Morgunblaðið - 11.01.1984, Side 40
Þ
,etta lestu í dag:
Þriðji hver reyk-
ingamaður lætur líf-
ið fyrir nautn sína.
[M.
Sjá bls. 14
TIL DAGLEGRA NOTA
MIÐVIKUDAGUR 11. JANUAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Skuldabréf Samvinnu-
sjóðsins með ábyrgð
Samvinnubankans
SAMVINNUSJÓÐUR íslands mun
á næstunni gefa út verðtryggð
skuldabréf med bankaábyrgð Sam-
vinnubanka íslands, en fyrirtækið
Kaupþing hf. mun verða með bréfin
í umboðssölu. Hefur Kaupþing hf.
að þessu tiiefni ritað lífeyrissjóðum
SÍS stærst
íslenskra
fyrirtækja
SAMBAND íslenzkra samvinnu-
félaga var langstærsta fyrirtæki
á íslandi árið 1982, en heildar-
velta fyrirtækisins var 3.627
milljónir króna og breyting á
veltu frá fyrra ári um 52,2%.
Meðalfjöldi starfsmanna var
1.574 og meðalárslaun á árinu
voru 173,5 þúsund krónur. Verð-
breytingar í landinu voru 53,78%
á árinu. Þessar upplýsingar
koma fram í nýjasta hefti tíma-
rilsins Frjáls verzlun, þar sem
birtur er listi yfir 150 stærstu
fyrirtæki á íslandi 1982.
í 2. sæti listans er Lands-
banki íslands og hefur hann
færst upp um eitt sæti frá ár-
inu á undan. Heildarvelta
Landsbankans var 2.277,7
milljónir króna og hafði aukizt
um 92,% milli ára. í 3. sæti
listans er Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, en fyrirtækið
var í 2. sæti árið á undan.
Heildarveltan 1982 var 2.002,5
milljónir króna og veltuaukn-
ingin frá fyrra ári 43,9%.
I 4. sæti listans er Sölusam-
band íslenzkra fiskframleið-
enda með heildarveltu upp á
1.796 milljónir króna. Flugleið-
ir eru í 5. sæti listans með
1.602,4 miilj. króna heildar-
veltu.
— Sjá nánar á miðopnu
blaðsins umfjöllun um 150
stærstu fyrirtækin.
og fleiri aðilum bréf, þar sem hin
nýju verðbréf eru boðin til sölu.
Skilmálar skuldabréfanna eru
þeir, að lánstíminn verður frá einu
ári til fimm ára án afborgana og
bréfin verða greidd upp í lok
lánstímans, ásamt verðbótum á
höfuðstól og vöxtum og vaxtavöxt-
um og miðast verðtrygging bréf-
anna við lánskjaravísitölu.
Vextir umfram verðtryggingu
verða frá 4,75% til 7% eftir láns-
tíma bréfanna, en verðgildi þeirra
verður væntanlega á bilinu frá
5.000 krónur til 100.000 krónur.
„Sú raunávöxtun sem hér er í boði
liggur á bilinu milli þeirrar ávöxt-
unar sem spariskírteini ríkissjóðs
bera í dag (5%) og verðtryggð
veðskuldabréf einstaklinga
(9—10%). Telja má, að með tilliti
Bræla hamlar
loðnuveiðum
UM 30 loðnuskip eru nú haldin til
veiða og fjölmörg bíða í heima-
höfnum, reiðubúin. Hins vegar
hefur þrálát bræla, allt frá því að
veiðar máttu hefjast 4. janúar,
hamlað veiðum. Því hefur enn
engin loðna borizt á land, það sem
af er árinu.
til lánstíma og tryggingar (bréfin
eru með bankatryggingu eins og
fyrr segir), sé hér um mjög gott
tækifæri að ræða til ávöxtunar á
fé,“ segir orðrétt í bréfi Kaupþings
hf.
Bréfin greiðast upp í einu lagi í
lok lánstímans, sem er nýjung í
útgáfu skuldabréfa af þessari teg-
und, þar sem þau verðtryggðu
veðskuldabréf einstaklinga sem í
boði hafa verið á verðbréfamark-
aði hafa verið með einni eða
tveimur afborgunum á ári og kraf-
izt þess, að afborganir, verðbætur
og vextir yrðu fest aftur i nýjum
bréfum til að halda ávöxtuninni
gangandi. í bréfi Kaupþings hf. er
bent á, að 7% raunávöxtun þýði
tvöföldun raungildis höfuðstóls á
10 árum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun þetta í fyrsta
sinn, sem einkaaðili býður verð-
tryggð skuldabréf með framan-
greindum skilmálum, en fyrirtæki
hafa hins vegar boðið út bréf með
hefðbundnum skilmálum. Munur-
inn á raunávöxtun og þeirri ávöxt-
un sem þekkist á markaðnum
kemur fram í ákveðnum afföllum,
sem þriðji aðili, eða sá sem selur
bréfin, tekur á sig. Hann þarf alls
ekki að vera sá sami í öllum tilvik-
Síamstvíburar“
í Valaskjálf
ÞESSIR „síamstvíburar" vöktu athygli gesta á grímudansleik, sem hald-
inn var í Valaskjálf á Egilsstöðum sl. laugardag. Var þar glatt á hjalla
og brugðu börnin sér í margvísleg gervi, eins og myndin sannar. Þar
voru einnig sjóræningjar með alvæpni, trúðar, spilafígúrur og fleiri.
