Morgunblaðið - 20.01.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984
ísfílm færir
út kvíarnar
Fimm nýir aðilar ganga í félagið
ÖFLUGIR aðilar úr viðskiptahTi og fjölmiðlun hafa gengið til liðs við kvik-
myndagerðina ísfilm sf. og verður stofnsamningur nýs hlutafélags undirrit-
aður í dag. Hinir nýju eignaraðilar eru Samband íslenskra samvinnufélaga,
Reykjavíkurborg, Arvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, Frjáls fjölmiðl-
un hf., útgáfufélag Dagblaðsins-Vísis, og Almenna bókafélagið. Eigendur
ísfilm sf. eru kvikmyndagerðarmennirnir Ágúst Guðmundsson og Jón Her-
mannsson og Indriði G. Þorsteinsson, rithöfundur.
Hlutafé fyrirtækisins, sem mun
heita ísfilm hf., verður 12 milljón-
ir króna og skiptist í sex jafna
hluta. Indriði G. Þorsteinsson,
sem hafði forgöngu um að þessir
aðilar sameinuðust, sagði í gær-
kvöldi að tilgangurinn með stofn-
un hlutafélagsins væri að standa
með öflugum hætti að kvikmynda-
gerð, myndbandagerð og ýmsu því
öðru, sem væri að þróast í fjöl-
miðlun. „Við höfum ákveðið að
koma okkur saman um að gera
þetta," sagði Indriði. „ísfilm sf.
hefur verið í kvikmyndagerð,
Sambandið ætlaði að setja upp
eigið myndbandaver en hætti við
þegar þetta kom upp og hinir sjá
sér hag í að vera með í þessum
hlutum. Ég tel að þetta nýja fyrir-
tæki geti orðið til góðs mörgu því,
sem nú er gert af vanefnum á
þessu sviði."
Indriði sagði að gert væri ráð
fyrir að ísfilm hf. fengi talsvert að
gera „fyrir þá, sem þarna eru sam-
ankomnir" og Davíð Oddsson,
borgarstjóri, sagðist reikna með
að Reykjavíkurborg myndi m.a.
skipta við hið nýja félag um gerð
fræðslumynda fyrir t.d. skólakerf-
ið. Einnig mun fyrirtækið fram-
leiða auglýsingar og fleira. „Við
munum vera verktakar öðrum
þræði," sagði Indriði í samtali við
blaðamann Mbl.
Sex manna stjórn verður í fé-
laginu sem stofnað verður form-
lega í dag en ekki mun ljóst hver
verður stjórnarformaður þess.
„Fyrsta verkefnið verður að afla
tækja og koma sér fyrir," sagði
Indriði, „en síðan verður ráðið
starfslið og annað það, sem til-
heyrir." Hann sagði að viðræður
þessara sex aðila hefðu staðið í um
hálft annað ár og að Reykjavík-
urborg hefði komið inn í myndina
fljótlega eftir síðustu borgar-
stjórnarkosningar. Aðspurður
hvort ísfilm hf. hyggðist í fram-
tíðinni standa að rekstri sjón-
varpsstöðvar sagði Indriði: „Það
er ekki til umræðu enda standa
engin lög í landinu til slíks."
Hitaveita Reykjavíkur:
Gjaldskráin
hækkuð um 25%
Á FUNDI borgarstjórnar í gær var samþykkt 25% hækkun á vatnsveröi og
fasteignagjöldum Hitaveitu Reykjavíkur og um 7% hækkun á stofngjöldum.
Þessi hækkun var samþykkt með 12 atkvæðum meirihluta borgarstjórnar, en
borgarfulltrúar Framsóknarflokksins gerði tillögu um 10% hækkun á vatns-
verði og fastagjöldum og töldu það miðlunartillögu. Hlaut hún stuðning
þriggja borgarfulltrúa.
