Morgunblaðið - 20.01.1984, Síða 22

Morgunblaðið - 20.01.1984, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 Magnús Jónsson frá Mel lands fasteign og það án þess að þurfa að greiða neitt úr ríkissjóði fyrir hana, því að leigutekjur af eigninni stóðu undir lífeyris- greiðslum til þeirra systkina með- an þau lifðu. Það var að vísu ekki í mínum verkahring að annast frekar um þetta verk eða að sjá um greiðslur og annað vegna fasteignarinnar, meðan á lífeyrisgreiðslum stóð, en þegar þeim lauk, fór ég fram á það við Magnús Jónsson, sem var þá enn fjármálaráðherra, að mér yrði greidd sérstök þóknun fyrir mín verk og skrifaði fjármálaráðu- néytinu af því tilefni. Beiðni minni var hins vegar synjað. Nokkru eft- ir að mér hafði borist synjun fjár- málaráðuneytisins hitti ég Magn- ús Jónsson og hann sagði við mig að fyrra bragði: „Þú munt seinna verða ánægður með að hafa ekki fengið neitt fyrir þetta starf, sem var ágætt, en þín laun er sú gleði, sem þú hafðir af því að vinna þetta verk og þau laun verða ekki frá þér tekin.“ Þetta voru orð að sönnu, en sýndu góða íhaldssemi Magnúsar Jónssonar og umhyggju hans fyrir landi og þjóð, sem hann sjálfur vildi vinna sem mest án þess að taka sérstaka þóknun fyrir. Listasafn íslands og myndlist- armenn standa í ævarandi þakk- arskuld við Magnús Jónsson. Gunnlaugur Þóröarson Kveðja frá Kísiliðjunni hf. Árið 1966 var stofnað hlutafélag um rekstur Kísiliðjunnar hf. við Mývatn. Aðalhvatamaður að stofnun þessa fyrirtækis var Magnús Jónsson, sem þá var al- þingismaður Norðurlandskjör- dæmis eystra og jafnframt fjár- málaráðherra. Allt frá stofnun Kísiliðjunnar og fram til vors árið 1983 var Magnús Jónsson formað- ur stjórnar Kísiliðjunnar hf. Síðastliðið haust heyrði ég Magnús rifja upp aðdragandann að stofnun Kísiliðjunnar hf. Höfðu frumkvöðlar að stofnun fyrirtækisins mætt ýmsum erfið- leikum og stundum svo alvarleg- um, að brugðið gat til beggja vona um framtíð þess. Enda þótt gam- ansemi hafi verið fléttuð inn í frásögn Magnúsar fór ekki hjá því að þeir, sem á frásögn hans hlýddu, yrðu snortnir af því að heyra hvernig hverri hindruninni á fætur annarri var rutt úr vegi. Öll vissum við að hindrununum var fyrst og fremst rutt úr vegi með skynsamlegum fortölum Magnúsar. Stjórnunarstörf Magnúsar ein- kenndust mjög af því hve fljótur hann var að átta sig á kjarna hvers máls og hversu fljótur hann var að afgreiða þau mál, sem til kasta hans komu. Styrkur hans sem stjórnanda fólst þó fyrst og fremst í þeirri miklu virðingu sem hann naut hvarvetna, heima á ís- landi og erlendis. Einkum er mér hugstæð sú mikla virðing, sem forsvarsmenn Manville Internat- ional Corporation, hins erlenda eignaraðila að Kísiliðjunni hf., báru fyrir Magnúsi. Fyrir hönd Kísiliðjunnar hf. vil ég bera fram þakkir til Magnúsar Jónssonar fyrir hans ómetanlegu störf í þágu fyrirtækisins. Per- sónulega þakka ég fyrir ánægju- legt samstarf. Ingibjörgu og fjölskyldunni sendum við okkar innilegustu samúðark veðj ur. Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri. Það var á árunum þegar heims- myndin náði frá Eyjafirði vestur í Skagafjörð. Áhyggjulaust líf og mótunarskeið á eftirstríðsárun- um, þar sem tekið var mið af tveimur miðpunktum veraldarinn- ar, æskuheimilinu á Brekkunni á Akureyri og litla bænum, Mel í Skagafirði. Þá var frændsemin grundvöllur tilveru og samskipta og stofnað var til tengsla, sem aldrei hafa rofnað. Vináttan, sem fyrr fólst í góðsemi og umhyggju fyrir fákunnandi bæjarpilti um líf og störf til sveita, breyttist smám saman í gagnkvæma vináttu full- tíða fólks, sem átti þá gæfu saman að eiga ljúfar minningar frá skagfirzku sveitalífi þess tíma og ekki síður sameiginlegan uppruna, þar sem lífið breyttist frá örbirgð til velsældar á einum mestu um- byltingarárum í foreldrahúsum á æskuheimilinu á Brekkunni, tíðar heimsóknir voru á milli miðpunkt- anna tveggja og heimsmyndin stækkaði óðum. Örlaganornirnar hafa spunnið sinn þráð um heimilisfólkið frá Mel. Við kröpp kjör stækkaði heimsmynd bræðranna þriggja ört og á skömmum tíma urðu þeir þjóðkunnir menn, hver á sína vísu, Magnús, Baldur og Halldór, en foreldrarnir þau Ingibjörg og Jón á Mel, yrktu jörð sína þar til yfir lauk og kraftar þeirra þrutu. En örlögin spyrja ekki alltaf um hæfileika og þá köllun, sem hver og einn kann að þroska með sjálf- um sér. Skyldmennin frá Mel hafa nú á skömmum tíma horfið yfir móðuna miklu, þar sem hvorki eru landamæri né heimsmynd, stór né smá. Þau Ingibjörg og Jón hvíla nú í þeirri skagfirzku mold, sem þau helguðu lífsstarf sitt. Baldur, rektor Kennaraháskólans, féll frá á bezta aldri fyrir fáum mánuðum og nú hefur Magnús farið sína hinztu för í þessu jarðlífi — óvænt og snögglega — þrátt fyrir hinn alvarlega heilsubrest, sem kom eins og reiðarslag fyrir áratug og breytti í einu vetfangi ferli eins virtasta stjórnmálamanns þjóðar- innar og hafði þar með afdrifarík áhrif bæði á stjórnmálaþróun þess tíma og allrar framtíðar. Af Melsfjölskyldunni er því einn eft- irlifandi, Halldór, bæjarfógeti á Sauðárkróki, en eiginkonur, börn, skyldmenni og vinir harma þá, sem gengnir eru. Við andlát Magnúsar Jónssonar er margs að minnast, en fyrir þann er þetta ritar er það flest persónulegs eðlis og verður ekki skráð. Aðrir munu rekja marg- brotinn stjórnmálaferil hans og störf hans sem bankastjóra og for- ystumanns á mörgum sviðum í þjóðfélagi okkar — einkum á þeim tíma, er hann hafði fulla heilsu og ekkert blasti annað við en þjóðar- forysta með þeirri ábyrgð og blæ- brigðamun, sem henni fylgir, og vindar stjórnmálanna breyta um stund eins og gerist í þjóðfélögum lýðræðisins. Frá fyrstu kynnum til hinna síðustu var Magnús einkanlega hlýr maður, gæddur einstakri greind og góðvild í garð samferðá- manna og gilti þar einu um svo- kölluð flokksbönd. Þessir eigin- leikar hans og skarpleiki, sem ekki sízt fólust í því að greina kjarnann frá hisminu, voru samofnir léttri kímni og frásagnarhæfileika. Magnús var alla tíð og að allra dómi ætíð sjálfum sér samkvæm- ur, maður reglu, heiðarleika og drenglyndis, sem ætíð var reiðu- búinn til að rétta öðrum hjálpar- hönd. Tryggð hans og frændsemis- kennd var einstök og ógleyman- legir eru margir þeir góðra vina fundir, þar sem hann var hrókur alls fagnaðar og hafði alltaf tíma til góðra ráða og samfunda, þrátt fyrir erilsöm störf og hina mestu ábyrgð. Nú er harmað, að þær samverustundir skyldu ekki hafa orðið fleiri. Þessi óvanalega skaphöfn, sem fyrst mótaðist í litla bænum á Mel, en öðlaðist skjótan þroska við nám og störf, leiddi óhjákvæmilega til þess, að fljótlega fól þjóðfélagið honum þau mikilvægu störf, sem alþjóð eru kunn. Á þessari stundu er saknað drengskaparmanns, sem alltaf var reiðubúinn til að gefa holl ráð, saknað er frænda, sem ræktaði frændsemisbönd öðrum fremur, saknað er leiftrandi kímni þess manns, sem við hin mestu ábyrgð- arstörf kunni alltaf að sameina gaman og alvöru og saknað er vin- ar, sem ætíð sýndi vináttu í verki frá því að kynni