsvars og fasteignaskatta í Reykja- vík undir forystu sjálfstæð- ismanna leiðir sem sé til þess að á árinu 1984 dragast tékjur Reykjavíkurborgar saman um 126,3 milljónir króna og borgarbúar hafa jafn háa upphæð til eigin ráðstöfunar. Davíð Oddsson, borgar- stjóri, benti á hina hlið þessa máls, skattbyrðina, um leið og hann gerði grein fyrir lækkun útsvarsins í borgar- stjórn á fimmtudaginn. „Ekki verður það vefengt, að óbreytt álagningarhlutfall leiðir til meiri skattbyrði gjaldenda við minnkandi verðbólgu, meðan gjöld árs- ins eru reiknuð af tekjum næstliðins árs. Verðbólgu- hraðinn vinnur þá ekki með skattgreiðendum á sama hátt og verið hefur í óðaverð- bólgu liðinna ára.“ Hér kem- ur borgarstjóri að því lykil- atriði sem menn verða að hafa í huga þegar litið er á lækkun útsvars og annarra opinberra gjalda, að ekki er ætlunin að deyfa þungann af skattbyrðinni á næsta ári með því að borga mönnum hærri upphæðir í verðminni krónum. Ástandið hefur ver- ið þannig eins og borgar- stjóri lýsti, að krónutölurnar sem fara í skattgreiðslur standa óbreyttar meðan allt annað verðlag æðir áfram. Þegar þessi mál eru metin er ekki unnt að líta fram hjá þriðja þættinum, stöðu þess sem skattteknanna nýtur, í þessu tilviki borgarsjóðs Reykjavíkur. Sveitarsjóðir hafa safnað skuldum ekki síst vegna áhrifa verðbólg- unnar. Það þarf ekki síður að huga að fjárhagsstöðu þeirra en annarra. Að öllu samanlögðu er Ijóst að sjálfstæðismenn í þorgarstjórn Reykjavíkur hafa slakað á skattheimtu miðað við stefnu og gjörðir vinstri flokkanna en engu að síður verður skattbyrðin þung á næsta ári. Eina leiðin til að létta hana enn frekar er að skera niður þjónustu og framkvæmdir hjá borginni eða láta vaða á súðum við fjármálastjórn hennar. Framtak Guðmundar í Víði Meðal þeirra bóka sem nú koma út er lífssaga Guðmundar Guðmundssonar í trésmiðjunni Víði. Þar er því lýst hvernig Guðmundi tókst af ótrúlegum dugnaði og áræði að koma á fót urn- fangsmiklum atvinnurekstri án nokkurs fjárhagslegs bakhjarls og án þess að sjá nokkru sinni handa sinna skil í fyrirtækinu vegna blindu. Kjartan Stefánsson, bókarhöfundur, spyr Guð- mund í Víði að því hvernig hafi verið að reka fyrirtæki á haftatímunum fyrir við- reisnina sem hófst 1960. „Það kom sér ákaflega illa fyrir mig, sagði Guðmundur, og það braut algjörlega í bága við lífsskoðun mína. Ég hef alla tíð talið atvinnulíf- inu best borgið með því, að einstaklingarnir hefðu frelsi til athafna. Heftur hestur vinnur engin hlaup ... Frelsi er talið þjóðum nauðsynlegt, því skyldi það ekki vera jafn nauðsynlegt í viðskiptum? Sumir, sem hæst iáta um frelsi íslands, hafa verslun- areinokunina á stefnuskrá sinni. Þeir trúa hvorki á þoi einstaklingsins né mann- dóm. Ég skil ekki þessa glámskyggni, að vilja ekki brjótast áfram á eigin ábyrgð, vilja ekki standa á eigin fótum. Sá sem hefur þor, kunnáttu og heilindi verður aldrei illa úti.“ Guðmundur í Víði hefur sýnt það með framtaki sínu og lífssögu að hann skortir hvorki þor, kunnáttu né heil- indi. Saga hans er einstæð. Þriðja bindi Islenskra sjávar- hátta ÞRIÐJA bindi ritverks Lúðvíks Kristjánssonar, íslenskir sjávar- hættir, er komið út hjá Bókaút- gáfu Menningarsjóðs. Fyrri bind- in, frá 1980 og 1982, þykja eins- dæmi í sögu íslenskra fræða, að því er segir í fréttatilkynningu frá Menningarsjóði í tilefni af út- komu bókarinnar. Nýjasta bindið er 498 blaðsíður og er helgað minningu íslenskra sjómanna fyrr og síðar. Meginkaflar bindisins eru: Skinnklæði og fatnaður, Upp- sátur, Uppsátursgjöld, Skyldur og kvaðir, Veðurfar og sjólag, Veðrátta í verstöðvum, Fiski- mið, Viðbúnaður vertíða og sjó- ferða, Róður og sigling, Flyðra, Happadrættir og hlutarbót, Há- karl og Þrenns konar veiðar- færi. Ennfremur eru í bókinni myndaskrá, heimildaskrá, at- riðisorðaskrá, eftirmáli og efn- isútdráttur á ensku, í þýðingu Julian Meldon D’Arcy. Myndir eru 361 talsins, þar