Morgunblaðið - 20.01.1984, Blaðsíða 32
Þ
etta lestu í dag
Æskilegt að skipta um
(orystusegir stjórnar-
formaður Nútímans um
hreytingar á Tímanum.
Bls. 16/17
TIL DAGLEGRA NOTA
FOSTUDAGUR 20. JANUAR 1984
VERÐ I LAUSASOLU 20 KR.
Verkalýös- og sjó-
mannafélag Keflavíkur:
380 manns
á atvinnu-
leysisskrá
800 þús. kr. greiddar
í atvinnuleysis-
bætur sl. föstudag
380 manns voru atvinnu-
lausir í Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur og
Verkakvennafélaginu sl.
fostudag, en þá voru greidd-
ar 800 þúsund krónur í at-
vinnuleysisbætur, að sögn
Karls Steinars Guðnasonar,
formanns Verkalýðsfélags-
ins.
Félagar í þessum félögum
eru úr Keflavík, Njarðvíkum og
Vogum, þannig að atvinnulaus-
ir í Sandgerði, Garði og
Grindavík eru ekki meðtaldir.
Karl Steinar sagði sífellt
bætast við á lista atvinnu-
lausra og hið alvarlega væri að
ekki væri eingöngu um að ræða
atvinnuleysi í fiskiðnaði. Þá
væri verið að flytja allan fisk
sem bærist á land beint í gám-
um til útlanda, þannig að eng-
inn fengi vinnu við það litla
sem bærist á land. Karl sagði
að fyrir tveimur til þremur vik-
um hefði tala atvinnulausra
verið 200.
17 ára piltur:
I annað sinn
í 60 daga
gæzlu á fjór-
um mánuðum
SAUTJÁN ára piltur var í
gær úrskurðaður í 60 daga
gæzluvarðhald í Sakadómi
Reykjavfkur og gert að sæta
geðrannsókn. Þetta er í ann-
að sinn á tæpum fjórum mán-
uðum, sem pilturinn er úr-
skurðaður í 60 daga gæzlu-
varðhald. Þann 21. október
síðastliðinn var hann úr-
skurðaður í 60 daga gæzlu-
varðhald. Hann hefur játað á
sig yfir 50 innbrot á sex ára
löngum afbrotaferli.
Stærstu málin á hendur honum
eru innbrot í Tollvörugeymsluna,
þegar hann í félagi við bróður sinn
stal þaðan miklum verðmætum.
Þá braust hann inn í verslun á
Hvolsvelli í haust og stal þaðan
tveimur póstpokum, en til þjófn-
aðarins stal hann nýlegri Volvo-
bifreið og stórskemmdi.
Piltinum var sleppt úr gæzlu-
varðhaldi þann 21. desember síð-
astiiðinn, en var vart fyrr kominn
úr fangelsi að hann tók upp fyrri
iðju. Hann var tekinn í vikunni
ásamt öðrum pilti. RLR setti fram
kröfu um gæzluvarðhald yfir hon-
um einnig, en dró kröfuna til baka
og hefur piltinum verið sleppt.
Nýi strætisvagninn fyrir utan höfuðstöðvar SVR á Kirkjusandi.
Morgunblaðið/Júlíus.
Nýr „harmóníku“-strœtó á götuna
A NÆSTU dögum mun nýr stræt-
isvagn koma fyrir augu borgarbúa
— svokallaður liðvagn, en hann er
liðlega 17 metra langur og tekur
um 170 farþega, þar af 62 í sæti.
Mercedes Benz-verksmiðjurnar
hafa lánað strætisvagninn hingað
til lands til Strætisvagna Keykja-
víkur.
„Nú er unnið að undirbúningi
að nýju leiðakerfi SVR og því er
mikils virði að fá reynslu af
þessum vögnum, en þeir eru
mikið notaðir erlendis. Við mun-
um reyna vagninn á hraðleiðum
og þá fyrst og fremst í Breiðholt-
ið,“ sagði Sveinn Björnsson, for-
stjóri SVR, í samtali við Mbl.
Vagninn er knúinn 280 hestafla
vél, sem er aftast í vagninum og
er hann drifinn á öftustu hásing-
unni. Vagninn var prufaður í
fyrsta sinn í gær á leiðum í
Breiðholti og gekk „jómfrúrferð-
in“ vel. Vagninn er nýlegur og
hafa Benz-verksmiðjurnar notað
hann sem sýningarvagn. Hingað
kom hann frá Ítalíu.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Líkur á samningum um
sölu á allt að 4.000 lest-
um af loðnuhrognum
Morgunbladið/ HBj.
Midfjarðarskersviti eins og hann
leit út. Ef myndin prentast vel
má sjá aðeins móta fyrir Akra-
nesi í baksýn.
Miðfjarðar-
skersviti
er horfinn
Borgarnesi, 19. janúar.
