Morgunblaðið - 11.01.1984, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1984 15
Dr. Anton von Webern
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Josef Matthias Hauer, sem fyrstur
kom fram með hugmyndina að svo-
nefndu tólftóna kerfi, átti erfitt með
að sannfæra menn um mikilvægi
framlags síns og lét því útbúa sér
gúmmístimpil, þar sem á var letrað:
„Josef Matthias Hauer, andlegur fað-
ir tólftónatónlistar og þrátt fyrir að
margir hafi þar líkt eftir, sá eini er
skilur þetta kerfi og kann að nota
það.“
Schönberg mun hafa viðurkennt
frumkvæði Hauers og boðið honum
þátttöku í umræðum um þessar að-
ferðir en Hauer tókst ekki að beygja
menn undir þá hugmynd, að frum-
kvæði hans væri mikilvægara en sú
þróun er af henni leiddi. Fyrir
Schönberg var það ekki átakalaust
að hverfa frá síðrómantískri tón-
sköpun er hann hafði náð meistara-
tökum á, það tók hann í raun áratug
að temja sér þessi nýju viðhorf, áð-
ur en tólftónatæknin léki honum í
hendi. Það sem gefur tólftónakenn-
ingunni gildi, er hversu þróun
þeirra aðferða, sem af henni
spruttu voru margvíslegar og eru
þessi stefnuskil greinileg í ólíkum
rithætti Schönbergs og tveggja
nemenda hans, er þekktastir hafa
orðið, nefnilega Alban Bergs og
Anton Weberns. Nú eru liðin 100 ár
frá fæðingu Weberns og af því til-
efni stóð Musica Nova fyrir tónleik-
um í Norræna húsinu sl. mánudag
og voru leikin fimm tónverk eftir
meistarann. Fyrsta verkið á tón-
leikunum voru Sex bagatellur op. 9,
er voru leiknar af Þórhalli Birgis-
syni, Kathleen Bearden, Helgu Þór-
arinsdóttur og Noru Kornblueh.
Allar bagatellurnar eru aðeins 58
taktar í heild og í þessu verki tókst
Webern að ná því markmiði að losa
sig við allt fyllingarefni, útsetning-
una, og vinna verkið aðeins úr
frumþáttum hugmyndanna. Schön-
berg sagði um bagatellurnar að
„allt verkið skynjast í einni sjón-
hending". Þrjú smálög op. 11 voru
leikin af Noru Kornblueh og Snorra
Sigfúsi Birgissyni. Guðríður St. Sig-
urðardóttir lék Píanótilbrigði op.
27, Þórhallur og Snorri Sigfús Birg-
issynir léku Fjögur verk op. 7 og
tónleikunum lauk með Kvartett op.
22, en auk Þórhallar léku Óskar
Ingólfsson, Vilhjálmur Guðjónsson
og Svana Víkingsdóttir. öll verkin
voru mennilega uppfærð og sum
mjög vel flutt, eins og t.d. Píanó-
tilbrigðin, er Guðríður St. Sigurð-
ardóttir lék, bagatellurnar, svo og
Op. 7 er bræðurnir Þórhallur og
Snorri Sigfús fluttu vel á köflum.
Ekki væri úr vegi að flytja meira af
tónlist Weberns, sem þrátt fyrir
hálfrar aldar geymd býr enn yfir
ferskleika nýsáins akurs, einstæð í
nýstárleika sínum og umfram allt
hlý og mannelskulega fíngerð and-
stæða þess djöfulgangs er umlék
hann en snerti ekki, nema undir það
síðasta, er friðsæld langþráðs friðar
var rofin og hermaður, er ekki
skildi að á ferð var einmana iista-
maður, skaut hann í bakið. Ennþá
ómar kall bandariska hermannsins:
„Stansið eða ég skýt“ og hvellurinn
ómaði eins og til að tilkynna að upp
rynni nýr tími er markaði upphaf
sitt við endalok þess er skóp hann.
„Hjálparþurfi ef til
stórfelldra
jarðskjálfta kæmi“
segir Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna
FRÁ ÞVÍ var skýrt í Mbl. fyrir
skömmu, að fulltrúar almannavarna
á íslandi hefðu rætt um það við
norska aðila, að 10 sérþjálfaðir leit-
arhundar ásamt húsbændum þeirra
gætu verið komnir á vettvang á ís-
landi með þriggja stunda fyrirvara
ef stórfelldar náttúruhamfarir yrðu á
íslandi, til dæmis jarðskjálftar. Mbl.
bar þetta undir Guðjón Petersen,
framkvæmdastjóra Almannavarna
ríkisins. „Þetta er rétt svo langt sem
það nær og efnislega alveg rétt,“
sagði Guðjón Petersen.