1 máli Sigurjóns Fjeldsted,
borgarfulltrúa og formanns
stjórnar veitustofnana kom fram
að með þessari hækkun kostaði
tonnið af vatni 15 krónur í stað 12
króna áður. Tryggja þyrfti viðfang
veitunnar, vatnsöflun og nauð-
synlegt viðhald, sem ekki hefði
verið unnt að gera í mörg ár, þar
sem gjaldskránni hefði verið hald-
ið niðri af stjórnvöldum. Með
þessum hækkunum næmi húshit-
Beðið fyrir
Öryggismála-
ráðstefnunni
BISKUP landsins, herra Pétur Sig-
urgeirsson, hefur farið þess á leit við
presta landsins, að á sunnudaginn
kemur, fari fram í kirkjunum fyrir-
bæn fyrir Öryggismálaráðstefnu
Kvrópu í Stokkhólmi — að fulltrúum
ráðstefnunnar takist að draga úr
styrjaidarhættu, sem nú ógnar
heimsbyggðinni og stigið verði
markvisst spor í átt til friðar og af-
vopnunar í heiminum.
Víða á Norðurlöndum verður
beðið fyrir ráðstefnunni á sunnu-
daginn kemur. Þetta bænarefni
verður einnig liður í bænavikunni,
sem nú stendur yfir hérlendis.
unarkostnaður í Reykjavík um
fimmtungi þess sem það kostaði
að kynda hús með olíu og nytu
borgarbúar hér eftir sem hingað
til lægri húshitunarkostnaðar en
flestir landsmenn. Vinna þyrfti að
rannsóknum og tilraunaborunum
á nýjum svæðum í nágrenni
Reykjavíkur og nefndi hann sem
dæmi um hve illa væri ástatt fyrir
Hitaveitunni að síðustu daga hefði
vegna álags þurft að veita vatni
kyntu með olíu inn í kerfið sem
kostaði Hitaveituna sex til sjö
hundruð þúsund krónur á sólar-
hring. Þessi hækkun væri ákveðin
nú í byrjun ársins og væri við það
miðuð að ekki verði um frekari
hækkanir að ræða allt árið.
^*»ss3l ' ®
Ljósm.: Friðþjófur
Séð yfir afgreiðslusal Búnaðarbankans, þar sem verk eftir Þorvald Skúlason listmálara eru nú til sýnis
listamanninum til heiðurs.
Búnaðarbanki íslands:
Sýning til heiðurs
Þorvaldi Skúlasyni
OPNUÐ hefur verið sýning á tutt-
ugu og átta verkum Þorvalds
Skúlasonar í gjaldeyrisdeild og
nýjum vinnusal Búnaðarbanka ís-
lands í Austurstræti í Reykjavík.
Edda Svavarsdóttir, deildarstjóri í
skipulagsdeild bankans, sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær, að sýningin væri
haldin til heiðurs listamanninum
og í tilefni af útgáfu listaverkabók-
ar með verkum Þorvalds.
Edda sagði að Búnaðarbank-
inn ætti þrjár myndir á sýning-
unni, en flest verkin væru fengin
að láni frá Listasafni Háskóla
íslands og hefði Björn Th.
Björnsson listfræðingur valið
verkin á sýninguna. Sýningin
mun standa í tvær til þrjár vik-
ur, en Edda kvað ekkert ákveðið
um hvort framhald yrði á sýn-
ingum af þessu tagi. Þetta er
önnur listaverkasýningin í Bún-
aðarbankanum á skömmum
tíma, því nýlokið er þar sýningu
á verkum Jóhanns Briem og
Finns Jónssonar, sem einnig var
haldin þeim til heiðurs og sett
upp í tilefni af útgáfu listaverka-
bóka um listamennina.
Gæfta- og aflaleysi á loðnumiðunum:
Skipin bíða átekta í
Austfjarðahöfiium
ENN hefur nánast engin loðna
veiðzt frá áramótum, en veiðar
máttu hefjast þann 4. þessa mánað-
ar. Hafa loðnuskipin átt í erfiðleik-
um vegna þess, hve veður hafa verið
válynd og loðnan liggur djúpt og
dreift. Nokkur skip hafa undanfarna
daga flúið miðin með smá slatta, og
önnur haldiö til Austfjarðahafna þar
sem þau bíða átekta. Munu um 30
skip þegar vera komin til hafnar.
