Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 1
Sunnudagur 13. maí Litla landið Liechtenstein Vaduz-kastali stendur í hæðinni fyrir ofan borgina Vaduz. Fursta- fjölskyldan býr þar og hann er lokaður almenningi. Hans Adam, erfðaprins, er fœddur 14.febrúar 1945. Hann ólst upp í Vaduz-kastalanum, en Franz Josef II, faðir hans, er fyrsti furstinn sem býr í Liechten- stein. Forfeður hans stjórnuðu landinu frá Austur- ríki. Erfðaprinsinn sótti barnaskóla í Vaduz, höfuð- borg landsins. Hann gekk í menntaskóla í Vín í Austurríki, og háskóla í St. Gallen í Sviss. Hann lauk hagfrœðiprófi árið 1969. Hans Adam gekk að eiga Marie Aglae Kinsky, greifinnu frá Prag (fœdd 14. apríl 1940), 30. júlí 1967. Þau eiga þrjá prinsa og eina prinsessu. Elsti drengurinn er fæddur 1968, en stúlkan er yngst, fœdd 1973. Erfðaprinsinn hefur mikinn áhuga á efnahags- og alþjóðamálum. Hann sér um eignir furstafjölskyldunnar og þykir gera það með einstakri prýði. Morgunblaðid/ab. „Haldist hlutirnir óbreyttir þurfum við engu að kvíða“ — sagði Hans Adam, erfðaprins, í einkaviðtali við Morgunblaðið Fámennar þjóðir byggja ísland og Liechtenstein. Hvaða hlutverki geta svona litlar þjóðir gegnt á al- þjóðavettvangi? Stærð þjóðar hlýtur ávallt að hafa áhrif á hlutverkið sem hún getur gegnt. Það er augljóst að Islendingar, sem eru þó nokkuð fleiri en við, geta framfylgt mun virkari utanrikisstefnu en við. Við höfum aðeins einn sendi- herra erlendis. Hann er búsettur í Bern, Sviss, og er einnig sendi- herra okkar í Austurríki. fbúar Liechtenstein eru svo fáir (26.500) að við verðum að takmarka fulltrúa og sendi- nefndir við ráðstefnur og þing sem snerta okkur beint. En ég held að einmitt vegna þess að við erum svo fáir getum við gert gagn á þessum ráðstefnum. Við getum fylgt mjög sjálfstæðri stefnu á fundum og aðrar þjóðir gruna okkur ekki um græsku. Við höfum aðeins áhuga á mál- efnum sem koma okkur við og höfum fyrst og fremst áhuga á eigin hagsmunum. Liechtenstein er hlutlaust ríki eins og Austurríki og Sviss. Gæti það gegnt hlutverki milligöngu- manns milli stríðandi ríkja eins og Sviss hefur gert? Það er hlutverk sem Sviss hef- ur gegnt í mjög langan tíma og hefur aðstöðu og aðbúnað til. Það hefur sendiráð út um allan heim og ég held að það hafi eina fjölmennustu sendinefndina við Sameinuðu þjóðirnar þótt það sé ekki aðili að þeim. Við gætum aldrei gert hið sama og Sviss- lendingar. Fulltrúi Liechtenstein sótti fund- ina í Helsinki, Madrid og Stokk- hólmi. Er líklegt að eitthvað komi út úr fundinum í Stokkhólmi? Ég er hræddur um að lítið komi út úr honum. En hvert skref skiptir miklu máli og lítið skref í rétta átt í Stokkhólmi væri betra en ekkert. Það er á ráðstefnum sem þess- um sem við viljum vera virkir þátttakendur. Við sendum gott fólk sem er fært um og getur gegnt gagnlegu hlutverki. Við reynum að leggja til hugmyndir sem geta leyst viss vandamál og okkur hefur tekist það. Aðrar þjóðir hafa þakkað okkur fyrir að gegna jákvæðu hlutverki — líklega stærra hlutverki en stærð okkar bendir til. Við vilj- um vera virkir þátttakendur á þessum vettvangi þar sem mál- efni Evrópu eru mjög mikilvæg fyrir okkur. Liechtenstein hefur haft fasta fulltrúa við Evrópuráðið í Strass- bourg síðan 1978. Er það mikil- vægt fyrir ykkur? Já, það er mikilvægt þar sem Evrópuráðið fjallar t.d. um um- hverfis-, skóla- og menningar- mál sem snerta okkur beint. Við eigum einnig sæti í einkaleyfa- stofnun Evrópu en hún skiptir okkur verulegu máli þar sem við gefum ekki út okkar eigin einka- leyfi. Hefur aldrei komið til tals að Liechtenstein gangi í NATO? Nei, það kemur ekki til greina af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi erum við umkrngd tveimur hlutlausum ríkjum og það yrði erfitt að komast til okkar. Og í öðru lagi höfum við ekki her ... Það er satt, þið hafið hann ekki heldur. — ísland er staðsett hernaðarlega á mjög mikilvæg- um stað en Liechtenstein skiptir engu máli hernaðarlega séð. Auk þess tel ég að það sé nógu erfitt fyrir NATO-löndin að komast að samkomulagi nú án þess að Liechtenstein bætist í hópinn og fari að segja hvað það vilji og hvað það vilji ekki gera. Hvaða áhrif hafa efnahagserfió- leikar í heiminum undanfarin ár haft á Liechtenstein og eignir furstafjölskyldunnar? Þjóðin komst mjög vel í gegn- um erfiðleikana. Við erum svo SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.