Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.12.1983, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1983 Hugmyndakreppa — eftir Pál Skúlason i. Hugtakið kreppa er yfirleitt haft um tiltekið ástand á sviði efnahagslífs eða stjórnmála, nema hvort tveggja sé. Á sviði efnahags kemur kreppan fram í alvarlegum skorti á lífsnauðsynj- um; framleiðslukerfið, sem á að tryggja þjóðfélaginu lífsviðurværi og dreifingu þeirra gæða sem fólk þarf til að lifa og njóta lífsins, veldur ekki lengur hlutverki sínu. Á sviði stjórnmála birtist krepp- an í djúpstæðum og að því er virð- ist óleysanlegum ágreiningi um málefni sem snerta þjóðfélagið sem eina heild; samfélagið virðist þá ekki hafa nein ráð til þess að setja niður deilur og taka sam- eiginlegar ákvarðanir. í þessum skilningi er nokkuð ótvírætt hvað við er átt með kreppu. Ef farið er að ræða um kreppu á öðrum sviðum samfé- lagsins, t.d. í trúmálum, siðferði eða hugmyndalífi, verður öllu óljósara hvað við er átt. Það er því eðlilegt að spyrja í hvaða skiln- ingi réttmætt sé að tala um kreppu varðandi hugmyndir eða andlegt líf. Það er augljóst að kreppa í efnahagslífi og stjórnmálum hef- ur margvísleg áhrif á menningu þjóðar. 1 fyrsta lagi kyndir hún undir óvissu í hugum manna um lífskjör sín og lífsmöguleika, og sú óvissa hlýtur að koma róti á hugmyndir og skoðanir fólks varðandi lífið og tilveruna al- mennt. í öðru lagi þá veldur kreppan óhjákvæmilega djúp- stæðum átökum og árekstrum milli manna og slíkar deilur í samfélagi hljóta ævinlega að vera að nokkru leyti á sviði hugmynda og skoðana; átökin valda því að menn brýna gjarnan eða skerpa hugmyndir sínar um of og verða öfgafullir í skoðunum. Kreppa í venjulegum skilningi þess orðs er því ávallt að hluta til hugmyndalegs eðlis. Þessum hug- myndalega þætti má e.t.v. lýsa best með því að segja að hún birt- ist í mynd efahyggju annars veg- ar, en tilhneigingar til ofstækis hins vegar. Efahyggjan beinist að hefðbundnum hugmyndum um lífið og tilveruna; hún er eðlilegt afsprengi óvissunnar; menn hætta að reiða sig á þær hug- myndir um lífið, tilgang þess og gildi, sem áður höfðu dugað fólki og verið því til halds og trausts. Efinn veldur því eðlilega vissri upplausn í hugmyndum fólks og vantrú á sviði trúarlífsins. Jafn- framt þessu verður fólk leitandi eftir nýjum lífsskoðunum, nýjum hugmyndum sem það getur beitt til þess að átta sig á tilverunni. Þá er hættan jafnan sú að það taki á móti hinum nýju hugmyndum með meiri Sannfæringarkrafti en þær eiga skilið og þá er ofstækið á næsta leiti. Mörg söguleg dæmi mætti nefna til stuðnings því sem hér hefur verið rakið. Hér verður látið nægja að minna á þá upplausn I hugmyndaheimi, sem kreppan á 3ja áratug þessarar aldar leiddi til í ýmsum löndum Evrópu, og þær öfgakenndu skoðanir sem þá eignuðust sterk ftök í hugum margra. Ef við lítum á hinn hugmynda- lega þátt kreppunnar einan sér og úr tengslum við efnahags- og stjórnmálaþáttinn, má e.t.v. skýra hann nánar á eftirfarandi hátt: Fólk finnur ekki lengur þær hugmyndir sem geta gert því kleift að móta heilsteypta lífs- skoðun og lífsafstöðu; í þessum skilningi getur orðið kreppa í hugmyndaheimi manna. Þetta þarf ekki að merkja að það skorti framboð á hugmyndum, öðru nær. „Hugmyndakreppa" einkennist fremur af offramboði hugmynda, þ.e. af alls kyns „hugmyndafræði“ þar sem „sannleikurinn“ og hinar „réttu lausnir" vandamálanna eru óspart kynntar fyrir fólki. óhætt er að segja að á síðustu áratugum hafi andlegt líf á Vest- urlöndum a.m.k. einkennst af „hugmyndakreppu" í