Morgunblaðið - 22.01.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
63
Reykjum þennan aldarfjórðung?
Skólasetrið var byggt upp að nýj-
um húsum: Stórt og vandað skóla-
hús með mörgum nýtískulegum
skólastofum, heimavistarhús fyrir
nemendur, margar kennaraíbúðir,
veglegt íþróttahús með rúmgóðu
áhorfendasvæði, byggðasafn o.fl.
Aðsókn að skólanum óx jafnt og
þétt og var flest árin miklu meiri
en hægt var að rúma með góðu
móti, en það eru 140—150 nemend-
ur. Það fór orð af skólanum fyrir
góða stjórn, ágætan námsárangur,
fjölbreytt íþróttastarf, eins og
best kom fram í þátttöku skólans f
ýmsum fimleikamótum, fjölþætt
félagslíf og reglusemi. Foreldrum
þótti gott að vita af börnum sínum
á slíkum stað á viðkvæmum aldri.
Um langt skeið fór slíkt orð af
Reykjaskóla að mér er nær að
halda, að hann hafi verið í
fremstu röð allra skóla í landinu,
hvað varðar holl og góð uppeldis-
áhrif. Hef ég þar fyrir mér orð
manna, sem gerst áttu að þekkja
til.
Ólafur var vandur að vali kenn-
ara. Honum var ljóst af langri
reynslu, að árangur og orðstír
skóla, helgast af samhentu og
áhugasömu kennaraliði, sem hvort
tveggja í senn hefur góð uppeld-
isáhrif á nemendur og nær góðum
árangri í kennslu. Markmið hans
var góður aðbúnaður fyrir nem-
endur, góð starfsskilyrði fyrir
kennara og valinn kennari f
hverju starfi. Þá vissi hann að
árangurinn léti ekki á sér standa.
Ekki skal ég fullyrða að þetta hafi
alltaf tekist, en hitt vissi ég, að vel
og samviskusamlega var að þessu
unnið og orðstír skólans var góð-
ur. Og það sem meira var, þetta
var metið að verðleikum. Var
ánægjulegt að fylgjast með því,
hversu foreldrar, skólanefnd og
yfirstjórn menntamála viður-
kenndu og þökkuðu það fjölþætta
menningar- og uppeldisstarf, sem
unnið var í Reykjaskóla, og sýndu
Ólafi sóma við ýmis tækifæri, al-
veg sérstaklega, þegar hann lauk
störfum á 50 ára afmæli skólans
1981. Þá fékk hann margar góðar
gjafir — sem vott þakklætis og
vináttu — frá mörgum sem skóla-
starfið snertir með einhverjum
hætti m.a. menntamálaráðuneyt-
inu, sem mun heldur fátítt.
Þegar rætt er um farsælt og
óvenju árangursríkt skólastarf
Ólafs H. Kristjánssonar, skal því
ekki gleymt, að við hlið hans stóð
frábær kona — kennari og hús-
móðir — sem tók þátt í skóla-
starfinu, beint og óbeint af lífi og
sál. Ólafur kvæntist 7. júni 1941
Sólveigu Kristjánsdóttur, bónda í
Tröð í önundarfirði Hagalínsson-
ar. Hún hefur ekki aöeins verið
handavinnukennari við skólann
öll þessi ár, heldur og húsmóðir á
skólastaðnum, sem gerði sér far
um það, að smekkvísi og góð um-
gengni væri þar ráðandi. Góður
skóli á Reykjum var henni brenn-
andi áhugamál, ekki síður en
ólafi. Hygg ég heldur fátítt að
konur skólastjóra í heimavist-
arskólum leggi jafn mikið af
mörkum til skólastarfsins og Sól-
HÚS-
BYGGJENDUR
Til afgreiðslu af lager:
Niðurfallsrör
Rennubönd
Þakrennur
Þakgluggar
Þaktúður
Gaflþéttilistar
Kjöljárn
Klippt og
beygt járn af
ýmsum gerðum.
Öll almenn
blikksmíði.
'B
BREIÐFJÖRÐS
BLIKKSMIÐJA HF
Leitió nánari upplýsinga
aö Sigtúni 7 Simh29022
veig gerði í Reykjaskóla. Á þetta
er ekki minnst hér til að draga úr
neinu því, sem áður er sagt um
Ólaf, heldur til að benda á þann
mikla árangur sem næst, þegar
samhent hjón — búin miklum
hæfileikum — leggja sig bæði
fram í skólastarfinu.