af 30 prent- aðar í litum. Ljósmyndir hafa margir tekið en Björn Rúriks- son langflestar. Bjarni Jónsson listmálari hefur gert nær allar skýringa- teikningar en Guðmundur ó. Ingvarsson teiknaði öll kort. Nokkrar teikningar eru auð- kenndar með skýringum og eru þær eftir Pétur Sigurðsson, fyrrv. forstjóra Landhelgis- gæslunnar, Hörð Ágústsson listmálara og Hörð Kristjáns- son húsasmíðameistara. Prentsmiðjan Oddi annaðist setningu, filmuvinnu, prentun og bókband Islenskra sjávar- hátta III, en Korpus litgrein- ingu mynda. Guðmundur P. Ól- afsson, líffræðingur, hannaði kápu, saurblöð og bókband, en Lúðvík Kristjánsson, rithöfundur, með þriðja bindi ritverks síns um íslenska sjávarhætti. Morgunblaðift/KEE. Guðni Kolbeinsson kennari og Sigurgeir Steingrímsson cand. mag. höfðu á hendi alla aðra hönnun bókarinnar, ritstjórn, prófarkalestur og samningu at- riðisorðaskrár, er nemur um sex þúsund orðum á 44 blaðsíð- um. Að henni unnu einnig Helga Gunnarsdóttir fil. kand. og Lilja Bergsteinsdóttir. Auk fyrrgreindra aðila hafa margir menn og stofnanir orðið höfundi að liði, eins og hann rekur í eftirmála, en þó fyrst og fremst eiginkona hans, Helga Proppé. Guðbjörg Steindórsdóttir: Yfirlýsing vegna útgáfu bréfa Þórbergs til Sólrúnar Jónsdóttur MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá Guðbjörgu Steindórsdóttur, vegna útgáfu á bréfum Þórbergs Þórðarsonar til Sólrúnar Jónsdóttur: í tilkynningu frá Máli og menn- ingu, sem birtist í dagblöðunum 17. þ.m., eru ásakanir í minn garð fyrir að ég skyldi hafa gefið út bréf frá föður mínum, Þórbergi Þórðarsyni, til móður minnar, Sól- rúnar Jónsdóttur, sem skrifuð voru á árunum 1922—1931. Ég vil gjarnan í tilefni af þess- um ásökunum skýra hvers vegna ég ákvað að gefa þessi bréf út. All- ir sem til þekkja vita og viður- kenna að ég er dóttir Þórbergs Þórðarsonar, og þarf ekki að fara nánar út í það, fyrir því liggja nægar sannanir. En opinberlega er það ekki viðurkennt. í ævi- ágripum um föður minn, sem án efa verða oftsinnis skráð, mun standa að hann hafi átt eina laundóttur og ekki aðra afkom- endur. Við þetta sætti ég mig ekki. Ég er ekki laundóttir eins eða neins og vil því bæði mín vegna og barna minna hljóta opinbera stað- festingu á réttu faðerni mínu, eins og foreldrar mínir óskuðu eftir. Það er talað um í athugasemd Máls og menningar að bréfin hafi ekkert bókmenntalegt gildi. Um það er ég ef til vill ekki fær að Þórbergur Þóróarson dæma, en ég hef fyrir því orð manna sem meira skynbragð bera á það en fulltrúar Máls og menn- ingar virðast gera að bréfin séu vel skrifuð og á engan hátt niðr- andi hvorki fyrir föður minn, móð- ur mína né aðra. Talað er um að ég hafi brotið siðareglur í bókaútgáfu. Ég er ekki bókaútgefandi og þekki ekki hvort einhverjar aðrar siðareglur gilda meðal þeirra en annars stað- ar í mannlegu samfélagi. En sam- kvæmt mínum skilningi á siða- reglum get ég ekki fundið neitt brotlegt við það að leyfa fólki að koma fram eins og það er klætt, ekki síst þegar það kemur fram eins og faðir minn í þessum bréf- um. Samkvæmt mínum skilningi sýna bréfin að hann var ekki að- eins mikill rithöfundur, heldur var hann líka mikill og elskulegur maður. Það er að vísu engin ný vitneskja því að þetta vita allir sem þekktu hann. En þegar þeir eru komnir undir græna torfu munu bréfin standa sem sönnun- argagn um þetta, auðvitað ásamt ýmsu öðru sem hann lét frá sér fara. En á mér hafa verið brotnar siðareglur og það á ég erfitt með að fyrirgefa, og er það ein af orsökum þess að bréfin eru nú komin fyrir almenningssjónir. Ég vil að fólk viti um þessi mál og hver og einn geti dæmt fyrir sig. Ég vænti þess að mér auðnist að fá opinbera viðurkenningu á fað- erni mínu áður en lýkur mínum hérvistardögum, en verði ekki skilgreind áfram sem laundóttir. Reykjavík 20. desember, 1983, Guðbjörg Steindórsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.