Morgunblaðið - 20.01.1984, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.01.1984, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 Iceland Seafood Corporation: Selt var fyrir 3,5 milljarða kr. í fyrra Söluaukning í dollurum 19,2% en 20% í magni „AFKOMA fyrirt*kisins á síða^ta ári er enn ekki Ijós, en ég veit það þó, að hagnaður verður á því ári, en eitthvað minni en árið 1982 vegna mikillar verðsamkeppni á síðasta ári og reyndar enn. Við höfum verið með hagnað á hverju ári undanfarin 7 ár, en ég sé ekki ásUeðu til að gefa upp hve mikill hann hefur verið. Á síðasta ári seldum við fyrir 120,4 milljónir dollara (3,5 milljarða króna) á móti 101,1 milljón dollara (3 milljörðum króna) árið á undan. l*að er aukning upp á 19,2%. í magni til milli þessara ára er aukningin úr 77 milljónum punda 1982 í 94,4 á síðasta ári eða um 20%,“ sagði Guð- jón B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Iceland Seafood, er blm. Morgun- blaðsins innti hann eftir afkomu síð- asta árs. „Það, sem mér er minnisstæðast frá síðasta ári, er hve fyrsti hluti ársins kom sterkur út. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins vorum við með mjög mikla aukningu eða 32% í dollurum og 29% í magni. Því hefur aukningin farið minnk- VERÐLAGSRÁÐ tók til umfjöllunar á fundi sínum í gærdag bréf frá viðskiptaráðherra, þar sem þeim til- mælum er beint til Verðlagsráðs, að opinberum afskipum af verðlags- ákvörðunum verði haldið í lágmarki, ef samkeppni er næg og vinni Verð- andi seinni hluta ársins og hann einkenndist af vaxandi og harðri verðsamkeppni, sem kannski er afleiðing af ástandinu í Kanada, sem smám saman hefur verið að koma í ljós. Ennfremur fór fram- boð mjög vaxandi er líða tók á ár- ið, meðal annars vegna styrks dollarsins. Sérstaklega jókst framboð á blokk frá Evrópulönd- um eins og til dæmis Danmörku. Þetta setti þrýsting á allt og alla og það var meira framboð og framleiðslugeta hjá fiskvinnslu- fyrirtækjum hér heldur en svaraði vilja markaðsins. Þetta, ásamt þrýstingi frá Kanada, leiddi til sérstaklega harðrar verðsam- keppni. Ég er alls ekki svartsýnn á horf- urnar á þessu ári, en hvað snertir fyrstu þrjá, fjóra mánuði ársins, myndi ég verða mjög ánægður, ef okkur tekst að halda svipuðu magni og á sama tíma í fyrra vegna þess hve það var óvenjulega sterkur tími hjá okkur. Það er of snemmt að segja mikið um útlitið lagsráð að framkvæmd þeirrar stefnu. Nokkrar umræður urðu í Verð- lagsráði um málið, en þeim var ekki lokið og verður málið tekið til frekari umfjöllunar á næsta fundi ráðsins í næstu viku. vegna þess að fastan, sem hefur svolítil áhrif, hefst nú um tveimur vikum seinna en í fyrra. Innkomn- ar pantanir fyrstu 10 daga þessa árs eru ekki alveg eins stórar og á sama tíma í fyrra, en ég vona að það sé ekki með þvi verið að boða okkur einhvern samdrátt, heldur stafi það af því að fastan hefst seinna. Þá er annað, sem getur haft neikvæð áhrif á fyrrihluta ársins, því þvert ofan í allar spár er verð á nautakjöti mjög lágt nú. Hakkað nautakjöt í hamborgara hefur til dæmis ekki verið lægra í 5 til 10 ár heldur en nú. Þetta staf- ar af tiltölulega slæmri uppskeru og verulegri hækkun á fóðurvöru, sem hefur leitt til meiri slátrunar á nautgripum en reiknað var með. Því er hins vegar spáð, að svo miklu verði slátrað á fyrri helm- ingi ársins, að verð fari hækkandi þegar líður fram á seinni hluta ársins. Þá erum við í harðri sam- keppni við aðrar matvörur, þannig að samkeppnin liggur ekki ein- göngu í fiskinum. Birgðir eru tiltölulega miklar nú, bæði í blokk og flökum, þannig að við eigum svolítið á brattann að sækja í markaðsmálum á næstu mánuðum. Blokkarbirgðir eru til dæmis mun meiri hér nú en fyrir ári. Því tel ég það mjög gott, get- um við á fyrstu fjórum mánuðum ársins haldið sama magni og á sama tíma í fyrra," sagði Guðjón B. Ólafsson. Aukið frjálsræði í verðlags- málum rætt í Verðlagsráði □ TRAUST h£ Simi 91-83655 Allar vélar til vinnslu á rækju bæði um borð og í landi Völvufell Endaraöhús á einni