Morgunblaðið - 20.01.1984, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1984
t
Faöir okkar og afi,
JÓN JÓNASSON
frá Efri- Holtum,
Langholtsvegi 18, Reykjavík,
lést á heimili sinu miövikudaginn 18. janúar.
Ágúata Jónsdóttir,
Þuríöur Jónsdóttir,
Jón Júlíusson.
t
Konan mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
MARGRÉT G. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Núpabakka 25, Raykjavík,
andaöist í Landspítalanum 18. janúar.
Ingimar Guómundsson,
Guðmundur I. Ásmundsson, Sigrún Ólafsdóttir,
Þoratainn S. Ásmundsson, Elsa B. Ásmundsdóttir
og barnabörn.
t
Móöir okkar,
LÁRA KRISTÍN GUDJÓNSDÓTTIR
frá Kirkjulandi,
Vestmannaeyjum,
verður jarösungin frá Landakirkju laugardaginn 21. janúar kl.
15.00.
Alda og Birna Björnsdætur.
t
Útför bróöur okkar,
JÓHANNS KRISTJÁNSSONAR
frá Bugöustöóum,
Efstasundi 14,
verður gerö frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. janúar kl. 15.00.
Margrét Kristjánsdóttir,
Kristinn Kristjánsson,
Siguröur Kristjánsson.
t
Útför eiginmanns míns og fööur okkar,
KJARTANS JÚLfUSSONAR,
rafmagnstæknifræöings,
sem lést 12. janúar, fer fram frá ísafjaröarkirkju laugardaginn 21.
janúar kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Hjálparsveit
skáta á Isafiröi.
Gunnhildur Elíasdóttir og börn.
t
Faöir minn, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR ÓLAFSSON,
Hofi, Grindavík,
veröur jarösungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 21. janúar kl.
13.30.
Margrét Siguröardóttir, Óskar Ágústsson,
Guóbjörg Oskarsdóttir,
Sígurrós Óskarsdóttir.
Lokað
Vegna útfarar MAGNÚSAR JÓNSSONAR, banka-
stjóra, veröa allir afgreiöslustaöir Búnaöarbanka ís-
lands lokaöir föstudaginn 20. janúar til kl. 13.00.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS.
Laufey Markús-
dóttir — Minning
Fædd 3. ágúst 1915
I)áin 12. janúar 1984
Kveðja frá systur og mági
í dag er gerð frá Fossvogskap-
ellu útför systur minnar, Laufeyj-
ar Markúsdóttur. Hún andaðist
fimmtudaginn 12. janúar sl. á
Landspítalanum eftir langa og
stranga sjúkdómslegu. Laufey var
fædd í Súðavík 3. ágúst 1915. For-
eldrar hennar voru hjónin Hall-
dóra Jónsdóttir og Guðjón Markús
Kristjánsson, sem þar bjuggu all-
an sinn búskap. Þau eignuðust sjö
börn. Eitt lést í æsku. Laufey var
elst þeirra. Hún ólst svo upp í
Súðavík með foreldrum sínum og
systkinum. Lífsbaráttan var hörð
þar vestra á þessum árum og því
kom það af sjálfu sér að hún
þurfti snemma að taka til hendi,
bæði til aðstoðar á heimilinu og
svo við önnur störf eftir því sem
aldur og geta leyfðu. Laufey var
snemma dugleg og frábærlega vel
verki farin, og því var hún eftir-
sótt til starfa bæði utan húss og
innan.
17. mars 1945 giftist Laufey,
Bjarna Hálfdánarsyni, en hann
andaðist í júní 1983 eftir langt
sjúkdómsstríð. Þau eignuðust
fjögur börn, Hörð Sævar, kvæntan
Lilju Sigurgeirsdóttur, búsett á
ísafirði, Hálfdán, kvæntan Vigdísi
Ólafsdóttur, búsett í Reykjavík,
Jóhönnu Halldóru, gifta Gísla Sig-
urjónssyni, búsett á ísafirði, og
Svanfríði Guðrúnu, gifta Eyþóri
Óskarssyni, búsett á Isafirði. Auk
þess ólu þau upp sem sitt barn
Markús Sigurgeir Kristjánsson,
sem kvæntur er Báru Magnúsdótt-
ur. Þau búa í Hafnarfirði.
í hinu langa og þungbæra veik-
indastríði Bjarna, eiginmanns
síns, sýndi Laufey frábært þrek og
þolgæði sem oft virtist nærri
ofurmannlegt. En einn geisli lýsti
henni á þessum erfiðu tímum. Þau
hjón höfðu mikið barnalán, og það
var henni ómetanlegur styrkur í
þessu langa stríði.
Við Laufey vorum elstar af
systkinahópnum og allt frá barn-
æsku ákaflega samrýndar. Þar við
bættist að við vorum giftar bræðr-
um, sem einnig voru mjög sam-
rýndir og því var sambandið milli
okkar alltaf mjög náið. Engum
sem nákominn var Laufeyju gat
dulist það, að hún gekk ekki heil
til skógar, þó hún stæði eins og
hetja við hlið Bjarna í veikindum
hans.