Ekki fylgir sögunni hvort „tvíburarnir" létu sér nægja að dansa við eina
dömu í einu ... — Morgunblaító/ÓWiir.
Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri SÍF:
Kaupendur saltfísks að
kikna undan dollarnum
„Á UNDANFÖRNUM árum hefur
gengi dollarans stöðugt hækkað á
móti Evrópumyntum og má til dæm-
is nefna, að frá áramótum 1981 hef-
ur dollarinn hækkað um 85% á móti
líru, 105% á móti peseta og 155% á
móti portúgölskum escudos. Þetta
þýðir gífurlega verðhækkun á ís-
lenzkum saltfiski til neytenda á
mörkuðum þessara landa, sem hafa
tekið um 90% af saltfiskframleiðslu
íslendinga,“ sagði Friðrik Pálsson,
framkvæmdastjóri SÍF, er hann var
spurður hvaða áhrif hækkun dollar-
ans hefði á saltfisksölu héðan.
„Samningarnir hafa hingað til
verið gerðir í Bandaríkjadollurum
eins og í sölu á frystum fiski og
skreið enda sama hráefnisverð til
þessara þriggja greina. Keppi-
nautarnir, Norðmenn og Færey-
Mannabein á bæjarhlaðinu
Mólmavík, 2. janúar.
ÞAÐ ER EKKI ráðist í stórframkvæmdir í litlum byggðar-
lögum eins og gefur að skilja þar sem opinbert fé er af
skornum skammti. í Kirkjubólshreppi á Ströndum búa 72
sálir, sem eru þó að þoka áfram ýmsum framfaramálum
eftir getu.
Nú í haust og vetur hefur verið
sett upp „götulýsing" á bæjarhlað-
inu á flestum bæjum í hreppnum.
Má þetta kallast aukin upplýsing
meðal sveitamanna.
A Kirkjubóli var einmitt verið
að grafa fyrir rafstreng fyrir slíka
lýsingu nú fyrir skömmu. Varð
mönnum ekki um sel þegar upp
komu a.m.k. fjórar heillegar haus-
kúpur, lærleggir, mjaðmagrindur
og önnur mannabein sem lágu svo
sem fet undir yfirborðinu. Var
þetta allt furðu heillegt og þótti
með ólíkindum hversu mikið kom
upp af beinum á svo litlum skika.
Var ekki laust við að nokkurn
óhug setti að mönnum við þennan
fund, ekki hvað síst er heimamenn
urðu þess varir í býtið morguninn
eftir er þeir gengu til að gegna fé
sínu, að rafmagn var farið af fjár-
húsunum. Var þó allt með felldu
daginn áður.
En allt á sínar skýringar og í
ljós kom við nánari eftirgrennslun
að skammhlaup hafði orðið í raf-
streng og að á Kirkjubóli var fyrr-
um hálfkirkja í kaþólskum sið og
fram til 1570. Eðlilegast verður
því talið að þar hafi einnig verið
kirkjugarður þótt þetta væri nú
löngu fallið í gleymsku og enginn
vissi lengur hvernig nafnið
Kirkjuból væri til komið.
FK.
Grímur Benediktsson og Sigurður Benediktsson ábúendur á Kirkjubóli
með hluta af beinunum, sem fundust. Morgunblaðí«/FK.
ingar, selja í norskum og dönskum
krónum og hafa þær fallið gagn-
vart dollarnum um 55 og 70% á
sama tíma og hefur því samkeppn-
isstaða þeirra batnað að mun á
móti íslendingum. Sem dæmi má
nefna, að 100 dollarar 1981 jafn-
gilda í dag 59 dollurum reiknað í
dönskum krónum og 100 dollarar
1981 jafngilda nú 65 dollurum í
norskum krónum.
Á árunum 1981 og 1982 mætti
SÍF þessari þróun með nokkrum
verðlækkunum og á miðju síðasta
ári, þegar hækkun dollarans
keyrði úr hófi fram, var tekin upp
viðmiðun við SDR (sérstök drátt-
arréttindi), sem skiptir dollara-
breytingunum nokkurn veginn til
helminga á milli kaupenda og selj-
enda. Þessi lækkun samfara styrk
dollarans þýðir verulega skerta
afkomu saltfiskframleiðenda á
móti öðrum vinnslugreinum, sem
selja til dollarasvæða. Síðustu vik-
urnar hefur gengi dollarans hækk-
að meira en dæmi eru til um og
þrátt fyrir tengingu söluverðs við
SDR virðist svo komið að kaup-
endur séu kikna undan dollarnum.
Síðustu 7 mánuði eða frá 1. júní
1983 hefur til dæmis pesetinn fall-
ið um 15% gagnvart dollar, líran
um 14%, escudos um 35%, danska
krónan um 13% og norska krónan
um 10%, en blessuð íslenzka krón-
an aðeins um 8% á þessum sama
tíma,“ sagði Friðrik Pálsson.