Morgunblaðið - 25.01.1984, Side 25

Morgunblaðið - 25.01.1984, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JANtJAR 1984 fclk í fréttum „Hef hvorki löngun til kvenna né spilau — segir kvikmyndaleikarinn Omar Sharif + „Ég er orðinn þreyttur og lúinn. Ég heillaði milljónir kvenna sem kvikmvndaleikari og tapaði milljón- um dollara við spilaborðið. Nú hef ég hvorki löngun til kvenna né spila.“ Omar Sharif, egypsk-ameríski kvikmyndaleikarinn, er aðeins 51 árs að aldri en sjálfum finnst hon- um hann vera tíræður öldungur. „Mér finnst ég vera búinn. Ég er ekki lengur eftirsóttur leikari og þess vegna þótti mér vænt um það þegar Lundúnaleikhúsið Theatre Royal bauð mér að leika prinsinn roskna f „Prinsinum og kórstúlk- unni“. Það eru meira en 25 ár síð- an ég kom sfðast fram í leikhúsi en það er gott að vita hvað ég mun hafa fyrir stafni næstu 148 kvöld- in,“ segir Omar. Omar hefur leigt sér hús í Lond- on þar sem ráðskona hans siðustu 17 árin, Pepita, hefur töglin og hagldirnar. „Ég fékk Pepitu í skilnaðargjöf frá konunni minni fyrrverandi. Þegar við skildum keypti ég hús handa konu minni í Parfs og hún stakk upp á að Pepita yrði áfram hjá mér. Hún er hreinasta perla en það er ekkert annað á milli okkar." Omar Sharif hefur fengið mjög góða dóma fyrir leik sinn í Lond- on, aldrei þessu vant, og þess vegna hefur hann látið sér detta í hug að snúa sér alfarið að leikhús- um. „Kannski væri réttast að enda ferilinn þar,“ segir Omar, sem enn er þó eftirsóttur í sjónvarpsþætti. „Áður voru það fagrar konur og fjárhættuspil, sem heilluðu mig mest, en nú hafa sjónvarpið og myndbandið tekið við því hlut- verki,“ segir Omar Sharif. „Ég er búin að finna mér fullorðinn mann.“ „Rod verður alltaf barn“ + „Hjónabandi okkar lauk í sept- ember sl. en vegna barnanna vildi ég gefa Rod eitt tækifæri enn. Hann fékk þau raunar mörg og misnotaði þau öll. Nú er þessu lokið.“ Alana Stewart er ekki í neinum vafa og segir hverjum sem er, að maðurinn hennar sé farinn og búi nú á hóteli í Los Angeles. „Hann er orðinn fertugur og finnst sem lífið sé að renna honum úr greipum. Heldur, að hann verði ungur í annað sinn ef hann hleyp- ur á eftir ungum stúlkum með gapandi hvoftinn. Ég er líka búin að kynnast öðrum manni, manni, sem hefur þroskast með árunum og hægt er að tala skynsamlega við. Og það er eitt, sem víst er, að hann er hvorki hljómlistarmaður eða leikari.“ Alana og Rod hafa veið gift í fimm ár og eiga tvö börn saman en hún á eitt frá fyrra hjónabandi. „Ég óttast það ekki að vera ein- stæð móðir með þrjú börn. Ég hef nóg að starfa við kvikmyndir og sýningarstörf og sá er munurinn á okkur, að Rob missir konu og börn en ég bara mann, sem aldrei verð- ur fullorðinn. Það getur varla tal- ist mikill missir,“ segir Alana. Omar Sharif sem prinsinn og Debbie Arnold sem kórstúlkan. „Beinin mín í brennivín bráðlega langar núna“ + Nú fyrir nokkrum dögum voru 175 ár liðin frá feðingu banda- ríska skáldsins Edgar Allan Poes, sem jafnan er talinn höfundur hryllingssögunnar. Poe varð að- eins fertugur að aldri, lést af del- erium tremens, áfengisæði, þegar hann var á ferð í borginni Balti- more og var grafínn í gamla kirkjugarðinum í hjarta borgarinn- ar. Árið 1949 veittu menn því eft- irtekt, að á afmælisdegi Poes hafði verið sett hálffull flaska af koníaki og þrjár rósir á leiði hans og síðan hefur þetta endur- tekið sig á hverju ári. í fyrra gat forstöðumaður Poe-stofnunar- innar, Jeff Jerome, ekki lengur ráðið við forvitnina og ákvað því að komast að því hver heiðraði minningu skáldsins drykkfellda með þessum hætti. Jeff og fjórir ungir vinir hans komu sér fyrir á góðum stað í kirkjugarðinum um kvöldið og biðu síðan þess, sem verða vildi. Myrkrið skall á og ekkert gerðist fyrr en klukkan eitt um nóttina en þá heyrðu þeir ískra í kirkju- garðshliðinu. Þegar þeir sáu fíöktandi bjarmann frá vasaljósi stukku þeir fram úr felustaðnum og stóðu þá augliti til auglitis við svartklædda veru, með mikið, svart slá yfir herðarnar og gullbúinn staf.