Morgunblaðið - 22.01.1984, Síða 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
Baba Yaga
N^RNIR
Hún er mannæta af slavnesk-
um uppruna, sem sveimar um
skýin í fylgd með félaga sínum,
dauðanum.
Hún ferðast oft í djúpu kari,
og spillir veðrum og í „kjölfar"
hennar koma hvirfilvindar og
Nornir kunnu ýmislegl fyrir aér
i aviði ástamála, byrluðu ástar-
drykki og bjuggu til brúður sem
áttu að vera eftirlíkingar af við-
komandi elakendum og ajá til
þeaa að þeir yrðu að eilífu aam-
an bundnir. Þeim, aem hafa
áhuga á að kynna aár aamaetn-
ingu áatardrykkja og því um
líkt, er annara bent á íalenaka
þjóðhætti, því ainn er aiður í
landi hverju.
fellibyljir. Hún stelur börnum og
ef þau eru sérstaklega óheppin
étur hún þau.
Heimili hennar er kofi, sem
staðsettur er efst á tröllauknum
kjúklingafæti. Fóturinn getur
aldrei verið kyrr og því þyrlast
húsið stöðugt í loftinu. Girðingin
umhverfis þennan sérstæða bú-
stað er úr stjökum og á hverjum
stjaka er hauskúpa af barni.
Foreldrar hræða óþekk börn sín
með henni. Hún er því eins kon-
ar slavnesk Grýla en heyrst hef-
ur, að hún hafi einnig áhrif á
innblástur og sköpunargleði —
líkt og gyðjan hvíta, sem Robert
Graves reit svo fagurlega um.
Morgan LeFay
Það fagra flagð, systir Arth-
úrs konungs (þess með hring-
borðið), ástmey galdramannsins
Merlins og nemandi, á sennilega
rætur sína að rekja til keltnesku
gyðjunnar Morgan. í kristni dró
nokkuð úr áhrifamætti hennar
og hún varð að smámey eða álfa-
mær, en þó gerðist galdur henn-
ar svartari og verri viðureignar
eftir því sem á leið. í sögunum
um Arthúr konung, er hún allt í
senn, seiðkona, grasalæknir, góð
álfkona og undirförult flagð.
Bæði gömul og ung, jafnt fugl
sem kona. Eftir fa.ll Arthúrs
bera hún og meyjar hennar lík
hans burt í miðju öldurótinu í
kvæði Malorys, Dauði Arthúrs.
En í öðrum útgáfum þjóðsög-
unnar er hún undirförult flagð,
norn, sem reynir að tæla hinn
göfuga riddara, Lancelot, til lags
við sig og kemur upp um lauslæti
Guinevera drottningar. Hún er
líka ráðvillt kona af öðrum
heimi, sem gerir örvæntingar-
fullar tilraunir til þess að halda
ástum dauðlegs manns.
Morgan LeFay, eða Fata
Morgana, eins og hún heitir á
ítölsku, er dæmigerð útgáfa af
Hvernig fóru þmr að því að
fljúga?
norn sem er útvötnuð útgáfa af
hinni upprunalegu móðurgyðju.
Sköpunargáfan hefur úrkynjast
og er orðin að svörtum galdri.
Baba Yaga hefur beðið sama
álitshnekki, þó að á ólíkan — og
mun óhugnanlegri — hátt sé.
Hrói Höttur
Eftir að Sir Walter Scott tók
hann fyrir, hafa fæstir hugsað
sér hann í nornalíki. En eldri
þjóðsögur leiða berlega í ljós, að
Hrói var „púkalegur" (ekki
slangur) náungi, sem ríkti sem
konungur yfir grænklæddri álfa-
hirð sinni og vissi mun lengra en
nef hans náði. örvarnar á boga-
streng hans voru ekki gerðar af
mannahöndum og félagar hans
voru tólf. Hann, leiðtoginn, var
sá þrettándi og þar með er kom-
in hin slgilda meðlimatala
nornaklaustra. Það er fleira sí-
gilt við þennan félagsskap, sem
sýnir að þarna voru dæmigerðar
nornir á ferð (þó að orðið norn sé
brennt inn í vitund okkar, sem
samheiti við orðið kona, gátu —
og geta — karlmenn líka verið
nornir). Andsnúnir kerfi og
klerkaveldi, rændu þeir frá hin-
um ríku og gáfu fátækum og
töfraskógurinn var kirkja
þeirra. Þessir grænklæddu skóg-
arpúkar virðast hafa verið leifar
hinna fornu töframanna, sem
hagnýttu sér fjölkynngi af list,
löngu fyrir tilkomu kristninnar.
Að Merlin sálfum frátöldum, er
Hrói Höttur einhver almerkasta
karlkyns norn, sem heimildir eru
til um.
Lokaorð höfundar
Frá örófi alda fram á okkar
dag hefur saga galdrafárs tengst
hræðslu karlmanna við konuna
órjúfandi böndum — tilhneig-
ingu hinnar karlmannlegu und-
irmeðvitundar til þess að leggja
að jöfnu konur og ill öfl (eða
a.m.k. hið óþekkta, sem haldið er
vera af hinu illa).
Þó að ævaforn menning Súm-
era, Krítverja og Egypta bjóði
upp á magnaða kvenguði, sem
búa yfir jákvæðum (og einnig
neikvæðum) mætti, þá gefur í
klassískum bókmenntum oftast
að líta skuggaleg flögð á borð við
Kirkju, Medeu og Oenothiu.
Konur, sem heilla við fyrstu sýn,
en hafa það að markmiði að
ræna karlmennina styrk þeirra
og valdi. Það væri einfeldnings-
háttur að ætla að með því að
snúa þessari stöðluðu ímynd við,
taka að lofsyngja hinar fornu
gyðjur og afneita guðum
Grikkja, gyðinga og kristinna
manna, takist okkur að útrýma
þeim myndum sem dýpsta
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
GOODÉYEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
IhIHEKLAHF
LanQavecji 170 172 Sími 21240
Til kraftavcrka sem þessa þarf gott jarðsamband.
Það næst með GOODYEAR hjólbörðum.
Gott samband jarðvegs og hjólbarða auðveldar alla
jarðvinnu.
Hafið samband við næsta umboðsmann okkar.
Hitablásarar
fyrir gas
09 oiíu
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125