þessum skilningi, þ.e.a.s. af framboði og átökum á milli andstæðra eða gerólíkra hugmyndastefna sem hver um sig vill vísa fólki veginn í átt til betra og fagurra mannlífs. Hugmyndastefnur af þessu tagi hafa verið kenndar við kristindóm og kommúnisma, marxisma og frjálshyggju og margt fleira. En deilurnar hafa jafnan borið þess merki að óbrúanlegt bil hefur ver- ið á milli hugmyndanna og veru- leikans og að menn ættu í mestu, erfiðleikum með að sjá hvernig þeir gætu látið hugmyndir sínar ná fram að ganga í veruleikann. Þetta hugmyndastríð hefur þv( verið til marks um ráðaleysi fólks andspænis heiminum, kreppu í lifsskoðunum og lífsviðhorfum, sem fylgt hefur f kjölfar gjör- breyttra lífsskilyrða og lífshátta. II. En það er önnur hlið á þessu máli sem vert er að staldra aðeins við. Ég hef gefið í skyn að orsaka hugmyndakreppunnar sé að leita í ytri lífsskilyrðum, breytingum á efnahagskerfi, atvinnuháttum og öðru þvíumlíku. Er þetta að öllu leyti rétt? Stjórnast hugmynda- lífið, hugsunarháttur fólks, lífs- viðhorf og gildismat, af þáttum í veruleikanum sem ekki eru komn- ir undir því hvernig fólk hugsar? Margar kenningar hafa verið settar fram á síðari tlmum sem með einum eða öðrum hætti líta á hugmyndalíf fólks, lífsskoðanir þess og hugsunarhátt sem yfir- borðsfyrirbæri, sem séu útskýr- anleg á grundvelli tiltekinna lögmála um starfsemi heilans, um stéttaskiptingu í þjóðfélagi eða um önnur hlutlæg ferli í sam- skiptum manna eða dulvitund þeirra. Ef kenningar af þessu tagi eru réttar blasir við að hugmynda- kreppa er ávallt endurspeglun á kreppu sem er í sjálfu sér ekki hugmyndalegs eðlis, sem sagt kreppu sem sprettur af öðru en því hvernig hugsunarhætti manna er háttað. Af þessu við- horfi leiðir að það þýðir ekki að takast á við hugmyndakreppuna sem slíka, heldur verður að takast á við þau vandamál í sálarlffi eða þjóðlífi sem eru undirrót krepp- unnar á sviði hugmyndanna. Tökum eitt dæmi. Segjum að einhver persóna, karl eða kona, eigi í hugarstríði vegna persónu- legra vandamála. Vandamálin sem hún stendur frammi fyrir kunna að vera af ýmsu tagi, fjár- hagsleg (hún hefur ekki nægar tekjur), bundin tilfinningalífi (hún nær ekki viðunandi sam- bandi við börn sín), streita eða ofþreyta (sem tengist e.t.v. ofneyslu áfengis) o.s.frv. í huga þessarar persónu ríkir kreppa, vegna ótal óleystra vandamála. Og hún sest niður, reynir að kryfja vandamál og fær engar hugmyndir um viðunandi lausnir. Vandamálin eru óleysan- leg. Þetta dæmi úr einkalifi kann einnig að vera dæmigert fyrir ástand þjóðar eða tiltekins sam- félags og vera táknrænt fyrir hugmyndakreppu þess. Ef við leiðum nú hugann nánar að þessu dæmi, þá kemur eitt og annað í ljós sem sýnir okkur ákveðinn hugsunarhátt, sem er á engan hátt sjálfsagður. Sam- kvæmt þessu alkunna dæmi á fólk í hugarstríði vegna tiltekinna óleystra eða óleysanlegra vanda- mála. Vandamálin eru hlutlæg, þau eru þarna úti í heiminum eða í djúpum sálarlffsins, í bernskunni, í fjölskyldutengslum, í tilteknum, deyfiefnum eins og áfengi. Hug- arstrfðið, hugmyndakreppan, stafar af því að engin ráð eru til að takast á við þessi vandamál, engar lausnir tiltækar, engin ráð til að greiða úr flækjunni. Hugs- unin fer á flot og með ðllu óvíst hvernig fer fyrir henni. Hvað er athugavert við þennan hugsunarhátt sem setur svo ríkan svip á menningu okkar? Það að hin svokölluðu vandamál eru í sjálfu sér ekki vandinn sem við er Páll Skúlason „Óhætt er að segja að á síðustu áratugum hafi andlegt líf á Vest- urlöndum a.m.k. ein- kennst af „hugmynda- kreppu“ í þessum skilningi, þ.e.a.s. af framboði og átökum á milli andstæðra eða gerólíkra hugmynda- stefna sem hver um sig vill vísa fólki veginn í átt til betra og fagurra mannlífs.