Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 122. tbl. 71. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Andspyrnumenn fara halloka í Pansjher-dalnum Nýju Delhí. 29. mai. AP. FiÖLMENNT SOVÉSKT herlið og afganskir stjórnarhermenn hafa komið sér vel fyrir i hinum hernaðarlega mikilvæga Panjsher-dal. Hafa þeir hreiðr- að um sig i 45 stöðum og hafa því sem næst einangrað andspyrnusveitirnar frá vopna- og vistaflutningum. Ekki hefur verið barist nýlega í sjálfum dainum, en í nokkrum afdölum halda andspyrnumenn enn út og gera Rússum skráveifur. Sovéskur hershöfðingi lést í Panjsher-dal fyrir fáum dögum, er þyrla sem hann var í varð fyrir eldflaug andspyrnumanna. Hann er sá þriðji sem drepinn er á síðustu vikum. Vestrænir diplómatar greindu frá ofangreindum tíðindum og sögðu þeir andspyrnumenn standa höllum fæti í dalnum. Hershöfð- inginn var ekki nefndur, en það fylgdi frásögninni að hann hafi verið við áttunda mann í eftirlits- ferð á svæði í Panjsher-dal sem átti að heita í öruggum höndum Rússa. Eldflaug hæfði þyrluna sem sprakk í loft upp og fórust allir um borð. Þá veittu andspyrnumenn sov- éskri herflutingalest fyrirsát i Al- odany-dal í suðurhluta Ghazni. Drápu þeir 30 sovéska og afganska hermenn, eyðilögðu sex skriðdreka og fimmtán vörubíla hlaðna vopn- um og vistum. Rússar hefndu fyrir með loftárásum á þrjú nærliggj- andi þorp og létust 15 andspyrnu- menn og 15 óbreyttir borgarar. Margir særðust. Noregur: Stjórnin afstýrði verkfallsaðgerðum <)sló, 29. mai. Frá Jan Erik Laure fréttar. Mbl. NORSKA STJÓRNIN kom í dag í veg fyrir vaxandi verkfallsaðgerðir sem hefðu meðal annars lamað allar samgöngur innanlands og í flugi, með því að vísa kjaradeilunni til gerðardóms. Stjórnin hefur slík völd, að um leið og tilkynnt var um þetta, ólögleg. Stjórnin greip í taumanna vegna þess að lítið sem ekkert hafði þokast i samkomulagsátt á sáttafundum og mikið neyðar- ástand hefði skapast á miðnætti þar sem verkalýðsleiðtogar höfðu fyrirskipað mörgum hópum að taka þátt i aðgerðunum, þar á meðal lestarstjórum og flugvirkj- um á helstu flugvöllum. Hefðu slíkar aðgerðir stöðvað lestar- samgöngur og allt flug til og frá landinu. Illt ástand hefur verið að ýmsu leyti í Noregi í viku vegna aðgerðanna, póstur hefur ekki borist, útsendingar sjónvarps hafa mikið verið skornár niður og þannig mætti áfram telja. voru hin fyrirhuguðu verkföll orðin Svo virðist sem veður ætli ekki að verða vegna innígrips stjórnar- innar, flestir verkalýðsforingjar skipuðu sínu fólki nær samstundis að hefja aftur vinnu og er ástand- ið óðum að nálgast eðlilegt horf. Talsvert greinir á milli í viðræð- unum milli launþega og ríkisins, en það eru einungis opinberir starfsmenn sem verið hafa í verk- föllum. Verkalýðsfélögin hafa heimtað 6,4 prósent kauphækkun, en stjórnvöld ekki boðið hærra en 5,9 prósent. 15.000 ríkisstarfs- menn og 10.000 til viðbótar á mála sveitastjórna, hafa tekið þátt í hinum vikulöngu verkföllum. Botha vel tekið í Portúgal Mario Soares, forsætisráðherra Portúgal, tók í dag á móti P. W. Botha, forsætisráðherra Suður-Afríku, en sá síðarnefndi kom þangað ( opinbera heimsókn. Var Portúgal fyrsti viðkomustaðurinn af nokkrum sem Botha hyggst heimsækja. Botha var tekið vei í Portúgal svo sem sjá má, Soares er til vinstri, en Botha til hægri. Sjá nánar á bls. 20. Símamynd AP. George Schulz: NATO-löndin verða að treysta böndin Wa.shington, 29. maí. AP. Utanríkisráðherrar Atlantshafs- bandalagsins hófu í dag þriggja daga fundahöld í Washington, en þau eru í tilefni af því að 35 ár eru Íiðin frá því að bandalagið var stofn- að. George Bush, varaforseti Bandaríkjanna setti fundinn í dag og sagði þá meðal