Morgunblaðið - 25.01.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984
5
Um Skálholtsbókasafii
eftir dr. Sigurbjörn
Einarsson
Övæntri rödd úr Búðardal um
bokasaln SkálholLs hefur biskup fs-
lands svarað til fullrar hlítar. En
með því að önnur rödd þaðan að
vestan hefur samt tekið undir hina
fyrri, vil ég leyfa mér að rifja upp og
benda á nokkrar staðreyndir.
Árið 1965 var keypt bókasafn
handa Skálholti. Seljandi var Kári
B. Helgason í Reykjavík. Kaup-
verðsins var aflað með almennri
fjársöfnun svo sem lesa má í blöð-
um frá þeim tíma. Kári B. Helga-
son hafði safnað bókum árum
saman, lagt sig einkum eftir söfn-
un tímarita. Þegar dánarbú Þor-
steins sýslumanns Þorsteinssonar
auglýsti bækur hans til sölu festi
Kári kaup á því safni. Þorsteinn
hafði verið búsettur í Reykjavík
um skeið. Ekki hefur það heyrst,
að fram hafi komið í Búðardal
óskir eða viðleitni í þá átt að
hindra hann í því að flytja bækur
sínar með sér, þegar hann lét af
sýslumannsembætti og fluttist til
Reykjavíkur, enda nokkuð lang-
sótt að ímynda sér að slík hug-
detta hefði til einhvers komið.
Ekki veit ég heldur til þess, að
Búðdælir hafi nokkurn tima falast
eftir þessum bókum til kaups.
Kári B. Helgason hélt áfram
bókasöfnun, m.a. keypti hann mik-
ið úr safni Gunnars Hall. Safn
Þorsteins bætti hann stórum,
kostaði miklu til bókbands og
skráningar. Af fjárhagsástæðum
varð hann svo að ákveða að selja
bókasafn sitt og auglýsti það.
Enginn bauð sig fram til þess að
kaupa það í heilu lagi, nema bisk-
up og kirkjuráð f.h. Skálholtsstað-
ar. Fé höfðum við ekki fyrir hendi
en hófum fjársöfnun og treystum
á undirtektir. Varð Skálholti vel
til í því efni. Stjórn Skálholtsfé-
lagsins ákvað að leggja fram það
fé, sem það hafði þá yfir að ráða,
og var samskotafé til styrktar
Skálholti. Það nægði til útborgun-
ar. Fjöldi manna og nokkur fyrir-
tæki veittu drengilegan stuðning.
Fjársöfnunarnefnd undir forsæti
dr. Benjamins Eiríkssonar, banka-
stjóra, vann fórnfúst sjálfboða-
starf.
Með þessu móti eignaðist Skál-
holt bækur á ný. Sannsýnum
mönnum þótti ánægjulegt til þess
að vita. Ekki síst fannst mönnum
maklegt, að staðurinn ætti a.m.k.
sýnishorn af þeim bókum, sem þar
voru prentaðar á sínum tíma.
Margir skildu það líka, að nú var
stefnt að því að Skálholt yrði
mennta- og menningarsetur að
nýju. Þeir sáu að myndarlegt
bókasafn á staðnum hlaut fyrr eða
síðar að verða nauðsyn.
Þeir sem hafa unnið að því að
þoka Skálholti upp úr svaði og
þetta áleiðis, sem það er komið,
hafa orðið að sætta sig við ýmis-
legt, m.a. það að sjá ekki allt kom-
ast fram í skjótri svipan, sem hug-
ur stóð til. Þannig hefur staðurinn
ekki notið þess stuðnings, að unnt
hafi verið að koma bókasafninu
fyrir í sérstökum húsakynnum og
búa svo um, að það gæti orðið til
almennra nota. En það hefur farið
vel um bækurnar. Allt tal um ann-
að, bæði á þingum og nú úr Búð-
ardal, er ímyndun og uppspuni,
sem bágt er að skýra. Helgi
Tryggvason, sá margvísi og virti
bókamaður, hafði umsjón með
flutningi bókanna í Skálholt og sá
um að koma þeim fyrir í sérsmíð-
uðum stálskápum í turnherbergi í
kirkjunni. Fyrir því herbergi er
eldtraust hurð. Og safnið hefur
vaxið verulega, þótt staðurinn hafi
ekki haft fjárráð til bókakaupa.
Góðir menn, erlendir og innlendir,
hafa gefið því bækur og sýnt með
því skilning á gildi þessa þáttar í
uppbyggingu Skálholts.