hæö ca. 147 fm auk bílskúrs. Vandaöar innrétti igar, 4 sv.herbergi. Fallegur garö- ur. Snyrtilegt gott hús. Verö 2,6 miilj. Dantel Ámaton lögg. laattignataH. Örnóltur ÖrnóHaaon, aöluatjörí. ★ ★ ★ • Þvottavél sem skilur frá steina. þvær burt sand og leir og skolar síðan rækj- una Uppfinningar Framleiðsla Þjónusta islensk framleiðsla Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum! JHúTfyimMnfc i 29077 Einbýlishús - Kópavogur Höfum í sölu glæsilegt einbýlishús á einni hæö, 155 fm, í vesturbæ Kópavogs ásamt bílskúr. Húsiö stend- ur á sjávarlóð á úrvalsstaö. Eign í sérflokki. Upplýsingar eingöngu á skrifstofunni, ekki í síma. SEREIGN Baldursgotu 12 • Simi 29077 Viöar Friöriksson solustjori Einar S. Sigurrjonsson viöskiptaf. Ljósmynd Mbl. KEE - -JJ -• * Hallveig Thorlacius (til vinstri) og Helga Steffensen ásamt brúðunum sínum, sem þær segja að komi málefnum fatlaðra mjög vel til skila. BRÚÐUSÝNING UM FÖTLUN - hefur verið sýnd 300 sinnum og fer nú í skóla víða um land „KRAKKARNIR í götunni", brúðusýning, sem þær Hallveig Thorlacius og Helga Steffensen sjá um, er um um landið. „Þetta er fræðslusýning um fötlun," sögðu þær í spjalli við Mbl. fyrir skömmu. „Hún fjallar um sex börn sem búa öll í sömu götu. Fjögur barnanna eru fötl- uð, en tvö eru heilbrigð. Einn er blindur, annar er með heilalöm- un, sá þriðji er lamaður í hjóla- stól og ein er vangefin. Heil- brigðu börnin eru forvitin um hagi hinna fötluðu og spyrja þau hvernig það sé að vera fatlaður og svo framvegis. Við höfum sýnt í skólum í Reykjavík og nágrenni og erum nú á leið út á land til að sýna í skólum þar. Sýningin tekur 45 mínútur, eða eina kennslustund, og henni hefur verið mjög vel tekið, bæði af börnunum og kennurum þeirra. Eftir sýning- þessar mundir sýnd í skólum víða una mega krakkarnir spyrja spurninga sem hafa vaknað hjá þeim meðan þeir horfðu á sýn- inguna og það er mjög athyglis- vert að þeir spyrja alltaf brúð- urnar sjálfar, en ekki okkur. Það er bara eins og við séum ekki til! Ætli við höfum ekki sýnt um það bil 300 sinnum,“ segja þær aðspurðar og bæta því við að þær kjósi að sýna fámennum hópi í einu. „Sýningin varð til árið 1981, sem var ár fatlaðra, og okkur finnst brúðurnar koma þessu málefni mjög vel til skila. Við viljum að sjálfsögðu sýna á sem flestum stöðum úti á landi og ef einhverjir hafa áhuga á að fá sýningu í skólann sinn, geta j>eir haft samband við okkur." FASTEIGNA HÖLUN FASTEIGNAVIÐSKIPTI MIÐBÆR- HÁALEITISBRAUT 58-60 SÍMAR 353004 35301 Fasteignaviöskipti Agnar Ólafaaon, Hafþór Ingi Jónsson hdl. Einbýli — Sunnubraut Vörum aö fá í einkasölu glæsilegt einbýlishús á einni hæö viö Sunnubraut í Kópavogi. Húsiö er 160 fm ásamt bílskúr og skiptist í 4 svefnherb., 2 stofur, nýtt eldhús, rúmgott baöherb. og fl. Frágengin og falleg ræktuö lóö. Frábært útsýni. SIMAR 21150-21370 SOLUSTJ LARUS Þ VAL0IMARS L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL Til sölu og sýnis auk annarra eigna: Endaíbúö við Vesturberg 4ra herb. á 3. hæö. Mjög góð. Innbyggöir skápar í 3 svefnherb. Fullgerö sameign. Vélaþvottahús. Akv. sala. Stór og glæsileg í Hraunbæ 3ja herb. suöuríbúö um 100 fm á 3. hæö. Ágæt sameign. Lltsýni. 2ja herb. íbúö við Kleppsveg á 1. hæö um 65 fm. Rúmgóö velumgengin. Suöursvalir. Varö aöeins 1,2 millj. Úrvals íbúð við Engihjalla 3ja herb. ofarlega í háhýsi 90 fm. Teppi, parket. harðviður, danfoss kerfi. Tvennar svalir. Sameign óvenju mikil og góö. Frábært útsýni. Ódýr íbúð við Álfhólsveg 2ja herb. i kjallara 50 fm. Sér hitavaita. Gott sturtubaö. Stórir gluggar. Geymsla fylgir. Laus fljótlega. Ekki samþykkt Verö aöeins kr. 700 þús. Útb. aöeins kr. 500 þú*. Glæsileg endaíbúð við Fellsmúla 6 herb. á 2. hæö um 140 fm. Tvennar svalir. Mikiö skáparými. Bílskúrs- réttur. Mikil og góö sameign. Skuldlaus eign. Þurfum að útvega góða 3ja og 4ra herb. íbúöir meö bílskúrum. Enntremur húseign með 2 íbúöum. Þurfum að útvega 5 herb. íbúð meö bílskúr. Fjársterkur kaupandi. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.