annars að „ævintýramennska Sovétmanna væri heiminum hættuleg, því yrðu NATO-þjóðirnar að standa saman og treysta böndin sín á milli". Hann sagði einnig að vegna þessa væri þeim mun meiri ástæða til að komast að samkomulagi við Sov- étríkin til þess að eðlileg sambúð gæti orðið. Joseph Luns, framkvæmdastjóri NATO, sem lætur af embætti í næsta mánuði, tók einnig til máls. Hann sagði að bandalagslöndin yrðu að vara sig á því að láta fjar- lægðina á milli Bandaríkjanna og Vestur Evrópu mynda gjá á milli sín, allan ágreining yrði að leysa áður en hann fengi tækifæri til að verða djúpstæður. „Ég óttast ekki óeiningu innan bandalagsins, en löndin verða að vinna að því að efla traust og samstöðu," sagði Luns. Ráðherrarnir ræddu eitt og annað á fundi sínum, viðhorf Sov- étmanna til afvopnunarmála, stríðið við Persaflóa, meðaldrægu kjarnorkuflaugarnar sem setja á niður í Hollandi á næstunni og fleira. Á morgun halda fundahöld áfram. Saudi Arabar fá loftvarn- areldflaugar Geir Hallgrfmsson og Caspar Weinberger á fundi: Ræddu flutninga til varnarliðsins og framkvæmd varnarsamstarfsins Joseph Luns kvaddur í Washington — kemur hingað í næstu viku GEIR HALLGRÍMSSON utanríkisráðherra hitti Caspar Weinberger varn- armálaráðherra Bandaríkjanna í Washington í gær. Strax eftir fundinn hélt utanríkisráðherra út fyrir Washington með þyrlu til fundar við starfsbræð- ur sína frá öðrum Atlantshafsbandalagsríkjum. Sitja ráðherrarnir þar fund ásamt fastafulltrúum í NATO þar til síðdegis í dag, miðvikudag. Samkvæmt heimildum Mbl. stóð fundur Geirs Hallgrímsson- ar og Caspar Weinbergers skem- ur en fundur þeirra Geirs og George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna á föstudag. Um- ræðuefnið á fundunum var að verulegu leyti hið sama: sjóflutn- ingar fyrir varnarliðið á Keflp- víkurflugvelli milli íslands og Bandaríkjanna. Á mánudag kom bandarískt skip til Njarðvíkur með varning til varnarliðsins í fyrsta sinn í 17 ár. Beita Banda- Geir Weinberger ríkjamenn fyrir sig einokunarlög- um frá 1904 en krafa íslendinga er, að jafnræði ríki milli skipafé- laga þjóðanna. Þá ræddu ráð- herrarnir einnig um framkvæmd varnarsamningsins. Síðdegis í dag snúa ráðherrarn- ir aftur til Washington og þinga þar áfram þar til á fimmtudag. Á NATO-fundinum kveðja utanrík- isráðherrarnir Joseph Luns, framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins, sem lætur af störfum undir lok næsta mánað- ar. Luns er væntanlegur hingað í kveðjuheimsókn í næstu viku. Helsta umræðuefnið á utanrík- isráðherrafundinum snertir sam- skipti austurs og vesturs, og verð- ur m.a. fjallað um leiðir til þess að taka aftur upp viðræður við Sovétríkin um afvopnunarmál. Manama, Hahrain, 29. mai. AP. Bandaríkjastjórn hefur staðfest að Saudi Arabar hafi fengið frá þeim 400 Stinger loftvarnareldflaugar ásamt skotpöllum og hafi vopnin komið til skila á mánudaginn. Ætla Saudi Arabar að efla með þessum hætti skipavernd á Persaflóa , reyna að koma í veg fyrir að íranir og írakar leggi til atlögu við flutn- ingaskip eins og verið hefur. Banda- ríkin hafa marglýst yfír að þau muni leggja sitt af mörkum til að halda siglingaleiðunum um Persaflóa opnum og er þessi vopnafíutningur liður í því. Ali Khamenei, forseti írans, endurtók í dag herskáar hótanir í garð Bandaríkjanna, „ef þau kysu að sökkva til botns í Persaflóa, þá byði íranska þjóðin þá velkomna í heilagt stríð." Róið er að því öllum árum að koma á friði eftir diplómatískum leiðum, sendi- nefndir Saudi Arabíu, Kuwait og írak hafa reynt að fá Japan og Frakkland til að tala um fyrir ír- önum, en stífni þeirra kemur í veg fyrir viðræður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.