Morgunblaðið - 25.01.1984, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1984
THATCHER, forsætisráðherra
Bretlands, sést hér í hópi tveggja
manna sem íslenskir sjónvarps-
áhorfendur kannast vel við úr
sjónvarpsþáttunum „Já, ráð-
herra“. Þessir þættir eru nú orðnir
útvarpsefni í Bretlandi, en njóta
enn sömu vinsælda, og eru m.a. í
miklu uppáhaldi hjá Thatcher.
Á föstudaginn færði hún þætt-
inum verðlaun frá samtökum út-
varps- og sjónvarpsáhorfenda
sem kennd eru við frú Mary
Whitehouse. Af því tilefni samdi
hún sjálf litla dagskrá í anda
þáttanna og nefndi hana „Já,
forsætisráðherra", og fól þar
kerfismálaráðherranum (Paul
Eddington t.h.) og ráðuneytis-
stjóra hans, (Nigel Hawthorne
t.v.) að semja áætlun um að
leggja niður alla hagfræðinga,
enda væri sannað að þeir væru
hinir mestu óþurftarmenn!
Kallaður fyrir þingnefnd
Mvndin sýnir Luciano Mendez, fyrrum herforingja í Argentínu, koma úr
þinghúsinu í Buenos Aires, þar sem hann var kallaður fyrir þingnefnd vegna
ummæla sinna. Herforinginn fyrrveranadi hafði farið hörðum orðum um þá
sem sakað hafa fyrrum stjórnendur landsins um að bera ábyrgð á hvarfi og
dauða þúsunda óbreyttra borgara á undanRimum árum.
Búlgarskur ísknattleiks-
maður vill ekki heim
Vareae, ÍUlfu. 24. janúar. Al*.
EINN liðsmanna búlgarska ísknatt-
leiksliðsins, sem var að keppni í borg-
inni Varese á Norður-Ítalíu, sneri
ekki heim með félögum sínum, og er
talið líklegt að hann hyggist sækja
um hæli sem pólitískur flóttamaður á
Ítalíu.
Lögreglan segir að maðurinn,
sem heitir Zvetan Zvetanov og er
18 ára gamall, hafi ekki gefið sig
fram við yfirvöld og ekki sé vitað
hvar hann haldi sig. Athugun
bendi þó til þess að hann hyggist
biðja um hæli.
Zvetanov talar ekki ítölsku og
hefur ekki dvalið á Ítalíu fyrr. Lið
hans var statt í Varese til að keppa
við Júgóslava, ítaii og Frakka.
Kosningar í árs-
lok á Grenada
W&.shiiigton, 24. janúar. AP.
KJÖRSTJÓRN verður senn skipuð
á Grenada til að undirbúa kosn-
ingar þar undir lok ársins, sam-
kvæmt upplýsingum aðstoðarut-
anríkisráðherra, sem fer með mál-
efni Ameríkuríkja.
„Já, forsætisráðherra"
Æðstu yfirmenn vestur-þýska hersins:
Afsala sér allri ábyrgð á
brottvikningu Kiesslings
Bonn, 24. janúar. AP.
ÆÐSTU yfirmenn vestur-þýska
hersins hafa lýst því yfir að þeir
afsali sér allri ábyrgð á þeirri
ákvörðun Wörners varnarmála-
ráðherra að víkja Giinter Kiessling
hershöfðingja úr starfi vegna
gruns um samband hans við kyn-
villinga.
Hershöfðingjarnir 25 sátu á
sex klukkustunda fundi í dag og
ræddu Kiessling-málið. Wörner
varnarmálaráðherra mætti á
fundinn og. svaraði fyrirspurn-
Giinter Kiessling, hinn brottvikni
hershöfðingi.
I yfirlýsingu hershöfðingj-
anna sagði að þeir væru því
hlynntir að Kiessling fengi upp-
reisn æru ef rannsókn leiddi í
ljós að enginn fótur væri fyrir
áburðinum á hendur honum.
Ekki var tekin afstaða til þess
hvort varnarmálaráðherranum
hafi orðið á í messunni þegar
hann veik Kiessling ur starfi.
Kiessling hefur höfðað mál
vegna brottvikningar sinnar, og
að auki hefur sérstök þingnefnd
hafið rannsókn málsins.
Göran Tunström
Svíi hlaut
bókmennta-
verðlaun
Norður-
landaráðs
Sænski rithöfundurinn Gör-
an Tunström hlaut í gær
bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir bók sína „Jul
oratoriet", eða Jólaóratorí-
an. Verðlaunin, sem nema
225 þúsund krónum, verða
afhent á þingi Norðurlanda-
ráðs í næsta mánuði.
Göran Tunström er 46 ára.
Hann hefur skrifað 18 bækur
og hefur helmingur þeirra
komið út síðasta áratuginn.
Verðlaunabókin fjallar um
þrjár kynslóðir í sveit og er
Tunström sagður nota sams-
konar frásagnaraðferð og
sænsku höfundarnir Svend
Delblank og Sara Liedman.
Ný uppreisn
gegn Thatcher
London, 24. janúar. AP.