hófust á grundun- um við Mel, á skólaárum hans á Akureyri til hinzta dags — við hin ýmsu störf og síðar samstarf, er átti sér ýmsa farvegi. Stjórnmála- frami hans var ætíð mótaður af þeirri hógværð, sem stækkar hvern mann og alkunna er, að Magnús Jónsson naut trausts langt út fyrir raðir eigin stjórn- málaflokks. Samhliða hinni léttu kímni bjó djúp alvara hugsjónamannsins, sem fyrst og fremst vildi þjóð sinni vel og var virkur þátttakandi í sköpun og mótun hennar á ör- lagatímum. Ljúft er að þakka tryggð hans við foreldra mína og önnur ætt- menni. Hjá þeim Ingibjörgu var alltaf opið hús velvildar og gest- risni og var vel veitt af brunnum reynslu, vitsmuna og hlýju, sem honum var svo eiginlegt. Magnús var yfirburðamaður í hverju því, sem hann tók sér fyrir hendur. Haft er eftir Beethoven: „Hið eina tákn um yfirburði, sem ég viðurkenni, er gæzkan." Ég þekki fáa menn, sem þessi um- mæli eiga betur við en Magnús Jónsson. í einkalífi sínu var Magn- ús gæfumaður. Þau Ingibjörg voru samhent, hlý og góðviljuð og þeir, sem báru gæfu til að njóta gest- risni þeirra og vinsemdar eiga margs að minnast. Við leiðarlok er Magnús frá Mel kvaddur með söknuði og eftirsjá. Megi sú hlýja, er ætíð geislaði frá gömlu baðstofunni á Mel fylgja honum á nýjum leiðum. Innilegar samúðarkveðjur eru sendar fjöl- skyldu hans og ástvinum frá mér og mínu fólki. Við þessi ferðalok er þökkuð vinátta hans og tryggð, sem aldrei hefur haggazt frá fyrstu kynnum í faðmi skagfirzkr- ar sveitar. Biessuð sé minning hans. Heimir Hannesson Að kveðjustund er komið. Tregasár minning um mætan dreng og sannan geymist í muna. Fyrir eyrum mér ómar: Orð skulu standa. Það voru hans orð, það voru einkunnarorð allra hans verka. Aðrir munu rekja ævitíð hans, ótal störf í þjóðar þágu. Litríkan og farsælan feril fjölbreyttra at- hafna á hinum ýmsu sviðum. Menn minnast hins harðgreinda og harðduglega manns, sem hasl- aði sér ungur völl í orrahríð stjórnmálanna, en kom úr hverri hríð ósár og hvergi kalinn. Menn muna ráðherratíð hans, framgöngu sem enn er minnzt að makleikum jafnt af samherjum sem andstæðingum. Bankastjór- inn er mönnum ferskur í minni. Áreiðanlegur, atorkufullur og um- fram allt: Orð skyldu standa. En fyrst og síðast minnast menn ann- ars vegar hetjusögu hans síðustu árin og þess afreks að stunda erfitt og vandasamt starf af samvizkusemi þess, sem aldrei unni sér hvíldar, og hins vegar ljúflingsins glettna og gaman- sama á góðri stund, sem leikið gat á als oddi, þrátt fyrir alla erfið- leika. Margra samverustunda er mér ljúft að minnast með þökk þess trega, sem yfirskyggir allt í dag. Magnús setti sannarlega svip á sína samtíð, heilsteyptur hæfileikamaður, prúðmennið og reglumaðurinn, sem lagði alúð við hvert sinna smæstu verkefna. Hvergi var kastað til höndum. Harðfylgni og lipurð fóru saman. Grómlaus glettni og glöggskyggn rökfesta fylgdust að. Samstarf síðustu ára þakka ég hrærðum huga og heilladís hans, afrekskonunni Ingibjörgu, eru færðar innilegar samúðarkveðjur. Og ofar öllu í minningastefi hugans um Magnús Jónsson vakir þessi vængjaða setning: Orð skulu standa. Blessuð sé minning drengskap- armanns. Helgi Seljan Magnús Jónsson var þekktur sem mikill bindindis- og reglu- maður. Hann studdi í orði og verki alla viðleitni til þess að draga úr því böli sem fylgir áfengissýkinni. Margur maðurinn, sem leitaði til Magnúsar á leið sinni til betra lífs, á honum þakkarskuld að gjalda. Hann var mikill velunnari SÁÁ frá upphafi. Málefni