Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984 SkálholLsbúðir. Stóri skálinn t.v. og minni húsin, sem hentug eru til dvalar fyrir fjölskyldur og minni hópa. Skálholtsbúðir: Opnar öllum, sem vilja vist í Skálholti í SKÁLHOLTI voru til skamms tíma reknar sumarbúðir í Skálholtsbúð- um, þar sem born af Suðvestur- og Suðurlandi dvöldu. Hættu þessar sumarbúðir að starfa yfir sumartím- ann og urðu búðirnar að eins konar vetrarbúðum, þar sem þær nýttust einna helzt fyrir fermingarbarna- hópa. Dröbbuðust húsakynnin niður og skemmdust m.a. af gufu, þegar heitavatnslögn sprakk. Fyrir dulitlu síðan var hafin enduruppbygging á húsunum, sem Skálholtsbúðanefnd hefur haft umsjón með í umboði Kirkjuráðs. Formaður þeirrar nefndar er sóknarpresturinn í Skálholti, Guð- mundur ó. ólafsson. Sagði hanr., að þegar nefndin tók til starfa hefðu að heita má tvö hús verið ónýt og ónothæf. Stóri skálinn, sem keyptur var frá Búrfellsvirkj- un, var orðinn illa leikinn, enda hafði engu verið varið til viðhalds á þessum húsum í nokkur ár. Nú væri hins vegar búið koma tveimur húsum í gott horf og þau hafi þegar hlotið nokkrar vinsæld- ir. Væru það húsin, sem verst hefðu verið leikin af skemmdum. Unnið hefði verið jafnhliða að lag- færingum á stóra skálanum, eink- um eldhúsi og snyrtingum. — Hvers konar hús eru þetta? Þetta eru þrjú samskonar hús, sem henta vel fyrir fjölskyldur. í þeim eru tvö svefnherbergi, rúm- góð stofa, eldhússkrókur og snyrt- ingar með sturtu, en húsin eru hit- uð upp með heitu vatni. Stóri skál- inn er með rúm fyrir 35 manns og fleiri ef vill, stórum sal og öðrum minni. Er leiga svipuð og í öðrum orlofshúsum. — Hvernig hefur aðsókn verið? Fram til aprílloka hafa 350 manns gist í 405 nætur og tæplega 200 manns hafa óskað eftir dvöl í Skálholtsbúðum í sumar í alls 950 nætur. Er þetta gleðilegt, og það sem við í nefndinni teljum vera bezt, að þarna er á ferðinni fólk, sem við teljum að eigi erindi í Skálholt, sóknarprestar, ferming- arbörn, safnaðarfólk, guðfræði- stúdentar til lestrar, o.fl. Þá er sumarnotkun mikið að aukast, fjölskyldur, mótsgestir á mótum í Skálholti, söngfólk á námskeiði Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar, og einnig er ætlunin að bjóða er- lendum gestum aðstöðu í Skál- holtsbúðum. Skálholt er samnor- rænn staður í sögulegum skiln- ingi. Kom það glöggt fram við byggingu kirkjunnar. Skálholt hefur öll skilyrði til að laða fólk að sér, ekki aðeins íslenzkt fólk held- ur einnig erlenda menn. — Svo allir geta fengið leigt í Skálhotsbúðunum? Já. Húsin eru hentug til skemmri dvalar, hvort sem er að vetri eða sumri og meðan ekki er fullt eru Skálholtsbúðir opnar öll- um til orlofsdvalar, sem vilja vist í Skálholti. — Verður um áframhaldandi uppbyggingu að ræða í Skál- holtsbúðum? Uppbygging heldur vonandi áfram og brátt veða þau hús kom- in í lag, sem enn er eftir að gera við. Stefnt er að því að byggja glerskála við stóra skálann og þegar fjárhagur leyfir verður byggður skjólgarður við minni húsin og gjarnan komið þar upp heitum pottum við hvert hús úti og byggð verður sundlaug þegar frá líður. Það er veðursælt undir klettunum við búðirnar og útivist- arsvæði gott, en fjárhagurinn hef- ur verið þröngur, svo ekki hefpr verið gerlegt að gerá mikið fyrir umhverfið. __ pþ_ Stokkseyringa- félagiö til Eyja Stokkseyringafélagið í Reykjavík og nágrenni áformar ferðalag til Vestmannaeyja á Jónsmessu, 22.