Morgunblaðið - 25.01.1984, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984
Viðrædurnar hafa ekki
skilað neinni niðurstöðu
* r
— segir Asmundur Stefánsson, forseti ASI
„ÞAÐ ERU engar stórar fréttir af
miðstjórnarfundinum. Við fórum
yfir málin og í sjálfu sér ekkert
stórlega fréttnæmt sem gerðist,"
sagði Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASÍ en fundur var í miðstjórn
ASÍ í gærdag, þar sem staðan í
samningamálunum var rædd.
„Eins og oft hefur komið fram
höfum við verið í samningavið-
ræðum við VSÍ undanfarnar vik-
ur og þær viðræður hafa ekki
skilað niðurstöðu, enn sem kom-
ið er, og það er sú staða sem við
búum við í dag. Því fer fjarri að
það sé einhver leyndardómur að
við höfum verið í viðræðum að
undanförnu. Það hefur víða
komið fram, til dæmis í viðtali
við mig í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku og í sjónvarpinu á
sunnudagskvöld, þannig að það
þarf býsna drjúgt hugmyndaflug
til þess að sjá okkur Magnús
Gunnarsson laumast eftir hót-
Ásraundur Stefánsson
elgöngum á leið til leynifunda.
Þótt við höfum átt í ítarlegum
viðræðum að undanförnu, þá er
alrangt að það sé samkomulag
okkar í milli um eitt eða neitt,
það er grundvallaratriði í mál-
inu. Hins vegar höfum við rætt
málin fram og til baka. Við völd-
um þann kostinn að fara í við-
ræður og leita samningsmögu-
leika í samtölum okkar í milli,
frekar en að setja fram kröfur
og gagnkröfur. Það hafa engin
tilboð gengið í milli aðila og eng-
ar ákveðnar tölur verið settar
fram í því sambandi. Aftur á
móti hafa hagfræðingar okkar
verið að skoða ýmis dæmi með
háum tölum, lágum tölum og
öllu þar á milli, en samkomulag
er hvergi fyrir hendi," sagði Ás-
mundur.
Ásmundur sagði að það hefði
verið niðurstaða miðstjórnar-
fundarins að viðræðunum við
VSÍ yrði haldið áfram, eins og
hefði verið niðurstaða undan-
genginna miðstjórnarfunda.
Engar prósentuhækkanir
verið boðnar formlega
— segir Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ
„Það er rétt það hafa átt sér
stað miklar viðræður milli ASÍ og
VSÍ sérstaklega í sambandi við þá
sem verst eru staddir í þjóðfélag-
inu og leiðir til úrlausna þeirra
vegna. Við höfum að sjálfsögðu
rætt ýmsar leiðir í launamálum, en
því miður hefur ekki tekist að
finna neinn þann flöt á þeim enn-
þá, sem leitt gæti til samninga,"
sagði Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands, í samtali við
Morgunblaðið um frétt blaösins í
gær um samninga í burðarliðnum
milli VSÍ og ASI, en framkvæmda-
stjórn VSÍ fundaði í gærdag.
„Það er búið að ræða ýmsar
hliðar á þessum málum og samn-
ingamálin almennt voru rædd á
framkvæmdastjórnarfundi hjá
Vinnuveitendasambandinu í dag
og það var ítrekað þar að fram-
Magnús Gunnarsson
kvæmdastjórnin vildi leita eftir
lausn á samningamálunum, sem
ekki stefndi þeim ávinningi sem
náðst hefur í baráttunni við
verðbólguna í hættu.
Það var samþykkt að halda
áfram viðræðum við Alþýðu-
sambandið og könnun þeirra
leiða sem mögulegar eru. En það
er rétt að það komi skýrt fram,
að það hafa engar prósentu-
hækkanir verið boðnar formlega.