„Forsaga þessa máls er að
Björgunarhundasveit íslands hef-
ur verið stofnuð hér á landi. Að
henni stendur áhugafólk um þjálf-
un og beitingu hunda i neyðartil-
vikum, svo sem ef fólk grefst und-
ir snjóflóði. Þetta fólk kom okkur
að miklu gagni á Patreksfirði. f
kjölfar atburðanna fyrir vestan
hófust viðræður við þessa sveit um
hlutverk hennar innan almanna-
varnakerfisins. Þeir fengu hingað
til lands formann hundabjörgun-
arsveitar í Noregi. Sýndu Al-
mannavarnir þessu mikinn áhuga.
Norðmenn bentu á að þeir gætu
komið hingað til lands með stutt-
um fyrirvara í neyðartilvikum og
engar hindranir væru í vegi fyrir
því, og ef til kæmi, þá myndu
beiðnir héðan fara í gegn um Al-
mannavarnir Noregs.
Hjálpin gæti nýst ef til stór-
.felldra jarðskjálfta kæmi hér á
landi. Ég tel að íslenzku hundarn-
ir verði notaðir ef til snjóflóða
kemur, enda ríður mjög á að
bregðast skjótt við ef fólk grefst
undir snjóflóði. Enn hefur ekki
verið gengið frá samkomulagi og
skipulagi þessara mála hér á
landi. Annað sams konar félag er
innan Slysavarnafélags fslands og
þessir aðilar eru nú í viðræðum
um að marka sameiginlegar að-
ferðir til þess að geta komið sam-
an inn í almannavarnakerfið."
— Hafa möguleikar á samstarfi
við fleiri þjóðir verið kannaðir?
„Já, möguleikar á slíku eru fyrir
hendi. Almannavarnir Norður-
landa hafa samstarf sín i milli og
eru tilbúnar til aðstoðar komi til
náttúruhamfara í ríkjunum.
Þannig buðust Almannavarnir
Danmerkur til að hlaupa undir
bagga með okkur þegar gaus í
Vestmannaeyjum, en ekki þurfti á
aðstoð að halda. Innan Atlants-
hafsbandalagsins er viðbúnaður
til þess að flytja lið og tæki verði
hamfarir í aðildarríkjum. Þetta er
á sviði almannavarna og miðaðst
við hjálp á friðartímum. Loks er
að geta að á vegum Sameinuðu
þjóðanna er stofnun, sem veitir
aðstoð komi til náttúruhamfara.
Þessi stofnun hefur veitt okkur
tæknilega aðstoð og þekkingu og
jafnframt höfum við miðlað þekk-
ingu til hennar," sagði Guðjón
Petersen.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan .............. 23/1
Jan ............. 6/2
Jan .............. 20/2
ROTTERDAM:
Jan .............. 12/1
Jan .............. 24/1
Jan ............. 7/2
Jar\ ............. 21/2
ANTWERPEN:
Jan ............ 12/1
Jan .............. 25/1
Jan ............. 8/2
Jan ............ 22/2
HAMBORG:
Jan ............ 13/1
Jan ............ 27/1
Jan ............ 10/2
Jan ............ 24/2
HELSINKI:
Arnarfell ..... 12/1
Arnarfell ...... 12/2
LARVIK:
Hvassafell ..... 16/1
Hvassafell ..... 30/1
Hvassafell ..... 13/2
Hvassafell ..... 27/2
GAUTABORG:
Hvassafell ..... 17/1
Hvassafell ..... 31/1
Hvassafell ..... 14/2
Hvassafell ..... 28/2
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ... 18/1
Hvassafell ...... 1/2
Hvassafell ..... 15/2
Hvassafell ..... 29/2
SVENDBORG:
Hvassafell ..... 19/1
Hvassafell ...... 2/2
Hvassafell ..... 16/2
Arnarfell ...... 20/2
ÁRHUS:
Hvassafell ..... 19/1
Hvassafell ...... 2/2
Hvassafell ..... 16/2
Arnarfell ...... 20/2
FALKENBERG:
Arnarfell ...... 16/1
Mælifell ....... 17/1
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ..... 17/1
Skaftafell ..... 17/2
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ..... 18/1
Skaftafell ..... 18/2
'SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
CAMRY
Nýjasti framhjóladrifni
bíllinn frá TOYOTA
Það er til mikið úrval af bílum
í Bandaríkjunum
— en samt verða kaupendur
þar aó vera á biðlista
eftir Toyota Camry .. .
TOYOTA
UMBOÐIÐ
NYBYLAVEGI 8
KÓPAVOGI
P. SAMÚELSSON & CO. HF. SÍMI 44144