Skýringin á því, að skipstjórar
hafa verið að reyna veiðar þrátt
fyrir erfitt tíðarfar, er meðal ann-
ars sú, að fituinnihald loðnunnar
minnkar ört á þessum tíma og eft-
ir því sem það er minna fæst
lægra verð fyrir loðnuna. Þá hafa
nokkur skipanna átt lítið eftir af
aflamarki sínu og því lagt áherzlu
á að fiska upp í það.
Rannsóknarskipin Árni Frið-
riksson og Bjarni Sæmundsson
héldu áleiðis á miðin þann 11.
0
INNLENT
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra:
Lítill vinnufriður vegna
erlendra fréttamanna
ÞAÐ HEFUR verið lítill vinnufrið-
ur á skrifstofu fjármálaráðhcrra,
AlberLs Guðmundssonar, síðustu
daga að hans sögn. í gær þegar
blaðamaður Mbl. hugöist ná sam-
bandi við hann var skrifstofa ráð-
herrans þéttsetin af sænskum
sjónvarpsmönnum og brezkur
blaðamaður beið eftir viðtali. Auk
þess hafa símalínur fjármáiaráð-
uneytisins verið rauðglóandi vegna
sífelldra hringinga erlendis frá.
Hundur Alberts Guðmunds-
sonar og kæra á fjármálaráð-
herra vegna hundahaldsins eru
tilefni þessa mikla áhuga. Albert
sagði í viðtali við Mbl., að í
gærmorgun hefði frönsk frétta-
stofa t.d. náð sambandi við sig.
Sér hefði verið tjáð af franska
fréttamanninum, að hann yrði
að gefa yfirlýsingu, því í gegnum
franska sjónvarpið, útvarpið og
einnig úr mörgum blöðum hefðu
í gær borist þær fréttir að fjár-
málaráðherra Islands hefði þeg-
ar sagt af sér embætti vegna
hundsins síns.
Albert sagðist ekki hafa tölu á
þeim símtölum sem sér hefðu
borist erlendis frá, eða fjölda
landa, en mál þetta vekti mikla
athygli á erlendri grund. Að-
spurður í lokin sagðist Albert
ekkert hafa heyrt frá lögregluyf-
irvöldum vegna kærunnar um
ólöglegt hundahald.
þessa mánaðar, en gátu lítið at-
hafnað sig fyrst í stað vegna veð-
urs. Hjálmar Vilhjálmsson, leið-
angursstjóri á Bjarna Sæmunds-
syni, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að nokkuð væri af loðnu 50
til 60 mílur austur af Reyðarfirði
og einnig á bletti nokkuð suðvest-
an við þann stað. Hún stæði hins
vegar djúpt og væri dreifð og ylli
því sjómönnum erfiðleikum við
veiðarnar. Sagði Hjálmar, að ætl-
unin væri að leita vetrarloðnunn-
ar og mæla hvernig og hve mikið
af henni gengi inn til hrygningar.
Enn lægju engar niðurstöður
fyrir, en fyrirhugað væri að leið-
angri Bjarna lyki um 10. febrúar,
en Árni færi ef til vill eitthvað
fyrr inn.
Grunaöur um akst-
ur undir áhrif-
um amfetamins
UNG kona og maður voru hand-
tekin í fyrrinótt og er maðurinn
grunaður um að hafa ekið bifreið
undir áhrifum amfetamíns, eða
svokallaðs „speeds". Þau voru
handtekin þegar þau voru að stíga
út úr bifreiðinni fyrir utan hús á
Laugaveginum, sem mikið hefur
komiö við sögu vegna misferlis
ungmenna með fíkniefni og fyrir
skömmu upplýstist þar þjófnaður-
inn í Hallgrímskirkju.