Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 18
fjfi MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984 Ekki árekstralaust od vera kona í norskri pólitík Kristján Guðlaugsson rœðir við Kari Thu, bœjarstjóra í Stavanger Fyrir skemmstu var forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, boð- ið til Stavanger til að halda aðalræðuna á þjóðhátíðinni 17. maí. Því miður gat ekki orðiö af heimsókn forsetans að þessu sinni, vegna anna. Þetta mun í fyrsta sinni, sem erlendum þjóðhöfðingja er sýndur slíkur heiður. Að baki boðsins stóð önnur kona, bæjarstjóri Stavanger, Kari Thu. Á hrollköldum marsmorgni keypti ég filmu í gömlu myndavélina mína og rölti inn á bæjarskrifstofurnar sem eru til húsa í sama húsi og bókasafnið, mitt í hjarta olíubæjarins. Einkaritari bæjarstjórans tvísté í kringum mig, meðan ég týndi af mér vetrarflíkurnar. „Frúin er við“ sagði hún eins og í trúnaði um leið og hún bankaði varlega á stórar eikardyrnar að skrifstofu Kari Thu. Hlýtt til íslendinga Bæjarstjórinn er myndarleg kona á miðjum aldri, með breitt bros og hlýtt viðmót. Hún vísar mér til sætis við langborð mikið og byrjar strax að inna mig frétta af íslandi. Það er engu líkara en ég sé viðmælandinn en hún frétta- ritarinn. „Já, það var leiðinlegt þetta með hana Vígdísi. En vonandi kemur hún seinna þegar betur stendur á.“ — Er þetta ekki óvenjulegt, að erlendum þjóðhöfðingja sé boðið til að halda hátíðarræðu á þjóðhá- tíðardegi ykkar Norðmanna? „Jú, venjulega eru það nú Norð- menn sem tala á 17. maí, alla vega hér í Stavanger. En Vigdís er svo- lítið sérstök. Fyrir það fyrsta er hún kona og mjög frambærilegur fulltrúi lands síns og svo er hún líka dugleg tungumálamanneskja. En auðvitað iiggja hin sérstöku tengsl íslands og Vestur-Noregs að baki þessu öllu saman. Okkur hér i Vestur-Noregi er hlýtt til ís- lendinga, og flestir eru reyndar komnir héðan af þessum slóðum, ef taka má mark af fornsögunum." — Lestu fornsögurnar? Ég get ekki stillt mig um að spyrja þess- arar spurningar, þótt ég eigi ekki von á jákvæðu svari. „Ég get ekki sagt að ég lesi forn- sögur að jafnaði,“ Kari Thu brosir breitt, „en ég les bækur Veru Henriksen og eins og þú kannski veist fjalla flestar bækur hennar um forfeður okkar á víkingaöld eða miðöldum. Sögusviðið er ekki síður ísland en Noregur í bókum hennar. Mér þykir afskaplega vænt um hana sem rithöfund," bætir hún við. Áður en mér gefst færi á að spyrja hana frekar, upplýsir hún mig um að hún hafi ætíð haft mik- inn áhuga á norrænni sögu. Og böndin milli íslands og Noregs eru svo snar þáttur þeirrar sögu, að heimsókn islensks þjóðhöfðingja á norskum þjóðhátíðardegi er ekk- ert óeðlilegt að hennar mati. — Hvernig kom þetta til? „Ja, eiginlega var það þjóðhátíð- arnefndin, sem lagði þetta til. Það var hringt í mig og ég skrifaði bréf um hæl til íslands. En því miður gat ekki orðið af þessu að þessu sinni. En ég vona að Vigdís geti komið í heimsókn seinna." — Það stendur ekki til að setja Hafursfjarðarorrustuna á svið, líkt og gert var með Stikla- staðabardaga, spyr ég. „Mikil ósköp, það hefur þegar verið gert. Þegar minnismerkið um Hafursfjarðarorrustuna var afhjúpað, var leikþáttur fluttur um þá atburði sem Alfred Hauge skrifaði á sínum tíma." — Ég gæti ímyndað mér að for- seti íslands hafði gaman af að heimsækja Stavanger, skýt ég inn í, sérstaklega með leiklistina í huga. „Já, hér er starfrækt barnaleik- hús, hið fyrsta sem sett hefur ver- ið á stofn í Noregi, og kannski þó víðar væri leitað. Við erum mjög stolt af því og ef forsetinn ykkar kemur í heimsókn gef-st henni von- andi tækifæri til að heimsækja það. — Er hugsanlegt að af slíku heimboði verði? „Já, ég get vel hugsað mér að fá Vigdísi hingað sem gest. Við ætl- um að halda Listahátíð hérna í Stavanger á næsta ári og þá væri vissulega gaman ef hún sæi sér fært að koma.