samtakanna bárust jafnan í tal þegar við hitt- umst, þó tilefnið væri oftast ann- að. Þá hafði hann alltaf holi ráð og hvatningarorð á hraðbergi. Innan samtakanna urðum við þess vör á margan hátt hvílíka trú hann hafði á starfi okkar. Nú rétt fyrir áramótin sást hann síðast í hópi SÁÁ-félaga þegar sjúkra- stöðin Vogur var vígð. Eftir það hittumst við aðeins einu sinni, og lýsti hann þá sérstakri ánægju sinni með það, hve vel húsbygg- ingin hefði tekist í alla staði. Fyrir hönd SÁÁ-félaga vil ég láta í ljós virðingu og þökk fyrir allt, sem Magnús Jónsson gerði fyrir málstað okkar. Hendrik Berndsen Það var rétt fyrir síðustu jól að ég ræddi við Magnús Jónsson á skrifstofu hans í Búnaðarbankan- um. Þá var hann hress og fullur af áhuga fyrir ýmsum málum, sem hann taldi vera þýðingarmikil og til velfarnaðar fyrir þjóðina. Hugsunin var, sem fyrr, skýr og mál hans rökfast og áheyrilegt. Ekki datt mér í hug að þetta væri okkar síðasta samtal, að ég ætti ekki að sjá þennan vin minn oftar í lífi og starfi. Fréttin um andlát Magnúsar Jónssonar var harma- frétt, að honum er mikill söknuð- ur, þjóðin hefur misst einn af sín- um bestu sonum fyrir aldur fram. Það var á Landsfundi sjálfstæð- ismanna á Akureyri 1948, sem ég kynntist Magnúsi Jónssyni fyrst. Vakti það athygli mína hvað þessi ungi maður var skýr í tali og vask- legur í framkomu. Eftir þetta bar fundum okkar oft saman, er hann vann í fjármálaráðuneytinu, og voru nánari kynni síst til þess að draga úr góðu áliti mínu á honum. Eftir að Magnús Jónsson varð al- þingismaður 1951 og fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins 1952 til 1960 var samstarf okkar mjög náið og gott í alla staði. Magnús Jónsson var alþing- ismaður 1951 til 1974 og banka- stjóri í Búnaðarbankanum frá 1960 til dauðadags að undanskild- um þeim árum sem hann var fjár- málaráðherra 1965 til 1971. Magn- ús Jónsson ávann sér mikið traust allra sem kynntust honum. Það var ekki nema eðlilegt að sjálf- stæðismenn veittu honum mikinn trúnað með því að fela honum mörg mikilvæg og vandasöm störf. Allt sem hann tók að sér að vinna var leyst vel og farsællega af hendi. Þegar Magnús Jónsson var ráðinn framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, var það gert með góðu samkomulagi allra sem hlut áttu ða máli. Þegar hann var kos- inn bankastjóri var það með öllu ágreiningslaust; og þegar hann var valinn til að gegna embætti fjármálaráðherra í stað Gunnars Thoroddsen; þegar hann gerðist sendiherra, allt var það gert með samþykki allra þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Samstarf mitt við Magnús Jónsson var alltaf mjög gott og það sama munu flokksmenn mínir og aðrir sem unnu með honum geta sagt. Á Alþingi og í ríkis- stjórninni komu oft í ljós þeir kostir Magnúsar Jónssonar, sem höfðu vakið eftirtekt mína við fyrstu kynni mín af honum á Landsfundinum á Akureyri, að hann var skýr í tali og vasklegur í framkomu. Á Alþingi naut Magn- ús Jónsson sín vel í ræðustól, hann var góður ræðumaður, rökfastur og sannfærandi. Hann var sterkur málafylgjumaður og hafði gott lag á að beita sér eftir því sem við átti hverju sinni. Hann gat verið harð- ur og sókndjarfur í málflutningi ef þess gerðist þörf og sú leið var sigurvænlegust, en hann gat einn- ig verið mildur þótt hann beitti Kíkisstjórn Bjarna Benediktssonar (Viðreisnarstjórn). Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, lengst til vinstri á mynd- inni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.