Hins vegar er það engin launung
að í svona viðræðum hljóta alls
konar dæmi að vera sett upp þar
sem tekið er mið af gengisfor-
sendum, verðlagsforsendum og
öðru því sem áhrif hefur á jafn-
vægið í efnahagsmálum. Því
iniður hefur ekki ennþá fundist
flötur á samningi milli Alþýðu-
sambandsins og Vinnuveitenda-
sambandsins, en menn eru sam-
mála um að reyna að halda
áfram að leita eftir samningi
sem einhver skynsemi er í,“
sagði Magnús að lokum.
Arne Treholt á íslandi í upphafi síðasta áratugar:
Tók þátt í umræðu um frið-
að svæði á N-Atlantshafi
ARNE Treholt, sem játað hefur á sig
stórfelldar njósnir í þágu KGB, kom
til íslands laust eftir að vinstri stjórn
var mynduð hérlendis sumarið 1971.
Treholt kom hingað ásamt tveimur
öðrum ungum Norðmönnum, en þeir
voru hér á vegum Sambands ungra
jafnaðarmanna, Sambands ungra
framsóknarmanna og Alþýðubanda-
lagsins að sögn Örlygs Geirssonar
deildarstjóra, sem var á þeim tíma
Eskifjörður:
Enn leitað
án árangurs
LEITIN að sjómanninum sem hvarf á
Eskifirði aðfaranótt sl. sunnudag hefur
ekki borið árangur. Leitinni var haldið
áfram í gær. Kafað var við bryggjur,
höfnin slædd og fjörur gengnar án ár-
angurs. Leitinni verður haldið áfram.
frammámaður í Sambandi ungra jafn-
aðarmanna. Norðmennirnir komu
fram á fundum þessara félaga og
sagðist Örlygur niinnast þess, að rætt
hafi verið við Treholt í fréttaauka
Ríkisútvarpsins, en hann starfaði þá í
upplýsingaskrifstofu um utanríkismál
í Noregi.
„Ég minnist þess að þetta voru
reiðir ungir menn úr róttækari hópi
Verkamannaflokksins," sagði Ör-
lygur. „Þeir voru í minnihlutahópi í
Noregi gegn NATO og fleiru, en
koma þeirra hingað til lands var í
tengslum við mikla umræðu á þess-
um tíma um friðað, eða vopnlaust
svæði á Norður-Atlantshafi. Þá
hafði tillaga um friðað svæði á
Indlandshafi nýlega verið sam-
þykkt hjá Sameinuðu þióðunum og
mig minnir að Jónas Árnason þá-
verandi þingmaður Alþýðubanda-
lagsins hafi beitt sér mikið fyrir
þessari hugmynd í pólitískri um-
ræðu.“
Ásamt Treholt komu hingað að
sögn Örlygs Einar Förde, núverandi
varaformaður norska verkamanna-
flokksins og fyrrverandi mennta-
málaráðherra Noregs, og Björn
Ture, þáverandi formaður sam-
bands ungra jafnaðarmanna í Nor-
egi. Örlygur sagðist ekki hafa séð
Arne Treholt fyrr en í þessari
heimsókn. Hann hefði kynnst þre-
menningunum aðeins lítillega þá
þrjá til fjóra daga sem þeir voru
hér. Þeir hefðu virst ungir og efni-
legir stjórnmálamenn. Örlygur
sagðist minnast Arne Treholts sem
mjög viðkunnanlegs manns og sízt
af öllu hefði sér dottið í hug að
hann væri eða ætti eftir að verða
njósnari fyrir Sovétmenn.
IIMNLENT
Morgunblaðið/Fridþjófur.
Frá miðstjórnarfundi Alþýðusambands íslands sem haldinn var í gærdag.
Borgin kaupir
Seljaveg 12
— Efnaverksmiðjan Eimur og Kolsýruhleðslan
flytja starfsemi sína þaðan fyrir árslok 1986
BORGARSTJÓRI undirritaði í gær
kaupsamning við eigendur Efna-
verksmiðjunnar Eims og Kolsýru-
hleöslunnar um kaup borgarinnar á
húseign þessara fyrirtækja á Sclja-
vegi 12. Kaupverð er rúmar 10 millj-
ónir króna og skal það greitt á
næstu fjórum árum.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að fyrirtæki þessi skyldu rýma
lóðina í síðasta lagi i árslok 1986.
