Morgunblaðið - 13.05.1984, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
87
Hér kynnir Ingólfur Guðbrandsson þátttakendurna 16 sem kepptu til úrslita í keppni Útsýnar. Morgunbiaðið/RAX
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar, segir afmælisbarninu, Guð-
finnu Lýðsdóttur, frá því hvað hún fær í afmælisgjöf frá Útsýn.
Vorblót Útsýnar:
Ungfrú Útsýn 1904 var afmæl-
isbarnið kallað á hátíðinni
ÞAÐ VAKTI mikla athyli Broad-
way-gesta á vorblóti Útsýnar, þegar
Ingólfur Guðbrandsson kallaði einn
gestanna upp á sviðið og gesturinn
reyndist vera Guðfínna Lýðsdóttir,
sem var stödd í Broadway þetta
kvöld ásamt fjölskyldu sinni, til þess
að halda upp á áttræðisafmæli sitt.
Ingólfur kynnti Guðfínnu fyrir gest-
unum og var henni fagnað sem
Ungfrú Utsýn 1904.1 tilefni dagsins
bauð Ingólfur Guðfínnu ferð eftir
eigin vali nú í sumar, og tilkynnti
hann henni að hún mætti fara hvert
sem hún vildi og vera eins lengi og
hún vildi. Var ekki annað að sjá en
Guðfínna kynni vel að meta boðið.
Morgunblaðið hefur áður greint
frá því hverjir voru valdir Herra
og Ungfrú Útsýn 1984, en það val
fór fram úr hópi 60 keppenda, en
þó með þeim hætti að valið var til
úrslita. Það voru 12 stúlkur og 4
piltar sem kepptu til úrslita og
varð Dagný Davíðsdóttir hlut-
skörpust stúlknanna en ívar
Hauksson piltanna. Allir keppend-
urnir sem kepptu til úrslita munu
fara í ferð á vegum ferðaskrifstof-
unnar Útsýnar nú í sumar.
Mikill fjöldi fylgdist með þegar úrslitin í keppninni um Herra og Ungfrú Útsýn voru kynnt á Broadway.
Ungfrú
Campari
ÁÐUR en árleg keppni barþjóna um besta hanastél-
ið hófst á Hótel Sögu sl. -sunnudagskvöld, kynntu
umboðsmenn ýmissa víntegunda vöru sína í Lækj-
arhvammi, og var gestum boðið að fá sér hressingu
þar fyrir keppnina. Það vakti athygli, að við
Campari-borðið var ung jassballettkona, Jenný Þor-
steinsdóttir, sem bar borða sem á var letrað Ungfrú
Campari. Jenný sýnir og kennir jassballett í
Dansstúdíói Sóleyjar og við birtum hér mynd af
henni og aðra af umboðsmanni Campari, Birni
Thors, með Jenný, konu sinni Jórunni Thors og syni
hennar, Jóhanni Steinssyni, veitingastjóra í Broad-
way.