Það hefur aldrei komið til tals,
að Skálholt selji þessa eign sína og
engar líkur eru á því, að hún verði
föl. Ég skil því ekki, hvaða tilefni
menn hafa til skrifa um eigenda-
skipti á þessum bókum og ekki sé
ég heldur, með hvaða læknisráð-
um eða lagatökum mönnum dettur
í hug að ná þeim undan lögmætum
eiganda. Það mun næsta torvelt
flestum mönnum að sjá annað en
Sigurbjörn Einarsson
að Skálholt sé vel og heiðarlega að
þessari eign sinni komið. Þar var
hvergi snert við neins konar rétti
eins eða neins. En þeir sem gæla
við þá fjarstæðu, að unnt sé að ná
þessum bókum undan Skálholti,
mega hins vegar íhuga siðferði-
lega stöðu sína gagnvart þeim
mörgu mönnum, sem skutu saman
fé til þess að kaupa bókasafn Kára
B. Helgasonar í því skyni að það
væri gefið Skálholti til ævarandi
eignar.
Æði mörg verðmæt einkabóka-
söfn eru til í landinu, sem engir
hafa aðgang að nema eigendur
þeirra. Eg hef ekki orðið var við
annað en að þeir fái að vera
óáreittir með þessar sem aðrar
lögmætar eignir sínar. Dýrmætar
bækur ganga kaupum og sölum,
eru jafnvel seldar úr landi, og
hefði svo getað farið um dýrgrip-
ina í safni Kára B. Helgasonar, þó
að hann væri ekki þess sinnis. En
vafasamt er, hverra kosta völ
hann hefði átt, ef Skálholt hefði
ekki komið til sögu. Það er stað-
reynd, að hann fékk ekkert tilboð í
safnið í heilu lagi nema þetta eina.
Ég vona að þessi upprifjun og
skýring málavaxta megi verða til
þess að marklaust tal um Skál-
holtsbókasafn detti niður í bili. Og
hvers á það raunar að gjalda? Lát-
um það vera, þó að menn hafi ekki
þá þjóðlegu eða kirkjulegu hugs-
un, að þeir geti skilið, hvað Skál-
holt er og hvert það stefnir. En er
of mikið að mælast til þess, að
þeir láti það í friði? Og það vil ég
segja að síðustu og í eitt skipti
fyrir öll, bæði af þessu nýja tilefni
og öðrum fyrri: Unnið Skálholti
friðar með bókasafnið sitt.
En jafnframt læt ég þá von í
Ijós, að Skálholt eigi enn eftir að
þreifa á drengskap og örlæti, svo
að hugsjónir rætist bæði um bóka-
safnið og annað.
FRUMSÝNING
MATSEÐILL
Blandaður skelfiskur coctail með Ravigote sósu og rlstuðu brauðl
*
Krvddleginn léttsteiktur lambalærisvöövi m/ristuðum sveppum, gulrótum,
gratineruðu blómkáli, kryddjurtajarðeplum, hrásalati og koníakspiparsósu.
Heiðursgestur
er hinn landskunnl
JÓNAS JÓNASSON
BRQADvw
□ Guðbergur Auðunsson
□ Sigurður Ólafsson
□ Þorgeir Ástvaidsson
brQ^d^
□ Ragnar Bjarnason
□ Erla Traustadóttir
□ Skapti Ólafsson
□ Þuríður Sigurðardóttir
□ Einar Júlíusson
□ Björgvin Halldórsson
Boröpantanir daglega
í síma 77500 og 687370
undirleik annast:
Hljómsveit
CUNNARS ÞÓRÐARSONAR
veitingahúsid Broadway
þar sem allt byrjar
Nú byrjar sýningin, þar sem margir af þekktustu
söngvurum þjóðarinnar sameina krafta sína og leiða
gesti Broadway í gegnum tíðina með mörgum af
helstu dægurflugum sem gist hafa hinn íslenska
dægurlagaheim. Sýning sem eflaust á eftir að kitla
taugar minninganna.
□ Sigurður Johnnie
□ ómar Ragnarsson
□ Harald G. Haralds
□ Sverrir Guðjónsson
□ Pálmi Gunnarsson
Kynnar:
Páll Þorsteinsson og
Björgvin Halldórsson
Ljósameistarar:
Gunnar Gunnarsson Hljóðblöndun:
Siguröur Bjóla
Yflrþjónn:
Höröur Sigurjónsson
Matrelðslumelstarl:
Ólafur Reynisson
w T..-,--..--- _ ------^------^-------
kl. 20.00 stundvíslega
Húsiö opnarkl. 19.00