“ að glíma heldur hitt hvernig þau eru lögð fyrir, hvernig þau eru hugsuð. Ekkert vandamál er til sem ekki er sett fram eða ákvarðað af mannlegri hugsun. Það sem hefur einkennt hugsunarhátt nútímam- anna er að þeir setja sífellt fram vandamál sem þeir gera síðan kröfu til sjálfra sín um að leysa. Geta það sfðan ekki. Og kreppan skellur yfir. Af hverju stafar þessi hugsun- arháttur? Hann stafar af ákveð- inni venju eða sið sem reynst hef- ur mjög árangursríkur þegar um er að ræða vissa tegund verkefna sem menn kjósa að leysa, nefni- lega þegar um er að ræða ákveðin tæknileg viðfangsefni. Þá ríður á því að líta á vandamál utanfrá sem hlutlæg fyrirbæri sem unnt er að ná fullkomnum tökum á. En þessi sami siður hefur náð að búa um sig í hugum manna og verða eitt megineinkenni á hugs- unarhætti þeirra. Og þá hefur það gerst sem valdið hefur mikilli spillingu f hugarheimi fólks og hugmyndalífi. Það hefur ætlað sér að taka öll vandamál, persónuleg sem önnur, tæknilegum tökum. Ef um tæknilegt verkefni er að ræða, þá gildir það eitt að finna réttu hugmyndina, hugmyndina að réttu lausninni á vandanum. Þannig hafa orðið til hugmynda- stefnur sem þykjast bjóða uppá lausnina að gátunni um mannlegt samfélag. Þær segja allar: „Ef við gerum nákvæmlega þetta — t.d. gefum allt frjálst, þjóðnýtum allt — þá fer allt vel.“ Þetta er ein- kenni á hugmyndastefnum nútím- ans og rót hugmyndakreppunnar: Að ætla sér að fást við Iffið sem tæknilegt úrlausnarefni. Sannleik- urin ner hins vegar sá að svoköll- uð vandamál mannlegs lífs eru ekki tæknileg nema f einstaka til- fellum. Þau eru í reynd siðferði- leg. Vandi persónunnar f dæminu áðan er sá að hún lítur á lffið sem úrlausnarefni eða reikningsdæmi sem hún á og verður að ráða framúr hvað sem það kostar, jafn- vel lífið sjálft. Það liggur við að þessi hugsunarháttur sé ósiðleg- ur. Það ræður enginn framúr vanda eigin tilveru, vegna þess að lífið er ekki tæknilegt úrlausnar- efni. Miklu fremur má líkja lífinu við gersemi sem okkur er trúað fyrir um tíma. Lífið er dýrmætt. Þetta er frumforsenda allra hugmynda, skoðana og kenninga varðandi mannlífið, eigið líf sem annarra. Ef og þegar þessi frumforsenda er látin lönd og leið er voðinn vís, hugmyndakreppa skellur yfir. Kreppa af þessu tagi hefur óneitanlega grafið um sig sfðustu hundrað árin eða svo í vestrænni menningu. Á síðustu árum má þó sjá ýmis merki þess að hugsun- arháttur fólks sé að breytast, það sé farið að átta sig á því að „vandamál mannlífsins“ séu sam- ofin því hvernig við skoðum og förum með verðmæti — og þá öllu öðru fremur lífið sjálft. Þessi svokölluðu vandamál eru með öðr- um orðum siðferðileg. Þau lúta að lífsvenjum okkar, hugarfari og siðum. Okkur er því ókleift að takast á við þau án þess að breyta sjálfum okkur, verða öðruvísi manneskjur, vonandi betri. Vandinn er sem sagt við sjálf. Ekki aðeins hver við erum eða hvað við erum, heldur hver við viljum vera, hvernig okkur langar til að vera. Þetta er okkur aldrei fyllilega ljóst, þrátt fyrir enda- lausar tilraunir til að telja okkur trú um hið gagnstæða. Eiginlegt mannlíf er því óendanleg tilraun til að sigrast á sjálfsblekkingu. Og til þess að líta á lífið opnum, alls- gáðum augum. Að hluta flutt á málþingi Lífs og lands um „Þjóð og kreppu", sem haldið var laugardaginn 19. nóvember 1983. Páll Skúlason er prófessor rið Há- skóla