-24. júní nk. ef næg þátttaka fæst. Farið verður með Ilerjólfi 22. júní og gist í tvær nætur í Eyjum. Einnig er hægt að fara flugleiðis 23. júní og heim að kvöldi sama dags. Nánari upplýsingar veita stjórnar- menn í félaginu. Verkmenntaskólinn á Akureyri: Ráðið í kennarastöður Akureyri, 29. maí. EINS og áður hefur koraið fram í fréttum, hefst kennsla við hinn nýja Verkmenntaskóla á Akureyri í haust og mun hann taka við þeirri kennslu, sem framhaldsdeildir gagnfræðaskóla, iðnskóli, hússtjórnarskóli o.fl. hafa sinnt fram að þessu. í bókun frá skólanefnd Verk- menntaskólans frá 24. maí sl. kemur fram, að Bernharð Har- aldsson hefur verið endursettur skólameistari hins nýja skóla um eins árs skeið og jafnframt, að eft- irtaldir kennarar hafa verið skip- aðir við skólann: Aðalgeir Pálsson, Háagerði 4, Árni ólafsson, Þór- unnarstræti 110, Ingunn Björns- dóttir, Hrafnagilsstræti 39, Karl Stefánsson, Þingvallastræti 24, Margrét Kristinsdóttir, Aðal- stræti 82, Ólöf Þórhallsdóttir, Skóiastig 3, Kolfinna Gerður Pálsdóttir, Vallartröð 2, Hrafn., Svavar Guðni Gunnarsson, Mýr- arvegi 116, og Örlygur fvarsson, Kvistagerði 6. f sömu bókun kemur og fram að eftirtaldir kennarar hafa verið settir kennarar við skólann til eins árs: Adam Á. Óskarsson, Tjarnarlundi 2e, Aðalgeir Tómas Stefánsson, Brálundi 1, Albert Sölvi Karlsson, Eiðsvallagötu 28, Ágúst Ólafsson, Ásvegi 17, Árni Árnason, Akurgerði lb, Árni Steinsson, Tjarnarlundi 19b, Ásdís Karlsdóttir, Norðurbyggð lb, Baldvin J. Bjarnason, Hrafna- gilsstræti 8, Brynjar Ingi Skapta- son, Furulundi 4i, Edda Magnús- dóttir, Beykilundi 10, Erna Hildur Gunnarsdóttir, Ásvegi 28, Friðrik Þorvaldsson, Hamarsstíg 18, Garðar Pétur Ingjaldsson, Lang- holti 28, Guðlaug Hermannsdóttir, Lögbergsgötu 7, Gunnar Stein- dórsson, Espilundi 4, Gunnlaugur Björnsson, Lerkilundi 36, Hans Tómasson, Grenivöllum 30, Hauk- ur Jónsson, Hjallavegi 3g, Njarð- vík, Hinrik Þórhallsson, Vana- byggð 4b, Haukur Harðarson, Víðilundi 6g, Hrefna G. Torfa- dóttir, Suðurbyggð 27, Jónas Stef- ánsson, Bröttuhlíð 1, Jónhildur Valgeirsdóttir, Heiðarlundi 7e, Margrét Pétursdóttir, Hrísalundi 6g, Nanna B. Þórsdóttir, Möðru- vallastræti 6, Óttar Einarsson, Þórunnarstræti 89, Óttar ólafs- son, Rauðalæk 23, Rvík, Pétur Jós- efsson, Heiðarlundi 6b, Sigurður Ólafur Jónsson, Suðurbyggð 17, Torfi Leósson, Austurbyggð 11, og Þröstur Ásmundsson, Hafnar- stræti 18b. GBerg Laufey Sigurðardóttir Selma Guömundsdóttir Tónleikar í Þorlákshafnarkirkju LAUFEY Sigurðardóttir, fiðluleikari og Selma Guðmundsdóttir, píanóleikari halda tónleika i Þorlákshafnarkirkju, fimmtudaginn 31. maí, og hefjast þeir klukkan 17.00. í fréttatilkynningu Tónverks sf. segir að á efnisskrá séu fiðlusón- ötur eftir W.A. Mozart og Edvard Grieg og fjögur lög op. 17. eftir Josef Suk. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Fiskiskip til sölu 120 lesta byggt 1972, aðalvél cat. 750 ha 1983 skipti á 70—100 lesta skipi æskileg. 150 lesta byggt 1960 aöalvél brons 750 H.A. 1974 250, 275, 173 lesta loðnuskip meö nýj- um vélum. Fiskiskip Austurstræti 6, 2. hæð, sími 22475. Heimasími sölumanns 13742. til sölu Kjötiðnaður Til sölu þekkt kjötiðnaðarfyrirtæki í fullum rekstri í eigin húsnæði með góð viðskipta- sambönd. Uppl. veita eftirtaldir lögmenn: Guðjón Hólm hdl., sími 10950 og 26400, og Skarphéðinn bórisson hrl., sími 25535. Range Rower 1978 ekinn 51 þús. km, til sölu. Nýlega yfirfarinn hjá umboði með góöu lakki, sóllúgu, tveim dekkjagöngum og stereótækjum. Skipti og skuldabréf koma til greina. Upplýsingar í síma 97-5226. húsnæöi f boöi Skrifstofuhæð Til sölu björt og skemmtileg 5 herb. skrif- stofuhæð í miðborginni (Hafnarstr.). Uppl. sími 11590 og 16290. Sóleyjargata Mjög falleg 4ra—5 herb. íbúö til leigu í ca. 6 mánuði. Losnar fljótlega. Upplýsingar í síma 97-5226. Húsnæði f miðbæ Hafnar- fjaröar til sölu eða leigu Húsnæðiö er um 800 fm og selst eða leigist í heilu lagi eða hlutum. Húsnæðið er fullinn- réttað í 60—200 fm einingum og hentar vel fyrir hverskonar þjónustustarfsemi. Allar nánari upplýsingar gefur Trausti Ó. Lárusson í síma 53747 á skrifstofutíma og í síma 53566 á kvöldin. ýmislegt Bílasala til leigu Af sérstökum ástæðum er bílaleiga í fullum rekstri á góðum stað í bænum til leigu. Miklir möguleikar til aukinnar veltu fyrir duglega samhenta menn. Þeir sem hafa áhuga leggi tilboð á augl.deild Mbl. merkt: „Bílasala — 1967“ fyrir 7. júní nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.