Morgunblaðið - 20.01.1984, Side 23

Morgunblaðið - 20.01.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984 23 Síðasta myndin sem tekin var af Magnúsi Jónssyni við störf sem bankastjóri Búnaðarbanka íslands. sterkum rökum, ef sú aðferð virt- ist vera heppilegri til þess að af- vopna þann sem deilt var við. Magnús Jónsson var mannþekkj- ari og fundvís á hvaða aðferð var líklegust til þess að vinna þeim málum fylgi sem hann vildi ná fram. Hann var áhrifamikill stjórnmálamaður og hafði heild- arsýn yfir þau verkefni sem hann þurfti að leysa og vinna að. Hann gerði sér fulla grein fyrir því hvað var mögulegt að gera og reyndi ekki að fara lengra en fært var í hverju máli. Hann valdi skásta kostinn ef enginn möguleiki var til þess að ná því æskilegasta, en not- aði síðar fyrsta tækifæri þegar að- stæður breyttust til þess að ná því æskilegasta og besta fram. Magnús Jónsson var bæði raun- sær og hygginn og var það til þess að auka traust á honum. Þeir sem fylgjast nokkuð með þingsögunni og stjórnmálum í Iandinu minnast þess, þegar eitt stærsta efnahags- áfall sem þjóðin hefur orðið fyrir skall yfir á árunum 1967—1968. Þá fór saman aflabrestur og mikið verðfall á útflutningsafurðum þjóðarinnar. Gjaldeyristapið á tveimur árum nam allt að 50% vegna verðfalls og minnkandi afla. Það var mikið happ að vel hafði verið haldið á fjármálum landsins áður en þetta mikla áfall skall yf- ir. Þess vegna voru varasjóðir fyrir hendi og fjármunir til þess að grípa til, þegar samdráttur varð í tekjum, útflutningi og framleiðslu. Þá kom sér vel að eiga gjaldeyrisvarasjóð. Það var mikils virði að fjármálaráðherra naut almenns trauts, þegar ráð- stafanir voru gerðar til þess að komast upp úr öldudalnum, með því að koma atvinnuvegunum á traustan grundvöll að nýju og fjármálum landsins í réttan far- veg. Magnús Jónsson var mikil- hæfur fjármálaráðherra, traustur, hagsýnn og hæfilega fastur fyrir en þó nægilega tillitsamur, sann- gjarn og samvinnuþýður. Það reyndi mjög á fjármálaráðherr- ann á fyrrnefndum erfiðleikaár- um. Með skynsamlegum ráðstöf- unum og traustri forystu forsætis- ráðherra tókst á ótrúlega stuttum tíma að yfirstiga erfiðleikana. Ár- ið 1969 var batinn sýnilegur og 1970 voru erfiðleikarnir að baki. Atvinnulífið var þá komið í eðli- legt horf, kjör almennings bætt og jafnvægi komið á i utanríkisvið- skiptum og þjóðarbúskapnum yf- irleitt. Traust fjármálastjórn Magnúsar Jónssonar átti stóran þátt í því að ríkissjóður, aðrir opinberir sjóðir og fjármálastofn- anir stóðu sérstaklega vel þegar stjórnarskiptin urðu á miðju ári 1971. Þegar Magnús Jónssn yfirgaf stjórnarráðið tók hann við fyrra starfi í Búnaðarbankanum. Naut hann ekki síður trausts þar en annars staðar þar sem hann starf- aði. Við áramótin 1973 og 1974 varð hann alvarlega veikur og var á tímabili talið vafasamt að hann fengi nægilegan bata til þess að komast aftur til starfa. En svo giftusamlega fór að hann fékk bata og gat haldið áfram fullu starfi í bankanum. Fyrir Alþing- iskosningarnar 1974 tilkynnti Magnús Jónsson kjósendum sínum í norðurlandskjördæmi eystra að hann gæfi ekki kost á sér til fram- boðs vegna þess að hann yrði að létta af sér störfum. Urðu það mikil vonbrigði fyrir kjósendur hans, samherja og vini um allt land. Magnús Jónsson var kosinn varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins haustið 1973. Bað hann for- mann og miðstjórn flokksins sumarið 1974 að leysa sig frá var- aformennsku og bar fram sömu rök fyrir þvi og hann gerði fyrr á árinu vegna framboðs fyrir Alþingiskosningarnar. Það var mikill