En eftir andlát hans, þegar allir
vinir hennar og vandamenn von-
uðu að nú kæmi betri tíð, versnaði
hennar eigin heilsa svo að hún
varð að leggjast á sjúkrahús. Vik-
ur og mánuði vonuðum við öil að
eitthvað það kæmi í ljós sem unnt
yrði að bæta, og hún fengi að
ganga heilbrigð út í lífið á ný. Það
varð því miður ekki. En í þessari
síðustu baráttu, fyrst í biðinni og
síðan í vissunni, sönnuðust enn
eðliskostir þessarar kæru systur
minnar, sem alltaf óx við hverja
raun. Alltaf hitti maður hana
glaða og góða og glöð og sátt lok-
aði hún augunum í síðasta sinn.
Fædd 15. aprfl 1954.
Dáin 6. janúar 1984.
Og skín ei ljúfsast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
(Tómas Guðmundsson)
Elskuleg vinkona okkar er burt
kölluð í blóma lífsins. Hún, þessi
unga fallega og glæsilega stúlka,
sem átti svo bjarta framtíð og
hafði svo mikið til brunns að bera.
Dolla, en svo var hún kölluð, var
dóttir hjónanna Áslaugar Ólafs-
dóttur og Árna Bjarnasonar í
Hafnarfirði, ein af sex börnum
Þetta er það sem til forna var
nefnt að verða vel við dauða sín-
um.
Þessar línur áttu aðeins að vera
nokkur fátækleg kveðjuorð. Við
hjónin þökkum samfylgdina,
langa og skuggalausa, og biðjum
hennar góðrar heimkomu.
Guðríður Markúsdóttir og
Hermann Hílfdánarson.
þeirra hjóna. Elst er Rut, þá Ása,
Guðný og tvíburarnir Dolla og
Halli, en yngstur Árni Özzur.
Þetta var mjög samhentur systk-
inahópur og sjá þau nú á eftir
yndislegri dóttur, góðri systur og
félaga.
Árið 1978 steig Dolla mikið
gæfuspor, en þá gekk hún að eiga
Hafstein Stefánsson frá Ásólfs-
stöðum í Þjórsárdal. Þau voru sér-
staklega samhent og hamingju-
söm og höfðu búið sér fallegt
heimili og gæfan blasti við þeim
þegar allt í einu dregur ský fyrir
sólu og Dolla veikist af þeim
sjúkdómi sem dregur hana til
dauða.
Hennar góði og elskulegi maður
vék ekki frá henni þar til yfir lauk
og sendum við honum okkar hjart-
ans samúðarkveðjur og biðjum
góðan Guð að veita honum styrk í
þessum erfiðu raunum.
Þeim Dollu og Hadda varð ekki
barna auðið, en lítinn og fallegan
hund, hana Trítlu, áttu þau sem
alltaf fylgdi húsmóður sinni. Dolla
var mikill dýravinur og barngóð
svo af bar og missa systkinabörn
hennar góða frænku, sem oft hafði
gætt þeirra og glaðst með þeim.
Þegar á bjátaði var gott að leita til
hennar, vildi hún leysa hvers
manns vanda ef hún hafði tök á.
Skoðanir sínar lét hún í ljós og var
föst fyrir en bar fulla virðingu
fyrir skoðunum annarra.
Við sendum foreldrum, systkin-
um og tengdaforeldrum, aldraðri
ömmu, sem dvelur á Sólvangi,
tengdafólki og þér aftur, elsku
Haddi, innilegar samúðarkveðjur,
og verði okkar góða og trygga
vinkona Guði falin.
Ragna og Ella.
+
Móöir okkar,
SIGURBJÓRG BJÖRNSDÓTTIR,
Deildartungu,
veröur jarösungin frá Reykholtskirkju, laugardaginn 21. janúar kl.
14.00. Bílferö veröur frá Umferöarmiöstööinni í Reykjavík sama
dag kl. 9.00.
Hannes Jónsson, Soffía Jónsdóttir,
Vigdís Jónsdóttir, Ragnheióur Jónsdóttir,
Andrés Jónsson, Guörún Jónsdóttir.
t
Ástkær eiginmaður, faöir, tengdafaöir, afi og langafi,
HJÖRTUR ÓLAFSSON,
Furugeröi 1,
verður jarösunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 21. janúar
kl. 14.00.
Ferö verður frá Umferöarmiðstööinni kl. 12.00.
Blóm og kransar afbeönir, en þeim sem vilja minnast hins iátna, er
bent á stúkuna Einingu nr. 14.
Léra Halldórsdóttir,
Halldór Hjartarson, Béra Þóröardóttir,
Höröur Hjartarson, Erla Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför systur minnar,
SIGRÍDAR ÁRNADÓTTUR
frá Stóra-Ármóti.
Sérstakar þakkir færi ég Hjalta Gestssyni fyrir ómetanlega hjálp
mér veitta.
Ingileif Árnadóttir.
Sólrún Arnadóttir
— Minningarorð