Tíminn - 31.08.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 31.08.1965, Blaðsíða 2
TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 31. ágúst 1965 MÁNUDAGUR 30. ágúst NTB—Kaupmannahöfn. C.V.Bramsnæs, fyrrum fjár- málaráðherra Dana og Þjóð- bankastjóri, lézt í Kaupmanna- höfn í gær. Hann var einn af helztu stuðningsmönnum nor- rænnar samvi'nnu, og stofnaði Norræna félagið árið 1919. Bramsnæs varð 86 ára gam- all. NTB—París. Ball, aðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna mun ræða við de Gaulle á morgun, þriðjudag. De Gaulle dvaldist á sveitasetri sínu í Colombey- lesi-deus-Eglises um helgina, en er nú kominn aftur til Par- ísar. Ball er í opinberri heimsókn í Frakklandi ágamt fjármála- ráðherranum Henry Fowler, en talið er að hinn eiginlegi til gangur farar hans sé að ræða við de Gaulle. Sagt er að John son Bandaríkjaforseti vilji skýra sjónarmið sin í Víetnam- deilunni og kynna sér jafn- framt skoðanir de Gaulle á endurskipulagningu samstarfs Bandaríkjanna og annarra ríkja á Vesturlöndum. Henry Fowler mun ræða við franska fjármálaráðherrann, Valery Giscard d‘Estaing, um alþjóðleg gjaldeyrismál. NTB—Stokkhólmur. Miklar óeirðir urðu í Stokk- hólmi um helgina. Á laugar- dagskvöldið söfnuðust ungling ar saman í miðborginni og hófu ærsl og óspektir. Lög- reglustjórinn í Stokkhólmi hef ur tilkynnt, að hér eftir verði tekið harðar á slíkum óeirðum en hingað til, og sé hugsan- legt, að notaðar verði vatns- slöngur til þess að stilla til friðar. Á su'nnudagskvöldið reyndu unglingar aftur að efna til ó- eirða, en 50 af þeim voru hand teknir, og hjaðnaði þá allt niður. Eipnig kom til átaka í Gautaborg, og voru 10—12 umglingar handteknir þar. Blöð útvarp og sjónvarp gerðu mjög mikið úr þessum atburðum. NTB—Moskvu. Nasser, forseti Arabiska sam bandslýðveldisins, ræddi í morgun á ný við Kosygin, for sætisráðherra Sovétríkjanna, Breznev, aðalritara kommún- istaflokksins og Mikojan for- seta. Sjeljepin, aðstoðarforsæt- isráðherra og Malinovski, land- varnaráðherra, voru viðstaddir. Ekkert hefur frétzt af viðræð um þessum, og ekki hefur feng izt upplýst, hvort Nasser hafi lagt fyrir hina sovézku ráða- menn áætlun um friðarsamn- inga í Víetnam. Frá Kairó ber ast þær fréttir, að Nasser hafi lagt fram áætlun, sem undir- búin er af forystumönnum hlut lausra ríkja. í Moskvu er talið ólíklegt, að opinber tilkynning verði gefin út um tillögur Nassers fyrr en hann hefur rætt nánar við leiðtoga hlutlausra ríkja. Fyrsti fundur stjórnar Norræna hússins í Reykjavík var hald- inn föstudaginn 27. ágúst s. I. í Reykjavík. f stjóminni eiga sæti sjö menn, skipaðir af menntamálaráðuneytum Norður- Iandar,íkjanna fimm: Frá Danmörku Eigil Thrane, skrifstofu- stjóri, frá Finnlandi Ragnar Meinander, skrifstofustjóri, frá íslandi Ármann Snævarr, háskólarektor, skipaður eftir tBnefn- ingu Háskóla fslands, Gunnar Thoroddsen, ambassador, skipað- ur eftir tilnefningu Norræna félagsins, og Halldór Laxness, rit- höfundur, skipaður af menntamálaráðhen-a án tilnefningar. Fulltrúi Norðmanna er Johan Z. Cappelen, ambassador, og full- trúi Svía Gunnar Hoppe, prófessor. AlUr ofangreindir stjómar- menn sótfcu fundinn, nema Gunnar Thoroddsen og Johan Z. Cappelen, er ekki gátu komið, en í stað þeirra sátu fundinn, varaformaður Norræna félagsins Vilhjálmur Þ. Gíslason, út- varpsstjóri, og Odvar Hedlund, framkvæmdastjóri. Formaður stjórnarinnar var kjörinn Ármann Snævarr og varaformaður Ragnar Meinander. f þriggja manna framkvæmdanefnd, er samkvæmt reglum stofnunarinnar skal starfa innan stjómarinn- ar voru kjömir Ármann Snævarr, formaður, Ragnar Meinander og Eigil Thrane. , Bygginganefnd Norræna hússins hélt fund í Reykjavík Iaug ardaginn 28- ágúst. Menntamálaráðuneytið, 28. ágúst 1965. Elías Tsirímokos baðst lausnar NTB—Aþenu, mánudag. Elias Tsirimokos, sem baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á sunnudag, hefur sungið upp á ,að mynduð verði eins og hann orðaði það „pólitísk stjórn í Grikklandi“ en ekki stjórn „fyrirferðarmikilla manna.