skaði fyrir þjóðina alla og Sjálfstæðisflokkinn þegar Magnús Jónsson hætti þingmennsku og hans skýra tal og vasklega fram- ganga til stuðnings góðum málum kom ekki lengur fram í sölum Al- þingis. Magnús Jónsson átti við heilsu- brest að stríða síðustu 10 árin. Eigi að síður gegndi hann miklum ábyrgðarstörfum á þessum árum og ber öllum saman um, sam- starfsmönnum og öðrum sem til þekktu, að hann hafi rækt þau öll með ágætum. Þótt Magnús Jóns- son hafi fallið frá fyrir aldur fram hefur hann lokið miklu og giftu- drjúgu ævistarfi. Hann hefur átt drjúgan þátt í að koma mörgum mikilvægum framfaramálum í höfn, málum sem öll þjóðin mun lengi njóta góðs af. Magnús Jóns- son var hamingjusamur f lífinu. Störf hafði hann ávallt við sitt hæfi og rækti þau öll eins og best verður á kosið. Hann sá góðan árangur eftir erfiði vinnudagsins. Vinirnir voru margir og vinsældir hans miklar. Heimili átti hann gott, ágæta konu og mannvænleg börn, tengdabörn og barnabörn. Magnús Jónsson var góður heimil- is- og fjölskyldufaðir og naut þess vel að vera með fjölskyldunni. Mannsævin er stutt, hver lífs- stund er dýrmæt. Magnús Jónsson er horfinn af lífssviðinu, lífsbók hans hefur nú verið lokað, sú bók er góð og athyglisverð. Lífssaga hans og trúnaður við þau verkefni sem honum voru falin á hendur eru vissulega til fyrirmyndar og eftirbreytni. Þakka ber samfylgd góðs manns sem ávallt lagði gott til mála og vildi gera ísland enn betra en það nú er, með því að nýta kosti þess skynsamlega og gera lífsleiðina með þeim hætti auðveldari og greiðari fyrir öll landsins börn. Konu hans og fjöl- skyldu allri er hér með vottuð ein- læg samúð. Ingólfur Jónsson Með Magnúsi Jónssyni er fall- inn í valinn einn af beztu forystu- mönnum þjóðarinnra. Ég kynntist Magnúsi þegar hann var fjármála- ráðherra og enn betur eftir að hann gerðist bankastjóri Búnað- arbanka íslands. Ég bar mikla virðingu fyrir Magnúsi enda var hann mikill mannkostamaður, heilsteyptur, heiðarlegur og sam- vizkusamur. Hann var þjóðhollur og ekki eiginhagsmunamaður og mætti margur af því læra. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur misst marga forystumenn sína á bezta aldri, má þar nefna Bjarna Bene- diktsson, Jóhann Hafstein og nú Magnús Jónsson. Magnús var fastmótaður og traustur maður, sem vann öll sín störf af alúð. Marga ferðina fór ég til hans vegna lánafyrirgreiðslu og varð hann alltaf fljótt og vel við beiðni minni. Það er þjóðinni mik- ið áfall að missa svona góðan mann en þetta er leiðin okkar allra. Magnús gegndi mörgum trúnað- arstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, sem of langt yrði upp að telja, þó má nefna, að hann var formað- ur ungra sjálfstæðismanna og ráðherra. Ég kveð þennan mæta mann með þakklæti fyrir góða viðkynn- ingu. Fari hann í friði, Guð blessi hann. Blessuð sé minning Magnúsar Jónssonar. Ég sendi ástvinum öll- um samúðarkveðjur. Jóhann I>órólfsson Menn kvænast ekki aðeins kon- unni, heldur engu að síður fjöl- skyldu hennar og nánum vinum, sagði Vilmundur Jónsson þáver- andi landlæknir, er ég fyrir tæp- um þrem áratugum kynnti bónda minn á heimili hans. Það fékk ég að sannreyna þá þegar, því bræðurnir þrír frá Mel, Magnús, Baldur og Halldór, voru sem einn maður og afar náin bönd tengdu fjölskyldur þeirra. Svo vel hefði þó ekki getað tekist til ef mágar mínir hefðu ekki verið kvæntir afbragðskonum. Hér hafa margir orðið til að tí- unda fjölmörg og merk þjóðmála- störf Magnúsar. Sökum gáfna, at- gerfis, mannkosta og fágætrar ræðusnilldar var hann foringi á þeim vettvangi um langt skeið, enda