í hendi, sem hvarf strax út úr kirkjugarðinum í loftköstum. Á leiði Poes var eins og áður hálffull flaska af koníaki og þrjár rósir. Kelly Nicolaisen ferðamálastjóri í Angmagssalik: Grænlendingar komi til Isiands f verkmenntun FERÐAMÁLASTJÓRI og hóteleig- andi í Angmagssalik á Grænlandi, Kelly Nicolaiesen, er staddur hér á landi þessa dagana, en hann kom til landsins með fyrsta áætlunarflugi Helga Jónssonar sl. þriðjudag. Nico- laisen er hér til að ræða við ráða- menn um þá möguleika sem opnast um aukin samskipti Grænlendinga og íslendinga við það að komið hef- ur verið á fostu áætlunarfíugi á milli Reykjavíkur og Kulusuk, en Helgi Jónsson fíýgur til Kulusuk einu sinni í viku í vetur og tvisvar í viku í sumar. Nicolaisen hitti m.a. að máli þá Matthías Bjarnason samgöngu- ráðherra og Birgi Þorgeirsson hjá Ferðamálaráði. Morgunblaðið náði tali af Nicolaisen í gær og innti hann eftir því hvað hefði borið á góma í samtölum hans við samgönguráð- herra og Ferðamálaráð. „Það er mikið atvinnuleysi í Angmagssalik og nágrenni; svo mikið, að það lætur nærri að 40 prósent þeirra 2700 manna sem þar búa hafi ekkert að gera á þess- um tima árs. Þetta stafar kannski ekki síst af því að það vantar verk- menntað fólk með nýjar hug- myndir sem gætu hrist upp í at- vinnulífinu á staðnum. Og per- sónulega finnst mér mjög íhug- andi að reynt verði að stuðla að því að Grænlendingar komi til Is- lands í eins konar verkmenntun, vinni hér kannski í nokkra mánuði og kynnist nýjungum í fiskveiðum og fiskvinnslu til dæmis, sem þeir gætu síðan nýtt sér á heimaslóð- um. Ég bar það undir samgönguráð- herra hvort ef til vill mætti nýta Grænlandssjóðinn að einhverju marki til þessara hluta, og hann tók þeirri hugmynd vel. Nú þegar samgöngur eru þetta auðveldar á milli þessara nágranna, finnst mér eðlilegt að samskiptin verði meiri og þá sérstaklega á þessu sviði. Við Birgir Þorgeirsson hjá Kelly Nicolaisen hóteleigandi og ferðamálastjóri í Angmagssalik. Ferðamálaráði ræddum hins veg- ar fyrst og fremst um aukna sam- vinnu í sambandi við auglýsingar á ferðum til Grænlands. Það kom til tals að hefja útgáfu bæklinga, þar sem Island væri sérstakiega kynnt sem áfangastaður á leiðinni til Grænlands. Með öðrum orðum, að bjóða ferðamönnum upp á möguleika að sækja bæði löndin heim, vera kannski 4 til 5 daga á íslandi og svipaðan tíma á Græn- landi. Þetta gæti orðið báðum að- ilum til góðs. En þessi mál eru öll á frumstigi ennþá," sagði Kelly Nocolaisen, en hann fer aftur til Grænlands nk. þriðjudag með næsta flugi Helga Jónssonar. Það kom fram í máli Nicolaisen að á milli 6 og 7 hundruð erlendir ferðamenn hefðu komið til Aust- ur-Grænlands sl. ár, þar af um 300 með Flugleiðum, í sérstökum 4—5 daga ferðum sem Grænlendingar hafa skipulagt í samvinnu við Flugleiðir undanfarin tíu ár. Aðstoð við kartöflubændur: Bíður ríkisábyrgðar- heimildar Alþingis AFGREIÐSLA Bjargráðasjóðs á um- sóknum kartöflubænda um lán úr sjóðnum vegna uppskerubrests f haust bíður ríkisábyrgðarheimildar sem alþingi þarf að gefa til að sjóður- inn geti tekið nauðsynleg lán. Að sögn Magnúsar E. Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Bjargráðasjóðs, fór landbúnaðarráðherra fram á það við stjórn sjóðsins að kartöflubænd- um yrðu lánaðar 30 milljónir, en áður hefur sjóðurinn haft milligöngu um styrk til þeirra vegna áburðarkaupa. Sagði Magnús að ekki væri vitað hvenær hægt yrði að afgreiða þessi lán, fyrst væri að fá heimildina og síðan tæki það sinn tíma að af- greiða lánin. Aðspurður um hvort umsóknir bænda og búnaðarsam- banda á óþurrkasvæðunum síð- astliðið sumar hefðu verið af- greiddar sagði Magnús að svo væri ekki. Borist hefðu nokkrar um- sóknir af öllu landinu en þær yrðu skoðaðar á grundvelli forðagæslu- skýrslna og síðan lagðar fyrir fund í stjórn sjóðsins um næstu áramót. Framkvæmdastofnun ríkisins Áætlanadeild auglýsir: Nýlega kom út ritiö: Vinnumarkaöurinn 1982 (mannafli, meöallaun, atvinnuþátttaka). Jafnframt er enn fáanlegt ritiö: íbúðaspá til ársins 1990. Ritin eru til sölu í afgreiöslu áætlanadeildar og kosta kr. 100 og kr. 50. Framkvæmdastofnun ríkisins. Áætlanadeild, Rauðarárstíg 25,105 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.