Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 36
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
Jakob Magg
í Centaur
HLJÓMSVEITIN Centaur hefur
fengið góöan liðsauka. Er þaö
bassaleikarinn Jakob Magnús-
son, sem síðast plokkaði bass-
ann hjá Tappa Tíkarrassi. Þór-
hallur Björnsson gerði stuttan
stans í Centaur og er nú hættur.
Þar með eru allir fyrrum meö-
limir Tappa Tíkarrass komnir í nýj-
ar sveitir, að Guðmundi Gunnars-
syni, trymbli, undanskildum. Hann
er þó sagöur leita logandi Ijósi aö
mönnum til að spila með. Áöur
voru þau Eyólfur Jóhannsson, nú í
Dái, og Björk Guömundsdóttir, nú
í Kukli, búin aö finna sér farveg.
Sveinarnir i Centaur eru sagöir
ætla aö gera lokatilraun í sumar til
þess aö troða grýtta framabraut-
ina. Gangi dæmiö ekki upp er allt
eins víst aö dragi til tíöinda t haust.
Vígaiegur aö vanda. Angus,
„Gusai“, Young geiflar sig. Má
vart minna vera hjá höfuðpaur
AC/DC, aöalnúmerinu á Doning-
ton.
Bárujárns-
klúbburinn
blómstrar
Stefnan tekin á Don-
ington-rokkhátíðina
JÁRNSÍÐAN skýrði fyrir ail-
nokkru frá því, að fyrir dyrum
stæði stofnun bárujárnsklúbbs í
höfuðborginni. Klúbbur þessi
hefur nú þegar verið stofnaður og
var honum gefið nafniö Skarr á
félagsfundi þann 14. apríl sl.
Skarr er fornt íslenskt orð yfir
sverð.
Skráðir meðlimir Skarrs eru nú
140 í Reykjavík og nágrenni en
auk þess hafa veriö stofnaðir
klúbbar á Sauðárkróki og á Akur-
eyri í tengslum við Skarr. Klúbb-
urinn á Króknum heitir Lubbi og
eru félagsmenn 25 talsins. Svip-
aður fjöldi fólaga er í Akureyrar-
klúbbnum.
Á siöasta félagsfundi var kjörinn
formaður svo og starfsstjórn. Sig-
uröur Sverrisson var kjörinn for-
maður, en í stjórn sitja þeir Andrés
Magnússon, Brynjar Klemensson
og Eiríkur Hauksson. Stjórnin hélt
fysta fund sinn fyrir skemmstu og
á honum var ákveöiö aö reyna aö
fá hljómsveitina Tigon (hét áöur
Clive Burr’s Escape) hingaö til
lands. Burr var fyrrum trommari Ir-
on Maiden og lék m.a. á fyrstu
tveimur plötum sveitarinnar. Þaö
skýrist á næstunni hvort og þá
hvenær sveitin heimsækir ísland í
nafni Skarrs.
Hópferö á Donington-rokkhátíð-
ina í Bretlandi i ágúst er eitt af
meginmarkmiöum klúbbsins í ár.
Er mikill áhugi fyrir þátttöku í ferð-
inni. Félagsmenn fá sérstök kjör.
Þeir, sem hafa áhuga á aö vera
meö í feröinni, geta snúiö sér til
klúbbsins og gerst meölimir. Næsti
fundur er 2. júní og þurfa þeir, sem
ætla aö vera meö í feröinni, þá aö
greiöa sérstakt staöfestingargjald.
Kikk-flokkurinn gripinn glóðvolgur:
„Bjóðum sennilega upp
á eitt eða tvö faðmlög“
„ÞAÐ er ekki endanlega búið aö
ganga frá upptökunum, en við erum
aö vinna aö því af fullum krafti aö
Ijúka þessu," sögöu þeir Sveinn
Kjartansson og Guömundur Jóns-
son í Kikk er Járnsíöan rabbaöi viö
þá fyrir nokkrum dögum. Kikk hefur
aö undanförnu unnið sleitulaust í
Hljóörita við upptöku fyrstu plötu
sinnar, sem væntanleg er á markaö
á vegum Steina hf. eftir nokkrar vik-
ur. Ef aö líkum lætur veröur hér um
6-laga plötu aö ræöa.
Tæpt ár er nú liðiö frá því fyrst var
talaö um aö Kikk gæfi út hljómplötu.
Sveitin var varla fyrr komin á götuna
en henni var óformlega boöinn
plötusamningur. Einhverra hluta
vegna varö ekkert úr framkvæmdum
fyrr en núna og á þeim tíma, sem
liðiö hefur, hafa bæöi oröiö breyt-
ingar á liösskipan Kikk og tónlist
hljómsveitarinnar.
Upphaflega voru í sveitinni þau
Gunnar Rafnsson/hljómborö, Sig-
uröur Helgason/trommur og Sigríð-
ur Beinteinsdóttir/söngur auk þeirra
Sveins, sem leikur á bassa, og Guö-
mundar, sem sér um gítarleikinn.