„Miðfjarðarskersviti logar
ekki,“ auglýsir Vita- og hafnar-
málaskrifstofan í útvarpinu þessa
dagana. Þetta má örugglega til
sanns vegar færa því Miðfjarð-
arskersviti, sem var í mynni Borg-
arfjarðar, er ekki til lengur. í
„Akranesbriminu" svokallaða
fyrr í mánuðinum hvarf vitinn í
heilu lagi
Ólafur Steinþórsson í Borg-
arnesi sagðist, í samtali við
blm. Mbl., hafa tekið eftir því
daginn eftir brimið að vitinn
væri horfinn og hefði hann
kannað málið á bæjunum þarna
í kring og látið síðan Vita- og
hafnarmál vita um þetta. Þá
hefði fólkið þarna á bæjunum
ekki verið búið að taka eftir
þessu. Pétur Torfason, bóndi í
Höfn í Melasveit, sagði í sam-
tali við blm. Mbl., að sér virtist
að stéttin ein sé eftir og senni-
lega hefði vitinn farið í heilu
lagi í sjóinn, því ekki sjáist
neitt af honum á skerinu. Sagði
hann að þetta hefði verið sterk-
leg steinbygging, nokkuð há og
ekki mjög gömul. Sagði Pétur
að vitinn væri ómissandi. Hann
hefði verið alveg við innsigling-
una til Borgarness og verið
ábending fyrir Mýrarnar og
skerin í fjarðarkjaftinum.
Miðfjarðarsker er þó nokkuð
stórt. Það er í mynni Borgar-
fjarðar, aðeins utan við Höfn í
Melasveit og Lambastaði á
Mýrum, en telst til Belgsholts-
lands í Melasveit. Innsiglingin
til Borgarness er mjög erfið
eins og kunnugt er og verða
flutningaskip til dæmis að sæta
sjávarföllum til að komast inn
og út fjörðinn. — HBj.
NÚ ER reiknað meö að Sölustofnun
hraðfrystihúsanna gangi frá fyrir-
framsölu á 2.000 til 4.000 lestum af
loðnuhrognum til Japan. Hins vcgar
verða engir samningar nú gerðir um
fyrirframsölu á heilfrystri loðnu
þangað, en Eyjólfur ísfeld Eyjólfs-
son, forstjóri SH er nú í Japan til að
ræða um sölu á loðnuafurðum.
Það var árið 1971, sem tilraunir
með frystingu loðnuhrogna hófust
og mest hefur verið selt til japan
í VERZLUNUM hafa frá í haust ver-
ið á boðstólum ávextir í vínlegi, sem
inniheldur 16% vínanda og hefur því
sú spurning vaknaö hvort þetta
brjóti ekki á bága við áfengislöggjöf-
ina. Bláber, aprikósur, klementínur,
plómur og rúsínur, svo dæmi séu
tekin, eru lögð í líkkjöra og flutt inn
og seld í verslunum hér á landi.
„Ég þurfti ekki að leita um-
sagna um innflutninginn. í toll-
skrá er þetta kallað ávextir í vín-
legi og þeir eru fluttir inn sem
slíkir og lúta því ekki öðrum regl-
um en innfluttar vörur á tollskrá.
Ávextirnir eru framleiddir af ít-
um 4.000 lestir, en síðast, þegar
hrogn voru seld þangað voru það
um 2.000 lestir. Ekkert var selt á
síðasta ári enda veiðar um þær
mundir ekki leyfðar.
Eins og áður sagði verður vænt-
anlega ekki samið um fyrirfram-
sölu á frystri loðnu nú. Þó eru ein-
hverjir möguleikar á sölu til Jap-
an fyrir hendi og verða þeir kann-
aðir á næstu vikum. Japanir vilja
aðeins hrognafulla hrygnu og
alska fyrirtækinu Fabbri og eru
framreiddir sem eftirréttur og þá
gjarna með rjóma eða ís. Þetta
hefur mælst vel fyrir og sala verið
þokkaleg," sagði Skúli Jóhannes-
son, innflytjandi ávaxtanna, í
samtali við Mbl.
í lögum um Áfengis og tóbaks-
verslun ríkisins nr. 63 frá 1969
segir að verslunin ein skuli annast
innflutning og dreifingu vínanda
og áfengis. Þá segir meðal annars
að öðrum sé heimilt að flytja inn
vínanda, hafi hann verið gerður
óhæfur til drykkjar og öruggt, að
ekki sé kleift að gera hann drykkj-
arhæfan.
þurfa hrognin að nema 20% af
þyngd hrygnunnar. Loðnan, sem
hér veiðist er hins vegar smá og
því erfið í sölu. Mest hefur verið
selt 19.000 lestir af frystri loðnu
til Japan 1974, en þá var hún ekki
flokkuð, hængurinn fylgdi með, en
hann er verðlaus. Vegna mikils
flutningskostnaðar var síðan farið
að flokka loðnuna og þá minnkaði
magnið jafnframt. 1975 voru að-
eins seldar 500 lestir þangað en
fór síðan mest upp í 10.000 lestir.
En í áfengislögunum nr. 82 frá
1969 er áfengi skilgreint svo:
„Áfengi telst samkvæmt lögum
þessum hver sá vökvi, sem meira
er í en 2V*% af vínanda, að rúm-
máli. Duft, kökur og annað, er þau
efni eru í, sem sundur má leysa í
vökva og hafa nefndan áfengis-
styrkleika, skal fara með sem
áfengan drykk." Nú er það svo, að
ávextirnir leysast ekki upp í legin-
um og virðist því, sem þessi inn-
flutningur brjóti ekki á bága við
áfengislögin. Þess má geta, að
sælgæti fyllt með líkkjörum og
koníaki er selt í verslunum hér á
landi.
Morgunblaðid/Júlíus.
Aprikósur, ananas, plómur, bláber og fleira góðgæti er flutt inn í vínlegi og selt í matvöruverslunum.
Ávextir í 16% vínlegi
seldir í verzlunum