bera störf hans öll hæfileik- um hans gleggst vitni. Ég sem aðrir dáði frábæra starfshæfni hans, en hér við útgöngudyrnar leita þó helst á hugann sundur- lausar minningar um órofa vin- áttu heimila okkar, sem aldrei bar skugga á. Fyrstu búskaparár okkar bjugg- um við í húsum sem stóðu hlið við hlið. Eins 'og að líkum lætur gengu börn hans út og inn hjá okkur eins og á sínu eigin heimili, enda var það sjálfsagður hlutur að þau trítluðu beint upp sundið ef for- eldrarnir brugðu sér af bæ eða fóru til útlanda. Stundum stóð Kristín mín mitt á milli húsanna og stappaði niður stuttum fótum því hún gat ekki gert upp við sig á hvorum staðnum hún átti að borða. Seinna þegar börn okkar spruttu úr grasi var það jafn sjálfsagður hlutur að þau ættu sitt annað heimili hjá Magnúsi og Ingibjörgu, en yngsti bróðirinn var þá fluttur úr bænum. Þannig liðu hin svokölluðu manndómsár í dagsins önn. Á bræðurna hlóðust ótal trúnaðar- störf í þágu lands og þjóðar, en samheldni þeirra og óbrotgjörn vinátta var alltaf sú sama, jafnt í blíðu sem stríðu. Það er lýðum ljóst hvílíkum ein- stökum dugnaði Magnús var gæddur að hverju sem hann gekk. Þó munu ekki aðrir en þeir sem næstir stóðu gera sér nokkra grein fyrir því hve ofurmannlegt þrek þurfti til að rísa upp úr þeim þungbæru veikindum sem Magnús varð fyrir á síðasta áratug. Eftir ótrúlega skamman tíma gekk hann aftur til starfa án þess að láta bilbug á sér finna. En jafnvel því þreki, sem mér fannst oft ganga kraftaverki næst, eru takmörk sett. Án óbilandi kjarks og aðdáunarverðrar um- hyggju konu sinnar, hefði Magnús hvorki getað sinnt vinnu né hugð- arefnum á nokkurn þann hátt sem hann hefði sætt sig við, eftir það mikla líkamlega áfall sem hann varð fyrir. Fjölskyldu sinni allri var hann sú styrka stoð sem aldrei brást. Það fengum við best að reyna und- anfarin ár í veikindum bónda míns og ekki hvað síst síðastliðið sumar. Þá létti hlýja og innileiki Magnúsar og Ingibjargar honum þungbært kvalastríð. Fáir voru þeir morgnar sem Magnús lét það ekki vera sitt fyrsta verk er hann kom í bankann, að hringja og spyrja um bróður sinn. Eftir lát hans vildi Magnús vera börnum okkar það skjól í hörðum heimi, sem hann hafði verið sínum eigin börnum, enda var fyrst leit- að til hans ef eitthvað bjátaði á. í fyrravor fengum við hjónin bréf frá vini okkar, merkismanninum Ragnari Lassinantti, fyrrum landshöfðingja í Norður-Svíþjóð. Ragnar ólst upp hjá foreldrum sínum á rýrðarkoti við kröpp kjör, einn sá elsti af 12 systkinum, án minnstu möguleika til menntunar. Hann sat þó að lokum í ótal tign- arstöðum í landi sínu og var m.a. kjörinn heiðursdoktor við háskóla. Bónda mínum varð þá að orði: „Engan mann annan þekki ég, sem hefði boðið aðstæðunum byrginn á þennan hátt, nema Magnús bróður minn. Honum hefðu aldrei haldið nokkur bönd hvernig sem að hefði verið búið.“ Ekki efa ég að það mat sé rétt og vel skildi ég eðlilegt og verðugt stolt tengdaforeldra minna af son- unum þrem, sem allir luku emb- ættisprófum frá Háskóla íslands og settust síðar í þær stöður sem hæfðu gáfum þeirra og atorku. Tveir þeirra hafa nú látist langt um aldur fram á rúmu misseri. Sárlega söknum við Magnúsar, þess vinar sem aldrei brást. Guð líkni þeim sem eftir lifa. Nú glóir ný fastastjarna i bládjúpi næturhiminsins, ástgjöf liðinna stunda sem geislar frá sér lífi minninganna. (Jóhannes úr Kötlum) Jóhanna Jóhannsdóttir Þegar mér var að morgni síð- astliðins föstudags sagt lát Magn- úsar Jónssonar, bankastjóra, hafði ég átt von á honum ásamt fleiri mönnum á fund í Seðlabank- anum, en daginn áður