“ Tsirimokos sat tí dag fund með ráðhermm sínum, en þeir fara með stjóm landsins þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Konstantín konungur er nú á Korfu að halda upp á 19. afmælis- 100 FARAST I SKRIÐUFOLLUM NTB—Zermatt, mánudag. Allt að hundr- að manns fórust er skriða féll í Saas-dalnum í Sviss í dag. Féll hluti af Allalin-skriðjöklinum yf- ir verkamannaskála. Var unrnið þar að stíflubyggingu. Margir skúr ar grófust undir ís, snjq og möl. Atburðir þossi væð ; JÖukkan: 16.30 á mánudag. Flestir þeir, sem fórust voru ítalskir verkamenn. Björgunarstarf hófst þegar í stað, Gjaf ir til Gils- bakkakirkju. Eftir messu í Gilsbakkakirkju annan jóladag 1964 afhenti sókn- arpresturinn: séra Einar Guðna- son, kirkjunni veglega gjöf frá börnum séra Einars Pálssonar og frú Jóhönnu Briem til minningar um foreldra sína. Sóra Einar Pálsson var sóknar- prestur Gilsbakkakirkju frá 1918 til 1930, og voru þau hjón mikils virt af öllum sóknarbörnum fyrir framúrskarandi drengskap og prúð mennsku í allri kynningu. Gripir þessir eru 2 kertastjakar úr kop- ar og blómavasi, hinir vönduðustu og fegurstu gripir. Auk þess, sem gripir þessir eru mikil kirkju- prýði, munu þeir sífellt minna söfnuðinn á hin ástsælu prests- hjón og geyma minningu þeirra meðal safnaðarins. Á s. 1. hausti, er kirkjan var raflýst, gáfu konur safnaðarins kirkjunni 6 mjög vandaða vegg- lampa, hina beztu og fegurstu gripi. Fyrir allar þessar gjafir og þann góðvilja og vinarhug, er að .baki felst, vill sóknarnefndin f. h. safn- aðarins færa gefendum sínar inni- legustu þakkir með ósk um, að guð launi gefendum stórhug þeirra og velvilja í kirkjunnar garð. Sóknarnefndin. Heyskap að Ijúka ^ustarsfjalls STJAS-Vorsabæ, laugardag. Síðustu daga hefur verið góður heyþurrkur hér um slóðir, og margir bændur notað tækifærið að ljúka við heyskapinn. Sumir eru að heyja á engjum þessa dagana, Framhald á 14. síðu allar fáanlegar þyrlur sendar á I nesku lögreglunnar voru um vettvang og sjúkrabílar kvaddir hundrað manns að vinnu við stíflu frá nærliggjandi héruðum. gerðina og í skúrunum, er skriðan Samkvæmt upplýsingum sviss-1 féll. haldið fyrir stjóriíendur lúðrasveita HÓL-Reykjaví'k, föstudag. Stjóm Sambands íslenzkra lúðrasveita (SÍL) efnir í haust til námskeiðs fyrir stjórnendur lúðra sveita og aðra áhugamenn um málefni lúðrasveita. Verður nám- skeiðið haldið í Reykjavík dagana 9—19 september n. k., og verður sett af formanni SÍL, Halldóri Einarssyni, í Hljómskálanum hinn 9. september kl. 14. Aðalkennarar á námskeiðinu verða Páll Pampichler Pálsson, sem kennir hljómsveitarstjórn, bæði fræðilega og verklega á æf- ingum lúðrasveitanna í Reykjavík, og Jóhann Moravek Jóhannsson, sem kennir raddfærslu og vinnu- brögð, er lúta að gerð nótna fyrir lúðrasveitir. Páll ísólfsson, Jón Þórarinsson o. fl. flytja erindi á námskeiðinu. Áformað er að kennt verði fimm stundir á dag meðan nám- skéiðið stendur yfir, auk þess að farið verður í heimsóknir á kvöld- æfingar lúðrasveita. Þátttakendur geta því eigi ætlað sér önnur verk- efni samtímis námskeiðinu. Flestar þær lúðrasveitir, sem eru aðilar að Sambandi islenzkra lúðrasveita munu senda þátttak- endur á námskeiðið, en allar þátt- tökutijkynningar hafa enn eigi borizt. Kennslan á námskeiðinu verður nemendum að kostnaðar- lausu. í SÍL eru nú 16 lúðrasveitir og má ætla að í þeim séu um 300 manns. Sambandið veitir lúðra- sveitunum þá aðstoð, sem um er beðið. Auk þess