Morgunblaðið - 11.01.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1984
5
5
Morgunbladið/ Friðþjófur.
Fjórir bflar í árekstri
IUa vióraði til aksturs á höfuðborgarsvæðinu í g»r, en þrátt fyrir þad uróu
ekki óvanaiega mörg umferðaróhöpp. Undantekningar urðu auðvitað — fjór-
ar bifreiðir skullu saman á Kringhimýrarbraut um khikkan 15 í gær. Engin
slys urðu á fólki, en hins vegar talsvert eignatjón.
Grettir
Eggerts-
son látinn
GRETTIR Eggertsson forstjóri í
Winnipeg andaðist hinn 9. þ.m. á 81.
aldursári.
Hann var fæddur 9. febrúar
1903, sonur hjónanna Árna Egg-
ertssonar fasteignasala og
Oddnýjar Jónínu Jakobsdóttur.
Grettir lauk prófi í rafmagnsverk-
fræði frá Manitoba-háskóla og
starfaði sem verkfræðingur í
Bandaríkjunum, Kanada og á ís-
landi. Hann bjó í 13 ár í New York
og rak þar verkfræðiskrifstofu.
Iiann var verkfræðilegur ráðu-
nautur hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Rafmágnsveitum
ríkisins og Rafmagnseftirlitinu í
Reykjavík. Hann var forstjóri
fyrir E.G. Eggertsson Inc. Engi-
neers, New York, Western Eleva-
tor og Motor Co. Ltd., Winnipeg og
Power & Mine Supply Co. Ltd. í
Winnipeg. Grettir átti sæti í
stjórn Hf. Eimskipafélags íslands,
samkvæmt tilnefningu Vestur-
íslendinga, frá 1954 til 1976.
Eftirlifandi eiginkona Grettis
er Irene Eggertsson frá Kansas
City. Þau voru barnlaus.
Athugasemd við leið-
ara Morgunblaðsins
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd frá Guð-
jóni B. Ólafssyni, framkvæmda-
stjóra Iceland Seafood Corporat-
ion, fisksölufyrirtæki SÍS í Banda-
ríkjunum:
„Mér hefur borist símrit (tele-
fax) af leiðara yðar í dag, þar
sem fjallað er um nýgerðan sölu-
samning milli SH/Coldwater og
fyrirtækisins Long John Silver’s.
í upphafsorðum leiðarans er
gefið til kynna, að Iceland Sea-
food Corporation hafi ekki byrj-
að að selja þorskflök til Long
John Silver’s fyrr en eftir 10
senta verðlækkun á sl. hausti.
Þessi ummæli eru byggð á
ókunnugleika leiðarahöfundar.
Iceland Seafood hefur selt
þorskflök til Long John Silver’s
allt frá árinu 1975 og hafa þessi
viðskipti farið vaxandi ár frá ári.
Hin síðari ár hefur Long John
Silver’s verið stærsti kaupandi
Iceland Seafood af þorskflökum.
Með kveðju,
Guðjón B. Ólafsson,
framkv.stjóri Iceland
Seafood Corporation.**
Aths. ritstj.
í leiðara Morgunblaðsins í gær
stóð þetta í upphafi:
„Síðla sumars 1983 var aug-
sýnilegt að íslensku fisksölufyr-
irtækin í Bandaríkjunum voru
farin að keppa sín á milli. Ice-
land Seafood Corporation, fyrir-
tæki Sambands isl. samvinnufé-
laga (SÍS), lækkaði verðið á 5
punda þorskflakapakkningum
um 10 sent og hóf að selja Long
John Silver’s, sem hafði verið
einn helsti viðskiptavinur Cold-
water, fyrirtækis Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna
(SH).“
Ummæli í leiðara Morgun-
blaðsins má skilja á þann veg,
sem Guðjón B. Ólafsson gerir.
Morgunblaðinu var fullkunnugt
um viðskipti Iceland Seafood við
Long John Silver’s og ekki ætl-
unin að gefa annað til kynna.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^ídum Moggans!
°r
Vigri seldi
fyrir 5,7
milljónir
VIGRI RE seldi afla sinn í
Bremerhaven í gær, alls
195,1 lest. Heildarverö var
5.700.200 krónur, meðalverð
29,22.
Skipin, sem selt hafa afla sinn
erlendis það sem af er árinu hafa
undantekningarlítið fengið mjög
gott verð fyrir hann. Hins vegar
hefur gæftaleysi undanfarna
daga komið í veg fyrir að sæmi-
legur afli hafi fengizt. Því eru
ekki fyrirhugaðar fleiri landanir
erlendis fyrr en í næstu viku.
Sjálfkjörið í stjórn VR
EKKI VAR lagður fram nema einn
framboðslisti til stjórnar í Verslun-
armannafélagi Reykjavíkur, listi
stjórnar- og trúnaðarmannaráðs, en
framboðsfrestur rann út á hádegi í
gær. Nú er kosið um helming stjórn-
arinnar, sem í eiga sæti 14 manns.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, var í kjöri og verður því for-
maður VR næstu tvö árin. Aðrir,
sem eru sjálfkjörnir í stjórn nú,
eru:
Böðvar Pétursson, Pétur A.
Maack, Elís Adolphsson, Teitur
Jensson, Arnór Pálsson, Anna
Laufey Stefánsdóttir og Elín Elí-
asdóttir. Þeir sem fyrir voru í
stjórn eru: Helgi Guðbrandsson,
Grétar Hannesson, Sigurlaug
Sveinbjörnsdóttir, Jóhanna E.
Sveinsdóttir, Jón ísaksson og Jó-
hanna Vilhelmsdóttir.
Þá var sjálfkjörinn listi 35
manna trúnaðarráðs og 15 vara-
manna þeirra, ásamt tveimur end-
urskoðendum og varamönnum
þeirra.
Trúnaðarráðið er kosið á hverju
ári, en stjórnin kosin til tveggja
ára, helmingur stjórnar hverju
sinni.
sem
enginn fœr staðist
Jakkaföt m/ vesti
Venjulegt verð 6.500.
Okkar verð 4.760.-
Ath.:
Þrátt fyrir þetta
góða verð eru aðeins
1. flokks ensk og þýsk
efni í fötunum frá okkur.
Kaupið vandaða vöru
á vægu verði
Snorrabraut Siml 13505
Glæsibæ Sími 34350
H'imraborg Kopavogi
Smi46200
Miðvangi Hafnarfirði
Simi 53300
H
K
Austurstnrti 10
sími: 27211