Morgunblaðið - 13.05.1984, Síða 6

Morgunblaðið - 13.05.1984, Síða 6
 Ef þú nefnir „Krím“ á nafn viö nútíma Rússa mun hann aö öllum líkindum hugsa um sumarfrí. Rússar þrá sólina, eins og annað fólk, sem býr á norðlægum slóðum, og Krímskaginn býður upp á sólbaðsaðstöðu, sem er ekki ósvipuð því sem gerist og gengur í „sólarlöndum“ við Miðjarðarhaf. Fyrir byltingu höfðu rússneski aðallinn og millistéttarfólk komið auga á kosti Krímskagans sem sumarleyfisparadís og leituðu þangað eftir því sem aðstæður á þeim tíma leyfðu. Og það var í rauninni þetta sumarleyfisfólk, frá árunum fyrir byltingu, sem gaf Jalta það yfir- bragð, sem einkennir staðinn í dag. Hinir hæverskari reistu sér villur í hæðunum eða dvöldu á hótelum, en stórmennin byggðu sér hallir. Auðugar aðalsættir reistu þarna glæsilegar byggingar, þar á meðal hinn enskmenntaði Mikhail Vorontsov, prins, en með hjálp bresks arkitekts lét hann reisa höll að Alupka, skammt frá Jalta, sérkennilega eftirlíkingu af Tudorhöll þar sem einnig má greina arabísk áhrif. Steinninn í bygginguna er fenginn á staðnum og er hann sagður sterkari en granít, en hefur því miður á sér græn- leitan blæ Hallirnar meðfram baðströndunum við Jalta veittu byltingarmönnum áþreifanlegt tækifæri til að sýnast og slá um sig eftir að þeir náðum völdum. í tilskipun, sem undirrituð er af Lenin sjálfum og gefin var út árið 1920, segir m.a. að „hinar glæsilegu villur og höfðingja- setur, sem áður voru í eigu auð- ugra landeigenda og kapítalista, og hallir keisaraættarinnar og erkihertoga, verða nú notuð sem heilsu- og hressingarhæli fyrir iðnverkafólk og fólk sem starfar í landbúnaði". Simferopol, þar sem helsti flugvöllurinn á Krím er, var eitt sinn svo slæmur að það tók fimm klukkustundir að aka til Jalta. Nú er hægt að komast þessa leið á hálfum öðrum tíma, og sovéska flugfélagið Aeroflot notar stærstu og nýjustu vélar sínar á flugleiðinni Moskva- Simferopol. Sumir koma á eigin bílum, en talið er að um þrjár milljónir bifreiða séu nú í einkaeign í Sovétríkjunum og yfirvöld fullyrða að einkabílar í Moskvu séu nú orðnir fleiri en ríkisbifreiðir, og hefur þar orðið mikil breyting á s.l. tíu ár. Yfir hásumarið streymir sumarleyfisfólkið til Jalta í þús- undatali. Sumir búa í tjöldum, Á ströndinni er maður við mann, rétt eins og á öðrum sólarströndum. Höllinnni, sem zarinn lét reisa í Livadia, nálægt Jalta, var breytt í heilsuhæli fyrir bændur, hið fyrsta sinnar teg- undar í heiminum. Staðurinn er að vísu fremur óaðlaðandi, en þjónar sínum tilgangi, og þarna geta bændurnir yljað sér við þá tilfinningu að ganga um salar- kynni hinns fallna keisara. Fram til þessa hefur það verið yfirlýst stefna hins opinbera að leggja áherslu á uppbyggingu hressingarhæla á þessu svæði, og þar eru nú 120 slík, sem rúma um 40 þúsund manns. Verkalýðsfélögin hafa umsjón með leyfisveitingum fyrir dvöl á þessum stofnunum, þar sem ekki er gert ráð fyrir hefð- bundnu sumarleyfi á vesturevr- ópska vísu, heldur eins konar blöndu af læknismeðferð og skipulögðum skemmtunum. I fæstum tilfellum er gert ráð fyrir fjölskyldum á þessujn stofnunum, þótt nokkrar hinar nýrri bjóði upp á slík hlunnindi. í seinni tíð hefur þó nýtt fyrirbrigði skotið upp kollinum á ströndunum við Jalta. Ferða- fólk hefur uppgötvað þessa sól- skinsparadís og er farið að venja þangað komur sínar í sí- auknum mæli. Fólk þetta er yf- irleitt úr stétt hinna betur settu í Sovét, sem ekki er bundið við leyfisveitingar hins opinbera, og myndi eflaust ekki þiggja dvöl á heilsuhæli í sumarfríinu, sem þýddi í flestum tilfellum aðskilnað frá fjölskyldunni. Þessir sumarleyfisgestir setja æ meiri svip á lífið á þessum slóðum yfir sumarmánuðina og er ýmislegt gert til að mæta þörfum þeirra. Vegurinn frá Sovétmenn hafa löngum þótt góðir skákmenn og hér er fþróttin iðkuð undir berum himni. Sumarleyfisgestur á einu heilsu- hælanna í meðferð. aðrir eru á hótelum eða leigja herbergi í einkaíbúðum. í mörg- um tilfellum hefur það staðið í ströngu við að komast á stað- inn, því slegist er um flugfar- seðla, og í sumum tilfellum hafa menn orðið að finna leið fram- hjá vegatálmum lögreglunnar, ef yfirvöldum hefur þótt ásókn fólksins á strendurnar helst til mikil. Að vísu finnast aðrir „suðrænir" blettir, sem Rússar geta leitað til innan landamæra Sovétríkjanna, svo sem í Kákas- us, en þeir staðir hafa ekki eins mikið aðdráttarafl og strend- urnar við Jalta, sem hafa það m.a. framyfir aðra staði að geta státað af minnisvörðum frá tímunum fyrir byltingu. Eitt einkenni á Jalta og Krím frá fyrri tímum er þó horfið, enj það eru tatararnir, sem þar voru fjölmennir hér í eina tíð. Stalín gerði þá útlæga frá Krím árið 1944, fyrir meinta sam- vinnu við Þjóðverja i stríðinu, og voru þeir fluttir brott á fremur hrottalegan hátt. Tatar- ar voru sýknaðir af þessum ásökunum árið 1967, en hefur þó enn ekki verið leyft að snúa aftur til Krím frá útlegðinni í Mið-Asíu. Ibúar á Krím eru nú aðallega Rússar og Ukraínu- menn, sem margir hverjir fluttu þangað þegar Stalín rak tatara í útlegð. Þetta fólk hefur nú orðið að laga sig að hinum breyttu aðstæðum sem ferða- mannastraumurinn hefur í för með sér. Og hin nýja stétt Ungir elskendur á diskóteki. ferðamanna gerir sifellt meiri kröfur um bætta aðstöðu. Sov- ésk yfirvöld vita að þessum kröfum verður að mæta að ein- hverju leyti. Dvöl á heilsuhæl- um og hvíldarheimilum er vissuiega góðra gjalda verð, en jafnframt gera yfirvöld sér ljóst að erfitt verður að loka augunum fyrir þeirri þróun sem nú á sér stað í ferðamálum og breyttum viðhorfum Rússa til þess, hvernig verja skal sumar- leyfinu. (Byggt á Obáerver.) (iestir á einu heilsuhaelanna spóka sig léttklsddir á ströndinni. Þar sem þeir rauöu verða brúnir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.