Þingmenn íhaldsflokksins, sem er í
nöp við Margréti Thatcher forsætis-
ráðherra, greiddu atkvæði gegn
stjórninni í þriðja sinn á sjö dögum í
morgun.
Fjórir þingmenn greiddu at-
kvæði með stjórnarandstöðunni
og 15 sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
ur um tillögu er miðar að því að
takmarka skattheimtu sveitarfé-
laga, og draga útgjöld þeirra sam-
an. Útgjöld sveitarfélaga hafa
aukist úr jafnvirði 11 milljarða
dollara í 20,5 milljarða á fimm ár-
um, eða tvöfaldast.
Þrátt fyrir uppreisn þingmann-
anna gegn Thatcher flaut tillagan
léttilega í gegn, þar sem 332 þing-
menn studdu hana en 203 voru á
móti. Samkvæmt heimildum var
óttast að andúð meðal þingmanna
íhaldsflokksins við málið yrði
miklu meiri.
Svíar leggja haid á
bandarísk sjóntæki
Stokkhólmi, 24. janúar. AP.
SÆNSKA tollgæslan hefur
lagt hald á háþróaðan banda-
rískan sjóntækjabúnað, sem
til stóð að senda til Austur-
þýskalands.
Sjö kassar með búnaði þessum
eru í vörslu tollgæslunnar í
Malmö, og hefur sérfræðingum
verið falið að kanna hvort búnað-
urinn sé af hernaðarlegu tagi.
Sem kunnugt er hindraði
sænska tollgæslan fyrir nokkru að
háþróaður bandarískur tæknibún-
aður yrði fluttur til Sovétríkj-
anna.
Sjóntækjabúnaðurinn kom til
Svíþjóðar frá Hollandi, en hafði
áður verið fluttur um Belgíu,
Frakkland og England, en upp-
haflega kom hann frá Bandaríkj-
unum.
Kassarnir með sjóntækjabúnað-
inum voru opnaðir vegna þess að
tollvörðum þótti ferðalag þeirra
frá Bandaríkjunum kynlegt.
Kohl sækir ísraela heim
Jerúsalem, 24. janúar. AP.
HELMUT Kohl kanzlari Vestur-
Þýzkalands kom í sex daga opin-
bera heimsókn til ísraels í dag og
fyrsta verk hans var að fara að
minnisvarða um þær sex milljónir
gyðinga sem drepnar voru í fanga-
búðum nazista á styrjaldarárunum.
Kohl er annar kanzlari
V-Þýzkalands sem kemur i
opinbera heimsókn til ísraels.
Hópur manna beið komu hans að
Yad Vashem-minnisvarðanum til
að mótmæla heimsókninni og
voru færri þýzk flögg að húni í
borginni en venja er í opinberum
heimsóknum erlendra þjóðarleið-
toga.
Verkfalli lækna í
Grikklandi lokið
A|>enu, 24. janúar. AP.
TÓLF I)AGA löngu verkfalli 4500
sjúkrahúslækna í Grikklandi er lokið.
Samningar hafa tekist um launa-
hækkun læknum til handa, og um
endurskoðun á þeim breytingum sem
nú er stefnt að í grísku heilbrigðis-
kerfi.
Gríska ríkisstjórnin hafði sett
sér það mark að koma árið 1990 á
samskonar skipulagi heilbrigðis-
mála og er í Bretlandi. Það felur í
sér að flestir læknar vinni almenn
læknisstörf á sjúkrahúsum í stað
þess að sinna sérfræðiþjónustu á
eigin vegum utan þeirra. í áætlun-
inni var m.a. gert ráð fyrir að um
1800 sjúkrahúslæknar, sem starfa í
höfuðborginni, verði fluttir út á
land, en nú hafa yfirvöld fallist á að
endurskoða þá stefnu. Flestir grísk-
ir læknar, eða 15 þúsund af 25 þús-
undum, eru búsettir í Aþenu.
Andlát Tarzans apabróðun
Djúp hryggð í
Sovétríkjunum
Moskvu, 24. jan. AP.
DJÚP hryggð ríkir nú í Sovétríkjun-
um vegna fráfalls leikarans Johnny
Weissmiiller, en hann var í hávegum
hafður þar fyrir hlutverk sitt sem
Tarzan apabróðir ( samnefndum
kvikmyndum.
Dagblað sovésku verkalýðs-
samtakanna, Trud, birti í dag
minningargrein um Weissmúller
þar sem farið er fögrum orðum
um hann og leik hans. „Þeir eru
margir í Hollywood sem spreytt
hafa sig á hlutverki Tarzans fyrr
og síðar," sagði í blaðinu, „en þær
Tarzanmyndir sem unnu sigur og
nutu almennrar lýðhylli voru þær
sem Weissmúller lék í.“
Tarzanmyndir með Weissmúller
í hlutverki apabróður áttu miklum
vinsældum að fagna í Sovét-
ríkjunum, einkum á sjötta ára-
tugnum, og biðraðir voru algeng
sjón við kvikmyndahús þau sem
þær sýndu. Vinsældir Tarzans
birtust líka í þeim útbreidda sið i
austurvegi að nefna hunda í höfuð
honum.