Væru þessi kaup liður í nýju
skipulagi í þessum bæjarhluta, en
samkvæmt því væri ætlunin að
byggja dagheimili á lóðinni. Oljóst
væri hins vegar hvort af því yrði,
þar sem samkomulag þar að lút-
andi þyrfti að nást við Landhelg-
isgæzluna, sem ætti aðliggjandi
lóð.
Það hefði ennfremur verið mik-
ill þrýstingur frá íbúum í ná-
grenni efnaverksmiðjunnar um að
flytja hana, þar sem þeir teldu
hana ekki eiga heima inni í íbúð-
arhverfi. Því væri þarna bæði ver-
ið að koma á móti óskum íbúanna
og gera hverfið eftirsóknarverð-
ara til búsetu.
Forsætisráðherra um fjölda atvinnulausra:
Þessi tími oft
verið slæmur
Höfum samband og samráð við aðila vinnu-
markaðarins um aðgerðir
„ÉG VEIT ekki hvort kalla á þetu
mikið atvinnuleysi. Auðvitað hefur
það vaxið vegna erfiðleika í útgerð-
inni, en þessi árstími hefur oft ver-
ið slæmur,** sagði Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
er Mbl. spurði hann álits á fjölda
atvinnulausra í landinu, en eins og
Mbl. skýrði frá í frétt sl. laugardag
eru nú um eða yfir þrjú þúsund
manns án atvinnu.
Steingrímur sagði ennfremur:
„Frystihúsin og fiskvinnslu-
stöðvarnar hafa mjög margar
sagt upp kauptryggingunni, því
þær eru hræddar við það sem
framundan er. Það er alveg ljóst,
að þegar þorskafli fellur úr 450
þúsund tonnum í 220, eða úr 300
þúsund tonnum í 220 þúsund,
eins og núna, þá hlýtur að verða
minni atvinna. Þar að auki er
þetta alltaf erfiðasti tíminn.
Ríkisstjórnin hefur fullan hug
á því að draga úr því atvinnu-
leysi sem fylgir þessum afla-
samdrætti og mun leita samráðs
við aðila vinnumarkaðarins um
það. Þetta verður skoðað og at-
hugað hvaða atvinnuhvetjandi
atvinnugreinar koma til greina.
En ég held að þetta sé tímabund-
ið. Vertiðin er ekki byrjuð að
neinu marki, togararnir hafa lít-
ið komist út og lítill afli er hjá
þeim sem eitthvað hafa komist
út.“
En nú er atvinnuleysi víðar
en í fiskvinnslunni?
„Já, um leið og atvinna minnk-
ar í fiskvinnslunni þá dreifist
þetta út í aðrar atvinnugreinar."
Steingrímur var í lokin spurð-
ur hvenær vænta mætti aðgerða
af hálfu stjórnvalda. Hann svar-
aði: „Við munum hafa formlegt
samband og samstarf við aðila
vinnumarkaðarins um aðgerðir
og það hefur ekki verið talið
tímabært núna á meðan þeir
standa í úrslitaviðræðum um
kaup og kjör, en við erum tilbún-
ir að ræða málin hvenær sem
er.“
Fundir vegna samninga í álverinu:
Annar fundur í dag
SAMNINGAFUNDI með samninga-
nefndum starfsmanna og fram-
kvæmdastjórnar álversins í
Straumsvík hjá ríkissáttasemjara
lauk um sjöleytið í gærkveldi. Annar
fundur hefur veriö boðaöur f dag
klukkan 11.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk í gærkvöldi hjá
ríkissáttasemjara, Guðlaugi Þor-
valdssyni, þá hafði lítið miðað í
samkomulagsátt á fundinum.
Þegar Morgunblaðið leitaði eftir
þvi við forsvarsmenn álversins
hvað í ráði væri að gera, ef til
verkfalls kæmi, var engar fregnir
af því að hafa að svo stöddu, en
verkfall hefur verið boðað á föstu-
dag hafi samningar ekki tekist.