Gunnar hætti tiltölulega snemma og
gekk til liðs viö Egó, en siöar hætti
Siguröur og viö tók Jón Björgvins-
son, sem áður lék meö KOS. Nikulás
Róbertsson haföi áöur tekið viö af
Gunnari.
Biðin til góðs
„Viö höfum vafalaust haft gott af
þessari bið," sögöu strákarnir. „Þeg-
ar þetta kom fyrst til tals þekktust
meölimir hljómsveitarinnar nánast
ekki neitt. Tengsl þeirra, sem eftir
sitja í sveitinni, hafa styrkst vel og
tónlistin hefur tekiö heilmiklum
breytingum þótt viö höfum haldið
ikarus-sveitin í nær allri sinni dýrð. Kormók vantar nefnilega á myndina.
íkarus sendir frá
sér aðra breiðskífu
FYRSTA útgáfuplata Gramms á
þessu ári — og hún er jafnframt
sannkölluð sumarplata — er ný
breiöskífa með íkarusi. Á henni
eru 10 lög og ber hún nafniö „Rás
5—20“. Segir í snaggaralega
orðaðri fréttatilkynningu frá
Gramminu, að á plötunni sé íkar-
us á „nýjum rásum“.
Fyrir þá, sem ekki eru alveg með
á nótunum hvaö íkarus er, sakar
ekki aö geta þess, aö þetta er
feikifrískur flokkur manna undir
forystu Þórláks Kristinssonar
(gjarnan kallaöur Tolli Morthens).
Meö honum eru ekkl ómerkari
menn en Megas, Bergþór
Morthens, Bragi Ólafsson og
Kormákur Geirharösson.
Nokkuö langt er um liöiö frá því
þessi plata hófst í vinnslu. Fyrstu
upptökurnar voru geröar fljótlega
eftir hina eftirminnilegu tónleika
„Viö krefjumst framtíöar" sl. haust.
Hefur vinnslan staöið yfir meö hlé-
um. Ef marka má fyrri plötu íkar-
uss-hópsins, sem var fantalega
góö á köflum, er „Rás 5—20“ grip-
ur sem vert er aö taka eftir.
okkur nokkuö aö upprunalegum
hugmyndum. Upphaflega mættust
mjög ólíkir pólar innan sveitarinnar
og þaö tók sinn tíma að slétta mis-
fellurnar. Undanfarna mánuöi hefur
skipanin veriö óbreytt og allir eru
sáttir viö þá stefnu, sem nú er.“
— Nú hafið þiö spilað mjög lítiö í
vetur, hver er skýringin?
„Þaö hefur eitt og annaö komiö til,
m.a. sú staöreynd aö viö áttum alltaf
aö vera á leiðinni í hljóöver. Sú til-,
hugsun kom einhvern veginn í veg
fyrir alla framtakssemi á tónleika-
sviðinu. Vonandi veröur breyting á
þessu eftir aö upptökunum lýkur.
Hafi menn áhuga á að fá okkur til aö
spila er hægt aö ná í okkur í símum
15310 og 79479 (Sveinn).“
— Hvernig hefur svo gengið í
hljóðverinu?
„Bærilega, þakka þér. Þaö hefur
eölilega tekiö okkur sinn tíma aö
komast inn í hlutina, en þetta er sem
betur fer allt í áttina. Viö erum búin
aö fullvinna grunna og annaö slíkt en
söngurinn er enn eftir. Samvinnan
við Gunnar Smára og Tomma Tomm
hefur gengiö eins og i sögu."
— Hefur eitthvert nafn veriö
fundiö á plötuna?
„Nei, ekkert sérstakt. Ætli hún
heiti ekki bara Kikk.“
— Hvernig tónlist fær fólk aö
heyra á þessari plötu?
„Þaö veröur allra handa rokktón-
list. Keyrslan veröur eftir sem áöur
ráöandi í þessu, en við bjóöum
sennilega upp á eitt eöa tvö faðmlög
(Þessi lög hafa til þessa veriö þekkt
undir nafninu vangalög -SSv.)
— Hvaöa vonir gerið þið ykkur
meö þessa fyrstu plötu?
„Þaö er í sjálfu sér érfitt að gera
sér einhverjar fyrirfram mótaðar
vonir, viö getum samt ekki vonaö
annað en hún auki á hróöur sveitar-
innar. Annaö veröur bara að ráð-
ast.“
— Hafiö þið gert samning um
fleiri plötur?
„Nei, viö erum reyndar ekki einu
sinni búnir aö skrifa undir samning
um þessa plötu. Undirskriftin er þó
bara formsatriöi úr þessu. Samning-
urinn hljóðar hins vegar bara upp á
þessa einu plötu. Það kemur seinna
í Ijós hvort viö ráöumst í útgáfu ann-
arrar plötu.“