Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984 67 Bæjarstjórinn í Stavanger, Kari Thu, í atvinnulífi, og þegar fram líða stundir mun alþýða manna þar í landi njóta góðs af þeim. „Við hér í Skandinavíu vorum með barlóm... “ Auðvitað er ástandið í Noregi allt annað en á Englandi. Vanda- málin eru allt önnur og því ekki hægt að líkja þessu saman. En ef Hægriflokkurinn væri einn við völd hér í Noregi myndi stjórn- arstefnan vera önnur. Samstarfs- stjórnir líða alltaf fyrir það, að taka verður tillit til samstarfsað- ilanna, það eru málamiðlana- stjórnir." — Hefur Hægriflokkurinn komið einhverju til leiðar, sem þú ert stolt af ? „Já, auðvitað hefur margt tekist ágætlega. T.d. hefur sala á út- flutningsvörum okkar Norðmanna aukist verulega á erlendum mörk- uðum, samtímis sem innflutning- ur hefur minnkað nokkuð. Verð- lagshækkanir eru nú aðeins helm- ingur þess sem var í tíð Jafnaðar- flokksins og fjöldi vinnustaða hef- ur aukist að mun.“ — Hvernig horfir þetta við sveitarfélögunum og bæjarfélög- unum? Hefur hægristjórnin ekki rekið niðurskurðarhnífinn í ýmis- legt upp á síðkastið? „Félagsleg þjónusta er fyrir- ferðarmikil hérna í Stavanger og auðvitað tekur fjárhagur bæjarfé- lagsins mið af því. Mikill hluti fjármunanna fer til félagslegrar skrifstofu sinni. þjónustu og svigrúm bæjarstjórn- arinnar er nokkuð þröngt af þeim sökum. Félagsleg þjónusta er mik- ilvæg, sérstaklega við ellilífeyris- þega. Ég man að ég sat einu sinni á samnorrænni ráðstefnu, þar sem umönnun aldraðra var til um- ræðu. Við hér í Skandinavíu vor- um með mikinn barlóm yfir fjár- frekum opinberum aðgerðum, en þið íslendingar leystuð þessi mál á langtum ódýrari og kannski mannlegri máta. Ég hef á tilfinn- ingunni að betur sé hugsað um aldraðra á íslandi en á hinum Norðurlöndunum." Ég segi ekkert, þó mig dauð- langi til að segja nokkur vel valin orð um ellilífeyrinn. Ég veit sem er, að aldraðir komast síður en svo betur af hér í Noregi en heima á Fróni, og þar er ekki aðeins um fjármál að ræða, heldur einnig al- menna afstöðu fólks til aldraðra. — Á að skera niður félagslega þjónustu, spyr ég varlega. „Nú verður breyting á skipulagi fjármálanna. Sérhvertt sveitarfé- lag og bæjarfélag fær ákveðna fjármuni frá ríkinu, eftir hlutfalli og þörf, og getur síðan ráðstafað þessum fjármunum að miklu leyti eftir eigin höfði eða þörfum, án íhlutunar ríkisins. Ég er sannfærð um að aukið svigrúm til að færa fjármagnið til allt eftir þörfum hvers einstaks sveitarfélags mun reynast betur en miðstýrð fjár- miðlun.“ — Er ekki Stavanger á grænni grein fjárhagslega eftir að olíu- Ljósm.: Kr.G. ævintýrið hófst? „Stavanger hefur ágætan fjár- hag og það er að nokkrum hluta að þakka olíuvinnslunni. Hún hefur aukið fjölbreytni atvinnulífsins mikið og dregið fjármagn að bæn- um. Fjárhagur okkar batnaði svo í upphafi olíuvinnslunnar, að bæj- arfélagið fjárfesti í ýmsu og hóf rekstur á fyrirtækjum. Nú þegar erfiðari tímar fara í hönd, er ekki eins auðvelt að losa sig út úr slík- um fjárfestingum. Við viljum halda vinnustöðunum gangandi og bæta við nýjum. Það er mikilvægt að atvinnulífið staðni ekki og atvinnuleysi verði ekki að stóru vandamáli hér. Þess vegna höfum við lagt áherslu á vísindastörf í tengslum við atvinnulífið. Fylk- isháskólinn hér í Stavanger vinn- ur að slíkum rannsóknum, bæði á sviði olíuvinnslunnar og eins í fé- lagsmálum, m.a. með fjárstuðn- ingi bæjarfélagsins." Nú er ég komin með myndavél- ina á loft og sólargeislarnir laum- ast inn af frostköldum himninum inn á teppalagt gólfið á skrifstofu bæjarstjórans. — Má ég taka mynd af þér? „Já, já. A ég að sitja hér?“ — Viltu ekki sitja við skrif- borðið, það er miklu fagmann- legra? „Guð minn góður. Það er svo mikil óreiða á skrifborðinu." Það er greinilegt að bæjarstjór- inn er líka húsmóðir, hugsa ég þegar ég kveð Kari Thu og smokra mér út í frostið. Tilboð sem verður ekki endurtekið Gildir til 19. maí ’84. 30% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum verzlunarinnar ATH: OPIÐ: alla daga frá kl. 9—6 laugard. 12.5 og 19.5 optð frá kl. 10—3 e.h. Tílboöiö veröur ekki endurtekíö. K.M. Hósgögn Langholtsvegur III — Símar 3701 0— 37144 — Reykjavík. w«irsnm */+ __ /Ái| *' FERÐASKRIFSTOFA VBV RtKlSlXS Skógarhlíð 6. Sími 25855. Eins og aö undanförnu mun Feröaskrifstofa ríkisins bjóöa upp á feröir um landiö í sumar undir leiösögn fróöra og reyndra manna. Fariö veröur um helstu héruö landsins, svo fólki gefst kostur á aö skoöa fagra og merka staði, rifja upp atburöi og sögur sem tengjast þeim og njóta náttúru landsins áhyggjulaust um mat, næturstað og leiöir. HRINGVEGURINN Á 10 DÖGUM Fararstjóri í öllum ferðum: Guömundur Guöbrands- son. Brottfarardagar: 6. júlí, 20. júlí, 2. ágúst. VESTFIRÐIR/SNÆFELLSNES — 9 DAGAR Fararstjóri í öllum feröum: Jón Böðvarsson. Brottfarardagar: 3. júlí, 22. júlí, 1. ágúst. Ný ferð: ÍSLENDINGASAGNAFERÐ — 4 DAGAR Ferö um söguslóöir 10—12 islendingasagna meö Jóni Böövarssyni. Þátttakendur fá í hendur gögn varöandi sögurnar. Gist á Hótel Stykkishólmi allar næturnar og fariö þaöan í ferðir um Snæfellsnes og Dalasýlu. TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI í ALLAR FERÐIR. Nánari upplýsingar og bókanir á Feröaskrifstofu ríkisins, Skógarhlíö 6, sími 25855. íMíðarkápu! Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr og þá geta skapast vandræði. Forðum því. Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin. Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. j Hafið samband við sölumann. Múlalundur Ármúla34 - Símar 38400 og 38401 - 105 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.