hafði hann unnið fullt dagsverk í Búnaðar- bankanum. Þannig féll Magnús Jónsson frá í miðri önn lífsins, þar sem hann hafði staðið sístarfandi og sterkur til hinztu stundar. Og aðeins þannig gat ævi Magnúsar endað, því að hann var ekki gerður af því efni, er gæti bognað eða lagzt á hlið undan storméljum lífsins. Honum var það eitt eigin- legt að standa uppréttur með storminn í fangið, unz yfir lyki. Nú þegar ég minnist Magnúsar og náins samstarfs við hann um aldarfjóröungs skeið, er mér efst í huga hinn fágæti viljastyrkur, er honum var gefinn og jafnt kom fram í baráttu hans við langvar- andi heilsuleysi sem í starfi hans bæði á vettvangi stjórnmála og bankastarfsemi. Magnúsi var aldrei eiginlegt að leita málamiðl- unar eða sigla milli skers og báru til þess eins að forðast óþægindi eða óvinsældir. Starfsaðferðir hans voru í því fólgnar að mynda sér sjálfstæða skoðun á hverju máli, sem hann þurfti að taka af- stöðu til, en fylgja síðan sannfær- ingu sinni fram með rökum og öllu því þreki, sem honum var gefið. Vissulega fannst ýmsum hann eiga það til að taka með þessum hætti ósveigjanlega afstöðu til mála, en þar kom á móti, að eng- inn gat efast um heilindi hans né góðvild. Þess vegna var hann bæði virtur og vinsæll, þótt hann oft yrði að taka ákvarðanir, sem í eðli sínu voru erfiðar og ekki líklegar til vinsælda. Þeir hæfileikar Magnúsar Jóns- sonar, sem ég hef nú lýst, nutu sín frábærlega vel bæði í starfi hans sem bankastjóri Búnaðarbankans og fjármálaráðherra. Við starfi bankastjóra Búnaðarbankans tók Magnús í byrjun árs 1961 og gegndi því starfi æ síðan að und- anteknum sex árum, er hann var í embætti fjármálaráðherra. Ber vöxtur Búnaðarbanka Islands á undanförnum tveimur áratugum og sterk staða hans í hvívetna glöggan vitnisburð um stjórnun- arhæfileika Magnúsar, þar sem saman fór framtakssemi og festa, ásamt þeim eiginleika að ávinna sér hvers manns traust fyrir rétt- sýni og hreinskilni. Vorið 1965 tók Magnús við emb- ætti fjármálaráðherra og gegndi því síðan samfellt fram yfir mitt ár 1971. Á þessu tímabili skiptust á skin og skúrir i þjóðarbúskap íslendinga, fyrst hástig síldaræv- intýrisins fyrir Austfjörðum og síðan á árunum 1967 og 1968 mesta hrun útflutningstekna, sem íslenzka þjóðarbúið hefur orðið fyrir á svo skömmum tíma. Það var hvorki auðvelt né öfundsvert að vera fjármálaráðherra á þess- um árum, en þá sýndi Magnús Jónsson bezt stjórnsemi sína og þrautseigju. Er ég viss um, að enn hafi fáir metið til fulls, hversu mikinn þátt fjármálastjórn Magn- úsar átti í því, hve giftusamlega tókst að vinna bug á efnahags- vanda þessara ára og reisa þjóðar- búið við að nýju í kjölfar þeirra. Efast ég um, að annar fjármála- ráðherra hafi skilað betra búi í hendur eftirmanns síns. Fyrir tíu árum varð Magnús fyrir alvarlegum heilsubresti, svo að líkamlegir kraftar hans voru síðan ekki meiri en margra þeirra, sem taldir eru algerir öryrkjar. Hlaut það að verða hverjum manni, sem til þekkti, undrunar- efni, að hann skyldi þrátt fyrir þetta geta veitt Búnaðarbankan- um svo öfluga forustu, sem raun bar vitni. Og þrátt fyrir hina lík- amlegu vanheilsu fannst mér ætíð streyma frá honum lífskraftur og glaðværð, svo að maður kom hverju sinni sem endurnærður af hans fundi. En enginn er sjálfum sér nógur, hversu miklir hæfileikar og sál- arkraftar, sem honum eru gefnir. Það var gæfa Magnúsar Jónssonar að eiga konu, sem var honum sam- hent í öllum hlutum og var honum sá styrkur, sem hann þurfti, þegar mest á reið. Ingibjörgu og ástvin-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.