“ Konur þurfa að hafa fleira til brunns að bera, en vera konur Meðan Kari Thu skýrir mér frá vinasambandi Stavanger við Nes- kaupstað og aðra bæi á hinum Norðurlöndunum kemur ritarinn inn. Undir hendinni er hann með þykka möppu með margvíslegum upplýsingapésum og kynningar- efni um Stavanger. „Því miður er þetta allt á ensku,“ segir Kari Thu, „við erum bara búin að láta allt af hendi eins og er, en það er í prentun. Ég þakka fyrir mig og velti því fyrir mér hvernig samstarfið milli Nes- kaupstaðar og Stavanger gangi. Kari Thu er bæjarstjóri hægri- flokksins. „Jú, það gengur ágætlega. Auð- vitað er ekki um náið samstarf að ræða, en fulltrúar vinabæjanna hittast reglulega og ræða sam- skipti á sviði íþrótta, skólamála, félagsmála og lista. Én þar fyrir utan eru engin sérstök tengsl, nema hvað við erum alltaf tilbúin að greiða götu fólks frá vinabæj- um okkar, ef það kemur hingað til okkar í heimsókn. Nú, svo hafa stjórnmálaflokkarnir einhver tengsl sfn á milli, hver við sína skoðanabræður." — Er Stavanger hægribær? „Nei, ekki get ég sagt það. Hér hafa ýmsir flokkar farið með völd, bæði hægrimenn, jafnaðarmenn og samsteypur Kristilega Alþýðu- flokksins og Miðflokksins." — Hvenær byrjaðir þú í póli- tík? „Það er orðið langt síðan. En ég var valin í bæjarstjórn árið 1971 fyrir Hægriflokkinn og hef setið þar sfðan. En ég varð ekki bæjar- stjóri fyrr en 1981.“ — Er ekki erfitt að vera kona í norskri pólitík? Nú verður Kari Thu hugsi. „Jú, það er ekki árekstralaust. En þó hefur það breyst mjög á sfðari árum. Konur eiga erfiðara uppdráttar í stjórnmálum en karlmenn, sem kannski sést best af því, hve fáar konur gegna mik- ilvægum embættum í Noregi. Það eru 454 sveitarfélög f landinu og einungis fimmtán þeirra er stjórnað af konum. Hér í Roga- landi eru þrjú sveitarfélög undir stjórn kvenna, en Stavanger er auk Þrándheims eini stórbærinn sem lýtur stjórn konu. Við þurfum langtum fleiri konur í pólitíkina, en það er á brattann að sækja og ekki margar konur sem treysta sér til að takast á við þá erfiðleika sem eru samfara ábyrgðarstörfum í stjórnmálum." — Hver konar breytingar hafa átt sér stað? „Ég held að konur séu betur undirbúnar undir slfk störf nú, en fyrir t.d. tveimur áratugum. Bæði hefur menntun meðal kvenna auk- ist verulega og eins hefur afstaðan til heimilishalds breyst mikið. Ég á tvö börn og er húsmóðir auk bæjarstjórastarfanna og auðvitað hefur þetta tvöfalda álag oftlega valdið árekstrum. En ég er sann- færð um að stjórnmálastörfin hafi ekki bara verið til ama fyrir fjöl- skyldu mína. Börnin hafa til að mynda öðlast betri innsýn f lands- mál og þroskast verulega f félags- legu tilliti. En það er ekki langt síðan ég byrjaði að starfa að stjórnmálum sem heilsdagsvinnu. Ég tók kennarapróf frá Kennara- háskólanum hér í Stavanger 1962 og kenndi við barna- og ungl- ingaskóla allar götur til ársins 1981 er ég var kosin bæjarstjóri." Ég skýri henni frá landvinning- um kvenna í fslenskum stjórnmál- um með nokkru stolti. „Við höfðum líka kvennafram- boð hér í Noregi fyrir nokkrum árum, en árangurinn af því varð kannski fremur sá, að hin fram- boðin rýmdu sæti fyrir konur, heldur en að kvennaframboðið sjálft gerði stóra lukku. Þetta gerðist upp úr kvennaári Samein- uðu þjóðanna 1974 og ég held að það hafi breytt talsverðu." Enn get ég ekki setið á mér að raupa af íslensku kvenfólki og skýri henni frá Læjartorgsfundin- um fræga, þegar nálega hver kerl- ing í Stór-Reykjavík hijóp frá daglegum önnum og amstri til að brýna kynsystur sínar til afreka i jafnréttisbaráttunni. „Kvennaárið var mér mikil hvatning. En ég vil leggja áherslu á það, að Hægriflokkurinn otar ekki konum fram í stjórnmál af því einu saman að þær eru konur. Þær verða að hafa fleira til brunns að bera.“ — Er það ekki dálítið óvenju- legt, að Hægriflokkurinn skuli hafa konu sem bæjarstjóra. Þetta er oft gert að einkamáli sósíal- ista? „Nei, síður en svo. Það er ekki síður hjartans mál hægri flokks- ins en annarra flokka, að konur starfi að stjórnmálum, og við höf- um gert mikið í því sambandi. En afstaða flokksins er sú, að hæfi- leikar og reynsla flokksmanna ráði því hverja verðleika hann eða hún hlýtur í starfi flokksins, ekki kynið.“ — Hvernig lýst þér á Margaret Thatcher og stjórnarstefnu henn- ar í Englandi? „Hún hefur gert margt gott. Enskur efnahagur væri ekki þar sem hann er í dag, ef hún sæti ekki við stjórnvöl Ihaldsflokksins. Efnahagsúrbætur ríkisstjórna Thatchers hafa skapað nýjar vaxt- arforsendur í ensku fjármála- og 60% kynningarafsláttur á vegg- og huröamyndum Veggmyndir 10 fm kr. 688,00. Veggmyndir 5 fm kr. 408,00. 46 gerðir Hurðamyndir 40 gerðir. Verö kr. 274,00. Myndin Dalshrauni 13, sími 54171. Opið alla daga frá kl. 19—18. Laugardaga frá kl. 10—17. Sunnudaga frá kl. 1—5. Svæðameðferðin viðbragðssvæði á fótum er góö heilsubót Svæðanuddstofan, Lindargötu 38. Sími 18612.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.