vinnur það að nótnaútgáfu, og vinnur Moravek nú að útsetningu íslenzkra laga fyrir lúðrasveitirnar. Einnig hef- ur sambandið áhuga á, að sam- Framhaid á 14. síðu dag konu sinnar, en er væntan- iegur til Aþenu í kvöld. Tsirimokos sagði af sér í gær, eftir að gríska þingið hafði fellt traustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina. Vantaði Tsirimokos 24 atkvæði til þess að halda velli. Eftir ríkisráðsfundinn í dag sagði Tsirimokos að stjórn sín væri sammála um að ekki beri að efna til þingkosninga í landinu. Mikil eftirspum eftir miðum á bitlatónleikana f gær hófst aðgöngumiðasala að fyrstu bítlatónleikum haustsins, sem verða í Háskólabíói 7. og 8. sept. og verður ekki annað sagt en að miðarnir hafi runnið út eins og heitar lummur. Þeir sem leika á þessum hljómleikum eru Brian Pools and the Tremoles, sem vel- þekktir eru hér á landi fyrir mörg góð lög, og íslenzku hljómsveitim- ar Ponik, Dátar og Toxic. Þor- steinn Eggertssonn sem_ eitt sinn var nefndur Presley íslands á „rokkárunum" kemur og fram á tónleikunum ásamt gamanvísna- söngvaranum Alla Rúts frá Siglu- firði. Brian Pools and the Tremol- es munu koma hingað til lands mánudaginn 6. sept. Næturfrost STJAS-Vorsabæ, laugardag. Síðast liðna föstudagsnótt var hér allmikið næturfrost og féll kartöflugras. í gærmorgun mátti sjá reykjastróka stíga í loft upp sums staðar á suðursléttunni, þar sem bændur voru að verja garð- lönd sín fyrir frostinu. ATHUGASEMD FRÁ MEISTARA- FÉLAGI HÚSASMIÐA Minningarsjóður Olavs Brunborgs sud. oecon. Úr sjóðnum verður íslenzkum stúdent eða kandidat veittur sfyrkur árið 1966 til náms við norskan háskóla. Styrkurinn er að þessu sinni 2300 norskar krónur. Umsóknir skulu sendar Háskóla íslands fyr- ir 1. október 1965. Æskilegt er, að umsækjendur sendi með umsókn skilríki um námsferil sinn og ástundun. (Frá Háskóla íslands) Vegna greinar er birtist í dag- blaðinu Tíminn 20. ágúst sl., og ber fyrirsögnina „Uppmæling á steypumótum tvöfaldaði vinnu- launin“ telur Meistarafélag húsa- smiða rétt að eftirfarandi komi fram, vegna umsagnar Trésmiða- félags Reykjavíkur um A1 Capone aðferðir í sambandi við móta- smíði, sem ræddar eru í blaðinu, og dálkum Hannesar á horninu í Alþýðublaðinu daginn áður. Talsmaður Trésmiðafélags Reykjavíkur segir: „Þá eru þær samningsbundnar og lo’glegar og meistarinn hirðir af þeim minnst tuttugu prósent." Þar sem talað er um samninga- bundna texta hlýtur að vera átt við þá samninga, er síðast voru í gildi á milli Meistarafélags húsa- smiða og Trésmiðafélags Reykja- víkur, það er að segja samning- inn sem gerður var 22. janúar 1964. og framlengdur án breyt- inga, er þetta atriði snertir 23. janúar 1965 En þar segir:. „Samningsaðilar komi sér sam- an um að skipa nú þegar nefnd í sambandi við ákvæðisvinnu. Nefndin skal skipuð einum manni frá hvoru félagi og hlutlausum að- ila, tilnefndum af Iðnaðarmála- stofnun íslands. Verksvið nefnd- arinnar er að taka við kvörtun- um í sambandi við verk, er þykja koma út óeðlilega há eða lág. Kæruaðild hafa sveinar, meistar- ar og verkkaupi. Þá teljum við ástæðu til að leiðrétta þá fullyrðingu Trésmiða- félags Reykjavíkur, að meistarinn hirði minnst 20% af vinnulaunun- um. Það er rétt, að innheimta má 20% álag á vinn-ulaun, en það fer ekki allt í vasa meistarans. Hluti af því er hrein innheimta fyrir það opinbera, svo sem launa- skattur, Iðnlánasjóðsgjald og að- stöðugjald, sem allir verða að greiða sem atvinnurekstur hafa og koma fram sem atvinnurekendur. Einn hluti af þessum 20% á að mæta lögboðnum og samnings- bundnum greiðslum vegna veik- indadaga, sem fara ört vaxandi, og er ekki orðinn lítill liður í kostnaði við atvinnureksturinn, Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.