fslands. Þórir S. Gröndal skrifar frá Florida Fyrirgefíð, skökk Mikið ræðum við íslendingar um landkynningu. Eðlilega erum við stolt af iandi okkar og viljum, að sem flestir útlendingar fái vitn- eskju um það, að á okkar fögru eyju búi dugmikil menningarþjóð. Það ánægjulegasta við að segja frá íslandi í útlöndum er það, að það kemur oftast hinum fáfróðu útlandsmönnum skemmtilega á óvart, sem þeir sjá og heyra af myndum og tali frá hólmanum okkar. Fáfræðin um ísland úti í hinum stóra heimi er feiknarleg og virð- ist ástandið í þeim málum ekki lagast mikið. Unga fólkinu er fátt kennt í skólunum um lítil lönd eins og ísland. Þeir, sem eitthvað vita, eru venjulegast fullorðnir og hafa þá annaðhvort verið tengdir hersetu á landinu eða flogið til Evrópu með Flugleiðum. Ekki þori ég beint að leggja mælikvarða á það, hvaða þjóðir heims vita mest eða minnst um ísland. Samt hefir mér fundizt, af samskiptum mínum við spönsku- mælandi fólk frá rómönsku Ameríku, að hjá því sé upp til hópa afar takmörkuð vitneskja um okkar ágæta eyland. Sem dæmi segi ég ykkur eftirfarandi sanna sögu: Kona nokkur, með kúbanskt ríkisfang, setti sig í samband við ræðismann íslands í Miami í þeim tilgangi að fá vegabréfsáritun til landsins, því þangað hugðist hún fara í ferðalag. Var henni sent eyðublað til útfyllingar, en það átti hún svo að senda ásamt vega- bréfi sínu og vægri greiðslu til sendiráðsins í Washington. Skömmu seinna hringdi sendi- ráðsritarinn frá Washington í ræðismann og kvaðst hafa fengið téða umsókn. Kom honum spánskt fyrir sjónir, að hin kúbanska hafði gefið upp sem „tilgang ferðarinn- ar“, að hún væri á leið til St. Mart- in. Góð landafræðikunnátta ritar- ans sagði honum, að með íslands- heimsókninni væri þessi ágæta kona að taka á sig um 19.000 km krók! Vildi hann, til vonar og vara, að ræðismaður ræddi málið við konuna. Hringdi ræðismaður síðan í hinn tilvonandi íslandsfara og eyja tjáði honum, að ferðamálafrömuð- ir og reyndar öll íslenzka þjóðin væri áfjáð í að fá hann í heim- sókn. Hins vegar sagði hann kon- unni, að menn hefðu nokkrar áhyggjur af ferðaáætlun hennar og sér í lagi tengslunum við St. Martin. Spurði þá ferðakonan strax, hvort ísland ætti ekki St. Martin-eyju. Henni var þá tjáð, að því miður væri svo ekki. St. Martin lægi í sólbökuðu Karabíska hafinu, en eymingja ísland héngi á heim- skautsbaugnum eins og jó'askraut og ætti aungvar nýlendur. Kom þá löng þögn í símann en síðan stundi konan upp, að þetta væri augsýni- lega skökk eyja. Sendiráðið endur- sendi henni síðan vegabréfið og aurana og er hún hér með úr sög- unni, líklega einhvers staðar villt á ferðalagi um þennan stóra heim. Þótt hér upplýsist mjög slök landafræðikennsla hjá Kastró og hans Kúbukommum, þótti ræðis- manni um mjög einkennileg mis- tök að ræða. Tók hann því fram landakort af Karabíska hafinu og hinum mýmörgu eyjum þess. Þar kom fram, að þau eylönd, sem eru í eigu annarra þjóða, hafa nöfn eigendanna prentuð í svigum undir sínum eigin nöfnum. Þannig virtist, samkvæmt korti hans, helmingur St. Martin vera í eigu Frakklands en hinn Hollands, og var þess getið í mjög smáu letri. I örlítið stærri stöfum stóð „St. Martin Island", sem þýðir auðvit- að St. Martin-eyja. Konugarmurinn hefir einhvern veginn tekið skakkan pól í hæðina, verandi spönskumælandi, og hald- ið, að ísland ætti eyjuna og væri líklega einhversstaðar á næstu grösum, ef svo má að orði komast. Líklega komumst við Mörlandar aldrei nær en þetta að verða ný- lenduveldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.