Þau hjónin hafa eignast fjóra
mannvænlega syni, sem eru þessir
taldir í aldursröð: Kristján, lög-
fræðingur Kópavogskaupstaðar,
Páll, íþróttakennari í Garðabæ,
Þórður, lögfræðingur, forstöðu-
maður bankaeftirlits Seðlabank-
ans, og Ástmar, við tónlistarnám í
London.
Ég gat þess í upphafi, að það
hafi verið mat okkar í kennara-
skólanum að ólafur væri traust-
vekjandi og vel til forystu fallinn.
Með lífsstarfi sínu hefur ólafur
staðfest það, að þetta var réttur
spádómur. Mikil gifta hefur fylgt
störfum hans. Það leika ekki allir
eftir að vera kennari og skóla-
stjóri í 45 ár og njóta þeirrar
mannhylli, tiltrúar og velvildar,
sem hann hefur hvarvetna notið.
Það er mikil lífshamingja. Við 70
ára tímamótin fagnar hann góðri
heilsu — andlega og líkamlega —
og getur litið björtum augum til
framtíðarinnar.
Að lokum vil ég flytja ólafi
bestu hamingjuóskir á 70 ára af-
mælinu, með þakklæti fyrir liðna
tíð. Undir það veit ég að öll bekkj-
arsystkini okkar taka, sem prófi
luku í kennaraskólanum vorið
1936 — og mega enn mæla —
ásamt fjölda annarra samferða-
manna hans frá liðnum áratugum,
hvort sem er úr skólastarfi og fé-
lagsmálum. Megi allar góðar vætt-
ir fylgja þeim hjónum á ófarinni
ævibraut.
Dan. Ágústínusson
VHS -Vkteóhornið - Beta
Nýtt efni í VHS — hljómsveitirnar Rolling Stones og
Nazareth — North Sea Hijack — Roger Moore — Great
Scout — Lee Marvin — Tess — Natasha Kinski —
Night Hawks — Mickey and Nicky — Peter Falk — The
Sting — Paul Newman — Robert Redford — The Kill-
ers.
Höfum fengiö nýtt barnaefni, leigjum út tæki — seljum
óáteknar spólur. — Hringiö og viö tökum frá fyrir ykkur
spóluna ef hún er inni.
Videóhornid, Fálkagötu 2, sími 27757. Opiö kl. 14—22.
Gódcm daginn!
Gott ráð gegn ryði
Já, Ryövarnarskálinn er nú með nýtt „tromp“ í ryðvarnarábyrgð
6 ára ryðvarnarábyrgð
fær hver sá bíll af árgerð 1984 sem ryðvarinn er í Ryðvarnarskálanum. Já, ábyrgð, þar sem
Ryðvarnarskálinn og starfsmenn hans eru ábyrgir ef skaði verður. (Takið eftir: R.V.S. og
starfsmenn.) Því er það okkar stærsta áhugamál að verkið sé vel unnið.
7 ára reynsla af 5 ára ábyrgðinni, sem 3400 bifreiðaeigendur notfæra sér nú, hefur sannað
okkur að við höfum náð frábærum árangri. Höfum ryðvarið um 19.000 nýja bíla og fengið aðeins
17 ryðtjón.
Ryðvarnarskálinn er sérhannað fyrirtæki með þurrkskápa.
Ryðvarnarskálinn er með viðurkenndustu ryðvarnarefnin, vegna þess að Ryðvarnarskálinn
verður að tryggja sig gegn ryðskaða.
Ryðvarnarskálinn verður að tryggja þig gegn ryðskaða.
Þessi umboð eru fastir viðskiptavinir og eru með 6 ára ryðvarnarábyrgð á sínum bílum, sem
ryðvarðir eru hjá Ryðvarnarskálanum.
[h]hekla hf
L|Laugavegi17Q-172 Sírm 21240
HGhto
JÖFUR HE
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
m
TÖGGURHR
UMBOÐiÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI81530
HONDA Á ÍSLANDI
VATNAGARÐAR 24
104 REYKJAVÍK
ir hf.
Bifreiðar og Landbúnaðanéiar hf Z!
■ 'JuiSííj SuðurtwxMxMl 14 - Um 3M00 - 112M ■ |
umboðið
Ingvar
Helgason
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Ryóvarnarskálinn Sigtúni5
Simi 19400 - F’ósthólf 220