Morgunblaðið - 20.01.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.01.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 5 Sinfóníuhljóm- sveit íslands: Aukatón- leikar á morgun Á MORGUN, laugardaginn 21. janú- ar, mun Sinfóníuhljómsveit íslands halda aukatónleika og verða þeir í Háskólabíói og hefjast kl. 14.00. Á efnisskrá tónleikanna eru fjögur verk, það eru: J.C. Bach: Sinfónía í D-dúr; Mozart: Exultate jubilate motetta; Bruch: Skosk fantasía fyrir fiðlu og hljómsveit og Brahms: Aka- demíski forleikurinn. Að þessu sinni koma fram með hljómsveitinni tveir burtfarar- prófsnemendur tónlistarskólans í Reykjavík, þær Sigríður Gröndal og Sigríður Eðvaldsdóttir. Fram- koma þeirra með hljómsveitinni er lokaáfangi burtfararprófsins. Þær stöllur munu innan skamms halda utan til framhaldsnáms. Stjórnandi tónleikanna er Páll P. Pálsson. Ellert B. Schram: Tek ákvörðun um helgina „ÞAÐ ER mitt að taka ákvörðun og það geri ég ekki fyrr en um helgi,“ sagði Ellert B. Schram ritstjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er Mbl. spurði hann í gær, hvort hann hygðist taka sæti á Alþingi á mánu- dag, þegar það kemur saman eftir jólaleyfi. Ellert fékk leyfi frá þing- störfum, þegar þing kom saman í haust, fram að jólaleyfi þingmanna. Ellert var spurður, hvort hann hefði rætt mál þetta við forseta Al- þingis, eða forustumenn þingflokks sjálfstæðismanna. Hann svaraði: „Við Þorvaldur Garðar Kristjáns- son (forseti Sameinaðs Alþingis, innsk. Mbl.) spjölluðum saman í gær. Það var bara svona spjall milli tveggja flokksbræðra. Það er engin niðurstaða í málinu ennþá. Ég tek ákvörðun um helgina." Alþingi: Hefur störf nk. mánudag Alþingi íslendinga, 106. löggjafar- þing, kemur saman til starfa mánu- daginn 23. janúar nk. eftir þinghlé frá því fyrir Jól. Mcginmál, sem fyrir þinginu liggja, tengjast vanda efna- hags- atvinnu- og fjármála, s.s. sjáv- arútvegsdæmið, fjárfestingaráætlun, frumvarp að lánsfjárlögum (hliðar- mál við fjárlög), frumvörp um skattamál, frumvörp til breytinga á kosningalögum og stjórnarskrá, frumvarp að nýrri húsnæðislöggjöf og fjöldi þingmannamála. Samningar hjá ÍSAL ganga stirt FUNDUR starfsmanna álversins í Straumsvík og framkvæmda- nefndar ÍSAL hjá ríkissátta- semjara í fyrradag var árangurs- lítill. Boðað hefur verið til annars fundar í dag, föstudaginn 20. janú- ar, en verkfall hefst í álverinu í Straumsvík 27. janúar hafi samn- ingar ekki tekist. Þorramaturinn á borð borinn í Naustinu. Morgunblaðið/ Fnðþjófur Þorri Naustsins hafinn SAMKVÆMT dagatalinu hefst þorrinn í dag. Samkvæmt siðvenju Naustsins frá 1956 hefst þorrinn einnig þar í dag. Verður þá gestum Naustsins boðið upp á þorramatinn, sem undanfarin ár hefur einkennt þennan gamla mánuð ásamt frost- inu. Það var árið 1956 sem séra Hall- dór Gröndal, þáverandi veitinga- maður í Naustinu, tók upp þennan gamla sið og varð það meðal ann- ars til þess að þorramaturinn, sviðin, hákarlinn, harðfiskurinn, hrútspungarnir og svo framvegis, varð algengur á borðum almenn- ings á þessum tíma. Nú er Ómar Hallsson veitingamaður í Naust- inu og mun hann ásamt starfsfólki síniusjá um að gæða gestum á súrmetinu og því sem til heyrir Stofnfundur FRÍ-klúbbsins veröur á áramótafagnaöi Útsýnar ■30AD íkvöld-20 ianúar Kl. 20.00. Húsið opnar með pompi og pragt. Ungfrú og herra Útsýn ásamt skrautklæddu þjónustuliöi Útsýnar og Broadway taka á móti gestum með kurt og pí. Viö komuna kynntur í fyrsta sinn hér á landi nýr lystauki. Afhending happdrættismiöa og sala binógspjalda. Kl. 20.30. Áramótaveizla: Glæsilegur kvöldveröur á gjafaveröi. Rjómasúpa a la Bussola. Fylltur grísahryggur Lupa meö tilheyrandi góögæti. Eftirréttur FRI-klúbbsins. Verð aöeins kr. 450.- Kvikmyndasýning: Heimsreisa 4 og 5 — Ingólfur sýnir og kynnir. Broadway- ballettinn: Jazznótan — hressileg danssýn- ing undir stjórn Sóleyjar. Glæsileg tízkusýning: Módelsamtökin sýna módelkjóla frá Maríunum, Klapparstíg og loöfeldi frá Eggert feldskera, Laugavegi 66. Heiöar Jónsson snyrtir sýnir kvikmynd: Vetrar- tlzkusýninguna RÍVögSUChö frá H'E&MNl^URENT Beauté og kynnir sumartízkulitina 1984 í snyrtingu frá franska tízkukónginum. Dixie-band Svansins kemur öllum í gott skap meö sveiflu! Brandarar ársins: Hinn sífjörugi og vinsæli Ómar Ragnarsson. Feguröar- samkeppni: Ungfrú og herra Útsýn. Glæsileg módel valin úr hópi gesta. Bingó: Spilaö um 3 glæsilegar Útsýnar- ferðir ’84. Happdrætti: Allir matargestir taka þátt í ókeypis happdrætti. Vinningur: Útsýnarferö. Kynnir kvöldsins veröur hinn bráðfríski og fjörugi Hermann Gunnarsson. Þátttakendur í þessum glæsilega fagnaði verða stofn- félagar FRÍ-klúbbs- ins — (og hvað er nú það?). Þetta er nýi ferðaklúbburinn, sem tryggir þér betri ferðir á lægra verði og margvísleg hlunnindi og skemmtun í ferð þinni, en kostar þig ekki neitt. Allir góðir viöskiptavinir og ferðafélagar geta gerzt þátttakendur frá 18 ára aldri, án nokkurra skuld- bindinga. Hljómsveit Gunnars Þóröarsonar og Gísli Sveinn í diskótekinu halda uppi fjörinu og stemmningunni til kl. 03.00. Þetta er jafnan ein fjörugasta og glæsilegasta skemmtun ársins, sem selst upp í hvelli. Tryggðu þér miða í tíma. Borðapantanir og miöasala í Broadway kl. 10—17 daglega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.